Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1989, Page 3
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989.
3
dv Viðtalið
Sauðburdurinn
mitk uppáhald
Nafn: Auður Eiríksdóttlr
Aldur: 50 ára
Staða: Bóndi og oddvitl
Saurbæjarhrepps
„Sauðburöurinn er mitt uppá-
hald. Ég tek alltaf frí á vorin til
að geta verið sem mest við sauö-
burðinn. Þaö er dásamlegur tími.
Ég er heppin þar sem áhugi minn
er mikill á gróðri og dýrum.
Hvort tveggja hef ég daglega í
kringum mig. Ég fer í fjósiö á
morgnana og kvöldin og krafla í
moldinni á sumrin,“ segir Auður
Eiríksdóttir, bóndi aö Hleiðar-
gerði, Saurbæjarhreppi í Eyja-
firöi. Hún situr þessa dagana á
þingi fyrir Samtök ura jafnrétti
og félagshyggju, í forfölium Stef-
áns Valgeirssonar.
„Ég kynntist Stefáni Valgeirs-
syni þegar ég fór að starfa aö
sveitarstjórnarmáium. Hann er
mjög ötull maður. Annars datt ég
inn í póhtík í sveitarstjómakosn-
ingunum 1982, þegar ég varð odd-
viti Saurbæjarhrepps. Það hef ég
verið síðan en reikna ekki með
að gefa kost á mér á ný. Þetta er
mikiöstarfmeðmikilliyflrferð. “
Hjúkrun og kennsla
Auður er fædd og uppalin að
Kristnesi í Eyjafirði. Hún fór í
skóla og varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1958. Þá fór
hún í Hjúkrunarskóla íslands og
lauk námi þaöan 1961. Eftir nám-
ið starfaði Auður á Kristnesspít-
ala, á Akureyri og loks kemidi
hún stuttan tíma við Hjúkrun-
arskólann í Reykjavík. Hún fór
fljótt norður og fór að búa að
Hleiöargerði. Þar bjó hún í eitt
ár áður en hún fór að starfa sem
hjúkrunarfræðingur við Krist-
nesspítala. Þar starfaði hún
næstu tiu árin. Hún vann sem
kennari við barnaskólann í Saur-
bæjarhreppi frá 1975-1982. Þá
hætti hún kennslunni þar sem
hún var einnig orðin oddviti og
hætta á að fjölskyldan gleymdist.
í sveitina
„Maðurinn minn starfaði sem
bflstióri fyrir spítalann þessi tíu
ár þar. 1974 hættum við við spítal-
ann og hófum búskap að Hleiðar-
gerði. Við höfðum eignast fjögur
börn og þótti ráðlegast að fara í
sveitina tii að geta alið þau al-
mennilega upp og annast þau.
Búum við enn í sveitinn, en fugl-
arnir eru flognir.“
Maður Auðar er Jóhann Þór
Halldórsson bóndi sem er fæddur
og uppalinn á bænum. Bömin
fjögur em: Rósa 25 ára, Brynjólf-
ur 24 ára, Kamilla Rún 19 ára og
Dóra Björk 18 ára. Faðir Auðar,
Eiríkur Gísli Brynjólfsson, er lát-
inn. Hann var forstöðumaður á
Kristnesspítala til margra ára.
Móðir hennar, Kamilla Þor-
steinsdóttir, er á lífi og heldur
heimili fyrir tvær yngstu dætum-
ar sem eru við nám í M.A. Auður
er næstelst fjögurra systkina.
Þau em Edda kennari, Þorsteinn
smiður og Guðríður húsmóðir,
gifi: Gunnari Ragnars. Auður á
einn fósturbróður, Hafstein
Andrésson sjómann. -hlh
Fréttir
Rækjukvótinn búinn og
starfsfólkinu sagt upp
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkrciki:
„Við og annar bátur til erum að
verða búnir með kvótann. Klárum
hann á næstu 2-3 dögum og hinir
tveir heimabátarnir eru langt komn-
ir með sína,“ sagði Ómar Karlsson,
skipstjóri á rækjubátnum Hafemi á
Hvammstanga, í samtali við DV.
Starfsfólki rækjuvinnslunnar á
Meleyri hefur verið sagt upp og ekk-
ert annað fyrirsjáanlegt en atvinnu-
leysi hjá þvi um mánaðamótin. At-
vinnuástand á Hvammstanga hefur
ekki verið jafnslæmt um árabil.
Ómar skipstjóri kvað veiðina góða
undanfarið þegar gefið hefur en gæft-
ir verið með eindæmum slæmar.
Bátamir hafi því aldrei náð þeim
átta tonnum sem þeim var úthlutað
á viku. Veiðin yfir daginn yfirleitt
verið eitt og hálft til tvö tonn á dag
en gott þótti að komast á sjó þrjá
daga í viku.
„Þegar rækjuveiðinni lýkur verður
rólegt fyrst í stað en trúlega farið á
net í aþrílbyrjun og fram í júní. En
þetta er alveg ferlegt ástand í rækj-
unni núna, sérstaklega vegna þess
að djúprækjubátarnir þrír hafa ekk-
ert fengið undanfarið. Lítið komist á
sjó vegna veðurs,“ sagði Ómar á
Haferninum.
r, >v+> »•»<♦> .»». <»
Gamla I
f fullu gildi
BOKAMARKAÐUR
BÓKAÚTGEFENDA
Þúsundir bóka á frábæru
Ódýrir bókapakkar.
Nr. 1 íslenskt mannlíf, fjórar bækur...............Samtals kr. 4.480,-
Nr. 2 Heimurinn okkar, fimm bækur..................Samtals kr. 998,-
Nr. 3 Ritsafn, Göngur og réttir....................Samtals kr. 999,-
Nr. 4 Bækur Thorkild Hansen um þrælahald...........Samtals kr. 1.999,-
Nr. 5 Saga Reykjavíkur,fjórarbækur.................Samtals kr. 3.000,-
Nr. 6 Þrjór bækur í pakka eftir Régine Deforges...Samtals kr. 4.100,-
Nr. 7 Fimm bækur eftir Snjólaugu Bragadóttur.......Samtals kr. 1.990,-
Nr. 8 Norræn ævintýri, fjórar bækur................Samtals kr. 4.950,-
Nr. 9 Tvær matreiðslubækur.........................Samtals kr. 1.450,-
Nr. 10 Heimsbókmenntir í vasabroti, tíu bækur.......Samtals kr. 1.980,-
Pöntunarþjónusta fyrir
alla landsmenn til sjós og lands
í síma 91-678011 allan sólarhringinn
Veitingahúsin opin alla helgina
Helgarstemmning í Kringlunni
Greiðslukortaþjónusta
Nr. 11 Bornabækur, fimm í pakka...................Samtals kr. 790,-
Nr. 12 Barnabækur, sjöípakka......................Samtals kr, 1.980,-
Nr. 13 Barnabækur, sex í |
Nr. 14 Menn og minjar, jjfjór ba
Nr. 15 Laxveiðibókapakki, þrjór bækur.............Samtols kr. 999,-
Nr. 16 Með reistan makka, sex bækur um hesta......Samtals kr. 2.499,-
Nr. 18 Spennusögupokkí, fimmS^fe
ki
Nr. 19
Nr. 20 Árbækur íslen'
vrSA
SA G/KMU GÓÐI
— EIIMI SANNI
Bókamarkaðurinn er ó 3. hæð
Opnunartími: Föstudaginn
Laugardaginn
Sunnudaginn
Mónudaginn
Þriðjudaginn
Miðvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
Laugardaginn
Sunnudaginn
í Kringlunni
24. febrúar fró kl.
25. febrúar frá kl.
26. febrúar frá kl.
27. febiúar frá kl.
28. febiúar frá kl.
1. marsfrá kl.
2. mars frá kl.
3. mars frá kl.
4. mars frá kl.
5. mars fró kl.
lOtil 20
lOtil 18
12 til 18
10 til 19
lOtil 19
lOtil 19
lOtil 19
lOtil 20
lOtil 18
12 til 18