Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1989, Side 25
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989.
41
Merming
Rut Ingólfsdóttir - tónlist:
í forystu Kammersveitar
Reykjavíkur frá upphafi
„Úthlutunarnefndin var einróma
um aö verölaunin þetta árið ættu að
fara til Rutar Ingólfsdóttur fiðluleik-
ara með sérstöku tilliti til starfs
hennar við Kammersveit Reykjavík-
ur þar sem hún hefur verið í forystu
frá upphafl,“ sagði Douglas A. Brotc-
hie, formaður dómnefndar um tón-
hst, þegar hann afhenti Rut Ingólfs-
dóttur Menningarverðlaun DV í gær.
„í gegnum árin hafa efnisskrár
Kammersveitarinnar einkennst af
hugmyndaauðgi og tónleikamir af
sérstökum gæðum. Ég held að þeir
sem heyrðu muni seint gleyma ýms-
um tónleikum undanfarinna ára. Þar
má nefna Villa-Lobos á Kjarvalsstöð-
um og Britten Canticle í Bústaða-
kirkju.
Kammersveit Reykjavíkur á nú
fimmtán ára starfsafmæli og er sér-
staklega viö hæfi að sveitin skuli í
kvöld standa fyrir meiriháttar tón-
listarviðburði þar sem er flutningur
Des Canyons aux Etoiles eftir fransk-
atónskáldið Ohvier Messiaen. Flutn-
ingur þessa verks telst til stórtíðinda
hvarvetna i heiminum og er dæmi-
gerður fyrir hstrænan stórhug Rut-
ar.
Auk starfsins með Kammersveit-
inni hefur Rut leikið með Sinfóníu-
hljómsveitinni og komið fram sem
einleikari með henni. Hún hefur og
komið fram á fjölmörgum öðrum
tónleikum. Rut er ekki aðeins frábær
listamaður heldur verðugur fuhtrúi
Kammersveitar Reykjavíkur."
Hafði dómnefnd um tónhst úr
miklu að moða í tónhstarlífi ársins
1988 og bar nöfn Kristins Sigmunds-
sonar, Karóhnu Eiríksdóttur og
Garðars Cortes þar hátt.
Með Douglas A. Brotchie í dóm-
nefndinni voru Sigursveinn K.
Magnússon og Árni Tómas Ragnars-
son.
-hlh
Douglas A. Brotchie afhenti Rut Ingólfsdóttur Menningarverðlaun DV 1988
fyrir tónlist. Rut hefur verið í forystu Kammersveitar Reykjavíkur frá upp-
hafi eða í 15 ár.
Leifur Blumenstein og Þorsteinn Gunnarsson - byggingarlist:
Fagleg vinnubrögð þeirra
verði öðrum til eftirbreytni
Viðar Víkingsson fékk Menningarverðlaun DV fyrir kvikmyndagerð, sjón-
varpskvikmyndirnar Tilbury og Guðmund Kamban. Hilmar Karlsson sést
hér afhenda honum verðlaunin.
Viðar Vikingsson - kvíkmyndagerð:
Fagmennska og
listrænn metnaður
„Snemma á starfstíma nefndarinn-
ar kom sú hugmynd upp á yfirborðið
að skoða sjónvarpskvikmyndir gerð-
ar af kvikmyndagerðarmönnum.
Þeir eru í raun að fást við sömu hlut-
ina og aðrir kvikmyndagerðarmenn
þótt sýningarmátinn sé frábrugðinn.
Eftir því sem þessi hugmynd þróaðist
og farið var að skoða kvikmyndir í
þessum flokki var eitt nafn sem að
okkar mati stóð upp úr - Viðar Vík-
ingsson,“ sagði Hhmar Karlsson, for-
maður dómnefndar um kvikmynda-
gerð, þegar hann afhenti Viðari Vík-
ingssyni menningarverðlaunin í
gær.
„Tvær sjónvarpskvikmyndir eftir
Viðar, Thbury og Guðmundur
Kamban, eru verk sem mikla athygli
vöktu. Myndirnar eru ólíkar að efni
og efnistökum en bera báðar vott um
mikla fagmennsku og hstrænan
metnað.
Tibury er gerð eftir smásögu Þór-
arins Eldjárn. Viðari tókst vel að
koma sérstakri og skemmtilegri sögu
í kvikmyndaform og vakti þessi
mynd hans verðskuldaða athygh.
Heimhdarkvikmyndin um Guð-
mund Kamban var gerð í tilefni ald-
arafmæhs skáldsins. Vakti myndin
einnig mikla athygh og hrós allra
sem sáu. Hefur hún nokkra sérstöðu
í íslenskri heimildarmyndagerð."
Hhmar sagði annars að 1988 hefði
að vissu leyti verið gjöfult ár í ís-
lenskri kvikmyndagerð. Voru tvær
leiknar kvikmyndir í fullri gerð,
Foxtrot og í skugga hrafnsins, frum-
sýndar á árinu. Þar hafi verið tvær
kostnaðarsamar kvikmyndir sem
gefi hugmynd um hversu óhemju
dýrt er að búa til kvikmynd. Þá hafi
einnig verið frumsýndar þrjár stutt-
myndir eftir handritum sem Listahá-
tíð verðlaunaði.
Með Hilmari í dómnefndinni um
kvikmyndagerð voru Ingibjörg Har-
aldsdóttir og Baldur Hjaltason.
-hlh
Róbert Arnfinnsson fékk Menningarverðlaun DV fyrir leiklist. Var það Auð-
ur Eydaft.h., leiklistargagnrýnandi DV, sem afhenti honum verðlaunin. Hér
sjást þau ásamt Sigríði Þorvaldsdóttur.
„Val okkar var ekki erfitt. Við í
dómnefnd um byggingarhst urðum
fljótt sammála um að fyrir eitt fram-
úrskarandi vel unnið verk og
ánægjulegt í aha staði bæri að veita
Menningarverðlaun DV að þessu
sinni. Það er endurbygging Viðeyjar-
stofu og Viðeyjarkirkju. Höfundar
verksins eru þeir Þorsteinn Gunn-
arsson arkitekt og Leifur Blumen-
stein byggingafræðingur," sagði
Hróbjartur Hróbjartsson, formaður
nefndar um byggingarhst, við af-
hendingu menningarverðlaunanna í
gær.
„Eftir því sem við fáum séð hafa
þeir Þorsteinn og Leifur unrnð verk
sitt af stakri kostgæfni. Hafa þeir af
vísindalegri nákvæmni grafist fyrir
um og tekið tihit til upprunalegrar
hönnunar. Hafa þeir fyllt í eyður og
aðlagað nýrri notkun af þekkingu og
næmu hstfengi. Þeir Þorsteinn og
Leifur voru jafnframt svo lánsamir
að njóta skhnings og stuðnings borg-
aryfirvalda Reykjavíkur, sem að
miklum myndarskap stóðu að endur-
reisn Viðeyjarstofu og Viðeyjar-
kirkju.
Endurbygging gamaha húsa er sér-
stök grein innan byggingarlistarinn-
ar sem við íslendingar höfum þó ekki
Valgerður Torfadóttir - listhönnun:
íslensk hönnun á
framtíð fyrir
„Dómnefnd um hsthönnun hefur
ákveðið að Valgerður Torfadóttir
fatahönnuður fái Menningarverð-
laun DV fyrir árið 1988. í fatahönnun
sinni hefur Valgerður haft það sjón-
armið að leiðarljósi að hefta ekki lík-
amann. Hún vill undirstrika kraft
hans, frelsi og mýkt.
Á árinu 1988 hefur Valgerður
Torfadóttir ekki aðeins sýnt okkur
hversu kraftmikil og skapandi hún
hefur verið, heldur jafnframt sannað
að hönnun er hlekkur í keðju skap-
andi afla og frambærhegs hand-
verks. íslensk hönnun á framtíð fyrir
sér,“ sagði Torfi Jónsson, formaður
dómnefndar um listhönnun, í gær.
„Verk Valgerðar sýna að höfundur
hefur næma tilfinningu fyrir formi
og lit. Fatnaðurinn gefur formið, lík-
aminn er véhn sem knýr formið
áfram frá morgni th kvölds. Litir og
stemning eru í takt við tímann og
vottur af nrorænu yfirbragði leynir
sér ekki. Fötin eru þægheg í notkun
og auðvelt að víxla þeim á ýmsan
hátt.“
Torfi sagði síðan í stuttu máh frá
ferh Valgerðar þar sem hún lærði í
Texthdehd Myndhsta- og handíða-
skóla íslands og lærði sníðagerð í
Noregi. Eftir nám tók hún þátt í
ýmsum samsýningum á vegum Text-
ílfélagsins og Gaherí Langbrókar og
vann að hönnun smærri og stærri
hluta. í samstarfi við Björgu Inga-
dóttur hannar Valgerður nú fatnað
sem seldur er í sérverslun fýrir ís-
sér
lenskan fatnað i bænum og mun tatn-
aður þeirra hafa vakið verulega at-
hygli og vinsældir.
Með Torfa í dómnefnd um list-
hönnun voru Eyjólfur Pálsson og
Kristín ísleifsdóttir.
-hlh
Torli Jónsson afhendir hér Valgerði Torfadóttur fatahönnuði Menningarverð-
laun DV fyrir listhönnun. Listhönnun var hér verðlaunuð í annað skipti.
kynnst neitt að ráði fyrr en síðustu
20-25 árin. Almennur skhningur á
nauðsyn þess að varðveita og við-
halda byggingararfi okkar frá fyrri
tímum fer vaxandi og sem betur fer
hefur átt sér stað stökkbreyting á
þessu sviði.
Það er von okkar nefndarmanna
að fagleg vinnubrögð þeirra Þor-
steins og Leifs verði öðrum th eftir-
breytini.“
Auk Hróbjarts voru Reynir Ad-
amsson arkitekt og dr. Guðmundur
Hafsteinsson tónskáld í dómnefnd
um byggingarlist.
-hlh
Þorsteinn Gunnarsson og Leifur Blumenstein taka við Menningarverðlaun-
um DV fyrir endurbyggingu Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju. Hróbjartur Hró-
bjartsson arkitekt færði þeim verðiaúnin.