Morgunblaðið - 16.06.1998, Blaðsíða 68
_ 68 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
i
Matur og matgerð
Ýmiss konar brauð
á grillið
Brauð eru næringarrík, ódýr og ljúffeng
fæða, segir Kristín Gestsdóttir, sem byrjar
alltaf á að baka brauð þegar hún grillar.
FÆRST hefur í vöxt hin síðari ár
að fólk baki sitt brauð heima, það
er raunar sáraeinfalt nú þegar
hægt er að fá ger sem setja má
beint út í mjölið, en geysimargar
mjöltegundir fást og jafnvel til-
búnar mjölblöndur. Ýmsu má
bæta í brauðin til bragðbætis svo
sem jurtakryddi, hnetum og fræi.
Brauðgerð hefur fylgt mannhyn-
inu frá ómunatíð þó upphaflega
hafi brauðin að líkindum verið
ósýrð og án lyftingar eða einskon-
ar flatbrauð bökuð á heitum stein-
um og við opinn eld, en ýmislegt
uppgötvast fyrir tilviljun í brauð-
gerð sem öðru, það eigið þið eftir
að reyna þegar þið hefjist handa
við grilibrauðið. Mikill og þurr hiti
er á grillinu ólíkt bakaraofninum
þar sem alltaf er einhver raki. Ef
við bökum pítubrauð í bakaraofrii
þarf að hita ofninn í minnst 250°C
til þess að loftrúm myndist inni í
brauðunum en á grillinu er hái
þurri hitinn til staðar og brauðið
blæs út. Þeir sem fara í sumarbú-
staðinn eða tjaldið og hafa grillið
með, ættu að blanda saman í
plastpoka mjöli, salti og e.t.v.
þurrgeri en blanda fingurvolgu
vatni út í á staðnum, taka síðan
deigið í hendumar og móta flatar
þunnar kökur og setja á grillið.
Gott getur líka verið að fletja
brauðin út en þegar ekkert köku-
kefli er á staðnum má notast við
flösku eða dós undan gosdrykk.
Látið bömin endilega taka þátt í
að móta brauðin, þau „fíla það í
botn“. Þegar brauðin eru fuÚbök-
uð, er þeim vafið í stykld og stung-
ið ofan í plastpoka, þannig haldast
þau heit og mjúk. Nákvæman
baksturstíma er ekki hægt að gefa
upp. Hann fer eftir hitastyrk
grillsins og fjarlægð frá glóð.
Pítubrauð
500 g hveiti
4. Setjið brauðin á grillið og
bakið á hvorri hlið í um 1 mín-
útu. Vefjið brauðin í hreint
stykki og stingið ofan í plast-
poka. Ef brauðið blæs ekki út,
má þó opna það án mikillar fyr-
irhafnar.
Brauð handa þeim
sem eru með ger-
sveppaóþol
150 g haframjöl
200 g heilhveiti
100 g rúgmjöl
50 g hveitiklíð
2 msk. sesamfræ
1 tsk. salt
1 'h tsk. lyftiduft
4 dl sjóðandi vatn
2 msk. matarolía
1. Setjið öll þun-efni í skál og
blandið saman.
2. Setjið matarolíu og vatn sam-
an við og hnoðið vel.
3. Mótið kúlm- úr deiginu á
stærð við mandarínu. Fletjið út
með kökukefli tæpl. V2 sm á
þykkt. Snúið deigkökunni á með-
an þannig að þetta verði kringlótt
lítið flatbrauð. Pikkið kökumar
með gaffli. Hitið grillið og bakið í
2-3 mínútur á hvorri hlið.
Grænagarðs-
grillbrauð
300 g hveiti
200 g haframjöl
'/2 msk. þurrger
1 tsk. salt
1 msk. kúmen
2 msk. matarolía
2 msk. hunang
1 tsk. salt
rúml. 2 dl fingurvolgt
vatn úr krananum
2 tsk. sykur
3 tsk. þurrger
4 dl fingurvolgt vatn
1. Setjið öll þurrefni í skál,
hrærið vatni út í og hnoðið örh'tið.
Gott er að leggja stykld yfir deig-
ið og láta það lyfta sér í 30-60 mín-
útur. Þó má baka brauðin strax ef
henta þykir.
2. Takið bita á stærð við plómu
af brauðinu. Fletjið örþunnt út.
Leggið í einfalt lag á bakka eða
fjöl.
3. Hitið gasgrillið í minnst 10
mínútur en kolagrillið lengur.
1. Setjið öll þurrefni í skál.
Mælið matarohu og síðan hunang
með sömu skeiðinni og setjið út í.
(Matarohan á skeiðinni vamar því
að hunangið loði við skeiðina).
2. Setjið vatnið út í og hnoðið
deig. Fletjið út um 1 sm á þykkt
annaðhvort í ferkantaðan eða
kringlóttan bút. Mótið rifur, ekld
alveg í gegn, með kleinuhjóh eða
hnífsegg. Sjá teikingu.
3. Hitið grilhð, setjið deigbútinn
á grillið í heilu lagi. Bakið fyrst í
um 2-3 mínútur, snúið þá við og
bakið þeim megin. Losið brauðin í
sundur og setjið í plastpoka.
í DAG
VELVAKA^DI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Varst þú í MÍ?
Hið árlega 16. júní knall
MÍ-inga er á þriðjudaginn.
Hefð er komin á að stúd-
enfyr frá Menntaskólanum
á Isafirði komi saman að
kvöldi dags, 16. júní. Sam-
komur þessar hafa verið
kærkomið tækifæri stúd-
enta úr öhum árgöngum
frá MI til að koma saman,
oftar en ekki með fortíðar-
glampa í augum. Líkt og
undanfarin ár verður komið
saman á Kaffi Reykjavík, í
Betri stofunni, og hljóm-
sveitin Sixties verður með
réttu tónhstina. Það er því
full ástæða fyrir unga sem
aldna MÍ-inga að láta sjá
sig í í miðborginni á þriðju-
dagskvöldið og byrja þjóð-
hátíð í góðra vina hópi, og
það ekki miklu síðar en
21:00, vilji menn hægindi!
Jakob Falur
Garðarsson.
Velferðar-
þjóðfélag?
HVER skyldi trúa því að í
þessu ágæta velferðar-
þjóðfélagi þar sem allt er
gert fyrir gamla fólkið
rangli einn slíkur 76 ára
gamall maður í Mosfellsbæ
húsnæðislaus, enga leiguí-
búð er að fá eftir mikla
leit, auglýsingar og fleira.
Það er búið að tala við
bæjarstjórann, félagsmála-
stjóra, húsnæðismálafull-
trúa, félagsráðgjafa, sem
sagt allan háaðalinn þar í
bæ, en svarið er: Því mið-
ur. Allt er þetta fólk al-
mennilegt í viðræðu en þvi
miður. Umsóknir liggja
fyrir um elli- og eða leigu-
húsnæði. Langir biðlistar,
því miður. Fyrir hjálpsemi
elskulegs fólks fær hann
að geyma dótið sitt í bíl-
skúr og þar sefur hann í
draslinu. Engin aðstaða er
þar til hreinlætis eða eld-
unar. Ef einhver í Mos-
fehsbæ gæti leigt þessum
manni íbúð þá vinsamleg-
ast hringið í síma 564 1168.
291130-5189.
Ábending til mæðra
EG VIL benda mæðrum í
Reykjavík á að lesa bók
Hallgríms Helgasonar
„101 Reykjavík". Þetta er
mjög góð bók fyrir uppeld-
ið.
109 Reykjavík.
Tapað/fundið
Týnt hjól
AÐFARANÓTT annars í
hvítasunnu hvarf frá Rétt-
arholtsvegi 53 blátt 31“
reiðhjól af gerðinni TREK.
Hjólið er aðeins nokkurra
mánaða gamalt og er þess
sárt saknað af eigandan-
um. Þeir sem geta gefið
upplýsingar sem leiða til
þess að hjólið finnist vin-
samlega hringi í síma
588 1619. Fundarlaun.
Blá hjólataska týndist
BLÁ hjólataska týndist sl.
föstudag frá Suðurlands-
braut_ og niður á Lauga-
veg. I töskunni var sund-
dót. Nafn eiganda er á
sundkorti í snyrtibudd-
unni. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 552 0482.
Barnabakpoki týndist
BARNABAKPOKI merkt-
ur Hringjaranum frá
Notre Dame týndist sl.
fóstudag. í honum var
anorakki, nestisbox og
derhúfa. Skilvís finnandi
haffi samband í síma
565 7979.
Húslyklar í óskilum
HÚSLYKLAR fundust í
Kökubankanum í Garðabæ
sl. þriðjudag. Upplýsingar
í síma 565 8070.
Reiðhjól i óskilum
REIÐHJÓL, kvenmanns,
er í óskilum í Seláshverfi.
Upplýsingar í síma
557 1328.
Dýrahald
Kettling-ar fást gefíns
ÞRÍR kettlingar, 11 vikna,
fást gefins. Upplýsingar í
síma 554 5321.
Páfagaukur í óskilum
FYRIR 2 vikum síðan
fannst gulur páfagaukur,
mjög spakur, við Skútuvog
í Reykjavík. Þeir sem
kannast við páfagaukinn
hafi samband í síma
565 7702.
Kanínur óskast
ÓSKA eftir þremur eða
fleiri kanínum. Upplýsing-
ar i síma 566 8004.
Morgunblaðið/RAX
ISKÁLEYJUM
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI á dálítið erfitt með
að skilja viðskiptastefnu Hag-
kaupsfyrirtækjanna um þessar
mundir. Verzlunum fyrirtækisins
hefur verið skipt í tvennt. Þannig
heitir hin nýja verzlun þess við
Smáratorg Hagkaup, en gamla
vei’zlunin í Kringlunni t.d. heitfr
Nýkaup. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem fram komu, þegar
breytingin var gerð, eiga Nýkaups-
verzlanir að bjóða upp á ferskari
vöru en Hagkaupsverzlanir og verð-
ið verður þar af leiðandi hærra.
Víkverja sýnist hins vegar, að í
raun sé verið að selja sömu vörur að
verulegu leyti fyrir lægra verð í
Hagkaupsbúðinni við Smáratorg en
í Nýkaupsverzluninni í Kringlunni.
Hvers vegna ættu viðskiptavinir að
kaupa sömu vörur á hærra verði?
Að vísu er hægt að kaupa fisk úr
fiskborði í Nýkaupsbúðinni í Kring-
lunni en hann er seldur innpakkað-
ur í Hagkaupsbúðinni við Smára-
torg. Þetta skiptir viðskiptavininn
ekki máli vegna þess að fiskurinn í
hinum gömlu hefðbundnu fiskbúð-
um er margfalt betri en fiskurinn,
sem fæst í Nýkaupsbúðinni í Kring-
lunni.
Það er að vísu rétt, að það er ekk-
ert kjötborð í Hagkaupsbúðinni við
Smáratorg, en þá er á það að líta að
töluvert af kjötvörum er selt inn-
pakkað í Nýkaupsbúðinni í Kringl-
unni. Eftir sem áður er ljóst, að það
er betra að kaupa kjöt í Kringlunni
en við Smáratorg. Það er raunveru-
lega eini munurinn. Er hann svo
mikill, að það sé vit í því að kaupa
allar aðrar vörur á hærra verði,
þegar um nákvæmlega sömu vörur
er að ræða? Ávextir og grænmeti
eru sama varan á báðum stöðum,
því að ekki trúir Víkverji því, að það
sem ekki selst í Kringlunni sé sent
að Smáratorgi.
Það væri fróðlegt að fá útskýr-
ingar Hagkaupsmanna á þessari
viðskiptastefnu vegna þess að hún
vefst fyrir mörgum.
XXX
A
UR ÞVI að matvöruverzlanir eru
á annað borð til umræðu í dálki
Víkverja mætti kannski víkja að
öðru atriði. Hvernig stendur á því,
að svo virðist sem ekki sé lengur
hægt að fá keyptan stangarveiddan
lax í matvöruverzlunum hér. Eftir
að eldislax ruddi sér til rúms fæst
hann allt árið um kring og skulu
engar athugasemdir gerðar við það.
Ef afgreiðslufólk er hins vegar
spurt, hvort um eldislax sé að ræða
eða stangarveiddan lax fást engin
svör. Svo virðist sem afgreiðslufólk-
ið hafi ekki hugmynd um hvaða lax
það er, sem er á boðstólum.
Margir eru þeirrar skoðunar, að
verulegur gæðamunur sé á eldislöx-
um og „alvöru“ löxum. Alla vega
ætti að vera sjálfsagt, að viðskipta-
vinir matvöruverzlana ættu val,
jafnvel þótt stangarveiddi laxinn
væri dýrari.
xxx
ANNARS verður fróðlegt að sjá í
hvaða farveg samkeppnin í
smásöluverzluninni fer. Verzlunar-
miðstöðin við Smáratorg hefur tví-
mælalaust mikið aðdráttarafl. Að-
koman er þægilegri en í Kringlunni.
Það þarf ekki að koma á óvart, þótt
verulegur samdráttur verði í Kring-
lunni a.m.k. fyrst í stað.
Verzlanir í Kringlunni gætu
kynnzt því, sem kaupmenn við
Laugaveginn urðu að þola, þegar
Kringlan var opnuð og fyrstu árin á
eftir.