Morgunblaðið - 25.09.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998 81
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
TORIL Malmo Svensson með
eitt verka sinna.
Toril Malmo
sýnir í Gall-
eríi Garði
Selfossi. Morgunblaðið.
TORIL Malmo Svensson opnar sýn-
ingu í Galleríi Garði, Selfossi, í dag,
fóstudag.
A sýningunni verða málverk og
módelskartgripir eftir Toril en hún
hefur stundað myndlist og málm-
smíðar í fjölda ára og rekur verk-
stæði á Helgastöðum í Biskupstung-
um þar sem hún býr.
Toril er fædd og uppalin í Malm í
Norður-Þrændalögum í Noregi, en
hefur búið á Islandi síðan 1967. Hún
lauk hönnunarnámi í málmsmíða-
deild listaskólans Statens handverk-
og kunstindustriskole í Ósló vorið
1967. Toril hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þáttí samsýningum
hjá Myndlistafélagi Árnessýslu, þar
sem hún er ritari.
Fyrsta einkasýning hennar var ár-
ið 1989 í Hótel Selfoss, síðan sýndi
hún í Eden árið 1991 og sama ár í
Gallery Jane, 1995 í Eden, 1996 í
Kaffi Lefolii, 1997 í Kaffi Krók og
síðan hefm- hún tvisvar haldið einka-
sýningar í Kaffi Krús og eina í Skál-
holtsskóla.
Sýningin stendur til 15. október
nk. og er þetta önnur sýningin í Gall-
eríi Garði frá opnun þess. Galleríið
er opið á opnunartíma verslana í
Miðgarði.
-------------------
Vatnslitir í
Stöðlakoti
SÝNING á vatnslitamyndum eftir
Nikulás Sigfússon verður opnuð í
Stöðlakoti, Bókhlöðustíg, laugardag-
inn 26. september kl. 15.
Nikulás er læknir að mennt og
starfar sem forstöðumaður Rann-
sóknarstöðvar Hjartavendar, en hef-
ur um áratuga skeið lagt stund á
vatnslitamálun. Auk einkakennslu í
þessari listgrein var hann við nám i
Skóla frístundamálara undir leið-
sögn Kjartans Guðjónssonar, segir í
fréttatilkynningu.
Nikulás hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum, m.a. í tilefni afmælishátíð-
ar Hveragerðiskaupstaðar 1996 og
Læknafélags Reykjavíkur 1984.
Sýningin verður opin daglega kl.
14—18 og lýkur 11. október.
-------------------
Nýjar bækur
• BARNASKÓLI á Þingeyri í Dýra-
fírði 100 ára er í samantekt Hall-
gríms Sveinssonar, fyrrum skóla-
stjóra, en skólinn
átti 100 ára afmæli
síðastliðið haust.
Bókin skiptist í
30 kafla, formála,
eftirmála pg heim-
ildaskrá. I bókinni
eru á annað hund-
rað mynda úr
skólasögu staðar-
ins, allt frá fyrstu
skólaárinu til dags-
ins í dag.
Útgefandi er Vestfírska forlagið.
Bókin er 107 bls., umbrotin í ísprenti
ehf. Kápuhönnun, prentun og bók-
band var unnið hjá Grafík hf. Verð
2.800 kr.
Hallgrímur
Sveinsson
Eloi Puig sýnir í Galleru Ingólfsstræti 8
Uppbygging
og niðurrif
Morgunblaðið/Ásdís
ELOI Puig við eitt verka sinna á sýningunni í Galleríi Ingólfsstræti 8.
KATALÓNSKI listamaðurinn Eloi
Puig sýnir um þessar mundir
nokkur stór tölvuunnin ljós-
myndaverk og myndbandsverk í
Galleríi Ingólfsstræti 8. Sýningin,
sem hófst í gær og stendur fram
til 11. október, er þriðji hluti
trílógíu sem hófst í Barcelona ár-
ið 1994 og er meginhugsun sýn-
inganna, að sögn listamannsins,
uppbygging og niðurrif.
Eloi Puig er fæddur í Barce-
lona árið 1966 og lauk listnámi
frá Universitat de Barcelona,
Facultate de Sant Jordi, árið
1989. Hann hefur haldið sex
einkasýningar í heimalandinu og
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Hann nýtir sér mismunandi
tækni, svo sem ljósmyndun, tölvu-
vinnslu, Netið og myndbands-
tækni, auk þess sem hann varpar
skyggnum á stóra fleti utanhúss.
Að sögn Eddu Jónsdóttur í Galler-
íi Ingólfsstræti 8 er sýning hans á
margan hátt ólík þeim sem þar
hafa verið settar upp áður. Ná-
lægðin í verkum hans sé mikil og
smæstu einingar lífsins áberandi.
Allt er eyðileggingunni
undirorpið
Hver hluti trílógíunnar hefur
ákveðna yfirskrift eða þema. Eitt
orð sem ekki er til í raun og veru
en listamaðurinn hefur brætt
saman úr þekktum orðum eða fyr-
irbærum og fær sérstaka merk-
ingu í verkum hans. Þema fyrstu
sýningarinnar var fagonia, en það
er runnið saman úr orðunum
agonia, sem þýðir kvöl eða þján-
ing, og fagia, sem þýðir að borða
sjálfan sig. „Þetta byggist á sam-
skiptum fólks og hvemig það í
raun eyðir sjálfu sér í þeim sam-
skiptum, þegar það opnar sig og
gefur færi á sér,“ segir Eloi Puig.
Þema númer tvö var enfermenta,
sem er sett saman úr orðunum en-
fermedad, sem stendur fyrir sjúk-
dóm, og fermenta, sem er gerjun.
Þetta sér listamaðurinn fyrir sér
sem ákveðna eyðileggingu sem
fer fram innra með manneskjunni
sjálfri. „Það geta verið veikindi
en líka lífið í sjálfu sér, því um
leið og maðurinn fæðist hefur
hann göngu sína að dauðanum."
Þriðja þemað, það sem nú kemur
fyrir sjónir þeirra sem ieggja leið
sína í Galleríi Ingólfsstræti 8 á
næstunni, er semimagma. Það orð
er heldur ekki til nema í orða-
forða Eloi en er sett saman úr
orðunum semilla, sem þýðir frjó,
og magma, sem þýðir hraun-
kvika. „Þess vegna er ég kominn
til íslands," segir hann og útskýr-
ir að eftir að hann hafi unnið eins
mikið með eyðilegginguna og
raunin varð þá hafi hann hrein-
Iega skort andrúmsloft. „Þá fór
ég að snúa hlutunum við og leita
leiða til að vinna mig út úr því.
En það var ekkert auðvelt, ég gat
ekki bara byrjað að búa til ein-
hver blóm og eitthvað væmið. Svo
ég tók fyrir hugsunina mað-
ur/hlutur. Mig hafði lengi langað
til að vinna með hluti skapaða af
mönnum og svo fór hugsunin að
snúast í kringum það að allt sem
maðurinn skapar er í raun líka
undirorpið þessum eyðilegging-
arlögmálum, það eyðileggst alltaf
allt á endanum. Þá fór hugsunin
aðeins lengra og ég fór að gera
hluti sem springa, svipað og f
mikla hvelli, eða „big bang.“
Sprengingin er jú upphafið að
einhverju nýju, eins og frjókorn
fyrir eitthvað nýtt,“ segir Eloi
Puig.
Ragna Ingimundardóttir bæjarlistamaður Seltjarnarness
Breytir heilmiklu
Morgunblaðið/Ki-istinn
RAGNA Ingimundardóttir tekur við starfsstyrk bæjarlistamanns Sel-
tjarnarness úr hendi Ernu Nielsen, forseta bæjarstjórnar.
RAGNA Ingimundardóttir leirkera-
smiður hefur verið valin bæjarlista-
maður Seltjarnarness árið 1998 og
var henni afhentur starfsstyrkur að
upphæð 400.000 kr. við hátíðlega at-
höfn í Koníaksstofunni á Eiðistorgi í
gær. Ragna sagðist í samtali við
Morgunblaðið varla trúa þessu en
tilnefningin væri henni mjög mikill
heiður og starfsstyrkurinn breytti
heilmiklu fyrir hana.
Þetta er í þriðja sinn sem valinn er
bæjarlistamaður á Seltjarnarnesi en
menningarnefnd bæjarins stendur
fyrir valinu. I fréttatilkynningu frá
menningarnefndinni segir að til-
gangurinn með vali bæjarlistamanns
sé að styðja listamenn búsetta á Sel-
tjarnarnesi tii frekari dáða á menn-
ingar- og listasviðinu og veita þeim
viðurkenningu fyrir framlag sitt til
bæjarfélagsins með listsköpun sinni.
Ragna stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands á ár-
unum 1977-1982 og við Gerrit Riet-
veld Academic í Hollandi 1982-1984.
Hún hefur rekið sitt eigið verkstæði
frá 1984 og verið stundakennari við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
frá 1987. Hún hefur haldið fjölmarg-
ar sýningar á verkum sínum hér á
landi og erlendis og ráðgerir nú
stóra einkasýningu árið 2000, auk
þess sem tvær samsýningar eru í
undirbúningi. Ragna hefur á síðustu
árum unnið að því að þróa tækni við
að mála á stór leirker líkt og listmál-
ari málar á striga, auk þess sem hún
hefur unnið að útfærslu á
mósaíkborðum sem hún vinnur sjálf
alveg frá grunni.
Aðspurð hvaða þýðingu það hafi
fyrir hana að vera valin bæjarlista-
maður segir Ragna að nú geti hún
farið að gera eitthvað sem hana langi
til og þá jafnvel beðið með hitt sem
hún hafi þurft að gera. „Svo get ég
kannski líka notað styrkinn til þess
að fara á einhverjar sýningar og
námskeið úti, gera ný mót og kaupa
einhver efni sem ég tími ekki að
kaupa mér annars," segir hún.
Hrappur sýnir
í Galleríi
Nema hvað
HRAPPUR Magnússon opnar með
Innsetninguna „Þurrkaðir regnbogar
& fljótandi sólarljós" laugardaginn
26. september kl. 16. Þetta er fyrsta
sýningin í nýju húsnæði Gallerís
Nema hvað, en galleríið er flutt á
Skólavörðustíg 22 C.
Gallerí Nema hvað er nem-
endagallerí Myndlista- og handíða-
skóla íslands. A síðsta ári voru haldn-
ar 25 sýningar og er galleríið mikil-
vægur hlekkur í starfi skólans, segir í
fréttatilkynningu.
Hrappur Magnússon er þriðja árs
nemi af skúlptúrskor skólans og lýk-
ur sýningu hans sunnud. 4. október.
----------------
Teikningar
og vatnslita-
myndir í
Haukshúsum
SÝNING á teikningum og vatnslita-
myndum verður í Haukshúsum,
menningar- og listamiðstöð
Dægradvalar á Álftanesi, laugardag-
inn 26. og sunnudaginn 27. segtem-
ber. Þar sýna verk sín Anna Ólafs-
dóttir Björnsson, Guðjón Steinsson,
Guðný Ándrésdóttir, Guðrún Helga
Gestsdóttir, Hafdís Einarsdóttir,
Helgi Jónsson, Kristinn Helgason og
Ólöf Helga Guðmundsdóttir.
Húsið er opið kl. 14-18.
Nýjar hljómplötur
• PRÍM er fyrsta sólóplata Jóels
Pálssonar tenór- og saxófónleik-
ara. Lögin eru öll eftir Jóel, utan
eitt íslenskt þjóðlag sem Jóel flyt-
ur i nýrri útfærslu, en lögin eru
alls 10. Jóel til aðstoðar eru þeir
Eyþór Gunnarsson, Hilmar Jens-
son, Einar Scheving, Gunnlaug
Guðmundsson, Matthías Hem-
stock og Sigurð Flosason. Þeir
spila með í ýmiskonar samsetn-
ingum, allt frá dúó (Eyþór) og
upp í septett þar sem eru tveir
saxófónar, tvö trommusett, gítar,
píanó og kontrabassi, segir í
fréttatilkynningu.
Upptökur fóru fram í hljóðveri
FÍH 4. og 5. ágúst sl. Hljómplat-
an er annar í Jazzís-seríunni. Um
dreifíngu sér Japis. Verð 1.999 kr.
Sýningji vatnslitamyndum
Stöðlakot Bókhlöðustíg 6
Nikulás Sigfússon opnar sýningu á vatnslitamyndum í Stöðlakoti, |
Bókhlöðustíg 6, laugardaginn 26. september kl. 15.00.
Á sýningunni verða myndir málaðar á síðastliðnum tveim árum.
LMyndefnið er sótt í náttúru íslands.
Sýningin verður opin alla daga kl. 14.00-18.00 til 11. október.