Eimreiðin - 01.05.1904, Blaðsíða 3
83
þannig, að þegar t. d. er sagt að dauði barna innan eins árs sé
ioo °/oo og barna innan fimm ára 200°/oo yfir víst tiltekiö tímabil,
þá er þar með átt við, að af hverjum iooolifandi fæddum börnum
hafi ioo og — 200 dáið. Andvana börn eru eigi talin með, því
aðallega vill maður vita, hvernig þjóðunum tekst að koma hinum
lifandi fæddu börnum á legg. Andvana fæðingar eru spursmál
fyrir sig, sem hefur sérstaka þýðingu.
Til þess að fá rétta hugmynd um barnadauðann á ísl., verður
að athuga langt tímabil. Eg hef tekið fyrir 60 árin frá 1841—
1900. Á þessu tímabili er dauði barna innan eins árs 2i5 °/oo.
Ef vér aðgætum þessi 6 tíu ára tímabil hvert fyrir sig, þá
er hlutfallið þetta:
Af hverjum 1000 lifandi fæddum börnum
deyja á fyrsta ári:
1841 — 1850 ... 313,3 1871—1880 ... 188,8
1851—1860 ... 237,9 1881—1890 ... 194,7
1861—1870 ... 252,0 1891 — 1900 ... 119,2
Af þessu sést, hve barnadauðinn hefur farið drjúgum mink-
andi, en mjög ójafnt. Pessar ójöfnur koma þó enn betur í ljós,
ef vér fylgjum barnadauðanum ár frá ári og sést þá glögglega, að
þær stafa því nær eingöngu af því, hvort landfarsóttir
ganga að mun eða ekki,. eins og eftirfylgjandi tafla sýnir:
6*