Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1989, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989.
9
Útlönd
:|s : :
Verðir keisarans bera kistu Hirohitos að við útförina i morgun.
Simamynd Reuter
Himinninn grét líka
Japanir kvöddu í dag sinn síðasta
mannlega guö með athöfn þar sem
viðstaddir voru vinir og fyrrum
óvinir alls staðar að úr heiminum.
Athöfnin hófst skömmu eftir dög-
un í morgun og hélt áfram með
þriggja klukkustunda útfararat-
höfn fyrir alla helstu þjóðarleið-
toga heims. Á meðan á þeirri at-
höfh stóð var ísköld rigning. Atöfn-
inni lýkur í kvöld með því að keis-
arinn verður lagður til hinstu hvílu
á kirkjugarði í vesturhluta Tokýo.
„Það voru hjörtu okkar sem feng-
u okkur hingaö til að sjá keisarann.
Þetta er í síðasta skipti sem hann
fer fram hjá fyrir framan augu
okkar,“ sagði sjötíu og flögurra ára
gamall syrgjandi.
Annar syrgjandi, fyrrum sfjóm-
arerindreki, hafði skýringar á
regninu á reiðum höndum, „Hi-
minninn er líka að gráta," sagði
hann.
Hirohito, sem var keisari í sextíu
og tvö ár, er fyrsti keisarinn í tvö-
þúsund ár sem er grafinn sem
maður en ekki sem guð. Hann af-
salaði sér guðstign eftir ósigur Jap-
ana í seinni heimsstyijöldinni.
Verðir keisarans báru kistu keis-
arans, sem vegur um fjögur hundr-
uð og fimmtíu kíló, til garðhýsis í
Shinjuku garði í Tokýo, þar sem
aðalathöfnin fór fram. Viðstaddir
voru leiðtogar rúmlega eitt hundr-
að og fimmtíu ríkja. Mörg þeirra
börðust gegn Japan í seinni heims-
styijöldinni.
Akihito keisari, sonur Hirohitos,
byijaði daginn með bænarstund í
höllinni. Hann fylgdi síðan kistu
fóður síns í garðinn. Nagao, ekkja
Hirohitos, sem er áttatíu og fimm
ára gömul, var sögð of veikburða
tii að vera viðstödd útfórina.
Við athöfnina voru fimmtíu og
fimm þjóðhöfðingjar, fjórtán með-
hmir konungsfjölskyldna og ellefu
forsætisráðherrar auk um það bil
tíu þúsund annarra boðsgesta.
Meðal þeirra sem voru viðstaddir
voru George Bush, forseti Banda-
ríkjanna, Filippus prins frá Bret-
landi, Mitterrand Frakklandsfor-
seti, Weizsaecker, forseti Vestur-
Þýskalands, Baldvin Belgíukon-
ungur, Benazir Bhutto, forsætis-
ráðherra Pakistan, og að sjálfsögöu
frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands.
Filippus prjns hneigði sig ekki
fyrir kistu Hirohitos en hann
hneigði sig fyrir Akihito. Margir
fyrrum hermenn í Bretlandi höfðu
krafist þess að Bretar sniðgengju
útförina vegna þeirra ódæðisverka
sem framin voru í nafni Hirohitos
í síðari heimsstyijöld. Reuter
Takeshita, forsætisráðherra Jap-
ans, vísar hér Benazir Bhutto, for-
sætisráðherra Pakistans, til sætis
síns í morgun við upphaf útfararat-
hafnarinnar. Simamynd Reuier
Það var aðallega eldra fólk sem
fylgdi gamla keisaranum til grafar.
Simamynd Reuter
Búddamunkar biðjast fyrir í regn-
inu i morgun. Þúsundir borgara
létu sig hafa það aö standa úti í
ískaldri rigningu til að votta keisar-
anum virðingu sína.
Símamynd Reuter
Barbara Cili, systir stúlkunnar sem skotin var til bana í Soweto í gær, hlaut
brunasár af völ.dum bensínsprengju sem byssumennirnir köstuðu inn á
heimili þeirra. Simamynd Reuter
Morð í Soweto
Suður-afríska meþódistakirkjan
hefur sakað Winnie Mandela, eigin-
konu blökkumannaleiðtogans, um
lygar til verndar lífvörðum sínum.
Kirkjan hafnar uppástungum um að
hún hafi tekið þátt í samsæri ásamt
suður-afrísku lögreglunni til aö
koma sök á lífverði Mandela.
Enn eitt morð var framið í gær sem
tahð er að tengja megi fyrri morðum
sem lífverðir Mandela eru sagðir við-
riðnir. Unglingsstúlka var skotin til
bana er ráðist var inn á heimili henn-
ar í Soweto. Bensínsprengju var
einnig kastaö inn í húsið. Lögreglan
rannsakar nú hvort um hefndarað-
gerðir hafi verið að ræða. Húsið til-
heyrði konú sem handtekin var í
sambandi við morðið á einum líf-
varða Mandela, Maxwell Madondo.
Reuter
Electrolux
útlitsgallaða kæli- og frystiskápa
með verulegum afslætti!
Vörumarkaðurinn
KRINGLUNNI SÍMI 685440