Morgunblaðið - 25.09.1998, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
AKUREYRI
Danskur textflhönnuður sýnir í Deiglunni um helgina
Skrýtnir hlutir
í skrýtnu landi
DANSKI myndlistarmaðurinn og
textílhönnuðurinn Frans Peter
Valbjarn Knudsen sýnir verk sín í
Deiglunni á laugardag, 26. sept-
ember, og sunnudaginn 27. sept-
ember frá kl. 14 til 18. Sýningin
verður aðeins opin um helgina.
Frans útskrifaðist úr textfldeild
danska hönnunarskólans í Kaup-
mannahöfn árið 1991 og hefur
síðan unnið að fjölda verkefna á
sínu sviði og tekið þátt í sýningum
bæði í heimalandi sínu og víðar,
m.a. Finnlandi, Svíþjóð og Belgíu.
Nú í ár var hann einn af þremur
hönnuðum sænsku húsganga-
verslunarinnar IKEA, en þeim
var falið að hanna ný efni á hús-
gögn frá IKEA. „Verkefnið fólst í
því að gera nýtt efni, sem átti í
senn að vera einfalt og heillandi
og höfða á þann hátt til kaup-
enda,“ sagði Frans um þetta verk-
efni sitt.
Frans hefur um eins mánaðar
skeið dvalið í gestavinnustofu Gil-
félagsins í Kaupvangsstræti og er
hann á Akureyri ásamt fjölskyldu
sinni, eiginkonu og tveimur börn-
um. Gestavinnustofa Gilfélagsins
er afar vinsæl og jafnan biðlisti
eftir dvöl, en listamenn geta dval-
ið frá einum og upp í þijá mánuði
í senn. Hún hefur sannað gildi
sitt, er mikilvæg fyrir bæinn og
hefur aukið á menningarlíf, en til
þess er ætlast að gestir miðli af
list sinni að lokinni dvöl.
Dönum þykir
Island spennandi
Frans hefur komið til íslands
Qórum sinnum og þykir alltaf
jafn gaman að heimsækja landið.
„Ég kom hingað fyrst fyrir átta
árum og þá með vinum mínum,
fór tvær slíkar ferðir, þá kom ég
með eiginkonunni og núna í
fjórðu ferðinni er ég með alla
fjölskylduna með,“ sagði hann.
„Mörgum Dönum þykir spenn-
andi að koma til Islands, þeir
hafa ákveðnar hugmyndir um
landið, sumar reyndar mjög
óraunverulegar. Fólki finnst eitt-
hvað heillandi við Iandið og
margir reyna að komast hingað
til að kynnast landi og þjóð,“
sagði hann og benti á að saga
landanna hefði frá fornu fari
tvinnast saman og gerði kannski
að verkum að löndum hans þætti
spennandi að heimsækja fsland.
Frans sagðist hafa hitt nokkra
íslendinga og við það hefði áhugi
hans vaknað, en sér hefði þótt
Morgunblaðið/Kristján
FRANS Knudsen, danskur textflhönnuður sem dvalið hefur ásamt fjöl-
skyldu sinni í gestavinnustofu Gilfélagsins að undanförnu, sýnir verk
sín í Deiglunni um helgina.
skemmtilegt að kynnast þeim. I
fyrstu væri gainan að íhuga dálít-
ið þann mun sem væri á fslend-
ingum og Dönum, en eftir því sem
hann hefði komið oftar til lands-
ins og kynnst fólkinu betur þætti
sér erfiðara að greina þennan
mun sem við fyrstu sýn virtist
vera.
Óhrein ull í poka
Á sýningunni í Deiglunni ætlar
Frans að sýna fimm lítil verkefni
sem hann hefur unnið að, en hann
segir tímann hafa liðið hratt og í
mörg horn hafi verið að líta þann
tíma sem hann hefur dvalið á
Akureyri. „Þótt tíminn hafi verið
stuttur hef ég fengið margar hug-
myndir hér, fengið frískt loft ef
má orða það svo,“ sagði Frans, en
yfirskrift sýningarinnar er
„Skrýtnir hlutir frá skrýtnu
landi“. Vísar hann m.a. til þess að
listamaðurinn sem dvaldi í íbúð-
inni á undan honum skildi eftir
poka með óhreinni ull. Þótt pok-
inn hafi pirrað hann í fyrstu varð
hann staðráðinn í að nýta sér
hann með einhveijum hætti og
má sjá afraksturinn á sýningunni.
„Ég hef verið að gera ýmislegt
hér sem ég var ekkert viss um
hvað yrði, en það er gaman að
fara út á nýjar brautir, reyna eitt-
hvað annað en það sem maður er
vanur að gera og endurnýja sig,“
sagði Frans.
Nafn á nýju sveitarfélagi við utanverðan Eyjafjörð
Hljdmsveit
Ingu Eydal
verður hljóm-
sveitin VIP
NÚ Á haustdögum er að hefja upp
raust sína hljómsveitin VIP en hún
starfaði áður undir nafni Ingu Ey-
dal söngkonu. Hljómsveitin hefur
nú fengið til liðs við sig nýjan bassa-
leikara, Viðar Garðarsson, en auk
hans skipa hljómsveitina Inga Ey-
dal, Snorri Guðvarðsson gítarleikari
og Þorleifur Jóhannsson trommu-
leikari.
Aðalstarfsvettvangur þeiiTa er
Akureyri og nágrenni og hafa þau
haft fasta viðkomu á veitingastaðn-
um Við Pollinn á Akureyri. Hljóm-
sveitin leikur einmitt á Pollinum í
kvöld, föstudag og á morgun Iaug-
ardag.
Dalvíkiirbyg’g’ð
skal það heita
BÆJARRÁÐ sameiginlegs sveitar-
félags við utanverðan Eyjafjörð,
Dalvíkurbæjar, Svarfaðardals- og
Árskógshrepps, samþykkti sam-
hljóða á fundi sínum í gær að nafn á
sveitarfélaginu verði Dalvíkurbyggð.
Nafnamálið kemur til endanlegrar
afgreiðslu í bæjarstjórn nk. þriðju-
dag og átti Rögnvaldur Skíði Frið-
bjömsson bæjarstjóri ekki von á
öðru en þar yrði nafnið Dalvíkur-
byggð samþykkt. Rögnvaldur Skíði
sagðist mjög ánægður með þetta
nýja nafn og hann var enn ánægðari
með að nú sér fyrir endann á nafna-
málinu.
„Það skiptir hins vegar töluverðu
máli fjárhagslega hvort nafn sveitar-
félagsins endar á bær eða byggð.
Auðveldast hefði verið fyrir svona
samfélag að nota eitt af nöfnum
sveitarfélaganna sem sameinuðust og
þessi niðurstaða kostar sveitarfélagið
nokkur hundruð þúsund krónur."
Sveitarfélagið hefur verið nafn-
laust frá sameiningarkosningunum
sl. vor og Rögnvaldur Skíði sagði það
vissulega hafa valdið óþægindum og
þá ekki síst varðandi það að stofna til
skuldbindinga. „Menn hafa þá gripið
til þess ráðs að telja upp nöfn sveit>
arfélaganna þriggja. Við fengum þó
kennitölu og sveitarfélagsnúmer
strax og höfum notað bréfsefni Dal-
víkurbæjar á þessum tíma.“
Flestir vildu nafnið Árdalsvík
Ömefnanefnd sendi nýlega bæjar-
stjórn hins sameiginlega sveitarfé-
lags álit sitt á þeim 7 tillögum sem
hún hafði til umfjöllunar og voru; Ár-
dalsvík, Víkurströnd, Norðui’byggð,
Norðurslóð, Eyjafjarðarbær, Valla-
byggð og Víkurbyggð. Rögnvaldur
Skíði sagði að örnefnanefnd hefði
getað sætt sig við nöfnin Víkurbyggð
og Vallabyggð en nefndin benti jafn-
framt á að Dalvíkurbyggð og Svarf-
dælabyggð væra nöfn sem höfðuðu
frekar til svæðisins.
Samfara sveitarstjórnarkosning-
unum í maí sl. var kosið um nýtt nafn
á hið sameinaða sveitarfélag. Nafnið
Árdalsvík fékk þá flest atkvæði en
nafnið Víkurbyggð næstflest og
munaði aðeins örfáum atkvæðum á
þessum nöfnum.
Fyrirlestur
um sham-
anisma
DR. JURGEN W. Kremer flyt-
ur fyrirlestur á vegum Endur-
menntunamefndar Háskólans á
Akureyri næstkomandi laugar-
dag, 26. september kl. 14 í húsa-
kynnum háskólans við Þing-
vallastræti 23, stofu 16.
Dr. Kremer er prófessor í
sálarfræði við California
Institute of Integral Studies í
San Francisco í Bandaríkjun-
um. Hann mun í fyrirlestrinum
sem nefnist Shamanismi og eðl-
islæg þekking á okkar dögum
fjalla um lækningamátt seið-
manna - shamanisma - og eðlis-
læga þekkingu í nútíma samfé-
lagi. M.a. leitast hann við að
skilgreina hugtakið eðlislæg
vísindi og fjallar um viðhorf
bandarískra frumbyggja til eðl-
islægs hugarfars og hvers virði
það er að átta sig á fornri
menningu eigin kynstofns og
þjóðfélags.
Fyrh'lesturinn verður fluttur
á ensku og eru allir velkomnir.
Bæjarráð
getur ekki
stutt Bjölluna
BÆJARRÁÐ Akureyri getur
ekki orðið við erindi sem barst í
síðustu viku frá Kristjáni
Sverrissyni og Flugfélaginu
Lofti þar sem sótt var um styrk
að upphæð krónur 5 milljónir til
að setja upp nýtt íslenskt leikrit,
Bjallan, eftir Ólaf Hauk Símon-
ai-son, á Renniverkstæðinu.
Ráðgert er að frumsýna leikrit-
ið í nóvember næstkomandi.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskólinn byrjar á laugar-
dag, 26. september, kl. 11 í Sval-
barðskirkju. Nýtt og skemmti-
legt fræðsluefni. Kyrrðar- og
bænastund í kirkjunni kl. 21
sunnudagskvöldið 27. septem-
ber. Kirkjuskólinn í Grenivíkur-
kirkju byrjai' á laugardag, 26.
september, kl. 13.30. Nýtt og
skemmtilegt fræðsluefni.
MÖÐRUVALLAPRESTA-
KALL: Kvöldguðsþjónusta
verður í Möðravallakirkju
næstkomandi sunnudag, 27.
september, kl. 21. Kór kirkj-
unnar syngur, organisti Birgir
Helgason. Aðalsafnaðarfundur
eftir messu.
Nafni Sambands veitinga- og gístihúsa breytt í Samtök ferðaþjónustunnar
Öll fyrirtæki í ferðaþjön-
ustu undir einn hatt
hAskúunim
A AKUREVRI
Shamanismi og eölislæg þekking á okkar dögum.
Dr. Jiirgen W. Kremer flytur fyrirlestur á vegum endur-
menntunarnefndar Háskólans á Akureyri, laugardaginn
26. september kl. 14.00, í húsakynnum háskólans
(á Akureyri) Þingvallastræti 23, stofu 16.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
ALLIR VELKOMNIR.
TILLAGA um að breyta nafni
Sambands veitinga- og gistihúsa í
Samtök ferðaþjónustunnar og opna
þannig félagið fyrir öllum fyrir-
tækjum sem starfa á sviði ferða-
þjónustu var samþykkt einróma á
aðalfundi sambandsins á Akureyri í
gær. Stofnfundur Samtaka ferða-
þjónustunnar verður haldinn í
Reykjvík 11. nóvember næstkom-
andi.
Ema Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Sambands veitinga- og gisti-
húsa, sagði að í kjölfar þessara
breytinga myndu fyrirtæki sem
störfuðu í ferðaþjónustu eignast
málsvara, eftirleiðis yrðu undir ein-
um og sama hatti m.a. hótel og
gistihús, bíialeigur, ferðaskrifstof-
ur, flugfélög, hópferðafyrirtæki, fé-
lög sem störfuðu á ýmsum sviðum
afþreyingar, s.s. þau sem byðu
jökla- eða bátsferðir og hestaleigur
svo dæmi séu tekin. „Það er gaman
að sjá á hve fjölbreyttum sviðum
þessi félög starfa,“ sagði hún, en
forskráning fyrir stofnfund Sam-
taka ferðaþjónustunnar er þegar
hafin.
Erna sagði ferðaþjónustu fram til
þessa ekki hafa haft einn málsvara,
það hefði komið niður á greininni að
eiga ekki sameiginlegan talsmann.
Þá væru einnig dæmi þess að
stjómvöld hefðu fengið misvísandi
upplýsingar vegna þess hve tals-
menn á hinum ýmsu sviðum væm
margir.
„Það hefur alllengi verið rætt um
nauðsyn þess að breyta þessu,
þannig að ferðaþjónustan yrði öll
undir einu þaki og nú er komið að
því. Þessi leið, að breyta nafni okk-
ar samtaka og taka fleiri þar inn er
fljótleg og þægileg, það eru fyrir
hendi eignir og starfsemi þannig að
ekki þarf að byrja alveg frá grunni,"
sagði Ema.
Meiri slagkraftur
Helstu kosti þess að gera um-
ræddar breytingar sagði hún vera
meiri hagkvæmni í rekstri og þá
yrði slagkraftur samtaka af þessu
tagi meiri en þegar menn störfuðu í
smærri einingum. Erna sagði mörg
verkefni framundan, endurskoða
þyrfti starfsumhverfí ferðaþjónust-
unnar, stór verkefni biðu á sviði
gæða- og umhverfismála og þá
myndu menn einbeita sér að mark-
aðsmálum.
Tvö erindi voru flutt á aðalfund-
inum, Geir Haarde fjármálaráð-
herra ræddi um starfsumhverfí
greinarinnar, en fyrir dyrum stend-
ur að fjalla um ýmsa þætti þess á
vegum stjórnar sambandsins og
ráðuneytisins. Þá fjallaði Margrét
Friðriksdóttir, skólameistari
Menntaskólans í Kópavogi, um
menntun í ferðaþjónustu. Meðal
þess sem fólk hefur áhyggjur af í
þeim efnum, að sögn Emu, er
skortur á plássum fyrir nema í mat-
reiðslu og framreiðslu og hefur
starfshópi verið falið að kanna leiðir
til úrbóta.