Morgunblaðið - 25.09.1998, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Kyrrt að kalla í Afríkuríkinu Lesotho en ótti við skæruhernað
Innrásin klúður og álits-
hnekkir fyrir S-Afríkustjórn
Félagi bin
Ladens
tekinn
höndum
KHALED al Fawaz, gamall
vinur hryðjuverkamannsins
Osama bin Ladens, var hand-
tekinn í London á miðvikudag,
samkvæmt arabískum heim-
ildum. Fawaz er einn af leið-
togum saudi-arabískrar
stjórnarandstöðuhreyfingar
sem berst fyrir því að Saudi-
konungdæminu verði steypt.
Breska lögreglan staðfesti í
gær að sjö menn hefðu verið
teknir höndum í áhlaupi í
tengslum við rannsókn á
hryðjuverkum, en vildi ekki
nafngreina þá.
Tilræði ráð-
gert í Ham-
borg?
LÖGREGLA í Þýskalandi
skýrði frá því í gær að sér
hefðu borist upplýsingar um
ráðgert sprengjutilræði við
bandarísku ræðismannsskrif-
stofuna í Hamborg, og að
hugsanlegt væri að það tengd-
ist sprengingum við sendiráð
Bandaríkjanna í Kenýa og
Tansaníu í ágúst. Talsmaður
lögreglunnar í Hamborg sagð-
ist ekki geta útilokað að
áformunum yrði hrint í fram-
kvæmd, og hámarksöryggis-
gæsla er nú við ræðismanns-
skrifstofuna.
150 milljónir
án atvinnu
SAMKVÆMT nýrri könnun
Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar munu um 150 milljónir
manna um heim allan vera at-
vinnulausar um næstu áramót.
Að auki eru 750 til 900 milljón-
ir manna, eða um 30% vinnu-
afls í heiminum, í minna en
fullu starfí, eða þéna minna en
nauðsynlegt er til að brauð-
fæða sig. I tilkynningu sem
stofnunin sendi frá sér í gær
segir að efnahagskreppan í
Asíu hafí orðið þess valdandi
að 10 milljónir manna hafi
misst vinnuna.
Sprenging í
Jerúsalem
EINN maður særðist er
sprengja sprakk á strætis-
vagnabiðstöð í Jerúsalem á
annatíma í gærmorgun. Þá
var skotið að bifreið ísraelski-a
landnema á Vesturbakkanum
í gær, en enginn særðist. Mik-
ill öryggisviðbúnaður hefur
verið í Israel sl. tvær vikur
vegna hótana Hamas-skæru-
liðahreyfíngarinnar um frek-
ari hermdarverk, en ekki er
þó talið að hún hafí staðið að
sprengingunni í gær.
Verðbólga
eykst hratt í
Rússlandi
VERÐBÓLGA í Rússlandi
jókst um 67% í síðasta mán-
uði. í tilkynningu frá rúss-
neska seðlabankanum í gær
segir að ástandið eigi enn eftir
að versna, og því er spáð að
verðhækkanir á þessu ári
muni nema um 300%.
Reuters
Tilræði
við Hun
Mjúkar skálar verð frá r)J)'
"J
HAGKAUP
Alltaf betri kaup
Sen
Stjórnmálaandstæðingarnir
Norodom Ranariddh og Hun
Sen forsætisráðherra Kambödíu
ræddust við í gær en þá kom
þjóðþing landsins saman í fyrsta
sinn eftir að kosningar fóru
fram í sumar. Sprengja sprakk
fyrr um daginn er þingmenn
voru á leið til þingsetningar og
dó einn og þrír særðust. Sagði
Hun Sen að markmið tilræðis-
manna hefði greinilega verið að
ráða hann af dögum.
Maseru. Reuters, The Daily Telegraph.
NOKKUR kyrrð var komin á í Ma-
seru, höfuðborg Lesothos, í gær en
borgin er víða ein rjúkandi rúst. Að
minnsta kosti 66 menn féllu í átök-
unum milli uppreisnarhermanna og
herliðs frá Suður-Afríku og
Botswana en það var sent til aðstoð-
ar við stjórnvöld í landinu. I S-Af-
ríku er mikil andstaða við þessi af-
skipti af málefnum gi-annríkisins og
óttast margir, að þau muni draga
dilk á eftir sér.
Flokkar manna hafa farið um
borgina síðustu daga, rænt og ruplað
og kveikt í flestum verslunum. Voru
þeir enn á kreiki í gær en þó fámenn-
ari en áður. Andstaða við s-afrísku
hermennina og þann hluta stjómar-
hersins, sem er hollur ríkisstjórninni,
er orðin lítil en nokkuð var um, að
leyniskyttur létu til sín taka uppi í
hæðunum fyrir ofan borgina.
Átta S-Afríkumenn féllu
Að minnsta kosti 66 manns hafa
fallið og þar af átta s-afrískir her-
menn, þeir fyrstu, sem falla í hern-
aðarátökum síðan Nelson Mandela
varð forseti landsins 1994. Var
mannfallið mest í átökum um her-
stöð í útjaðri Maseru. Um 160 menn
hafa verið handteknir frá því á
þriðjudag og mikið tekið af vopnum.
Útlendingar í landinu, sem er
umlukið S-Afríku, hafa flúið burt
hver sem betur getur og breska og
bandaríska sendiráðið hafa flutt
burt mest af sínu starfsfólki.
Mikil ólga hefur verið í landinu að
undanfornu en stjórnarandstaðan
sakar stjórnarflokkinn um stórkost-
legt svindl í síðustu kosningum en
þá fékk hann kjörna 79 þingmenn af
80. Með innrásinni breyttist ólgan í
beina uppreisn og margir óttast, að
ástandið geti orðið S-Afríkustjórn
hættulegt, haldi uppreisnarmenn
mótspyrnunni áfram uppi í fjöllun-
um.
Stjórnarandstöðuflokkarnir í S-
Afi-íku eru næstum allir andvígir
þessum afskiptum af Lesotho og
einnig S-afríska kirkjuráðið, sem lét
mikið að sér kveða í baráttunni gegn
aðskilnaðarstefnunni. Nú er staðan
þannig, að það eru hvítir, s-afrískir
hægrimenn, sem gagnrýna harðast
„þennan yíh'gang" við nágrannaríki.
Allt í skötulíki
Er hvítir réðu í S-Afríku gerðu
þeir ósjaldan skyndiárásir inn yfir
íandamæri grannríkjanna og þá með
töluverðum herafla og eftir ná-
kvæma skipulagningu. Innrásin nú
var hins vegar klúður og hermenn-
irnir virtust varla vita til hvers þeir
voru komnir. Það hefur líka vakið
athygli, að það var ekki varnarmála-
ráðherrann, sem stjórnaði henni,
heldur Sidney Mufamadi öryggis-
málaráðherra, én hann er annálaður
fyrir getuleysi. Þegar talsmaður
hersins var spurður um innrásina og
ástandið í Lesotho vissi hann ekkert
í sinn haus og ljóst er, að í því efni
reiða stjórnvöld sig aðallega á fréttir
erlendra fréttastofa.
Þetta mál þykir sýna enn einu
sinni, að utanríkisstefna S-Afríku-
stjórnar er í molum. Hún er aldrei
sjálfri sér samkvæm, heldur er ým-
ist hlaupið í eða úr. Stundum tekur
stjórnin ákveðna afstöðu til ein-
hverra deilumála í nágrannaríkjun-
um en er líka jafnfljót að falla frá
öllu saman.
S-Afríkustjórn telur sig gegna
siðferðilegu forystuhlutverki í suð-
urhluta álfunnar og vill ekki vera
eftirbátur neinna vestrænna ríkja á
þeim vettvangi. Hefur þessi afstaða
hennar og oflæti til dæmis birst í
því, að í viðskiptaviðræðunum við
Evrópusambandið hafa s-afrísku
fulltrúarnir jafnan veríð íljótir að
móðgast og ganga út finnist þeim
ekki nægilegt tillit tekið til megin-
krafna þeirra. Þá eru þeir búnir að
gleyma því, að ESB þarf miklu
minna á viðskiptunum við S-Afríku
að halda en S-Afríka við ESB.
Reuters
S-AFRÍSKIR hermenn í Maseru, höfuðborg Lesotho. Flestar verslanir
eru brunarústir einar eftir að múgur manns hafði látið greipar sópa
um þær og síðan kveikt í.