Morgunblaðið - 25.09.1998, Síða 62
iJ&2 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Bíórásin í
loftið í kvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BJORGVIN Halldórsson, umsjónarmaður Bíórásarinnar.
ÞAÐ VAR mikið að gera hjá Björg-
vini Halldórssyni, umsjónarmanni
Bíórásarinnar, þegar hringt var í
hann á miðvikudag. Ekki nema von,
enda rásin að fara í loftið tveimur
dögum síðar. Þegar Björgvin er
spurður um tilurð Bíórásarinnar
segir hann að hugmyndin hafi verið i
vinnslu hjá eigendum íslenska út-
varpsfélagsins um nokkurt skeið og
nú hafí verið ákveðið að auka þjón-
ustu félagsins við íslenska sjónvarps-
áhorfendur.
Sýnt allan sólarhringinn
„Bíórásir eru vel þekktar erlend-
is og njóta mikilla vinsælda. En
þetta er stór stund fyrir okkur
hérna, því þetta er fyrsta íslenska
sjónvarpsstöðin sem sendir út kvik-
myndir allan sólarhringinn með ís-
lenskum texta, alla daga vikunnar
og nýjung á íslenskum sjónvarps-
markaði. Við munum sýna um 170
kvikmyndir í mánuði að meðaltali.
Við erum að bæta við þjónustu Is-
lenska útvarpsfélagsins með því að
koma með bíórás, því kvikmyndir
eru jú eitt vinsælasta sjónvarpsefn-
ið í dag.“
- Hvernig kvikmyndir verða á
Bíórásinni?
Þegar Björgvin er spurður um
hvernig myndir þeir verði með, segir
hann grínaktugur að þeir verði bara
með þöglar myndir allan daginn og
alla nóttina, en hlær svo og segir
„Nei, ég er nú að grínast. Við verð-
um með úrvalskvikmyndir sem eru
til sýninga í sjónvarpi um allan heim
og þá eingöngu kvikmyndir en ekki
sjónvarpsmyndir.“
Björgin segir að stefnt sé að því að
hafa sem fjölbreyttast úrval kvik-
mynda í boði á Bíórásinni enda sé
markmiðið að höfða til sem flestra.
„Við ætlum að sýna íslenskar, evr-
ópskar og bandan'skar kvikmyndir.
Eg get nefnt að fyrsta myndin sem
fer í loftið í kvöld er mynd Agústar
Guðmundssonar, Land og synir, og á
eftir henni kemur mynd eftir danska
leikstjórann Lars von Trier, „Break-
ing the Waves“, en það er frumsýn-
ing í íslensku sjónvarpi. Síðan eru
fjölmai’gar myndir sem fylgja í kjöl-
farið, margir gullmolar og blanda
nýrra og eldri kvikmynda."
Fjölbreytt úrval
- Verða þetta sömu myndirnar og
sýndar eru á Stöð 2 og Sýn ?
„Eitthvað af myndunum verður
sýnt á hinum stöðvunum, því ein
hugmyndin er að fólk geti valið
hvenær það vill horfa á myndirnar.
En hluti kvikmyndanna á Bíórásinni
verða þó frumsýningar. Við ætlum
að leitast við að vera með góðar evr-
ópskar myndir í bland við myndir frá
enskumælandi löndum; myndir sem
við teljum eiga erindi til íslenskra
áhorfenda. Einnig leggjum við
áherslu á íslenskar kvikmyndir og
stefnum á að sýna þær allar. Sem
dæmi verða fjölmargar íslenskar
kvikmyndir sýndar á fyrstu vikun-
um, t.d. Land og synir, Utlaginn,
Punktur, punktur, komma, strik,
Atómstöðin, Stuttur Frakki, Só-
dóma, svo aðeins nokkrar séu nefnd-
ar. En helsta markmið okkar er að
hafa góðar myndir á dagskránni."
- Hvernig líkar þér nýja starfíð?
„Eg er nú mikill kvikmyndaáhuga-
maður sjálfur, hef fylgst með kvik-
myndum frá því ég var krakki, og er
búinn að sjá flestar af þeim myndum
sem sýndar eru í sjónvarpi í dag. En
ég hef mikinn áhuga á kvikmyndum
og kann því mjög vel við mig í nýju
starfi. Enda er hópurinn sem stend-
ur með mér að rásinni mjög góður,
allt úrvalsfólk, svo það er ekki annað
hægt en kunna vel við sig.“
Utsending Bíórásarinnar hefst í
kvöld kl. 20 með sýningu myndarinn-
ar Land og synir eftir Agúst Guð-
mundsson. Utsendingar verða í op-
inni dagskrá fram að 1. október, en
sent verður út á örbylgju og nást
sendingar á útséndingarsvæði Fjöl-
varpsins fyrst um sinn. Askriftar-
gjaldið er 1190 krónur á mánuði.
Föstudagur 25.10
20.00 ► Land og synir
22.00 ► Brimbrot (Breaking the Wa-
ves, ‘96) ★★★'/á, er víðfræg og marg-
loíúð mynd eftir Danann Lars Von Tri-
er, um unga og hrekklausa skoska
þorpsstúlku (Emily Watson). Fær ein-
angrað samfélagið upp á móti sér er
hún giftist aðkomumanni á 01100017)811;
(Stellan Skarsgaard). Skömmu eftir
brúðkaupið lamast eiginmaðurinn af
slysforum. Stúlkan er strangti-úuð og
heldur að Drottinn skipi henni að taka
sér elskhuga, þá læknist mein bóndans,
sem hvetur hana til dáða. Harla óvenju-
Ieg mynd um ástina og trúna, afar vel
íéikstýrð og skrifuð af Von Trier en
borin uppi af stórkostlegum leik Wat-
son. Skarsgaard er litlu síðri. Marg-
slungin og sterk.
24.00 ► Hnefafyllli af dollurum, ‘64,
★★★, er fyrst „dollaramyndanna",
sem síðar ólu af sér hundruð mis-
jafnra eftirlíkinga. Tímamótamynd í
vestragerð. Tekin á Spáni, gerði stór-
stjörnur úr sjónvarpsmyndaleikaran-
um Clint Eastwood, tónskáldinu
Ennio Morricone og leikstjóranum
Sergio Leone. Byggð á Yojimbo,
meistarverki Kurosawa.
MÖLIN HEILLAR
20.00 ► Það á ekki illa við að gang-
setja nýju kvikmyndarás ÍÚ með
frumburði „íslenska kvikmyndavors-
ins“, Landi og sonum, ‘80, ★★★.
'Fagmannlegri og hnökralítilli, ramm-
íslenskri þjóðlífssögu. Búferlaflutning-
unum úr sveitum landsins, er bænda-
synir fórnuðu öllu; sögunni, kóngsrík-
inu, frjálsræðinu, jafnvel ástinni sinni
fyrir draumsýnina, hana Möl. Kvik-
myndagerðarmenn fanga dável aldar-
farslýsinguna, landið og synina. Land-
ið sterkasti þátturinn, stórfenglegt í
fagurri töku Sigurðar Sverris, sem
flytur ljóðrænar og litríkar náttúru-
lýsingar skáldsins tignarlega á tjaldið.
Textinn er hreinn og beinn, eðlilegur,
Þola íslenskt veðurfar
Þakrennukerfi& fró okkur er samsett úr
galvanhú&u&u plaslvör&u stóli.
Þa& er auðvelf og fljótlegt í uppsetningu.
Þakrennukerfi sem endist og endist.
Gnncnzmimö
TÆKNIDEILD ÓJ*K
fek öhvggm
-T»
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
MYNDIR FYRSTU VIKUNA A BIORAS
óuppskrúfaður. Leikurinn og leikara-
valið nánast óaðfinnanlegt í stórum
hlutverkum sem smáum. Og Agúst
heldur öllum endum saman. Með Sig-
urði Sigurjónssyni, Guðnýju Ragnars-
dóttir, Jóni Sigurbjörnssyni, Magnúsi
Olafssyni, ofl.
Laugardagur 26.09
18.00 ► Útlaginn, 'gf. Sjáumsögní
ramma.
22.00 ► Einn gegn öllum (Against
All Odds, ‘84), er skörp endurgerð Out
of the Past, „film noir“ klassík frá
1947. Nú fara gæðaleikararnir James
Woods og Jeff Bridges með aðallhut-
verk kattarins og músarinnar en
Rachel Ward er „femme fatale".
Bridges flækist í svikavef Woods og
Ward og berst leikurinn til Mexíkó.
Bragðmikil og blóðheit.
ÖRLÖG GÍSLA SÚRSSONAR
20.00 ► Útlaginn, ★★★
Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson Leik-
arar: Árnar Jónsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Jón Sigurbjömsson,
Helgi Skúlason, Þráinn Karlsson.
Kvikmyndagerð Gísla sögu Súrssonar
er í flesta staði hin ágætasta, enda ein
sú árennilegasta til sh'kra hluta. Sígild
ástar- og harmsaga í veröld sem var,
siðfræði ásatrúarinnar í ógnarfjarlægð
frá nútímamanninum, rígbundnum í
sínu kristilega uppeldi og rafvædda
raunveruleika. Persónusköpun í hand-
Fjaran:
Jón Möller
leikur rómantíska pianótónlist
fyrir matargesti, úsamt
syngjandi gengilbeinum
Fjörugaröurinn:
Vlkingasveitin
leikur og syngur fyrir
vikingaveisíugesti
Hljómsveít
Rúnars Júl. ásamt
Magnúsí Kjartans
STRANDGÖTU 55 SÍMI 565 1890
riti Ágústs er skýr hvað snertir aðal-
persónur, þær minni oft til óljósrar
uppfyllingar. Leikmyndin er mikið
vandaverk sem er farsællega og ná-
kvæmlega leyst í aðalatriðum. Okkar
stórbrotna land er fangað af lista-
mannsauga Sigurðar Sverris og leikur
Arnars í titilhlutverkinu með því jafn-
besta í íslenskri kvikmynd. Ragnheið-
ur ekki langt undan né þeir Jón og
Helgi. Vörpuleg mynd, umvafin ís-
lenskri fegurð, byggð á traustum
gmnni þjóðararfsins.
Sunnudagur 27.09
18.00 ► Punktur, punktur, komma,
strik, ‘81. Sjá umsögn í ramma.
20.00 og 04.00 ► Jerry Maguire, ‘96.
★ ★★. Vel leikin mynd um umboðs-
mann (Tom Cmise) sem lendir í ónáð
hjá eigendum skrifstofunnar er hann
segir sína meiningu umbúðalaust.
Byrjar sjálfstætt með nánast tvær
hendur tómar, utan einnar skrifstofu-
stúlku og vafasams íþróttamanns. Með
Reneé Zellweger og Cuba Gooding, sá
síðarnefndi fékk Oskarsverðlaunin
fyrir bestan leik í aukahlutverki.
22.15 og 02.00 ► Kristín -
(Christine) ★★'/2, er Carpenterhroll-
vekja eftir bók Stephens King, þar
sem segir frá Plymouth Fury, 1958,
illa innrættum. Breytir eiganda sínum
(Gordon) úr feimnum bekkjarbjálfa í
kvennamann, síðar samviskulausan
morðingja. Sjálfur er bíllinn ódrepandi
og snyrtir sig sjálfur eftir drápsferð-
irnar. Ekkert ógeðfellt á ferðinni,
enda Carpenter sparsamur á tómat-
sósu og annan sóðaskap. Leikur
óþekktra ungmenna, Keith Gordon og
John Stockwell, vonum fremri og
gömlu jaxlarnir, Robert Prosky og
Harry Dean Stanton, vita hvernig þeir
eiga að haga sér.
SAGAN AF ANDRA
18.00 ► Punktur, punkt-
ur, komma, strik ★★‘AStrákurinn
Tlndri skömmu fyrir fæðingu, tíu ára
og táningur, myndin spannar tímabilið
frá miðjum fimmta áratugnum, fram á
þann sjöunda. Dregnar upp margar
bráðskemmtilegar, ljóslifandi skissur
af æskuárum eftirstríðsbai’nsins, kyn-
slóðabilinu og gelgjuskeiðið er ekki
tekið út með sældinni, frekar en fyrri
daginn. Fyrri hlutinn, með Pétri unga, ~
er heilsteyptari og.betur unninn, ann-
ars er fagmannssvipur á kvikmynda-
gerðinni, bæði hvað snertir leikstjórn
og handritsgerð. Búningar og munir
óaðfinnanlegir, sem kvikmyndatakan
og yfir leiknum hjá Pétri B. Jónssyni,
Halli Helgasyni, Kristbjörgu Keld og
Erling Gíslasyni, þarf ekki að kvarta.
Lítil og snotur barna- og fjölskyldu-
mynd. Leikstjóri Þorsteinn Jónsson.
Mánudagur 28.09
18.00 ► Atómstöðin. Sjá umsögn í
ramma.
22.00 ► Djúpið (The Deep, ‘77) er
barn síns tíma og naut vinsælda sök-
um blautbolsins hennar Jaqueline Bis-
set, sem heldur ásamt Nick Nolte til
Bahama á vit ævintýranna, í fjársjóðs-
leit. Þar morar allt í skipsflökum,
ókindum - og skúrkum. Dæmigerð, vel
lukkuð formúlumynd; metsölubók
(næsta bók Benchleys eftir ,,Jaws“),
kunnur átakamyndaleikstjóri, (Peter
Yates), vinsælfr leikarar, bestu fáan-
legu tæknimenn og starfsfólk. Útkom-
an vel viðunandi skemmtun með
óvenjulegum og vönduðum hasaratrið-
um í undirdjúpunum. Og Lou Gosset
Jr. er illilegur skratti.
SAKLEYSIÐ OG HERMANGIÐ
18.00 ► Atómstöðin, ‘84. ★★ Sveita-
stúlkan Ugla (Tinna Gunnlaugsdóttir)
flyst á þingmannsheimili á eftirstríðs-
árunum, og lendir í vafasömum ásta-
málum og pólitískri togstreitu um her-
setuna. Ein íburðarmesta og dýrasta
íslenska bíómyndin sem gerð hefur
verið og ákaflega metnaðarfull fram-
leiðsla. Vönduð í ytra útliti, leikmynd-
um eftirstríðsáranna, búningum og
endursköpun tímabilsins í dágóðri og
alltaf áferðarfallegri kvikmyndatöku
Karls Óskarssonar. Handritshöfund-
unum þremur, Þorsteini Jónssyni,
Þórhalli Sigurðssyni og Ornólfi Árna-
syni, tekst hinsvegar engan veginn að
siíta sig úr bókmenntaverkinu og gera
sjálfstætt kvikmyndaverk úr því.
Margt er vel af hendi leyst en heildar-
myndin aldrei nógu sannfærandi eða
dramatísk til að fanga mann. Synd að
segja að sambandið blossi á milli
Gunnars og Tinnu. Byggð á sam-
nefndri sögu Halldórs Laxness. Leik-
stjóri Þorsteinn Jónsson.
Þriðjudagur 29.09.
10.00 og 16.00 ► Síðasta sýningin
(The Last Picture Show, ‘71). Sjá um-
sögn í ramma.
18.00 ► Sódóma, Reykjavík, ‘92,
★★★, er bráðhress og háðsleg gaman-
mynd um unglinga Reykjavíkm- við
upphaf tíunda áratugarins. Skemmti-
lega lúðaleg smákrimmasaga fléttuð
leit ungmennis að fjarstýringunni sinni.
Með Birni Jörundi, Eggert Þorleifs-
syni, Helga Björnssyni, Sóley Elías-
dóttir, ofl. Leikstjóri Óskar Jónasson.
SMÁBÆR í DAUÐATEYGJUM
10.00 og 16.00 ► Síðasta sýningin
(The Last Picture Show, ‘71) ★★★★.
Leikarar: Timothy Bottoms, Jeff
Bridges, Ben Johnson, Cloris Leach-
man, Ellen Burstyn, Sybill Shepherd,
Eileen Brennan, Randy Quaid. Meist-
arstykki Peters Bogdanovich er frábær
söguskoðun og aldarfarslýsing á mann-
lífinu, einkum unglinga, í krummaskuði
í Texas undir lok sjötta áratugarins.
Það er fátt að gerast og verið að loka
kvikmyndahúsinu. Hér skilai-, að mestu
leyti þá, lítt kunnur leikhópur frábæru
dagsverld og gamli John Ford leikar-
inn Johnson ber ægishjálm yfir aðra í
minnisstæðri túlkun á sýningarmann-
inum sem er að hætta. Ein af undir-
stöðumyndum áttunda áratugarins.
Miðvikudagur 30.09
06.00 og 12.10 ► Roxanne, ★★★>/2
Leikarar: Steve Martin, Daryl Hannah,
Rick Rossovich, Shelley Duvall, John
Kapelos, Fred Willard. Gamanmynd.
Bandaríldn. 1987.107 mín. Einstaklega
vel heppnuð nútimagerð sögunnar um
aðalsmaninn Cyrano de Bergerac.
Mai’tin leikur hinn hugum- og nefstóra
nútímariddara af kostgæfni en sverða-
glamur 17. aidar breytist í banvæna
leikni hans með tennisspaða. Lífvarða-
sveitin er samansett af fullkomlega
vanhæfum undirmönnum á slökkviliðs-
stöðinni og draumadísin er ómótstæði-
leg Hannah. Martin hefur sannarlega
tilfinningu fyrii- huggulegri rómantík,
brandaramii' eni á hverju strái, sam-
tölin fyndin, hvergi er slegin feilnóta.
Mynd með bein í nefinu - á stærð við
lærlegg.
FRANSMAÐUR Á VILLIGÖTUM
18.00 ► Stuttur Frakki, ‘93, ★★
Ein af fjölmörgum og misjöfnum gam-
anmyndum sem litu dagsins Ijós á
fyrri hluta áratugarins. Fylgst með
villuráfandi Frakka (Jean-Philippe
Labadie), umba í tónlistarheiminum,
sem kemur til Sögueyjunnar til að
nasa uppi efnilega listamenn á tónleik-
um helstu poppara landsins í Laugar-
dalshöllinni. Ætl't fer á annan veg. Litli
Frakkinn gleymist í flugstöðinni á
Miðnesheiðinni, lendir í allskyns
hremmingum, viðs fjarri höllinni og
ólánssemi hans lítil takmörk sett.
Heldur þunnur þrettándi í kringum
„hádújúlækæsland“-brandara, ofl. af
þvi sauðarhúsi. Á sína kaosspretti á
milli. Með Elvu Ósk Ólafsdóttir, Egg-
ert Þorleifssyni og Birni Karlssyni.
Leikstjóri Gísli Snær Erlingsson.
Sæbjörn Valdimarsson