Morgunblaðið - 16.06.1998, Side 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Smáfólk
HOLP IT RI6HT THERE,
PUPEJTHIS 15 A PANCE!
THE D06 CAN'T COMS IN!
THERE WA5 A MISUNDER5TANPIN6..
THIS LITTLE KIP TH0U6HTIT U)AS
60IN6 TO BE A C05TUME 3ALL
50 HE U)ORE A 006 5UIT..
OKAT, 60 ON IN... HAVE A 6REAT TIME^
jukriC' M
PRETTY
5 600P 006
á 5UIT.. ^
í
í fclÁ1 1
f?
Ekki lengra, spjátrungur!
Þetta er dansæfing! Hund-
urinn má ekki koma inn!
Það varð smávegis misskilningur
... þessi litli strákur hélt að þetta
væri grímuball svo að hann kom í
hundabúningi ...
Allt í lagi, komið inn ...
skemmtið ykkur vel...
All-góður
hundabún-
ingur ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
ÞESSI mynd var tekin þegar Dalai Lama, veraldlegur og andlegur leið-
togi Tíbeta, „setti mark sitt“ á mannréttindabaráttu Amnesty
International og Body Shop. Á myndinni eru einnig Anita Roddick, stofii-
andi Body Shop, og Samuel Zan Akologo, herferðastjéri hjá Amnesty.
Til marks um stuðning
Islendinga við
mannréttindabaráttu
Frá Guðrúnu Ólafsdóttur og Ragn-
ari Halldóri Blöndal:
í TILEFNI af 50 ára afmæli Mann-
réttindayfirlýsingar Sameinuðu
þjóðanna á þessu ári standa samtök-
in Amnesty Intemational og versl-
anakeðjan The Body Shop
Intemational fyrir kynningarátaki í
47 þjóðlöndum. Tilgangur átaksins
er að efla meðvitund fólks um þau al-
mennu réttindi sem öllum ber að
njóta; að vekja athygli á baráttufólki
sem brotið er á; og fjölga styrktar-
og virkum meðlimum í deildum Am-
nesty í hverju þessara 47 landa.
Settu mark þitt á mannréttindi
Átakið ber yfirskriftina „Settu
mark þitt á mannréttindi“ og er al-
menningi gefinn kostur á að ljá átak-
inu þumalfar sitt. Úr þumalförunum,
sem safnast innan hvers lands, verða
gerðar stórar myndir af einstakling-
um sem ofsóttir em vegna mannrétt-
indabaráttu og sæta illri meðferð í
heimalandi sínu.
Islandsdeild Amnesty Inter-
national og Body Shop á Islandi hafa
nú formlega hafið átakið hér á landi
og var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri fyrst Islendinga til að
setja þumalfar sitt á blað til marks
um stuðning sinn. Fólk er eindregið
hvatt til að líta inn í verslanir fyrir-
tækisins í Reykjavík og á Akureyri
til að setja mark sitt á mannréttinda-
baráttu. Úr þumalfómnum, sem
safnast hér á landi, mun deild Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands í graf-
ískri hönnun búa til stóra mynd af
baráttufólkinu Fred M’membe í
Sambíu og Ngawang Sangdrol í Tí-
bet.
I Body Shop-búðunum er fólk
einnig hvatt til að undiirita svohljóð-
andi yfirlýsingu: „Eg ætla að gera
allt sem í mínu valdi stendur til að
tryggja að réttindin í Mannréttinda-
yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna
verði að vemleika um viða veröld.“
Fólk um allan heim undirritar yf-
irlýsinguna um þessar mundir en
síðar á árinu verður öllum undir-
skriftunum safnað saman og þær
settar í eina bók sem afhenda á Kofi
Annan, framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, á afmælisdegi Mann-
réttindayfirlýsingarinnar hinn 10.
desember nk.
í verslununum liggja einnig fyrir
upplýsingar um Mannréttindayfir-
lýsinguna, baráttufólk sem á undir
högg að sækja víðs vegar í heiminum
og póstkort sem hægt er að undirrita
og senda fulltrúum viðkomandi
stjórnvalda til að krefjast úrbóta í
mannréttindamálum.
Fred M’membe
Fred M’membe og annar blaða-
maður voru settir í fangelsi í mars-
mánuði árið 1996 þegar þeir voru
fundnir sekir um róg og óvirðingu
við stjórnvöld. Ásakanirnar voru
vegna blaðagreinar sem gagnrýndi
aðstoðarforsætisráðherra Sambíu
fyrir að hafa í ræðu lýst vanþóknun
sinni á fundarfrelsi, rétti sem
tryggður er samkvæmt 20. grein
Mannréttindayfirlýsingar Samein-
uðu þjóðanna. Þeim var neitað að
reka mál sitt fyrir dómstólum og
sátu í fangelsi við afar slæmar að-
stæður í 24 daga uns þeir voru látnir
lausir af dómara í yfirrétti. Fred
M’membe á þó enn yfir höfði sér allt
að 40 ákærur og er m.a. gefið að sök
ærumeiðingar og rógur vegna sama
máls.
Ngawang Sangdrol
Ngawang Sangdrol er ung, tíbetsk
búddati-úamunna sem var fyrst sett
í fangelsi í fjóra mánuði árið 1990
fyrir að hafa á friðsamlegan hátt
mótmælt hertöku Kínverja á Tíbet.
Meðferðin, sem hún hlaut, var brot á
18. og 19. grein Mannréttindayfirlýs-
ingar Sameinuðu þjóðanna.
Ngawang var handtekin á ný árið
1992 eftir sams konai- mótmæli. Þá
hlaut hún þriggja ára fangelsisdóm
sem var þyngdur og gerður að 9 ár-
um eftir dóm fyrir að hafa tekið upp
frelsissöngva á segulband í fangels-
inu. Þegar hún sætti refsingu í fang-
elsinu árið 1996 kallaði hún: „Frelsið
Tíbet!“ í kjölfarið sætti hún bar-
smíðum og var sett í einangrun með
niðurskornum matarskammti í
nokkra mánuði. Enn á ný var dóm-
urinn þyngdur og hefur hún nú verið
dæmd til samtals 18 ára fangelsis-
vistar, sem er þyngsti dómur sem
kveðinn hefur verið upp yfir pólitísk-
um kvenfanga í Tíbet.
Sýnum hugrökku baráttufólki
stuðning í verki!
Samstarf Amnesty og Body Shop
um upplýsingaherferð til að afla
stuðnings fyrir Ngawang Sangdrol
og Fred M’membe stendur yfir
áfram næstu tvær vikur. Við viljum
þakka því fólki sem þegar hefur
komið við í verslunum Body Shop og
sýnt stuðning sinn og hvetjum alla,
sem vilja leggja okkur lið, til að setja
mark sitt á mannréttindi.
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
formaður stjórnar íslandsdeildar
Amnesty International -
RAGNAR HALLDÓR BLÖNDAL,
upplýsingafulltrúi The Body
Shop á fslandi.