Morgunblaðið - 25.09.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998 11
Flugleiðir
flytja á
Gardermoen
-flugvöii
Rannsoknarstofnun öldrunarmala Bandaríkjanna vill samstarf við Hjartavernd
Einstök
tækifæri til
rannsókna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÁ fundinum í gær. Frá vinstri eru standandi Guðmundur Þorgeirs-
son, Helgi Sigvaldason, Gunnar Sigurðsson formaður Hjartaverndar,
Vilmundur Guðuason og Nikulás Sigfússon. Siljandi eru Björn Einars-
son, Richard J. Havlik, Tamara B. Harris og Pálmi Jónsson.
FULLTRÚAR Hjartaverndar
funduðu í gær og funda í dag með
fulltrúum frá rannsóknarstofnun
öldrunarmála Bandaríkjanna
(National Institute On Aging) um
hugsanlegt rannsóknarsamstarf á
sviði öldrunarsjúkdóma. Stofnunin
leitaði eftir viðræðum við Hjarta-
vernd vegna þeirra rannsókna sem
gerðar hafa verið á vegum Hjarta-
verndar, og er þar einna helst átt
við Hjartaverndarrannsóknina, en
framkvæmd hennar hófst árið 1967
þegar Hjartavernd var stofnuð.
Að sögn Guðmundar Þorgeirs-
sonar formanns rannsóknarstjórnar
Hjartaverndar er um könnunarvið-
ræður að ræða. „Við erum að ræða
möguleika á því að Hjartavernd og
rannsóknarstofnun öldrunarmála í
Bandaríkjun eigi rannsóknarsam-
starf um ýmislegt sem lýtur að öldr-
un. Það er að segja hvaða þættir
það eru sem fyrr á lífsleiðinni hafa
áhrif á heilsufar í ellinni og öldrun-
artengda sjúkdóma.“ Guðmundur
segir að þar sé til dæmis átt við
sjúkdóma eins og heilabilun, hjarta-
sjúkdóma og beinþynningu, og
myndi samstarfið ganga út á ítar-
legri rannsóknir á sjúkdómunum.
Skapar ný atvinnutækifæri
„Þessar könnunarviðræður
ganga út á framkvæmd rannsókna
sem gætu orðið framhald af öldr-
unarrannsóknum sem hófust árið
1990. Ef til samstarfsins kemur
getum við framkvæmt mun ítar-
legri rannsóknir en áður, sem við
höfum ekki geta gert hingað til,
bæði vegna kostnaðar og af ýmsum
öðrum ástæðum. Þessu myndi
fylgja ýmis ný starfsemi og ný at-
vinnutækifæri sköpuðust. Þetta
myndi að sjálfsögðu einnig styrkja
stöðu Hjartaverndar og efla rann-
sóknarstarf til muna. Eg vil ítreka
að viðræðurnar eru enn á könnun-
arstigi og ekki er enn víst hvort af
samstarfinu verði, né hvort fjár-
magn fáist í rannsóknirnar frá
bandarískum aðilum,“ segir Guð-
mundur.
Að sögn Richard J. Havlik voru
milli 15 og 20 rannsóknir víða úr
heiminum skoðaðar af stofnuninni,
þar á meðal íslenska Hjartavernd-
arrannsóknin. Eftir að hafa kynnt
sér hana var ákveðið að leita eftir
samstarfi við Hjartavernd. „Við
teljum að íslenskt umhverfi sé sér-
staklega vel til þess fallið að fram-
kvæma rannsóknir eins og við höf-
um í huga, eins og Hjartavemdar-
rannsóknin gaf til kynna. Við reyn-
um að gera okkur grein fyrir mögu-
leikum, kostum og göllum þess að
stunda hér rannsóknir, berum það
undir yfirmenn okkar í Bandaríkj-
unum og skoðum síðan næstu
skref,“ segir Havlik.
Vilja skoða samband erfða
og umhverfis
Tamara B. Harris segir að ís-
lenska Hjartaverndarrannsóknin
sé um margt mjög sérstök og hafi
strax vakið áhuga þeirra og at-
hygli. „Rannsóknin er mjög vel
framkvæmd, miklu efni hefur verið
safnað og vel er unnið úr gögnun-
um. Það er einnig mjög sérstakt
hvað Islendingar hafa verið dug-
legir og fúsir til að taka þátt í rann-
sóknarstarfi og gefa því góðan
tíma. Sökum þess byggist rann-
sóknin á ríkum upplýsingum um
heilsufar og lífsaðstæður fólks, og
það er mjög mikilvægt. Við sjáum
að hér eru einstök tækifæri til
rannsóknarstarfa. Einnig viljum
við skoða samband erfða- og um-
hverfisþátta varðandi öldrunar-
sjúkdóma og því viljum við skoða
þýði sem gerir okkur kleift að ein-
angra erfðafræðilega þætti, og það
höfum við hér,“ segir Harris sem
kom hingað til lands í maí til að
kanna grundvöll samstarfsvið-
ræðnanna.
Guðmundur segir að á fundinum í
gær hafi verið rætt hvaða viðfangs-
efni væru áhugaverð, auk þess sem
styrkleikar og takmarkanir Hjarta-
verndar á sviðinu hafi verið kannað-
ir. Skoðað hafi verið hvernig rann-
sóknarstofnun öldrunarmála í
Bandaríkjunum gæti komið að
rannsóknunum og hvernig rann-
sóknarstarfið yrði hugsanlega fjár-
magnað. Segir hann að í dag verði
rætt nánar um sérstök hugsanleg
rannsóknarverkefni.
Að sögn þátttakenda leiddu við-
ræðurnar ýmislegt í ljós, en enn er
óvíst hvort gengið verði til samn-
inga. Það kemur væntanlega í ljós á
næstu mánuðum.
Hjartaverndarrannsóknin sem
hér er rætt um er faraldsfræðileg
rannsókn sem náði til um 30 þús-
und manns á höfuðborgarsvæðinu.
I rannsókninni var kannað sam-
band áhættuþátta, eins og til dæm-
is blóðþrýstings, blóðfitu og reyk-
inga við hjarta- og æðasjúkdóma.
Talsvert hefur verið birt af niður-
stöðum rannsóknarinnar í alþjóð-
legum tímaritum, þar sem hún hef-
ur náð athygli bandarískra heil-
brigðisjrfirvalda.
NYR alþjóðlegur flugvöllur sem
þjóna mun Osló og nágrenni, Oslo
Lufthavn-Gardermoen, verður
opnaður 8. október nk. Af þeim
ástæðum flyst öll flugvallarstarf-
semi Flugleiða frá Fornebu-flug-
velli í nýja og glæsilega flugstöð í
Gardermoen. Innritunarþjónusta
við farþega verður á sérstökum
bás undir merki Flugleiða í aðal-
farþegamiðstöðinni nærri innrit-
unarsvæði SAS.
Mikið hefur verið lagt í fram-
kvæmdir við hinn nýja alþjóðlega
flugvöll en þær era þær viðamestu
sem Norðmenn hafa tekist á hend-
ur á landi. Akvörðun um flutning
til Gardermoen var tekin árið 1992
og síðan hafa 10 þúsund manns
komið að verkinu.
Leggja þurfti víðtækt sam-
göngunet á jörðu niðri í því skyni
að auðvelda aðkomu að flugvellin-
um. Gardermoen-völlurinn er í
um 50 km fjarlægð frá miðborg
Osló en Fornebu var aðeins 8 km
frá borginni. Hægt verður að
ferðast með lest, strætisvögnum
og leigubílum inn í miðborg Ósló
og mun það taka rúman hálftíma.
Eftir eitt ár er búist við að lokið
verði framkvæmdum við lagningu
hraðlestar til vallarins en ferðin
mun þá aðeins taka um 19 mínút-
ur.
Flugvöllurinn verður meginæð
alþjóðlegrar flugumferðar um
Noreg en jafnframt er hann
tengiflugvöllur í innanlandsflugi í
Noregi og milli norrænu höfuð-
borganna. Gert er ráð fyrir að
flugvöllurinn geti þjónað árlega
um 17 milljónum farþega. Stað-
setning flugvallarins gefur síðan
kost á stækkun hans í framtíðinni.
Fyrrum hitaveitustjóri varar við stækkun Nesjavallavirkjunar
Endingarlíkur 3-4 ára-
tugir í stað nokkurra alda
STJÓRN veitustofnana samþykkti Varminn uppurinn þegar hans inu samhliða hitaveituvinnslunni, en
á miðvikudag að hefja undirbúning verður þörf? aldrei meira en svo að hitaveitan
að aukningu raforkuvinnslu á
Nesjavöllum úr 60 MW í 90 MW og
sagði í skýrslu sérfræðinganefnd-
ar, sem skipuð var til að fjalla um
stækkun Nesjavallavirkjunar, að
það væri góður kostur, þótt rétt
væri að halda áfram að staðfesta
aflgetu svæðisins með borunum og
mælingum. Menn eru hins vegar
ekki á eitt sáttir um þessa stækkun
og sagði Jóhannes Zoéga, fyrrver-
andi hitaveitustjóri, í gær að hann
teldi að um væri að ræða lélega
nýtingu á svæðinu.
Afgangsorku hent
„Ég gagnrýni það að vera yfir-
leitt að fara af stað með svona
stóra virkjun, jafnvel 60 MW,“
sagði Jóhannes, sem var hitaveitu-
stjóri í Reykjavík frá 1962 til 1987.
„Aðalástæðan fyrir því er sú að
þetta gerir að verkum að nýtingin
verður slæm. Hitaveitunotkunin er
tiltölulega lítil enn - ekki nema 100
til 200 MW með frekar lágri nýt-
ingu eða um 800 GWh á ári - en 90
MW virkjun notar 900 MW upp úr
jörðinni og af því nýtir hún ekki
nema tíunda hluta. Afgangnum,
6400 GWh, er að mestu leyti fleygt,
aðeins 800 GWh eða áttundi hlut-
inn fer tO hitaveitunnar."
Jóhannes sagði að ástæðan fyrir
því að þetta væri ekki nýtt væri sú
að Hitaveita Reykjavíkur hefði
ekki þörf fyrir það.
„Þörfin eykst hins vegar smám
saman,“ sagði hann. „Að mínu mati
geta liðið þrír áratugir þar til Hita-
veitan þarfnast þessa varma, en þá
verður hann uppurinn. Þegar 90
MW rafstöð hefur gengið í 30 ár
verður afl svæðisins fullnýtt. Upp
frá því minnkar aflið smám saman
og orkuframleiðslan um leið.“
I skýrslu sérfræðinganna fjög-
urra eru útreikningar á nýtingu
svæðisins miðaðir við 30 ár. Jó-
hannes sagði að miðað hefði verið
við 30 ár frá upphafi, en það þyrfti
ekki að vera neitt náttúrulögmál.
„Mér finnst 30 ár satt að segja
ekki vera nokkur tími fyrir hita-
veitu,“ sagði hann. „Við sjáum að
gamla hitaveitan hefur gengið í
hálfa öld og við yrðum skúffuð ef
nú ætti að fara að skráfa fyrir
hana, því þá heldur ef það hefði
verið gert gert innan 30 ára.“
Má margfalda endingartímann?
Jóhannes sagði að hins vegar
væri hægt að margfalda endingar-
tímann og benti hann reyndar á
það í grein, sem birtist í Morgun-
blaðinu 2. september.
„Ef við drögum úr nýtingunni og
pössum upp á það að fullnýta allt,
sem við tökum upp úr svæðinu, ætti
nýtingartíminn að lengjast," sagði
hann. „Það þýðir að unnið verður
miklu minna rafmagn. Það er allt í
lagi að framleiða rafmagn úr svæð-
geti alltaf nýtt þann varma, sem
kemur frá raforkuverinu.“
Hann sagði að væri virkjunin
eftir þörfum hitaveitunnar og jafn-
framt bætt við hæfilegri rafmagns-
framleiðslu, gæti jarðhitinn enst
miklu lengur. Og ef Nesjavallaæð-
in og lögn í öll ný borgarhverfi yrði
tvöfólduð, gæti rafaflið orðið 50 til
60 MW og endingarlíkur jarðhita-
aflsins aukist úr þremur eða fjór-
um áratugum í nokkrar aldir.
Lághitasvæði myndu anna þörf
höfuðborgarsvæðisins
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjómar veitustofnana, sagði á
miðvikudag að orkubúskapur höf-
uðborgarinnar væri góður um
þessar mundir, öfugt við það, sem
gerðist hjá Landsvirkjun. Heita-
vatnsframleiðslan á Nesjavöllum,
sem væri um fjórðungur notkunar
á höfuðborgarsvæðinu, hefði gefið
kost á því að spara lághitasvæðin í
kringum borgina. Nú hefði grunn-
vatnshæðin í þeim hækkað veru-
lega þannig að hægt yrði að anna
þörfinni með lághitasvæðunum í
dag jafnvel þótt Nesjavellir dyttu
algerlega út.
Jóhannes sagði að þetta væri
rétt, en það gerði að verkum að
enn minni þörf væri fyrir hita frá
Nesjavöllum: „Þá er enn meiri só-
un og enn meiru kastað burt af
varmanum þar.“
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Borgartún 33,
breytt deiliskipulag
í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1998 er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breyttu deiliskipulagi við
Borgartún 33. Breyting verður á fyrirkomulagi
bygginga og bílastæða á lóð og lóðinni skipt í 4
einingar.
Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og
Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10:00-16:15 frá 28. september til 26. október
1998. Ábendingum og athugasemdum vegna
ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 9. nóv.
1998.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.