Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1989, Síða 32
1
ÞRÚSTUR
68-50-60
VANIR MENN
LOKI
Vill hún ekki opin-Bera?
Loönu landað í Krossanesi við Akureyri í gærmorgun. DV-mynd gk
Sigla í tæpa tvo sólar-
hringa með aflann
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þrátt fyrir að loðnuveiðisvæðið
þessa dagana sé nærri Vestmanna-
eyjum hefur loðna verið að berast til
Krossanesverksmiðjunnar við Akur-
eyri til bræðslu.
í gær komu þangað tveir bátar, Örn
KE og Súlan EA, og voru bátarnir
með samtals um 1500 tonn. Sigling
af miðunum við Vestmannaeyjar til
Krossaness við Akureyri tekur hátt
í tvo sólarhringa.
Steingrímur J. Sigfusson:
Gæti dregið til tíð>
inda í Arnarflugs-
málinu í dag
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra segir að til tíöinda
geti dregið í Amarflugsmálinu í dag.
Greinileg alvara var komin í viðræð-
ur Flugleiöa og samninganefndar
samgönguráðherra í gærkvöldi.
Fundað var megnið af deginum í gær
og um miðnættið kom ráðherra
skyndilega á fund nefndarinnar og
fundaði með henni í nótt.
Samninganefndin heldur fund með
Flugleiðamönnum í hádeginu í dag.
Líklegast heldur hún líka fund með
Arnarflugsmönnum.
Um það hvort ágreiningur sé í rík-
isstjóminni um Arnarflugsmálið
segir Steingrímur J. Sigfússon að svo
sé ekki. Jón Baldvin Hannibalsson
sagði hins vegar í blaðaviðtali í gær
að meirihluti stjórnarinnar væri ó-
sættur í málinu.
„Það er enginn ágreiningur á milli
mín og Jóns Baldvins eða annarra
ráðherra í þessu máli. Það er ein-
róma niðurstaða í ríkisstjóminni að
reyna þessa leið sem nú er reynd og
ræða við Flugleiðir."
-JGH
Veðrið á morgun:
Kvöss
norðan-
Á morgun verður norðanátt á
landinu, sumstaðar nokkuð
hvöss, og talsvert frost um allt
land. Éljagangur verður um
norðanvert landið en bjart syðra.
Frostið verður 5-11 stig.
K
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022
Frjalst,ohaö dagblaö
FOSTUDAGUR 24. FEBRUAR 1989.
Skákmótið í Linares:
Jóhann með
,w betri stöðu
gegn Sokolov
Jóhann Hjartarson er með betri
stöðu í biðskák gegn sovéska stór-
meistaranum Andre Sokolov úr 4.
umferð skákmótsins í Linares á
Spáni sem tefld var í gær. Þeir tefldu
enska leikinn og skákin fór í bið eftir
40 leiki. Vinni Jóhann þessa skák er
hann einn efstur á þessu firna sterka
móti sem er í 16. styrkleikaflokki.
Önnur úrslit í gær urðu þau
Karpov sigraði Yúsúpov í 42 leikjum
eftir enska leikinn í byrjun. Þeir
Ivantsjúk og Gulko, Timman og
Short og Portisch og Beljavskí gerðu
jafntefli.
Staðan eftir fjórar umferðir á mót-
inu er sú að Ivantsjúk er efstur með
2,5 vinninga og hefur setið yfir,
Karpov er með 2,5 vinninga, Jóhann
er í 3. sæti með 2,0 vinninga og bið-
skákina gegn Sokolov. í 4. sæti er
Ljubojevic með 2,0 vinninga en hefur
setið yfir.
-S.dór
kaupir málverk eftir Svavar Guðnason:
Neitar að g
hvert kaupverðið
Listasaí'n íslands hefur fest kaup
á málverkinu Gullfjöll sem er ab-
straktverk eftir Svavar Guðnason
sem hann málaði árin 1948-1949 og
er 66x96 sentímetrar að stærð.
Samkvæmt heimildum DV var
kaupverðið yfir 3 milljómr króna,
en Listasafn íslands hefur 7 millj-
ónir króna til málverkakaupa f ár.
Bera Nordal, forstöðumaður Lista-
safns íslands, var spurð hvort rétt
væri að verðið hefði verið 3,5 millj-
ónir?
„Það er ekki rétt, þetta er of há
tala.“
- En 3 milljónir, er það nærri lagi?
„Ég vil ekki að svo komnu máli
greina frá því hvert kaupverðið er
en það var stór biti af þeirri upp-
hæð sem við höfum til málverka-
segir Bera Nordal
kaupa,“ svaraði Bera Nordal.
Hún sagðist hafa kallað til fróða
menn að meta verkið og væri mjög
ánægð með að hafa fengið það.
Málverkið Gullfjöll væri eitt af
merkustu málverkum Svavars
Guðnasonar.
Björn Th. Björnsson listfræðing-
ur sagði að hér væri um að ræða
eitt af öndvegisverkum Svavars
Guðnasonar og fengur fyrir Lista-
safn íslands að hafa náð í það.
Miklar sögur ganga um mismun-
andi mat á þessu málverki. List-
fræðingar hafa nefnt tölurnar 1
milljón króna og upp í 10 milljónir.
Björn Th. vildi alls ekki leggja
verðmat á verkið, sagði það ekki í
sínum verkalming.
-S.dór
Loðnuveiðin:
Fjarkamótið:
Helgi heldur
í við Balasov
í gær var 9. umferð tefld á Fjarka-
mótinu í skák. Úrslit urðu þau að
Balasov sigraöi Björgvin Jónsson og
er einn efstur með 7 vinninga. Helgi
Ólafsson heldur í við Balasov og er
í 2. sæti með 6 vinninga eftir að hafa
sigrað Hodgson í gær. Watson sigraði
Sævar Bjamason, Margeir Péturs-
son sigraöi Sigurð Daða og Eingorn
sigraði Karl Þorsteins. Jafntefli
gerðu Jón L. og Þröstur Þórhallsson
og Tisdal og Hannes Hlífar.
Tíunda umferð mótsins verður
tefldídag. -S.dór
Frjóvguð egg flutt inn?
- Innflutning-
urdýra
rýmkaður
Fyrir Búnaðarþing, sem hefst á
mánudag, verða lögð drög að frum-
varpi sem fela í sér miklar breytingar
á innflútningi dýra.
Ef frumvarpið verður samþykkt
verður leyft að flytja inn fósturvísa
eða frjóvguö egg sem myndi flýta
mjög fyrir kynbótum hér á landi.
Yrði þá fósturvísunum komið fyrir í
skepnum hér á landi og yrði á
skömmum tíma hægt að koma upp
—■•Oiýjum stofnum búíjár hér. Búist er
við að frumvarpsdrög þessi fái mikla
umræðu enda menn ekki á eitt sáttir
um hversu örugg aðferð þetta er
gagnvart sjúkdómum.
Nefndin, sem samdi þessi drög,
skilaði þeim frá sér seint á síðasta
ári.
-SMJ