Ársrit Hins íslenzka kvenfélags - 01.01.1897, Blaðsíða 29
31
siðferðislegu frelsi að fagna. Hún er í miklum
metum og menn ráðgast við hana, þegar úr
vöndu er að ráða. Hún ræður yfir skyldulið-
inu, þegar eiginmaður hennar deyr, enda þótt
hún eigi fullorðna sonu og hefur rétt til fast-
eignarinnar. Gömul kona er einkum í heiðri
höfð, og það liggur við að lotning sú, er henni
er sýnd, beri hjátrúarkeim. Það er einnig kon-
an, sem geymir skáldskap þjóðarinnar, allan
þennan fjársjóð ljóða og æfintýra, sem rithöf-
undarnir nota sér.
IV.
Hinum andlegu eiginlegleikum, sem alþýðu-
konan er gædd, er það að þakka, að fóstran
(niania) hafði og hefur enn mikilsvirta stöðu í
rússnesku félagslífi. Hún hélt oft áfram að vera
vinkona og ráðanautur fósturbarnsins síns og
var það, meðan því entist aldur. Þessi áhrif
voru holl hinni uppvaxandi kynslóð gegn sið-
spillingu ánauðartímans; fóstran, þjóðsöngvar
hennar og sögur, ásamt speki þeirri, er lifði á
vörum þjóðarinnar, bjó börn þau, sem henni
var trúað fyrir, undir þann starfa í framtíðinni
að verða forvígismenn frelsiskenningarinnar. í
bókmenntunum lifir hin alkunna, hugþekka
Anna Radionovna, fóstra Puschkins, hinn góði
andi bernsku hans og hin móðurlega vinkona
æsku hans, er fór með honum í útlegð. Að