Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1989, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989.
ViðskiptL
Sala spariskírtema léleg:
Ríkið hefur misst milljarð
í spariskírteinum í burtu
Eigendur spariskírteina ríkissjóðs
hafa innleyst spariskírteini fyrir
rúma 1,4 milljarða króna frá áramót-
um. Á sama tíma hefur ríkissjóður
selt ný spariskírteini fyrir rúmar 500
milljónir króna. Þetta þýðir að 900
miRjónir í spariskírteinum hafa
horfið frá ríkissjóði og leitað eitt-
hvert annað á peningamarkaðinn.
Ríkisstjómin ráðgerir að selja
spariskírteini ríkissjóðs fyrir um 5,3
mfiljarða á þessu ári. Upphaflega var
ætlunin að selja 4,7 milljarða á árinu.
Það var sú upphæð sem rætt var um
að bankar og verðbréfasjóðir myndu
tryggja sölu á árinu. Upp úr þessum
viðræðum shtnaði og ríkissjóður á-
kvað sjálfur að koma inn á markað-
inn og selja spariskírteinin.
Öfluga sölukerfið ekki komið
Már Guðmundsson, efnahagsráðu-
nautur Ólafs Ragnars Grímssonar
fjármálaráðherra segir að þaö sem
hafi tafið fyrir sölu skírteinanna sé
skortur á öflugu sölukerfi. „Það
kröftuga sölukerfi sem við ætlum að
koma á er enn ekki komið tíl sögunn-
ar. Á meðan reka verðbréfasjóðimir
og bankarnir mjög harða sölu-
mennsku."
Bankamir og verðbréfasjóðimir
sátu uppi með um 1.700 miUjónir
króna í óseldum spariskírteinum í
lok síðastUðins árs. Þetta vom skír-
teini sem þessir aðUar vom búnir að
tryggja sölu á gagnvart ríkissjóði.
Forráðamenn bankanna og verð-
bréfasjóðanna segja að ástæðan fyrir
sölutregðu skírteinanna sé sú vaxta-
lækkun sem ríkissjóður ákvað í októ-
ber síðasthðnum. Þá vom vextir af
3ja ára bréfum lækkaðir úr 8 pró-
sentum í 7,3 prósent. Skömmu áður,
í ágúst, höfðu vextirnir á þessum
spariskírteinum veriö lækkaðir úr
8,5 prósentum í 8 prósent. Á skömm-
um tíma lækkuðu vextimir þvi um
1,2 prósent. Þetta virðist hafa riðið
baggamuninn. Sala skírteinanna
snarminnkaði.
Samdráttur í tekjum fólks
Fleira hefur samt komið til. MikiU
samdráttur varð í þjóðfélaginu
seinni hluta síðasta árs. Tekjur fyrir-
tækja og einstakUnga drógust sam-
an. Þetta hafði líka áhrif á sölu skír-
teinanna. Flestir telja þó að vaxta-
áhrifin hafi haft meira að segja en
tekjuáhrifin. Að meira samband sé á
miUi vaxta og sölu skírteinanna.
Bankamir og veröbréfasjóðimir
hafa selt jafnt og þétt úr 1.700 miUj-
óna spariskírteina-pakkanum frá
áramótum. Þessi sala hefur átt sér
stað á Verðbréfaþingi íslands og inn-
an bankanna og verðbréfasjóðanna
sjálfra. Upphæðin nemur hundmð-
um miUjóna króna. Bankanir og
veröbréfasjóðimir eiga þó ennþá
óseld spariskírteini að andvirði vel
yfir miUjarði, að því er menn á verð-
bréfamarkaðnum áætla.
Dágóð sala á
Verðbréfaþinginu
Það er athygUsvert að bankarnir
og verðbréfasjóðimir hafa selt skír-
teinin á Verðbréfaþingi íslands með
hærri vöxtum en ríkissjóður hefur
boðið á nýjum skírteinum. Þeir hafa
jafnvel teygt sig í 8 prósent vexti til
að geta selt skírteinin, Skírteini til
lengri tíma hafa þeir selt með 7,3 til
7.5 prósent vöxtum. Á sama tíma
hefur ríkið boðið 7 prósent vexti á 5
ára skírteinum og 6,8 prósent vexti á
8 ára skírteinum.
En verðbréfamarkaðurinn er ekki
bara sala spariskírteina ríkissjóðs.
Bankatryggð skuldabréf bjóðast
núna á um 8,5 til 9 prósent vöxtum,
skuldabréf traustra fyrirtækja á um
10.5 tU 11 prósent vöxtum og skulda-
bréf verðbréfasjóðanna bjóðast á aUt
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
að 12,5 prósent vöxtum. Áhættu-
mestu bréfin, sem em veðskuldabréf
fyrirtækja og einstakUnga, bjóðast á
aUt að 14 til 15 prósent vöxtum.
Yfirlýsingar þýddu óvissu
MikU óvissa greip um sig á verð-
bréfamarkaðnum síðastUðið haust
þegar þessi ríkisstjóm tók við völd-
um. Yfirlýsingar flugu um krukk í
lánskjaravísitöluna og jafnvel afnám
hennar. Einnig að vextir á spariskír-
teinum ættu eftir að lækka og til við-
bótar yrði fóUc hugsanlega að greiða
skatta af vaxtatekjum. Þessar yfir-
lýsingar sköpuöu óvissu.
Væntingar hafa mikU áhrif á pen-
ingamörkuðum. Ef sparifjáreigandi
telur að ríkisstjóm nái ekki þeim
markmiöum sínum að lækka vextina
heldur neyðist tíl að hækka þá aftur
er mjög líklegt að hann haldi að sér
höndum og kaupi ekki skírteini. Trúi
hann að vextir eigi eftir að lækka
ennþá meira er líklegt að hann rjúki
strax tU og kaupi skírteini með þeim
vöxtum sem í boði em þá stundina.
Leitað á náðir hærri vaxta
Sala spariskírteina ríkissjóðs í jan-
úar og febrúar bendir tíl þess að þeir
sem innleystu spariskírteinin, og
hefðu undir venjulegum kringum-
stæðum keypt ný, hafi að þessu sinni
farið annað og keypt bankabréf eða
skuldabréf hjá verðbréfasjóðunum.
Með öðrrnn orðum að þeir hafi leitað
á náðir hærri vaxta.
í stjómarsáttmálamun stendur að
markmið ríkisstjómarinnar sé að
koma vöxtunum niður um 3 prósent,
að vextir lækki úr 8 prósentum í 5
prósent á nýjum spariskírteinum
ríkissjóðs.
Það verður mjög spennandi að sjá
hvort þaö gengur eftir. Ljóst er að
Vextir á spariskírteinum til skemmri tíma
I
I
V
■
i,5%
^CD
1 7 n°/
. . /yVJ /O ÉIÉI! K ^ 7,0%
■ :
I !
I
2 ár 2 ár 3 ár 3 ár 5 ár íís f.
J MMMN
5,0%
jan.87 sept.87 jan.88 ág.88 okt.88 jan.89 vor89
Vextir á spariskírteinum til lengri tíma
jan.87 sept.87 jan.88 ág.88 okt.88 jan.89 vor89
Markaðsstjóri Marels, Þórólfur Árnason, sýnir norrænu tæknifulltrúunum
nýjustu tækni og vfsindf hjá Marel. DV-mynd GVA
Tæknikarlar
til Marels
Fjórir tæknifuUtrúar frá Svíþjóð,
Noregi, Finnlandi og Danmörku
funduðu hér á landi í síðustu viku
og kynntu jafnframt notkun tölvu-
gagnagrunna til boðmiðlunar á upp-
lýsingum um tækni. Koma tæknifull-
trúanna hingað er í tengslum við
verkefnið: Hvemig auka megi al-
þjóðleg samskipti íslenskra fyrir-
tækja.
Tæknifulltrúamir sóttu nokkur ís-
lensk iönfyrirtæki heim. Þeir skoð-
uðu fyrirtækið Marel síðastliðinn
fostudag en Marel er þekkt fyrir
framleiðslu og útflutning á tölvuvog-
um fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi.
Öll Norðurlöndin nema ísland era
með skrifstofur tæknifulltrúa í þeim
löndum heims þar sem tækniþróun
er hvað örust. Þetta era lönd eins og
Japan, d ndarikin, Þýskaland og
Bretland
-JGH
vextir á öllum verðbréfum á mark-
aðnum verða þá að fylgja eftir og
lækka. Ekki þýðir fyrir ríkisstjóm-
ina að lækka einungis vexti á spari-
skírteinum ríkissjóðs enda leita þá
peningarnir einfaldlega annað. Þess
vegna er í framvörpum ríkisstjóm-
arinnar á Alþingi að finna ákvæði
um handafl að tökum verði náð á
bankakerfinu og verðbréfasjóðunum
með setningu hámarksvaxta.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig
sparifjáreigendur bregðast við. Við-
skiptin ganga einfaldlega út á þaö
hvort sá hópur fólks sem á peninga,
og vill lána þá, er tilbúinn að lána á
því verði sem skuldarinn óskar.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 8-10 Bb.Sb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8-11 Vb.Sb
6 mán. uppsögn 8-13 Vb.Sp
12mán. uppsögn 8-9,5 Ab
18mán. uppsögn 20 lb
Tékkareikningar, alm. 2-4 Ib.Sp,- Vb.Lb
Sértékkareikningar 3-10 Bb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn - 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb
Innlánmeðsérkjörum 18 Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 8,25-8,5 Bb.Vb,- Sb,Ab
Sterlingspund 11,5-12,25 Ab
Vestur-þýsk mörk 5-5,6 Bb.lb,- Vb.Sb,- Sp
Danskar krónur 6,75-8 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 14-20 Lb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,5-20,5 Lb
Víöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 17,5-25 Lb
Utlán verðtryggð
, Skuldabréf 7,75-9,25 Lb
Utlán tilframleiðslu
Isl. krónur 14,5-20,5 Lb
SDR 10 Allir
Bandaríkjadalir 11,25 Allir
Sterlingspund 14,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 8-8,25 3,5 Úb
Húsnæðislán
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,6
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. feb. 89 13,2
Verðtr. feb. 89 8,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala feb. 2317 stig
Byggingavísitala feb. 414stig
Byggingavísitala feb. 125.4stig
Húsaleiguvisitala Engin hækkun Verð- stöðvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,562
Einingabréf 2 1,994
Einingabréf 3 2,329
Skammtímabréf 1,236
Lífeyrisbréf 1,791
Gengisbréf 1,641
Kjarabréf 3,538
Markbréf 1,876
Tekjubréf 1,597
Skyndibréf 1,080
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,703
Sjóðsbréf 2 1,435
Sjóðsbréf 3 1,211
Sjóðsbréf 4 1,009
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnu m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 274 kr.
Eimskip 380 kr.
Flugleiðir 292 kr.
Hampiðjan 157 kr.
Hlutabréfasjóður 151 kr.
Iðnaðarbankinn 177 kr.
Skagstrendingur hf. 205 kr.
Útvegsbankinn hf. 137 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 128 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV ð fimmtudögum.