Morgunblaðið - 25.09.1998, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Sterk
kosningamál
MÁLEFNASKRÁ
hins nýja framboðs hef-
ur vakið mikla athygli,
ekki síst hjá andstæð-
ingum okkar. Skráin
lýsir framtíðarsýn og
nýjum áherslum og
kostnaðurinn verður
innan eðlilegra marka.
Það á eftir að tilgreina
nákvæmlega þau verk-
efni sem verða fram-
kvæmd á næstu fjórum
árum og gerð verður
grein fyrir kostnaði við
þau og fjármögnun. Við
ætlum að breyta samfé-
laginu og bæta það og
færa til fé en tryggja
stöðugleika, lága verðbólgu og
stöðugt gengi. Það eru einkum
fjögur atriði sem eru nýmæli í
skránni.
VOGIR I MIKLU
ÚRVALI
@ Eldhúsvogir
0 Baðvogir
0 Pakkavogir
Vogir fyrir
læknastofur
♦ hrím ehf.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 14
Sími 567 4235 ■ 567 4228
Afdráttarlaus afstaða
í veiðileyfagjalds-
málinu
I fyrsta lagi er af-
dráttarlaust sagt að
tekið verði sanngjarnt
gjald fyrir afnot af auð-
lindum í þjóðareign til
lands og sjávar sem
m.a. verði notað til að
stuðla að réttlátri skip-
ingu á afrakstri auð-
linda. Þarna er tekin
skýr og jákvæð afstaða
í harðasta deilumáli
undanfarinna ára,
veiðileyfagjaldsmálinu.
Þar sldlur milli okkar
og Sjálfstæðisflokksins en þeir
verja gjafakvótakerfið fram í rauð-
an dauðann.
I öðru lagi er blásið til sóknar í
menntamálum. Við munum verja
um tveimur milljörðum meira til
menntamála á ári sem er verulegt
Þarna er tekin skýr og
jákvæð afstaða í harð-
asta deilumáli undan-
farinna ára, veiði-
leyfagjaldsmálinu, seg-
------3-----------------------
ir Agúst Einarsson.
Þar skilur milli okkar
og Sjálfstæðisflokksins.
fé og stórbætir menntakerfið. Við
setjum menntamál í forgang en þau
mæta afgangi hjá Sjálfstæðis-
flokknum sem hefur ráðið þessum
málaflokki í nær 15 ár.
í þriðja lagi er mörkuð skýr
stefna í umhverfismálum. Við vilj-
um skrifa strax undir Kyoto-bókun-
ina en ríkisstjórnin vill virkja og
virkja án tillits til umhverfisins.
I fjórða lagi skal tryggja jafnrétti
og kvenfrelsi á öllum sviðum þjóð-
lífsins. Jafnréttismál fá sérstaka
stöðu innan stjómkerfisins auk
áherslu á málefni fjölskyldunnar.
Ágúst
Einarsson
Raðhús eða sérhæð óskast
í Garðabæ
Óskum eftir litlu raðhúsi eða sérhæð í Garðabæ td. í Lund-
unum eða Löngumýri. Erum búin að selja.
Upplýsingar í síma 564 5313 eftir kl. 18 eða hjá Kjöreign.
Sími 533 4040 Fax 588 8366
Armúla 21
DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fastelgnasall.
fi
Atvinnuhúsnæði
á Húsavík til sölu
Atvinnuhúsnæði í miðbæ Húsavíkur er til sölu.
Um er að ræða húsnæði á 2 hæðum, samtals
ca 320 ferm. Efri hæð er nú leigð undir skrif-
stofur en neðri hæð undir verslun. Getur selst
hvort heldur saman eða hvort í sínu lagi.
TILBOD ÓSKAST.
Nánari upplýsingar veittar á Fasteigna
sölu Berglindar Svavarsdóttur hdl.,
Höfða 2, Húsavík, sími 464 2545.
Hið sameiginlega framboð hefur
tekið afgerandi forustu í íslenksum
stjórnmálum fyrir hagsmunamálum
kvenna.
Önnur atriði í skránni eru hefð-
bundin og hafa oft sést áður í
stefnuskrám flokkanna. Þannig er
lýst ýmsum langtímamarkmiðum í
velferðarmálum og innan heilbrigð-
iskerfsins á að taka til hendinni.
Flokksþing Alþýðuflokksins, sem
hefst í dag, mun vafalítið fylkja sér
einhuga að baki hinu sameiginlega
framboði.
Trúverðug utanríkisstefna
I málaskránni eru ekki gerðar
breytingar á grundvellinum í utan-
ríkisstefnu Islendinga og það er
höfuðatriði. Þar er skýrt tekið fram
að ísland er og verður í NATO og
ekki verður sótt um aðild að Evr-
ópusambandinu á kjörtímabilinu.
Það er hins vegar mat mitt að Evr-
ópuumræðan verði mjög mikil á
næsta kjörtímabili og árið 2003
verði kosið um spurninguna um að-
ild að ESB.
Það þarf að endurnýja samkomu-
lag frá árinu 1996 við Bandaríkja-
menn um starfsemina á Keflavíkur-
flugvelli en það samkomulag rennur
út árið 2001. Viðræður af hálfu ut-
anríkisráðuneytisins eru þegar
hafnar. Ekki er gert ráð fyrir
minnkun á umsvifum Bandaríkja-
manna hérlendis nema þeir óski
þess sjálfir.
Utanríkismál hafa mikið breyst á
síðustu árum með falli kommúnism-
ans, breytingum á NATO og aukn-
um verkefnum Sameinuðu þjóð-
anna. Við verðum að taka virkan
þátt í umræðum um breyttan heim
með frið að markmiði. Nýtt öryggis-
kerfi er að verða til í Evrópu með
þátttöku flestra þjóða. Hættur eru
aðrar en áður. Nú stafar hætta af
hungri, misrétti, hermdarverkum
og umhverfisvandamálum. Það þarf
sameiginlegar varnir gegn þessu.
Friðargæsla og einbeittur vilji að
stilla til friðar eru nú í forgrunni en
ekki óttinn við kjamorkustyrjöld.
Þetta jiýðir að NATO breytist úr
hemaðarbandalagi í öryggisbanda-
lag og sú umræða er í fullum gangi
hjá bandalagsþjóðum okkar.
Allar fullyrðingar um að hið nýja
framboð sé að skapa óvissu í utan-
ríkismálum eru þannig úr lausu lofti
gripnar. Hins vegar mátti kynningin
á þessum málaflokki vera skýrari.
Við eða Sjálfstæðis-
flokkurinn í forustu
Undirritaður hefur margoft hald-
ið því fram að sameiginlegt framboð
A-flokkanna sé eina leiðin til að
breyta flokkakerfinu og brjóta á
bak aftur áratuga völd Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokks. Nú er Fram-
sóknarflokkurinn að verða smá-
flokkur, þriðja stærsta stjórnmála-
aflið. Það eru stórtíðindi í stjórn-
málasögunni að Framsókn sem oft
hefur ráðið mestu á undanfömum
áratugum muni sennilega leika
aukahlutverk í stjómmálum á
næstu áram.
Með málefnaskránni er dregin
skýr víglína milli höfuðandstæðing-
anna, Sjálfstæðisflokksins og hins
nýja framboðsins. Baráttan verður
milli hins nýja framboðs og Sjálf-
stæðisflokksins og stendur um það
hvort aflið verði í forustu á nýrri
öld.
Höfundur er alþingismaður.
Fjaðrafok í
fálkahreiðri
ÞEGAR Sverrir Her-
mannsson fór hamför-
um á ritvellinum nú í
vor sem leið, vakti hann
vonir meðal þjóðar sem
um langa hríð hefur
mátt þola sviksemi læ-
vísra embættismanna.
Sveriii' virtist ætla að
uppræta margan sóða-
skapinn um leið og hann
reyndi að hvítskrúbba
eigin samvisku. Og í
einni af hvítþvottartil-
raunum sínum ritaði sá
ágæti maður: „En ég
undirritaður ákæri hér
með bankamálaráð-
herra, ríkisendurskoð-
anda og handbendi þeirra fyrir sví-
virðilegt ráðabrugg, upplognar sak-
ir, yfirhylmingar og grófa tilraun til
mannorðsþjófnaðar. Þeirri ákæru
verður fylgt eftir með öllum tiltæk-
um ráðum.“
Svo mörg voru þau fögru orð og
slagkraftur þeirra virtist líklegur til
að verða mörgum broddborgara
fjötur um fót. En eitthvað virðast
þessi tiltæku ráð, sem í greininni
eru tíunduð, hafa farið forgörðum í
þeim fagra heimi sem hinn hugum-
stóri maður vildi sýna þjóðinni. Og
sökudólgamir virðast ekki hafa
þurft að hafa frekari áhyggjur af
framkvæmdagleði Sverris.
I fáikahreiðrinu gildir
enn það lögmál, segir
Kristján Hreinsson, að
þeir sem útdeila hálf-
meltum og meyrum bit-
um til gapandi gogga,
ákveða hvað má og
hvað ekki má.
Margur meðaljóninn hafði leyft
sér að vona að öðlingur sem slíkum
hótunum hampaði, ætlaði að láta
verkin tala, ætlaði að gleyma lífs-
reglum undanbragða og svika, hefja
sig yfir valdníðslu og forðast að
muna flest það sem honum var
kennt í fálkahreiðri stjórnmálanna.
En þessar frómu vonir eru nú að
engu orðnar. Það sem eftir lifir af
háværum hótunum um ákærar og
upprætingu spillingar, er minning
um rembing sem koðnaði í kjafti
þess sem með fjaðrafoki reyndi að
losna við inngróna bletti. Og hávað-
arokið sem sagt var í vændum, og
sagt var að myndi raska værðum og
feykja skrautfjöðrum í fuglabjarg-
inu, varð aldrei neitt meira en þetta
hógværa fjaðrafok sem datt í dúna-
logn án átaka. Ákæran sem lofað
hafði svo góðu, var aðeins hjáróma
væll þegar öllu var á botninn hvolft.
Öll illmennin, allir svikararnir,
Lindarmenn og lóðabraskarar, stór-
laxar og stjórnmálamenn. Allir
sökudólgarnir gleymdust þegar
fiðrið féll til jarðar.
Sakaruppgjöf til þeima manna
sem með svo svívirðilegum hætti
stunduðu lygar og mannorðsmeið-
ingar hefur ekki verið gefin út.
Ekki hefur heldur sést á prenti af-
látsbréf til þeirra hinna, sem í
skrifum Sverris eru sagðir hafa
stundað svik og pretti í íslenskri
stjórnsýslu. En þeir eru margir
litlu fuglarnir sem hvísla því, að
eitthvað hafí það með samtrygg-
ingu siðblindra manna að gera, að
Sverrir virðist ætla að láta hótan-
irnar duga. Þeir eru margir smá-
fuglarnir sem meina að Svemir hafi
hvorki vilja né getu til að fram-
fylgja hótunum um að hamfletta
vargfyglinn á efsta stallinum. Og
þeir hvísla því fuglarnir í fjörunni
að ekki haíi Sverrir kjark til að
styggja frekar þann sem öilu ræður
í fálkahreiðrinu.
Þær eru gleymdar
hástefndu hótanirnar
um að fletta ofanaf
hroðanum sem við-
gengst á hæstu syllum
þjóðlífsins, þar sem ill-
fygli dansa í eigin driti.
En það sem eftir
stendur, eru hálf-
kveðnar vísur sem
fjalla um glæpsamleg
athæfi embættis-
manna. Og allar eru
þessar vísur jafn botn-
lausar og þær voru
þegar fyrripörtunum
var kastað fram í hálf-
kæringi.
Þegar Sverrir varð
að hætta í vinnunni af því hann gat
ekki lengur leynt því að hann hafði
lifað sem stórlax stórlaxa á meðal,
þá gat hann sleppt af sér beisli, úð-
að hroða og óhróðri í allar áttir, hót-
að öllu illu og haldið því fram að nú
á tímum sé engum eirt.
En þegar til kastanna kemur, þá
er Svemir þessi, hinn sjálfumglaði
og útblásni formaður Siðblindra-
vinafélagsins, sestur í helgan stein
og spillingin sem hann ætlaði að op-
inbera þjóðinni, er enn í felum og
fær þar að vaxa og dafna.
Þegar Kolkrabbinn og Smokk-
fiskurinn þrátta um hvernig þeir
ætla að skipta bönkunum sín í mill-
um, þá er garg úr goggi ekki við
hæfi, jafnvel þó stórlaxar spilling-
araflanna geri þjóðinni heyrin-
kunnugt að þeir ætli að fá helling
fyrir lítið. Þegar forsætisráðherra
ætlar að troða í gegnum Alþingi,
með öllum tiltækum ráðum, and-
vana fæddum vanskapnaði sem
kallast gagnagrunnsfrumvarp, þá
er best að gjalla sem minnst um
spillinguna sem einhverstaðar má
þó finna á milli línanna, ef vilji er
fyrir hendi. Þegar hálendi íslands
og náttúruperlur eru að sökkva
undir veldi einkavinavæðingar og
stóriðjudrauma misviturra manna,
þá er óþarfi að æsa sig. Þegar ráð-
herrar flögra úr hanaati stjórn-
málanna til að hreiðra um sig í
dúnmjúkum forstjórastólum, þá
má spillingin geisa, án þess að
upphátt sé hlakkað. Og þegar
þjóðarsálin er seld til útlanda fyrir
stundargróða af hvalkvikindi sem
einhverjar Hollywood-fígúrur hafa
gefið mennskar tilfinningar, þá er
best að þegja, jafnvel þó spilling
ráði þar ferð, og sálarsalan geti
kostað þjóðina gott betur en tetrið
eitt.
í fálkahreiðrinu gildir enn það
lögmál að þeir sem útdeila hálf-
meltum og meyrum bitum til gap-
andi gogga, ákveða hvað má og
hvað ekki má. Sá sem ætlar eitt-
hvað að skipta sér af því sem til-
heyrir daglegu amstri verður fyrst
að átta sig á því hvar hann er í
goggunarröðinni, svo getur hann
e.t.v. skoðað hug sinn. Og þegar
honum er litið fram af hengifluginu
þá veit hann að það er ekki við hæfi
að garga, lágvært tíst er allt sem
þarf.
Hvort sem fálkapabbi er heima
eða á veiðum, verða aðrir fuglar að
vera varir um sig.
Þegar komið er að því augnabliki
í sögu fálkafjölskyldunnar að af-
kvæmið laumist undan verndar-
væng, stökkvi fram af hamrinum og
hremmi góða bráð, þá eiga jafnvel
þeir sem neðstu syllurnar byggja í
fuglabjargi samtímans, síst von á að
þar fari vængstýfður ungi. Fuglarn-
ir í fjörunni hafa búið sig undir að
mæta vígreifu illfygli sem ekki ætl-
ar að láta fálkapabba æla uppí sig
til eilífðarnóns. En háleitar vonir
mega sín lítils, þegar fálkar eru
annars vegar, því það sem eftir
stendur að afloknu fjaðrafoki í
fálkahreiðrinu er lítið, skítugt
fúlegg.
Höfundur er skáld.
Kristján
Hreinsson