Morgunblaðið - 25.09.1998, Síða 1
STOFNAÐ 1913
217. TBL. 86. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mjótt á niuimmim milli þýzku flokkanna
Bitist um
atkvæðin
Frankfurt. Morgunblaðið.
PÝZKU stjómmálaflokkamir, stór-
ir sem litlir, reyndu í gær, á síðustu
fréttamannafundunum þar sem
stjórnendum kosningabaráttunnar
gafst færi á að tala til kjósenda, sitt
ýtrasta til að ná til þeirra sem enn
hafa ekki gert upp hug sinn fyrir
þingkosningarnar á sunnudaginn,
en útlit er fyrir að mjórra verði á
mununum í þeim en dæmi em um
síðustu áratugi.
Samkvæmt skoðanakönnunum er
fylgisforskot Jafnaðarmannaflokks-
ins SPD, með kanzlaraefnið Ger-
hard Schröder í broddi fylkingar, á
Kristilega demókrata, flokk
Helmuts Kohls kanzlara, orðið það
lítið að það má teljast innan
skekkjumarka. Undir þessum
kringumstæðum hafa vangaveltur
magnazt um það, að svo kunni að
fara að stóra flokkarnir neyddust til
að sameinast um stjórnartaumana.
Schröder sagður
„pólitískt tómarúm"
En þessar vangaveltur héldu ekld
aftur af talsmönnum flokkanna að
láta andstæðinginn fá það óþvegið.
Peter Hintze, framkvæmdastjóri
CDU, kallaði Schröder „pólitískt
tómarúm"; hann væri „kameljón
sem breytti útliti sínu til að þóknast
hvaða áheyrendahópi sem er“, eins
konar David Copperfield stjórnmál-
anna.
Franz Muentefering, fram-
kvæmdastjóri SPD, sagði að hinn
óvinsæli Kohl væri mesta byrði
CDU og að í hvert sinn sem hann
hefði reynt að hleypa krafti í kosn-
ingabaráttu sína hefði honum mis-
tekizt hrapallega. „Schröder hefur
unnið á í allri kosningabaráttunni
og mun vinna þessar kosningar,"
sagði Muentefering.
Litlu flokkarnir, Græningjar,
sem vilja komast í stjórn með jafn-
aðarmönnum, og Frjálsir demó-
kratar, sem eru í stjórn með Kohl,
beindu spjótum hvor að öðrum.
Græningjar sögðust vissir um að
verða þriðji stærsti flokkurinn á
þingi og talsmenn FPD sögðust
vilja fyrir alla muni hindra að
„rauð-græn“ stjórn SPD og Græn-
ingja kæmist til valda. Samkvæmt
skoðanakönnunum hafa Frjálsir
demókratar ástæðu til að óttast að
ná ekki 5% atkvæða, sem er lág-
mark til að fá úthlutað þingsætum
á Sambandsþinginu.
■ Stjórnarskipti/34
Rússar vilja ekki beita valdi í Kosovo
KLA hvetur til loftárása
Genf. Reuters.
TALSMAÐUR Frelsishers Kosovo
(KLA) sagði í gær að ályktun örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna vegna
átakanna í Kosovo-héraði í
Júgóslavíu „ógnaði í engu völdum
Serba“ og hvatti Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) til þess að gera loft-
árásir á Júgóslavíu. Igor Ivanov, ut-
anríkisráðherra Rússlands, tjáði Bill
Clinton í gær að stjórn sín væri mót-
fallin því að hervaldi yrði beitt til
þess að stöðva átökin í Kosovo vegna
„ófyrirsjáanlegra afleiðinga þess“.
Stjómvöld í Belgrad sökuðu SÞ
um tvískinnung í garð Serbíu og
stuðning við hermdarverkamenn.
Tanjug-fréttastofan hafði eftir
Slobodan Milosevic, forseta
Júgóslavíu, að „ástandið í Kosovo
væri að færast í eðlilegt horf eftir að
hryðjuverkahópar hefðu verið brotn-
ir á bak aftur“.
Mahnuti Bardhyl, talsmaður KLA,
telur fulla nauðsyn til þess að her-
styrkur Serba í Kosovo verði að engu
gerður með loftárásum áður en sest
verði að samningaborði. „Eina lausn-
in í stöðunni, þ.e.a.s. eina ábyrga
iausnin sem örugglega bindur enda á
fjöldamorðin og villimennskuna, era
loftárásir NATO,“ sagði Bardhyl á
blaðamannafundi í Genf.
Heimildir innan NATO herma að
stjóm Þýskalands vilji setja Milosevic
úrslitakosti sem gefi honum einnar
viku frest til þess að leggja niður
vopn, ellegar verði gerðar loftárásir.
■ Loftárásir þurfa/22
Georg gerir
óskunda
FELLIBYLURINN Georg gekk
yfir Kúbu í gær og olli miklu
ijóni vegna hvassviðris og flóða.
Hann stefndi í átt að suðurodda
Flórída, og þar er nú mikill við-
búnaður. Nærri milljón manna
hefur verið hvött tii að yfirgefa
svæði í strandhéruðum vegna
flóðahættu. Á myndinni sést
þorpið San Pedro de Macoris í
Dóminíska lýðveldinu, þar sem
Georg olli gífurlegum usla.
■ Á annað hundrað/23
BONDEVIK kemur til vinnu í forsætisráðuneytinu í gærmorgun eftir rúmlega þriggja vikna veikindaleyfi.
Kraftana þraut
KJELL Magne Bondevik, for-
sætisráðherra Noregs, sneri
aftur til starfa í gær eftir veik-
indaleyfí sem varað hefur í
hálfa fjórðu viku. Sagði forsæt-
isráðherrann að kraftana hefði
þrotið. Engu einu væri um að
kenna, vinnuálagið hefði ein-
faldlega verið orðið of mikið en
hann væri kominn til heilsu.
„Nú mun ég þola álagið og
meira til,“ sagði hann.
„Eg hef alltaf verið heilsu-
hraustur, þolað mikla vinnu og
mikið álag. Eg vissi að starf
forsætisráðherra væri enn erf-
iðara og krefðist enn meiri
ábyrgðar en fyrri leiðtogastörf
mín en dró ekki nógu skýr
mörk.“
Bondevik vildi ekki svara
spurningum um hvort hann
hefði tekið lyf við veikindum
sínum og sagði aðeins að þau
hefðu lýst sér í svefnleysi og
svartsýni. Síðustu vikur hefði
hann hvílst, farið í gönguferðir
og spilað „yatzy“.
■ Bondevik segist kominn/22
*
Akvörðun
um rann-
sókn í byrj-
un október
Washington. Reuters.
FORMAÐUR dómsmálanefnd-
ar fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings tilkynnti í gær að nefndin
myndi ákveða 5. eða 6. október
næstkomandi hvort hefja ætti
rannsókn sem leitt gæti til
málshöfðunar til embættismiss-
is Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta. Greiði meh*ihluti nefndar-
innar því atkvæði að formleg
rannsókn hefjist má búast við
því að fulltrúadeildin gangi til
atkvæða um málið á fundi 8. eða
9. október, að sögn Henrys
Hydes, formanns dómsmála-
nefndarinnar.
Bill Clinton mun eiga viðræð-
ur við Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Israels, og
Yasser Ai-afat, leiðtoga Palest-
ínumanna, í Washington í
næstu viku, að því er háttsettur
embættismaður skýrði frá í
gær. Hann tók þó fram að ekki
væri áformað að þeir kæmu all-
ir þrír saman til fundar. Saeb
Erekat, aðalsamningamaður
Palestínumanna, staðfesti að
Arafat hefði þekkst boð Clint-
ons um viðræður.
■ Bilið breikkar/24
■ Umheimur undrandi/24
Bretar og íranar
taka upp stjórnmála-
samband að nýju
Dauðadómi
yfír Rushdie
aflétt
London. Reuters.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Bret-
lands og Irans komust í gær að sam-
komulagi um að taka á ný upp fullt
stjómmálasam-
band og skiptast á
sendiherrum, eftir
að írönsk stjórn-
völd ábyrgðust að
öryggi rithöfund-
arins Salmans
Rushdies yrði
tryggt.
Kamal Kharrazi,
utanríkisráðherra
írans, gaf út þá yfirlýsingu að írönsk
stjómvöld hefðu engin áform um að
ógna lífi Rushdies, né mundu þau
hvetja eða grípa til aðgerða í þá veru.
Hann sagði ennfremur að íranska
stjórnin frábæði sér að vera bendluð
við það að fé hefði verið lagt til höfúðs
honum, og að hún væri því ósamþykk.
Rushdie lýsti í gær yfir fógnuði og
létti eftir að hafa þurft að fara huldu
höfði í nær áratug. „Ég hef öðlast
frelsi á ný,“ sagði hann við frétta-
menn.
Ayatollah Khomeini, fyrrverandi
leiðtogi Irans, kvað upp dauðadóm
yfir Rushdie árið 1989 vegna bókar-
innar Söngvai- Satans, sem þótti
innihalda guðlast, og hefur hann síð-
an verið undir lögregluvernd í Bret-
landi.