Eimreiðin - 01.05.1904, Blaðsíða 46
I2Ó
Í*ví miður kemur nií einhvern tíma að því, að ísland þarf að gráta Björn
Jónsson (ekki verk hans, en missi hans sjálfs), en vonandi er, að þess verði sem
lengst að bíða. RITSTJ.
íslenzkur söngkennari vestan hafs.
Hann heitir STEINGRÍMUR K. HALL og er fæddur í Maní-
toba í Kanada árið 1877. Faðir hans er Jónas Hall, friðdómari
að Garðar í N. Dakota. .Jónas er Hallgrímsson, (frá Fremstafelli
í Kinn í Pingeyjarsýslu),
Ólafssonar, bónda að
Svertingsstöðum i Kaup-
angsveit, Gottskálksson-
ar bónda í Eyjafirði. —
Móðir Steingríms er
Sigríður dóttir Kristjáns,
bónda að Finnstöðum
í Kinn, Kristjánssonar
bónda að Hóli, og Bót-
hildar Grímsdóttur frá
Krossi í Kinn.
Prófessor Stein-
grímur byrjaði söng-
fræðis-nám sitt árið
1895; kom í Gustavus
Adolphus skólann í
Minnesota árið 1897; og
útskrifaðist úr söngfræð-
isdeild þess skóla vorið
1899, og hlaut hinn
ágætasta vitnisburð, sem
nokkur hefur enn hlotið,
er stundað hefur söng-
fræði og hljóðfæraslátt við þann skóla. Síðar var hann við nám
hjá ágætustu söngfræðingum i Minneapolis og Chicago. Haustið
1902 varð hann kennari við Gústavus Adolphus skólann og heldur
Prófessar STEINGRÍMUR K. HALI..