Vísir - 27.09.1977, Blaðsíða 13
„VONA BARA AÐ ÞEIR
LEIKI VARNARLEIK"
— segir George Kirby, þjálfari Akranesliðsins í knattspyrnu, sem mœtir norska liðinu Brann
i siðari leik liðanna í Evrópukeppninni á Akranesi á morgun
,,Ég verð að segja það að ég er
bjartsýnn á að okkur takist að komast
áfram I 2. umferð Evrópukeppninn-
ar,” sagði George Kirby, þjálfari
Akranesliðsins i knattspyrnu, sem á
morgun mætir norska liöinu Brann í
,,Við höfuni ávallt getað leitað til
fólksins uppi á Akranesi og það ætlum
við að gera núna”, sögðu forráöamenn
Knattspyrnuliðs Akraness á fundi með
blaöamönnum um helgina.
,,Að sjálfsögðu er það stór ákvörðun
að fara með leikinn upp á Skaga en við
teljum að fólkið þar, sem hefur stutt
okkur svo vel eigi það skilið að fá
Evrópuleik upp eftir, og þvi ráðumst
við i þetta.
Þvi er heldur ekki að leyna að bæjar-
stjórnin heíur reynst okkur sérstak-
lega hjálpleg. Þeir verðlaunuðu lið
okkar með 750 þúsund króna peninga-
gjöf er við unnum Islandsmótið og þeir
hafa ráðist i fjárfrekar framkvæmdir
á vellinum til að hann verði löglegur
fyrir Evrópukeppni. Gera þurfti ýms-
siðari leik liðanna á Akranesi.
„Þeir spila góða knattspyrnu, stutt-
ar sendingar og oft skemmtilegar
fléttur, og við vorum heppnir úti að
sleppa með 0:0 eftir fyrstu 10
minúturnar.
ar breytingar, s.s. á gönguleið leik-
manna og dómara til og frá búnings-
klefum að vellinum, girða áhorfendur
af og setja upp aðstöðu fyrir blaða-
menn. Þetta fáum við allt, varanlegar
framkvæmdir, og þvi fögnum við
mjög.
Þá gr það ekki ónýtt fyrir okkur að
finna hvað alíur almenningur styður
við bakið á okkur. Ollum verslunum
verður lokað kl. 16,30, hálftima fyrir
leikinn og við erum bjartsýnir á að við
fáum þann áhorfendafjölda á leikinn
sem viðþurfum tilað sleppa fjárhags-
lega út úr þessari þátttöku.
Akraborgin fer sérstaka ferð upp á
Akranes kl. 15.45 og til baka að leik
loknum, og er ekki að efa að það fara
margir upp á Skaga með henni.
En við áttum einnig okkar tækifæri i
leiknum, og það hefði ekki verið
ósanngjarnt að við hefðum náð jafn-
tefli. Þess vegna er ég bjartsýnn á að
við vinnum þá á Akranesi á morgun
með a.m.k. 2:0.
Ég vona bara að þeir stilli upp á að
spila varnarleik, þvi að satt að segja
sýndist mér vörnin hjá þeim ekki það
traustvekjandi að það þurfi að hafa
miklaráhyggjur.Það ersamtbetra að
búa sig undir harða viðureign þvi að
þeir gefa örugglega hvergi eftir og
ætla sér áfram eins og við.
Og eitt hafa þeir óneitanlega fram
yfir okkur, en það er það atriði að
keppnistimabilið stendur enn yfir hjá
þeim og þeir eru því i leikæfingu.
Þessu lýkur alltof snemma hjá okkur,
Kostar
3 millj.
Það er dýrt fyrir islensk knatt-
spyrnuliðað taka þátt i Evrópukcppni
í knattspyrnu. A blaðamannafundi
með forráðamönnum Akranesliðsins
upplýsti Gylfi Þórðarson að þátttaka
Akraness vegna leikjanna við Brann
kosti um 3 milljónir króna.
Til þess að endar nái saman og þeir
sleppi án fjárhagslegs skaða frá þess-
um leikjum verða þeir að fá um 2000
manns á völlinn, að sögn Gylfa.
það er allt of langt á milli siðustu
leikja i fslandsrhótinu og i Evrópuleik-
ina. Þetta er slæmt, en kemur vonandi
ekki að sök á morgun, því að við höfum
búið okkur vel undir leikinn.
Gerðu okkur
erfítt
fyrir ytra!
„Þvi er ekki að leyna að Norðmenn-
irnir rey ndu á ýmsan hátt að gera okk-
ur erfitt fyrir þegar við lékum við þá i
Noregi,” sagði Kristján Sveinsson for-
maður Knattspyrnuráðs Akraness, á
fundi mcð blaðamönnum um helgina.
„Þetta var þó ekki alvariegt, en
greinilega gert i þeim tilgangi að
koma okkur úr jafnvægi. Við vorum
t.d. látnirsjá um okkur sjálfir og feng-
um ekki mann til að vera með liðinu og
þegar við fórum á æfingu voru engir
boltar.
Ég skora þó á alla sem mæta á leik-
inn á Akranesi á morgun að sýna
Norðmönnunum kurteisi, og dómaran-
um einnig, hvernig sem leikurinn þró-
ast. Við erum, eins og öll lið þessa dag-
ana, undir smásjánni hvað ólæti varð-
ar á Evrópuleikjum, og ef eitthvað ber
Ut af á Akranesi, þá getur það komið
liðinu okkar mjög illa, jafnvel kostað
brottvisun og útilokun frá þátttöku
næstu árin.
gk—•
„Fólkið ó skilið að
fá Evrópuleik"
— segir forráðamenn ÍA og fara með
Evrópuleikinn upp á Skipaskaga
mf' *>'■"
■
Jón Gunnlaugsson f skotfæri I leik gegn Fram i dögunum. Vonandi fær hann mörgsvona tækifæri ileiknum gegn Brann á morgun. Leikmenn Brann komutil
iandsins I gærkvöldi, og æfa I Reykjavik I dag en halda upp á Akranes á morgun. Ljósm. Einar
VISIR
VÍSIR
Þriðjudagur 27. september 1977
Jón Sigurðsson á æfingu hjá nýja félaginu i gærkvöldi, I góðum félagsskap þeirra Kolbeins Fálssonar, Andrew Piazza og Einars Boliasonar.
Þessir fjórir eiga senniiega eftir að gera það gott fyrir KR í vetur.
Ljósm. Einar
JON SIG. GENGUR
í RAÐIR KR-INGA
— Ekki sáttur við áhugaleysið i Ármanni, segir þessi frábœri leikmaður sem
mun styrkja KR-liðið geysilega
Það er óhætt að segja að „stóra
bomban” hafi sprungið i körfu-
knattleiksheiminum um helgina,
en þá hóf Jón Sigurðsson, hinr.
frábæri körfuknattleiksmaður úr
Armanni að æfa með KR, og með
þvi félagi mun hann leika i vetur.
Jón tilkynnti félagaskipti á dög-
unum til Körfuknattleikssam-
bandsins, og i siðustu viku kom
staðfesting frá sambandinu. Jón
mun þvi leika með KR i fyrsta
skipti i siðari hluta Reykjavikur-
mótsins.
„Ég verð að segja alveg eins og
er, að ég var ekki ánægður hjá
Ármanni undir lokin. Það virðist
vera algjört áhugaleysi hjá félag-
inu á að reyna að gera einhverja
stóra hluti, og ég bara dreif mig i
að skipta um félag.
Mér list alveg stórvel á mig hjá
minu nýja félagi, og ég er viss um
IS fékk
NM-titil
að ég get hvergi fengið betri
þjálfun en hér. Ég hef fylgst með
Bandarikjamanninum Andrew
Piazza, hvernig hannstjórnar æf-
íngum liðsins, og ég er stórhrif-
inn. Það verður gaman að
þessu!”
Jón tjáði okkur að hann hefði
ekki getað æft eins og hann hefði
óskað tvö siðustu keppnistimabil
þvi að hann hefði staðið i ibúðar-
kaupum og þvi unnið mikið.
„En ég var ákveðinn i að æfa á
fullum krafti i vetur og gera eitt-
hvað stórt, og þegar ekki virtist
vera áhugi i Armanni var bara
ekki um annað að ræða fyrir mig
en fara.
Það þarf varla að fara mörgum
orðum um það, hversu mikill
styrkur Jón mundi verða KR-ing-
um, enda hefur hann verið besti
körfuknattleiksmaður okkar i
mörg ár og leikmaður sem gæti
gengið inn i nær hvaða lið sem
væri i Evrópu.
Sömuleiðis er þetta nánast sem
„rothögg” á Armenninga, sem
hafa ekki aðeins misst þennan
frábæra leikmann frá siðasta
keppnistimabili, heldur einnig
bæði þá Simon Ólafsson og Björn
Magnússon, báða stóru menn
liðsins. Er ekki i fljótu bragði
hægt að imynda sér annað en að
Ármann verði i fallbaráttunni i
vetur, öfugt við það sem verið
hefur undanfarin ár.
gk—■
Hvað gera Framarar
gegn Start í kvöld?
— þeir leika siðari leik sinn við Start i UEFA-keppninni
á Laugardalsvelli kl. 17 í dag
Kvennalið tþróttafélags stúd-
enta i körfuknattleik kom heldur
betur á óvart i Danmörku úm
helgina, en þar fór fram Norður-
landamót háskóla i körfuknatt-
leik kvenna.
Ekki var búist við miklum af-
rekum af hálfu Is-liðsins, en þær
komu heldur betur á óvart kon-
urnar og sigruðu i mótinu. Keppt
var itveimur þriggja liða riölum,
ogvann IS alla leiki sina; og siöan
úrslitaleikinn einnig.
-gk
i dag kl. 17 hefst á Laugardals-
vellinum siðari leikur Fram og
norska liðsins Start í Evrópu-
keppni (Uefa-keppninni) i knatt-
spyrnu, en sem kunnugt er léku
Framarar ytra á dögunum.
Sá leikur var ein samfelld sorg-
arsaga hjá Fram og svo fór að
þeir töpuðu með engu marki gegn
6.
Að sögn manna sem þekkja vel
til norskrar knattspyrnu, þá er
hún i mjög svipuðum gæðaflokki
og knattspyrnan hér á landi,
þannig aö telja verður þessi úrslit
óraunhæf með tilliti til styrkleika
liðanna innbyrðis, enda sýna úr-
slitin i leik Akraness og Brann
það glöggt.
En hvað um það, Framarar
töpuðu þessum leik 6:0, og eiga
þvilitla sem enga möguleika á að
komast áfram i keppninni að
þessu sinni.
Þeir ætla þó ekki að gefast upp,
og er við ræddum við Svein
Sveinsson, formann Knatt-
spyrnudeildar Fram, sagöi hann
að þeir Framarar ætluöu sér að
vinna i leiknum ikvöld. Þeir væru
staðráðnir i þvi að tapa ekki
heimaleiknum.
Margir hugsa sennilega sem
svo.aðþaðþýöiekkert aövera að
fara á völlinn i kvöld, Framar-
arnir eigi ekki möguleika. En
þeim sömu er bent á að það má
búast við spennandi og opnum
leik ikvöld, sennilega reyna bæði
liðin sóknarleik, og spumingin er
hvort Fram tekst að hefna ófar-
anna ytra á dögunum og sigra.
Fram teflir fram öllum sinum
sterkustu mönnun i leiknum i
kvöld, nema Árna Stefánssyni
markverði sem er meiddur á
sjdkrahúsi.
United fœr að
vera með ófram
Á fundi sinum i gær breytti
Knattspyrnusamband Evrópu
þeirri ákvörðun sinni að reka
Manchester United úr Evrópu-
keppni bikarmeistara vegna
óláta stuðningsmanna liðsins i
Saint Etienne á dögunum.
Evrópusambandið kom saman
til fundar i Sviss i gær og tók þá
fyrir vörn United i málinu, og að
þcim fundi loknuni var ákveðið að
breyta fyrri dómnum. United fær
áfram að taka þátt i keppninni, en
liöiö verður að lcika heimaleik
sinn við St. Etienne i að minnsta
kosti 200 km fjarlægð frá
Manchester. Og aðauki var félgið
dæmt til að greiða mjög háar
sektir.
Frakkarnir óhressir
Forráðamenn franska liðsins
St. Etienne voru mjög óánægðir
með ákvörðum Evrópusam-
bandsins, og varaformaður
lélagsins, Ilenri Fielloux, sagði
aö þetta væri óskiijanleg
ákvörðun miðað við livað hefði
gerst i fyrri leik Unitcd og St.
Etienne.
„Mér finnst það vægast sagt
einkennileg og umdeild ákvörðun
að leyfa United þátttöku áfram.
Félaginu er refsaö, en þeim sem
áttu sök á þvi sein gerðist er gefið
annaö tækifæri til að endurtaka
allt saman”.
[ Auglýsið í Vísi )
Blakdeild Víkings
Æfingatafla 1977—1978
Vörðuskóli þriðjudaga Mf. karla Frúablak Old boys 18.30- 20.10 20.10-21.30 21.30- 22.50
Réttarhoitsskóli miðvikudaga 2. fl. karla mf. kvenna 20.45-22.00 22.00-23.15
Vörðuskóli fimmtudaga 2. fl. karla 1 Frúablak Old boys 18.30- 20.10 20.10-21.30 21.30- 22.50
Réttarholtsskóli föstudaga mf. kvenna mf. karla 20.45-22.00 22.00-23.15
Nýir félagar tilkynni sig í sima 38221.
Stjórnin
Unglingur
óskast til aðstoðar á skrifstofu við vélritun
og sendiferðir. Hálfsdagsstarf.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
22. september 1977.
Gjaldkeri
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða
gjaldkera frá og með 1. nóvember n.k.
Umsóknum skal skila á á sérstökum um-
sóknareyðublöðum fyrir 5. okt. til raf-
veitustjóra, sem veitir nánari upplýsingar
um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar