Morgunblaðið - 25.09.1998, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forstjóri Reiknistofu bankanna
Munum fara í einu
og öllu að lögum
HELGI H. Steingrímsson, forstjóri
Reiknistofu bankanna, segir að fyr-
irtækið muni að sjálfsögðu fara í
einu og öllu að lögum hvað varðar
innheimtu virðisaukaskatts á þjón-
ustu sem seld er þriðja aðila og telji
sig ávallt hafa gert það. Ef póst-
lagning tilkynninga fyrir Trygg-
ingastofnun ríkisins sé virðisauka-
skattskyld starfsemi muni fyrirtæk-
ið annað tveggja leggja virðisauka-
skatt á starfsemina eða hætta
henni.
Samkeppnisráð hefur beint þeim
eindrægnu tilmælum tO ríkisskatt-
stjóra að virðisaukaskattur sé inn-
heimtur af þeirri þjónustu Reikni-
stofu bankanna, sem hún veitir í
samkeppni við fyrirtæki á almenn-
um markaði. Er vísað til úrskurðar
ríkisskattstjóra í þeim efnum frá 18.
nóvember 1996, sem var svar við
fyrirspum frá Reiknistofu bank-
anna, þar sem komi skýrt fram að
Reiknistofu bankanna beri að inn-
heimta virðisaukaskatt af þjónustu
sem unnin sé fyrir aðra en banka og
sparisjóði.
Ævinlega náið samráð
Helgi sagði að það væri alveg
skýrt að öll starfsemi Reiknistofu
bankanna fyrir banka og sparisjóði
væri undanþegin virðisaukaskatti
samkvæmt lögum. Reiknistofan
hefði ævinlega haft náið samráð við
ríkisskattstjóra um öll atriði sem
kunni að vera álitamál.
Hann sagði enn fremur að Reikni-
stofan hefði ekki reynt að afla sér
verkefna á almennum markaði og
hefði þvert á móti vísað frá sér
fjölda verkefna sem hún hefði auð-
veldlega getað tekið að sér vegna
þess að hún flokkaðist ekki undir
bankastarfsemi. Undantekning væri
póstlagning tilkynninga fyrir Tiygg-
ingastofnun ríkisins og gerð öku-
skírteina fyrir dómsmálaráðuneytið.
I síðara tilvikinu hefði stofnunin tek-
ið að sér verkefnið vegna beiðni þar
um vegna þess að hún ein byggi yfír
dýrum búnaði sem þyrfti til verksins
og væri virðisaukaskattur innheimt-
ur af þeirri starfsemi.
Starfsemin fyrir Tryggingastofn-
un ætti sér hins vegar sögulegan að-
draganda sem rekja mætti til ársins
1977 þegar byrjað hefði verið að
greiða beint inn á reikninga elli- og
örorkulífeyrisþega. Bankamir hefðu
tekið kostnaðinn af þessu á sig í
upphafí en á síðasta áratug hefði
Tryggingastofnun farið að greiða
fyrir þjónustuna. Sölu- eða virðis-
aukaskattur hefði aldrei verið inn-
heimtur af þessari þjónustu og eftir
viðræður í kjölfar framangreindra
bréfaskipta við ríkisskattstjóra síðla
árs 1996 hefði sá skilningur orðið of-
an á að ekki bæri að innheimta virð-
isaukaskatt af starfseminni. Ef það
væri nú niðurstaðan að það bæri að
gera myndi Reiknistofan að sjálf-
sögðu bregðast við því.
ÁTJÁN ára piltur var dæmdur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í 15
mánaða fangelsi vegna ráns í Sel-
eet-verslun Skeljungs í Breiðholti í
mars sl. Dómari ákvað að fresta
skyldi 12 mánuðum af refsingunni
og þeir felldir niður að þremur ár-
um liðnum haldi pilturinn almennt
skilorð og skilyrði um að neyta ekki
áfengis eða deyfilyfja.
Pilturinn var ákærður fyrir að
hafa ógnað tveimur starfsmönnum
verslunarinnar með hnífi til að opna
tvo peningakassa verslunarinnar og
taka þaðan 24 þúsund krónur.
Leit lögreglunnar að ránsmann-
inum bar ekki árangur en ákærði
kom á lögreglustöðina við Hverfís-
götu tæpum tveimur vikum síðar
Gæsir brjóta
umferðar-
reglur
GÆSAHÓPUR olli nokkrum töf-
um á bflaumferð um Rauðarár-
stíginn á miðvikudag, enda fór
fíðurféð ekki að umferðarregl-
um og hunzaði gangbrautina,
sem er skammt frá, þegar það
arkaði yfír á Klambratúnið.
Ekki fylgdi sögunni hvers vegna
fuglarnir tóku þann kostinn að
ganga gæsagang yfír götuna
fremur en að grípa til vængj-
anna.
og játaði á sig ránið. Þá var rann-
sókn vel á veg komin og höfðu
grunsemdir beinst að. piltinum.
Pilturinn hefur tvisvar áður gengist
undir sátt fyrir umferðarlagabrot
og verið dæmdur fyrir líkamsárás.
I niðurstöðu héraðsdómara segir að
líta beri til þess við ákvörðun refs-
ingar að ákærði hafi ógnað starfs-
mönnum verslunarinnar með hnífi,
undirbúið verknaðinn og vilji hans
verið einbeittur. Hins vegar beri að
líta til ungs aldurs piltsins og þess
að hann hafi játað verknaðinn sjálf-
viljugur.
Pilturinn samþykkti kröfu Skelj-
ungs um greiðslu skaðabóta, 24
þúsund krónur, og hann var dæmd-
ur til að greiða allan sakarkostnað.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugfélag Islands
leitar verkefna í
Bretlandi
• •
Onnur
Metró-vél
hugsanlega
í írlandsflug
VERIÐ er að leita verkefna fyr-
ir Metró-flugvél Flugfélags ís-
lands í Bretlandi, en þar er þeg-
ar ein slík vél frá félaginu í verk-
efnum. Fljúga henni til skiptis
íslensk áhöfn og breskar og ís-
lenskur flugvirki annast dagleg-
ar skoðanir.
Páll Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags ís-
lands, sagði að viðræður stæðu
yfir við Breta um að taka aðra
Metró-flugvél í umrætt verkefni.
Flogið er þrisvar á dag fimm
daga vikunnar milli Hum-
berside-flugvallar og Aberdeen
og nú er hugmyndin að bæta
Belfast á Irlandi inn í áætlunina
með einni ferð á dag sem tengist
Aberdeen. Verði af samningum
um aðra vél myndi ein íslensk
áhöfn að jafnaði fljúga henni.
Flugvirki Flugfélagsins ann-
ast daglegar skoðanir og viðhald
en þegar stærri skoðanir standa
fyrir dyrum er vélinni flogið
heim.
Flugfélag Islands notar þrjár
Fokker F50-flugvélar og eina
Metró-vél í áætlunarfluginu inn-
anlands og til Færeyja næsta
vetur. Er nú brugðið á það ráð
að finna Metró-vélinni verkefni
erlendis sem stæði að öðrum
kosti verkefnalítil hér.
Hlaut 15 mánaða
fangelsi fyrir rán
Félagsmálaráðherra fer fram á að Landsvirkjun greiði laun erlendra starfsmanna Technopromexport
Landsvirkjun
ræðir við fulltrúa
fyrirtækisins í dag*
í gær og sagði hann að þeir hefðu orðið ákaf-
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra fór fram
á það í skriflegu bréfi til Landsvirkjunar í gær
að hún sæi til þess að útlendir starfsmenn
Technopromexport, rússneska verktakafyrir-
tækisins sem sér um að leggja Búrfellslínu 3A,
fái laun samkvæmt íslenskum kjarasamningum
og að þau verði lögð inn á íslenskan banka-
reikning í nafni hvers og eins fyrir næstu mán-
aðamót. Frestur sá sem yfirmenn
Technopromexport höfðu til að skila afritum af
launaseðlum útlendra starfsmanna fyrirtækis-
ins til Vinnumálastofnunar félagsmálaráðu-
neytisins rann út í gær án þess að afritin bær-
ust. Kváðust yfirmenn Technopromexport ekki
geta staðið skil á afritunum þar sem þeir vildu
fyrst eiga fund með útlendum starfsmönnum
fyrirtækisins. Þann lokaða fund átti að halda í
gærkvöld.
Forsvarsmenn Landsvirkjunar eiga fund
með fulltrúum Technopromexport fyrir hádegi
í dag og segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, að Landsvirkjun
muni taka ákvarðanir um framhald málsins eft-
ir fundinn á grundvelli þeirra upplýsinga sem
fram kæmu á fundinum og bréfi ráðherra. Orn
Friðriksson, formaður Félags járniðnaðar-
manna, skýrði útlendum starfsmönnum
Technopromexport frá bréfi ráðherra síðdegis
lega ánægðu- með þau tíðindi en jafnframt að
þeir hefðu áhyggjur af því að einhverjir þeirra
yrðu pikkaður út og sendir heim.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að óhjákvæmi-
legt væri að ganga þannig frá málum að það
léki enginn vafi á því að útlendir starfsmenn
Technopromexport fengju það borgað það sem
þeii' ættu rétt á. Hann segir að fulltrúar
Technopromexport hafí fengið frest fram til
dagsins í gær til að skila afritum af launaseðl-
um hvers og eins starfsmanns til að sýna fram
á að þeir fái laun samkvæmt íslenskum kjara-
samningum, en að afritin hafi ekki borist. „í
dag [í gær] vilja þeir ekki standa skil á þessu og
segjast þurfa að eiga fund með starfsmönnun-
um og semja við þá um það hvernig þessu verði
háttað og það eru auðvitað bara málalenging-
ar,“ segir ráðherra og bætir því við að hann hafi
því farið fram á það við Landsvirkjun að hún
standi skil á greiðslunum til viðkomandi manna.
Á móti gæti Landsvirkjun skert umsamda
greiðslu til verktakans, Technopromexport,
sem næmi þeim launagreiðslum.
Rétt ákvörðun
Örn Friðriksson, formaður Félags járniðnað-
armanna, átti fund með útlendum starfsmönn-
um Technopromexport á Selfossi síðdegis í
gær þar sem hann skýrði þeim frá niðurstöðu
félagsmálaráðherra og bréfi hans til Lands-
virkjunar. „Þeir voru ákaflega ánægðir með
þessar fréttir en hafa samt talsverðar áhyggur
af því að einhverjir þeirra verði pikkaðir út og
sendir heim. Við höfum hins vegar bent þeim á
að þeir geti svarað fyrir sig með því að það hafí
ekki verið þeir sem hafi gert kröfurnar heldur
við,“ segir Órn og kvaðst enn fremur hafa ósk-
að eftir því við útlendu starfsmennina að hann
verði strax látinn vita komi til þess að einhverj-
ir þeirra verði sendir heim. „Við hljótum að líta
svo á að okkur beri að vernda þessa ágætu
menn í þeim efnum eins og aðra okkar félags-
menn.“
Örn segir enn fremur að hann hafi lagt
áherslu á það við útlendu starfsmennina að
þeir skrifuðu ekki undir nein plögg sem gæfu
til kynna að þeir fengju hærri laun en þeii' í
raun og veru fengju. Þá segii- Örn aðspurðui'
um ákvörðun félagsmálaráðherra að hún sé
réttmæt og gerð á réttum tíma þ.e. áður en
fulltrúar Teehnopromexport héldu lokaðan
fund með útlendum starfsmönnum fyrirtækis-
ins, en þann fund, sem Örn vitnar til, átti að
halda í gærkvöldi.