Morgunblaðið - 16.06.1998, Qupperneq 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiM kt. 20.00:
FRÚ EMILÍA - LEIKHÚS
RHODYMENIA PALMATA — Kammerópera eftir Hjálmar H. Ragnars-
son við Ijóðabálk Halldórs K. Laxness
Fos. 19/6 kl. 20. Aðeins ein sýning.
Si/nf i Loftkastalanum kt. 21:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Lau. 20/6. Síðasta sýning.
Miðasalan eropin mánud.—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. 13—20.
Simapantanir frá kl. 10 virka daga.
Astarsaga
Aukasýning
í kvöld kl. 20.00
Miðasala í Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar, Skólavörðustíg 15,
sími 552 4600,
SKEMMTIHUSIÐ
LAUFASVEGI 22
S:552 2075
SIMSVARI I SKEMMTIHUSINU
LISTAVERKIÐ
lau. 20. júní kl. 21
Allra síðasta sýning
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI
fös. 19. júní kl. 21 aukasýning
Loftkastalinn, Seljavegi 2,
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775,
opin frá 10-18 og fram að sýn. sýn.daga.
Ekki er hleypt inn i sal eftir að sýn. er hafin.
Tjarnardansleikur:
LÝÐVELDISBALL
16. JÚNI'
kl. 20. Örfáir miðar eftir.
Takmarkaður miðafjöldi.
Miðasalan opin 12—18.
miðasölu 530 30 30
KalfíLeíiaUuuL
Vesturgötu 3
I HLAÐVARPANUM
Sumartónleikar
„Skemmtikvöld með
Heimilistónum“
Leikkonupopparamir standa fyrir tónleikum,
fá til sín góða gesti úr borgarlífinu og bregða
á leik með ýmis konar brellum og óvæntu
glensi.
Lýkur með dansleik sem stendur til 2.00
þri. 16/6 kl. 22.00 laus sæti
Annað fólk
lau 20/6 kl. 21.00 laus sæti
Ath. þetta eru síðustu sýningar nú í sumar.
r Matseðill sumartónteika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með fersku salati og
ristuðum furuhnetum.
v Eftirréttur: „Óvænt endalok"
Miðasalan opin alla virka daga
kl. 15-18. Miðap. allan sólarhringinn
í s. 551 9055.
Netfang: kaffileik@ isholf.is
fimmtudag 18. júní uppselt laugardag 20. júní uppselt lau. 27. júní kl. 23
föstudag 19. júnf uppselt fimmtud. 25. júní uppselt laus sæti
aukasýn. fös. 19. júní kl. 23 föstudag 26. júní uppselt sunnudag 28. júní kl. 20.
örfá sæti laus lau. 27. júnl kl. 20 uppselt
Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Miðasala sími 551 1475.
Opin olb daga kl. 15-/9. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og trá kl. 13 um helgar.
v r •
Heiðursdoktorinn
James Cameron
► LEIKSTJÓRINN James Cam-
eron var sæmdur heiðursdokt-
orsnafnbót við Ryerson tækni-
háskólann í Toronto í Kanada á
dögunum en Cameron er
einmitt fæddur í Kanada. Það
var rektor skólans, Claude
Lajeunesse, sem veitti Cameron
viðurkenninguna en hann var
heiðraður fyrir það frumkvöð-
ulsverk sem hann vann með því
að notfæra sér stafræna tölvu-
tækni við framleiðslu kvik-
mynda.
FÓLK í FRÉTTUM
„Þetta er engin tískubólau
Breski tónlistarmaður-
inn og plötusnúðurinn
Matrix kemur til lands-
ins í dag og spilar á
skemmtistaðnum Rós-
enberg í kvöld. Rakel
Þorbergsdóttir sló á
þráðinn til London.
TILEFNI þess að Matrix var
fenginn til Islands er tveggja
ára afmæli útvarpsþáttarins
Skýjum ofar á útvarpsstöðinni
X-inu. Stjórnendur þáttarins
hafa áður fengið erlenda tónlist-
armenn og plötusnúða til að
spila drum & bass danstónlist
hérlendis en Matrix mun koma
fram í þætti þeirra í dag. Hann
er þekktur og virtur innan
drum & bass geirans og stíll
hans er sagður byggjast á fágun
og tilraunamennsku.
Þegar blaðamaður náði tali af
Matrix var hann enn að jafna
sig eftir fyrstu ferð sína sem
tónlistarmanns til Bandaríkj-
anna en hann segist ferðast
töluvert um Evrópu til að spila.
- Drum & buss tónlist byrjaði
sem neðanjarðartónlist en er nú
vinsælt popp. Þýðirþað að hún
sé gamaldags og úrelt?
MATRIX kemur til landsins í
dag og spilar drum & bass
danstónlist fyrir gesti Rósen-
berg í kvöld.
„Nei, ég held hún eigi enn
töluvert h'f eftir. Astæðan fyrir
því að þessi tónlist er vinsæl er
sú að hún er góð og hefur verið
til í langan tíma. Þetta er engin
tískubóla."
- Þú ert þá ekki þeirrar skoð-
unar að tími sé kominn til að
fínna upp eitthvað glænýtt og
líta fram á veginn?
„Nei, Það er alltaf eitthvað
nýtt að gerast í drum & bass og
tónlistin er í stöðugri þróun.“
- Spilarðu á einhver hljóð-
færi?
„Já, ég spila á saxófón og
fiðlu en þegar ég var fímmtán
ára fór ég að nota plötuspilara
og önnur „hljóðfæri“ til að búa
til tónlist.“
- Er samkeppnin mikil meðal
plötusnúða?
„Hún er talsverð en danstón-
listin er vinsæl og eftirspurnin er
mikil eftir góðum plötusnúðum.
- Geturðu lifað af tónlistinni?
„Já, ég hef nóg að gera sem
plötusnúður auk þess sem ég er
að vinna að fyrstu breiðskífunni.
Eg hef gefið út smáskífúr en á
nýju plötunni sem kemur út á
næsta ári verður eingöngu nýtt
efni.“
- Er mikill munur á að vinna
breiðskífu og smáskífu?
„Já, það tekur að sjálfsögðu
lengri tíma auk þess sem breið-
skífurnar eru gerðar fyrir al-
menning en plötusnúðar eru
helstu kaupendur smáskífanna."
- Verður þá óhætt að hlusta á
breiðskífuna heima ístofu?
„Já, já, hún verður mjög
áheyrileg."
- Hvernig líst þér á að koma
til íslands?
„Ég er mjög spenntur og
hlakka mikið til að koma,“ sagði
plötusnúðurinn Matrix og lofaði
drum & bass danstónlist af bestu
gerð Breta á Rósenberg í kvöld.
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson /Arnaldur Indriðason / Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Brjáluð borg ★★
Fréttamaðurinn Dustin Hoffman
hyggst notfæra sér lykilstöðu í
gíslatökumáli til að komast aftur í
fremstu röð en fær skömm á öllu
saman. Travolta er góður í illa
skrifuðu og langdregnu hlutverki
meðaljóns sem grípur tii örþrifa-
ráða. Vel gerð að mörgu leyti en
skortir sannfæringarkraft eftir því
sem á líður.
US Marshalls ★★★
Tommy Lee Jones er í toppformi á
eftir flóttamanni sem leikinn er af
Wesley Snipes. Fínasta afþreying.
Out to Sea ★★
Gömlu gleðigjafarnir eru enn að.
Matthau gerist þreytulegur, að
maður segi ekki ósannfærandi, í ei-
lífum eltingaleik við sér yngri kon-
ur, og Lemmon er óvenju daufur.
Formúlan farin að hiksta alvarlega.
SAMBÍOIN,
ÁLFABAKKA
US Marshalls ★★★
Tommy Lee Jones er í toppformi á
eftir flóttamanni sem leikinn er af
Wesley Snipes. Fínasta afþreying.
The Stupids ★
Dæmalaus þvæla um heimska fjöl-
skyldu og vopnasala.
Mr. Magoo ★
Ofyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni
ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo.
Með allt á hælunum V'A
Dellumynd um mannfræðing sem
býr til týndan ættflokk í bakgarðin-
um hjá sér.
Fallen ★!4
Svæfandi, bitiaus, langdregin og
lítt hrollvekjandi hryllingsmynd.
Litiíi hafmeyjan ★★★
Falleg og fyndin kvikmynd þar
sem töfrar ævintýrisins biómstra
að fullu.
The Assignment ★’/z
Furðulegur samsetningur um plön
til að handsama hryðjuverkamann-
inn Carlos. Langdregin í meira lagi.
Anastasia ★★★
Disney er ekki lengur eitt um hit-
una í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga, sem
fer frjálslega með sögnina af keis-
aradótturinni (?) og þyltingu öreig-
anna.
HÁSKÓLABÍÓ
The Big Lebowski-k-k-k
Coenbræður eru engum líkir. Nýja
myndin er á köflum meinfyndin og
kolgeggjuð en nær ekki að fylgja
eftir meistaraverkinu Fargo. Leik-
arai'nir hver öðrum betri í sundur-
lausri frásögn af lúðum í Los Ang-
eles.
Búálfarnir ★★★
Virkilega skemmtileg barna- og
fjölskyldumynd, sem hægt er að
mæla með fyrir alia aldursflokka.
Titanic kkk'Æ
Mynd sem á eftir að verða sígild
sökum mikilfengleika, vandaðra
vinnubragða í stóru sem smáu og
virðingar fyrir umfjöllunarefninu.
Falleg ástarsaga og ótrúlega vel
unnin endurgerð eins hrikalegasta
sjóslyss veraldarsögunnar.
Kundunkk'/z
Faglega gerð kvikmynd um ævi 14.
Dalai Lama. Frekar leikin heimild-
armynd en bíómynd.
Áreksturinn ★ ★ ★
Gamla stórslysaformúlan virkar vel
í höndum Mimi Leder í mynd um
yfirvofandi endalok jarðar. Leoni,
Freeman og Duvall fara stöndug-
lega fyrir ágætum leikarahóp þótt
textinn sé ekki háreistur. Brellum-
ar góðar en kunnuglegar.
KRINGLUBÍÓ
Mouse Hunt ★★
Ævintýraleg saga af átökum músar
og tveggja bræðra, sem er konfekt
fyrir augað en tyggjó fyrir heilann.
The Rainmaker ★★★
Dágott réttardrama með Matt
Damon fínum í hlutverki nýgræð-
ings í lögfræðistétt.
Mr. Magoo ★
Ofyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni
ekki upp, er leiðiniegur Mr. Magoo.
LAUGARÁSBÍÓ
Brúðkaupssöngvarinn kk'A
Þægileg, rómantísk gamanmynd
með Adam Sandler í hlutverki
söngvara sem er óheppinn í ástum.
Deconstructing Harry ★★★
Woody Allen segir okkur hversu
erfitt er að vera rithöfundur og
gyðingur í mynd þar sem slegið er
á gamla strengi sem alltaf hljóma
jafn vel.
Það gerist ekki betra kkk'A
Jack Nicholson í sallafínu formi
sem mannhatari, rithöfundur og
geðsjúklingur sem tekur ekki inn
töflurnar sínar - fyn- en gengil-
beinan Helen Hunt, homminn
Greg Kinnear og tíkin vekja upp í
honum ærlegar tilfinningar. Róm-
antískar gamanmyndir gerast ekki
betri. Vítamínsprauta fyrir geð-
heilsuna.
REGNBOGINN
Scream 2k-k-k
Enn leikur Wes Craven sér að
hryllingsmyndaforminu og tekst
betur upp en í fyrri myndinni.
American Werewolf in Paris
k-k'Æ
Hi'yllingur og grín blandast vel
saman í varúlfaafþreyingu sem
byggir á gamalli og góðri hefð.
Great Expectations ★★
Litlaus en snyrtileg útgáfa klass-
ískrar sögu Dickens skilur lítið eft-
ir í sínum nútúmaumbúðum.
Jackie Brown -k-k'A
Nýja myndin hans Tarantinos er
fagmannleg, vel leikin, oft fyndin,
en drukknar næstum í óhófslengd.
Allt snýst um flókna fléttuna
(minnir á The Killing meistara Ku-
bricks), allir reyna að hlunnfara
alla útaf hálfri milljón dala. Persón-
umar, allar mismiklar minnipoka-
manneskjur, eru dýrðlega leiknar
af Samuel L. Jackson, Bridget
Fonda, Robert Forster, Michael
Keaton og ekki síst Pam Grier.
Anastasia ★★★
Disney er ekki lengur eitt um hit-
una í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga, sem
fer frjálslega með sögnina af keis-
aradótturinni (?) og byltingu öreig-
anna.
Good Will Hunting -k-k'A
Sálarskoðun ungs manns í vörn
gagnvart lífinu. Frekar gi'unn en
ágætlega skemmtileg.
STJÖRNUBÍÓ
Brúðkaupssöngvarinn -k-k'A
Þægileg, rómantísk gamanmynd
með Adam Sandler í hlutverki
söngvara sem er óheppinn í ástum.
U beygja k-k'A
Oliver Stone er í stuði í ofbeldis-
fullri nútíma kúrekamynd.
Skemmtileg og léttgeggjuð en svo-
lítið langdregin.