Morgunblaðið - 16.06.1998, Síða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: 1UTSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Eftirlitsátak Ríkisskattstjóra vegna fjármagnstekjuskatts
Neita upplýsingum
vegna bankaleyndar
RÍKISSKATTSTJÓRI hefur
ákveðið að stefna einhverjum
banka eða sparisjóði til að láta
reyna á rétt sinn til að fá upplýs-
ingar hjá bönkunum um bankainn-
stæður, vexti og fjármagnstekju-
skatt hóps skattgreiðenda sem
valdir hafa verið af handahófi.
Bankarnir neita að veita þessar
upplýsingar með vísan til banka-
leyndar.
Fjármagnstekjuskattur er í
fyrsta skipti lagður á samkvæmt
skattframtölum vegna siðasta árs
sem nú er verið að vinna úr. Ríkis-
skattstjóri valdi handahófskennt
úrtak með 1.347 einstaklingum og
óskaði eftir upplýsingum um inn-
stæður þeirra, vexti og aftekinn
fjármagnstekjuskatt hjá öllum
bönkum og sparisjóðum. Upplýs-
ingaöflunin átti að vera liður í eftir-
liti með framtali fjármagnstekju-
skatts hjá einstaklingum og jafn-
framt liður í eftirliti með því hvern-
ig bankar og sparisjóðir stæðu sig
við að innheimta fjármagnstekju-
skattinn.
Bankar og sparisjóðir neituðu
sameiginlega að veita umbeðnar
upplýsingar. Byggist afstaða þeirra
á því að þeir telja rétt viðskiptavina
sinna vegna að standa eins vel og
kostur er vörð um bankaleynd.
Bankamir hafa hingað til veitt yfir-
völdum upplýsingar vegna rann-
sóknar á málum tiltekinna einstak-
linga og einstakra fyrirtækja en
þeir telja að úrtakskönnun Ríkis-
skattstjóra sé annars eðlis.
■ Bankarnir neita/23
Morgunblaðið/RAX
Sumarstúlkur selja sumarblóm
ÞÆR Ólöf Birna Rafnsdóttir og
Birna Margrét Bjömsdóttir vom
að selja blóm í góða veðrinu í
Stykkishólmi í gær. Telpurnar
höfðu selt fyrir 40 krónur þegar
ljósmyndara bar að garði og
voru þær hæstánægðar með af-
raksturinn.
Tveir menn sluppu ómeiddir þegar bflpallur rakst í raflínu við Búrfellslínu 3
66.000 volta spenna
í gegnum bílinn
TVO unga menn sakaði ekki þeg-
ar straumur úr 66Kv rafmagns-
línu hljóp í gegnum vömbíl sem
annar þeirra ók um klukkan 10 í
gærmorgun. Aður en mennirnir
gerðu sér grein fyrir hættunni
og því að bíllinn var háspennu-
svæði höfðu þeir báðir snert bíl-
inn en aðeins komið við plasthluti
sem ekki leiða rafmagn. Menn-
irair tveir em starfsmenn Ingi-
leifs Jónssonar á Svínavatni og
vom þeir að vinna við undir-
stöðugerð fyrir Búrfellslínu 3 í
landi Skarðs í Gnúpverjahreppi, í
grennd við byggðalínu. Annar ók
nýlegum Scania vörubíl en hinn
p,var að vinna við gröfu á svæðinu.
Ingileifur Jónsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
þegar maðurinn var að sturta
hlassi af vömbflnum hafi pallur
bflsins rekist upp í byggðalínuna
sem er í sjö metra hæð. „Hann
var ekkert með línuna í huga og
fann högg og sá blossa aftur und-
an bflnum. Hinn var á gröfu í
grenndinni og tók eftir einhveiju
einkennilegu undir bflnum að
framan. Þeir stukku báðir út og
fóru að kíkja á bflinn; opnuðu
grillið framan á honum en sáu
ekki neitt. Annar lagðist á mag-
ann og kíkti undir bflinn. Síðan
standa þeir báðir upp og ganga
- fyrir hornið á bflnum og þá
springur á honum framdekkið
þannig að þeir kastast til eina
þijá metra frá bflnum og
vankast. Þá átta þeir sig á því
hvað er að gerast og þetta heldur
áfram og hvert dekkið af öðra
springur undir bflnum."
Svart far á jörðinni
undan bflnum
Tvö hjól undir bflnum eru
sprangin en Ingileifur sagði að
fleiri dekk hefðu skilið eftir sig
svart far í jörðina þegar bfllinn
•var síðar færður úr stað þannig
að greinilegt væri að rafmagnið
hefði gengið í gegnum þau.
„Fjöðranarpúðar undir bflnum
voru líka svartir af sóti,“ sagði
Ingileifur.
Ingileifur sagði að það mætti
kallast mikil heppni að hvoragan
annanna hefði sakað. Tilviljun
virðist ráða því; annars vegar
hafi bflstjórinn greinilega stokk-
ið niður úr bflnum en ekki tengst
jörð og bflnum samtímis og eins
sé greinilegt að mennimir hafi
einungis snert plasthluti þegar
þeir voru að kanna hvað var að
en ekki komið við málmhluti sem
leiða rafmagn.
Ingileifur sagði að bfllinn hefði
verið færður úr stað í gær til
þess að hægt væri að gera við
skemmdir á linunni og hefði þá
mótað fyrir svörtum blettum í
mýrinni undir þar sem hjólin
voru. Hann sagði að eftir væri að
meta tjón á bflnum en fulltrúar
tryggingafélags bflsins era vænt-
anlegir austur til að skoða að-
stæður.
Ingileifur sagði að þótt menn-
irnir hefðu ekki slasast hefðu
þeir verið eftir sig eftir atburð-
Morgunblaðið/Sigurður Fannar
VINSTRA framhjól bflsins sprakk með hvelli þegar ökumaðurinn og
félagi hans stóðu rétt við bflinn.
Plöntur í
hættu vegna
þurrka
VEGNA þurrksins og sólskinsins að
undanförnu hafa starfsmenn garð-
yrkjudeildar Reykjavíkurborgar nú
vart undan að vökva sumarblómin
sem plantað hefur verið út um alla
borg og eiga að skarta sínu fegursta
á þjóðhátíðardaginn.
Blómabeðin hafa verið vökvuð á
hverjum morgni í rúma viku og
voru starfsmenn í aukavinnu um
helgina að vökva, að sögn Ólafs
Lárussonar, sem hefur umsjón með
miðbæjarsvæðinu á vegum garð-
yrkjustjóra borgarinnar. Hann
bendir á að ekki skuli vökva um há-
daginn þegar sól er sterk, heldur
snemma á morgnana eða síðdegis.
Verslunin Blómaval vill að gefnu
tilefni vara garðeigendur við
þurrkinum. Segir í frétt frá fyrir-
tækinu að sérstaklega þurfi að huga
að vökvun á sumarblómum og þeim
garðplöntum, trjám og runnum sem
nýlega hefur verið plantað út eða
færð til í garðinum.
Forstjórar sjúkrahúsanna í Reykjavík um afleiðingar uppsagna hjúkrunarfræðinga
Þjónusta getur orðið
undir öryggismörkum
GANGI uppsagnir hjúkrunarfræð-
inga í gildi um næstu mánaðamót
mun starf sjúkrahúsanna raskast
meira en dæmi eru til frá stofnun
þeirra en um 61% hjúkrunarfræð-
inganna hefur sagt upp störfum.
„Eftir 1. júlí verður aðeins hægt að
vista 3 sjúklinga í stað 9 áður á
gjörgæslu Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Sjúklingur í lífshættu getur átt von
á því að þjónusta verði undir örygg-
ismörkum. Sjúklingar sem þurfa
skurðaðgerð vegna bráðra veikinda,
krabbameins, beinbrota og áverka
geta lent í bið sem hefði alvarlegar
afleiðingar."
Þetta kemur m.a. fram í sameig-
inlegri greinargerð sem Vigdís
Magnúsdóttir, forstjóri Ríkisspít-
ala, og Jóhannes Pálmason, for-
stjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur, hafa
sent frá sér. Þar segir einnig að að-
eins 46% þeirra hjúkrunarfræðinga
sem sinna eiga neyðarþjónustu í
verkfóllum verði til staðar eftir 1.
júlí.
„Engin kjaradeila undanfarinna
ára hefur haft jafn víðtæk áhrif á
starfsemi sjúkrahúsanna og yfirvof-
andi uppsagnir hjúkrunarfræðinga
gætu haft og engin aðgerð í kjara-
málum hefur ógnað öryggi sjúk-
linga jafn mikið,“ segir í frétt frá
forstjórum sjúkrahúsanna. Þá segir
einnig að ljóst sé að launakröfur
þeirra séu á bilinu 50-60% sam-
kvæmt óformlegum viðræðum við
þá hjúkrunarfræðinga sem sagt hafi
upp störfum.
I greinargerð forstjóranna segir
að í kjai-asamningi við Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga sem
gerður var í júní í fyrra hafi tiltekn-
um þætti samningsins verið vísað til
viðkomandi stofnana. Skuli stofnun
og stéttarfélag koma sér saman um
hvaða þættir geti ráðið röðun
starfsmanna í taxtatöflur. Sam-
komulag um þessi atriði samnings-
ins hefur ekki tekist og er mál
hjúkrunarfræðinganna nú til með-
ferðar hjá úrskurðarnefnd. Viðræð-
ur hafa legið niðri meðan beðið er
úrskurðar Félagsdóms í máli Fé-
lags íslenski-a náttúrufræðinga um
það hvort þessi síðari hluti samn-
inganna skuli teljast kjarasamning-
ur. Er jafnvel búist við þeim úr-
skurði í vikunni.
Ásta Möller, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, segir
að hafi forsendur breyst fyrir frest-
un viðræðna séu fulltrúar félagsins
fúsir til áframhaldandi viðræðna um
stofnanasamninga. Hún segir að sú
hugmynd sem sé uppi vegna neyð-
aráætlunar að færa hjúkrunarfræð-
inga milli deilda orki tvímælis.
Vísar hún í samkomulag fjár-
málaráðherra og heildarsamtaka
ríkisstarfsmanna um form ráðning-
arsamninga og skyldu til að upplýsa
starfsmenn um ráðningarkjör. Þar
segir að vinnuveitanda beri að geta
þess sérstaklega ef starfsmaður sé
ráðinn á fleiri en eina vinnustöð og
séu þær fleiri en ein skuli tilgreina
þær sérstaklega. Segir Asta að því
sé Ijóst að ekki sé til dæmis hægt að
ætlast til að hjúkrunarfræðingar af
öldrunardeildum verði færðir á
gjörgæsludeildir.
■ Uppsagnirnar gætu/12