Morgunblaðið - 16.06.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 61
FRÉTTIR
I
I
I
í
l
I
J
l
(
(
J
J
J
(
J
í
J
J
(
J
J
1
J
J
(
J
J
í
J
Kvöldganga
í Viðey
ÞRIÐJA kvöldganga sumarsins
verður um Vestureyna í kvöld.
Farið verður með Viðeyjarferjunni
kl. 20.30 úr Sundahöfn. Gengið
verður frá kirkjunni framhjá
Klausturhól um Klifið, Eiðið og yf-
ir í Vesturey. Listaverkið Afangar
eftir R. SeiTa verður kynnt sér-
staklega í þessari ferð með við-
komu i Kvennagönguhólunum.
Gangan tekur um tvo tíma. Fólk er
áminnt um að klæða sig eftir veðri.
Sérstaklega skal minnt á að vera
vel skæddur. Þetta er þriðja ferðin
af fimm í raðgöngu, en þeir sem
koma fimm þriðjudagskvöld í röð
■ GLEÐIGJAFAKVÖLD verður á
Sir Oliver í kvöld. Þar skemmtir
hljómsveitin Gleðigjafarnir, André
Bachmann og Kjartan Baldursson.
Sérstakt tilboð verður á köldu öli
til kl. 23. Eldgleypir sýnir listir sín-
ar; brandarakeppni; munnhörpu-
leikarinn Sigurvin leikur fyrir
gesti.
eða laugardagseftirmiðdag kl.
14.15 sjá allt það helsta sem skoð-
unarvert er í eynni. Hver einstök
ferð er þó sjálfstæð. Gjald er ferju-
tollurinn, kr. 400 fyrir fullorðna og
200 fyrir börn.
Þegar miðar eru keyptir fær fólk
afhentan nýjan Viðeyjarbækling,
sem er sérstaklega saminn fyrir
göngufólk, ekki síst þá sem koma á
eigin vegum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Vakin skal athygli á því að ferðir
til eyjarinnar hefjast nú daglega
kl. 13 og grillskálinn er öllum op-
inn frá kl. 13.30-16.30 og er þá
hugsað til þeirra sem vilja koma
með nesti og geta þá einnig haft
með sér kol og olíu og grillað á úti-
grillinu sem er við skálann. Loks
er minnt á reiðhjólaleigu, hesta-
leigu og veitingar í Viðeyjarstofu.
Þess er ekki síst að geta, að vestan
í Sjónarhólnum eru hestar í girð-
ingu og þeirra á meðal nýfætt fol-
ald, foli sem nefndur hefur verið
Viðey.
Morgunblaðiá/Agnes Snorradóttir
FJOLDI starfsmanna Securitas var við gróðursetningu í Hvammsvík á laugardaginn. Hjálpuðust þar ungir
og gamlir að við gróðursetningu. Á minni myndinni njóta þeir Guðmundur Guðmundsson og Árni Guð-
mundsson aðstoðar Stellu Andreu Guðmundsdóttur og Arna Árnasonar, sem dregur hvergi af sér með far-
símann f annarri hendi og skófiuna í hinni.
Á NÝAFSTÖÐNUM aðalfundi
Skógræktarfélags Reykjavíkur
var aukið nýjum þætti í lög þess
svo nú geta félög, fyrirtæki og
starfsmannahópar átt þar félags-
aðild með tíföldu árgjaldi.
„Félagsaðild fyrirtækja nú
tengist einnig nýhöfnu skógrækt-
arstarfi í Hvammi og Hvammsvík
í Kjós, Hvammsmörk. Þar hefur
Hitaveita Reykjavikur látið vinna
umhverfisskipulag þar sem ráð-
Lögum Skógrækt-
arfélags Reykja-
víkur breytt
gerð er skógrækt á nær 100 hekt-
urum.
Þar er nú verið að úthluta
landnemaspildur til félaga og
fyrirtækja og 13. júnf sl. reið á
vaðið fyrirtækið Securitas sem
hélt fjölskyldudag í Hvamms-
mörk. Þar var fjölmenni af börn-
um og fúllorðnum og þeir sem
ekki komust að við ræktunai--
störfin undu við golf, grill eða
fískitjörn.
Þúsund mflna ferðin sem hefst
á einu skrefi er nú hafin, verið er
að leggja fram til kynningar
vandað skipulag svæðisins og
fyrstu landnemarnir byrjaðir,"
segir í fréttatilkynningu.
sÉ
Dagbók lögreglunnar 12. til 15. júní 1998
Innbrotum
hefur fækkað
töluvert
UMFERÐARMÁLEFNI voru
fyrirferðarmikil á verkefnalista
lögi’eglunnar þessa helgi. Rúmlega
eitt hundrað ökumenn voru stöðv-
aðir vegna hraðaksturs og 18
vegna ölvunaraksturs. Einnig voru
höfð afskipti af próflausum öku-
manni á Laugavegi við Kringlu-
mýrarbraut að morgni fostudags.
Rétt er að taka fram að sekt fyrir
að aka bifreið án réttinda er 50
þúsund fyrir fyrsta brot en síðan
tvöfaldast upphæðin fyi’h’ ítrekuð
brot.
Ökuleyfissviptingar
Ökumaður var stöðvaður undir
hádegi á fóstudag eftir að hafa
mælst aka á 96 km hraða á
Stekkjabakka við Hamrastekk, en
þar er hámarkshraði 50 km/klst.
Ókumaðurinn var fluttur á lög-
reglustöð þar sem hann var sviptur
ökuréttindum.
Að kvöldi laugardags var öku-
maður stöðvaður eftir að hafa
mælst aka á 97 km hraða á
Stekkjabakkka við Grænastekk
þar sem hámarkshraði er 50
km/klst. við bestu aðstæður. Sá
ökumaður var einnig fluttur á lög-
reglustöð og sviptur ökuréttindum.
Á svipuðum tíma var ökumaður
stöðvaður eftir að hafa mælst aka á
95 km hraða á Gullinbrú. Hann var
einnig sviptur ökuréttindum.
Á Bústaðavegi við Flugvallarveg
að morgni sunnudags mældist öku-
maður aka bifreið sinni á 101 km
hraða. Ekki þarf að taka fram að
það er helmingi meiri hraði en
leyfður er við bestu aðstæður.
Hann var fluttur á lögreglustöð og
sviptur ökuréttindum. Að kvöldi
sunnudags var ökumaður stövaður
á Suðurlandsbraut við Vegmúla
eftir að hafa mælst aka á 97 km
hraða. Hann var einnig fluttui- á
lögreglustöð og sviptur ökuréttind-
um.
Árekstrar - umferðarslys
Lögreglu var tilkynnt að kona
hefði slasast á höfði er nauðsyn
reyndist til að nauðhemla strætis-
vagni sem hún var farþegi í. Atvik-
ið átti sér stað á fóstudaginn og
hafði ökutæki verið ekið skyndi-
lega í veg fyrir strætisvagninn.
Konan afþakkaði aðstoð og hélt
áfram ferð sinni.
Rétt fyi’h klukkan sex á fóstu-
dag varð árekstur fimm bifreiða á
Hringbraut við Snorrabraut. Ein-
um ökumanni var ekið á slysadeild.
Um klukkan hálf átta að kvöldi
föstudags var árekstur tveggja bif-
reiða á Vesturlandsvegi við Kolla-
fjörð. Fjórir einstaklinga slösuðust
í árekstrinum þar af var einn flutt-
ur á slysadeild með þyrlu. Slysstað
var lokað frá 20 til 23 um kvöldið.
Á hádegi á laugardag var
árekstur tveggja bifreiða á Bú-
staðavegi. Flytja varð ökumann og
farþega í öðrum bílum á slysadeild
en báðar bifreiðar voru óökufærar.
Bifreið var ekið á gangandi vegfar-
anda í Skógarseli við Árskóga að
morgni sunnudags. Hinn gangandi
vai- að fara yfir götuna á gang-
braut og talið er að ökumaðurinn
hafi blindast af morgunsólinni.
Vegfarandinn var fluttur á slysa-
deild með áverka á fæti.
Unglingar
Lögreglu var tilkynnt um að
ungmenni væru að ógna fólki með
hnífi í austurborginni um hádegi á
föstudag. Reyndust þar vera tveir
14 ái’a piltar sem höfðu hnífa á sér.
Haft var sambandi við forráða-
menn drengjanna og hnífarnir
teknir af þeim.
Þrennt var handtekið á föstu-
dagskvöld vegna sölu og dreifingar
á heimalögðuðu áfengi (landa).
Tvennt var handtekið eftir að hafa
keypt landa og einn eftir að 30 lítr-
ar fundust við húsleit á heimili
hans. Á fóstudagskvöldið voru 15
unglingar fluttir í Athvarfið þang-
að sem þau voru sótt af foreldrum.
Bömin höfðu öll verið úti þrátt fyr-
ir gildandi reglur um útivist barna
og unglinga.
Lögreglan hafði afskipti af ung-
um pilti þar sem hann ók bifreið
foreldra sinna í leyfisleysi þrátt
fyi’ir að hafa aldrei öðlast ökurétt-
indi. Unglingspiltur var stöðvaður
eftir að hafa ekið bifhjóli sínu á
göngustígum í Fossvogshverfi með
farþega. Pilturinn vai- stöðvaður
þrátt fyi’ir að hafa gert tilraun til
að stinga lögreglu af. Ekki þarf að
taka fram að akstur bifhjóla á
göngustígum er óheimill og einnig
er óheimilt að aka með farþega á
þeim tækjum. Piltsins bíður því
nokkur sekt fyrir athæfi sitt.
Líkamsmeiðingar
Karlmaður var handtekinn eftir
að hafa veitt konu áverka í vestur-
bænum. Konan hafði áverka á
vinstra gagnauga en vildi ekki að
svo stöddu þiggja aðstoð vegna
þeirra. Ráðist var að karlmanni
þar sem hann var við hreinsunar-
störf að morgni sunnudags. Að
árásinni stóð hópur ungs fólks.
Árásarþoli hlaut litla áverka.
Innbrot
Lögi-eglu var tilkynnt um inn-
brot í skjalageymslur við Armúla á
föstudag. Ekki var hægt að greina
að neinu hafi verið stolið en
skemmdir voru unnar til að kom-
ast inn í húsnæðið.
Athyglisvert er að skoða þróun
innbrota bæði undanfarnar vikur
og eins samanburð síðustu þriggja
ára. I þessum mánuði hefur lög-
reglu verið tilkynnt um 34 innbrot
en þau voru 47 fyrir sama tímabil
árið 1997 og 55 árið 1996. Sé litið á
tímabilið frá áramótum til 14. júní
kemur í ljós að innbrotum hefur
fækkað jafnt og þétt síðustu árin
úr 882 árið 1996 í 772 árið 1997 og í
ár hefur lögreglu verið tilkynnt um
650 innbrot. Ohætt er að segja að
þessi þróun sé mjög jákvæð en
halda þarf áfram á sömu braut.
Lögreglan getur greint að það
hefur haft mikil áhrif á brotaþróun
þegar tekst að stöðva síbrotamenn
við iðju sína. Hún hefur síðasta ár
byggt upp vinnu sína með meira og
virkara eftirliti með síbrotamönn-
um sem talið er skila árangri. Séu
innbrot þessa mánaðar skoðuð sér-
staklega vekur athygli fjöldi inn-
brota í bíla þar sem verðmæti hafa
verið skilin eftir. Lögreglan vill ít-
reka tilmæli sín til borgara að læsa
bifreiðum sínum og skilja ekki eftir
verðmæti í þeim.
Fjögur innbrot hafa verið á
heimili. Hafa þau einkum verið í
kjallaraíbúðir þar sem skildir hafa
verið efth opnir gluggar án þess að
tryggilega sé gengið frá læsingum.
Önnur innbrot þennan mánuð eru í
geymslur þar sem ýmsum verð-
mætum var stolið, nýbyggingar
þar sem verkfærum var stolið og
innbrot í fyrirtæki.
Annað
Þá hafði lögreglan afskipti af
nokkrum einstaklingum þai’ sem
þeir köstuðu af sér þvagi á al-
mannafæri. Mál þeirra var afgreitt
með sekt.
Ölvaður einstaklingur í miðbæn-
um veitti ekki athygli ljósastaur
sem var á vegi hans og gekk beint
á hann. Maðurinn hlaut nokkurt
höfuðhögg og vai’ fluttur á slysa-
deild. Talið er að sökum ölvunará-
stands hafi maðurinn ekki alveg
gert sér grein fyi’ir umhverfinu.
Rúmlega tvítugur piltur slasað-
ist nokkuð er hann féll um 6 metra
fram af stigapalli í húsnæði við Eg-
gertsgötu. Pilturinn hlaut áverka á
höfði, hálsi og baki.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
BRYNJA Guðjónsdóttir og Brandur Guðjónsson
planta framtíðarplöntunni.
Plantað
Fagradal - Þetta er sá tími ársins
sem skógræktarfélög víðsvegar um
landið eru að planta út trjám. I
Mýrdalnum er það Skógræktarfé-
lag Mýrdælinga sem stendur að út-
plöntun þetta árið eins og mörg síð-
ast liðin ár.
Hreppsnefnd Mýrdalshrepps af-
henti skógræktarfélaginu nýlega
200 hektara svæði til skógræktar í
út í Vík
landi Víkur og var það síðasta verk
gömlu hreppsnefndarinnar. Brand-
ur Jón Guðjónsson formaður félags-
inns fékk hreppsnefndina af því til-
efni til að planta þremur birkiplönt-
um, einni fyrir kvenfólkið, annarri
fyrir karlmenn og þeirri þriðju íyrir
framtíðina. Áður er búið er að skipu-
leggja svæðið og planta á þessu
svæði u.þ.b. 20 þúsund plöntum.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
í VIKULOKUM í blaðinu á laugar-
dag, í upptalingu nemenda sjöttu
bekkinga, miðröð frá vinstri nr. 10,
var fóðurnafn Helga ekki rétt.
Hann er Ásgeirsson. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
Rangt nafn
í formála minningargreina um
Fjólu Guðmundsdóttur á blaðsíðu
33 í Morgunblaðinu sunnudaginn
14. júní var rangt farið með nafn
elstu dóttur hennar, Kristínar Kol-
brúnar, f. 14.10.1948, sem búsett er
á Hellu, maki Samúel J. Guðmunds-
son. Hlutaðeigendur eru beðnir af-
sökunar á þessum mistökum.
Stúdentspróf í Verzló 1967
Magnús Gunnarsson hafði sam-
band við blaðið og bað um eftirfar-
andi leiðréttingu: „I viðtali við mig,
sem birtist í Morgunblaðinu síðast-
liðinn laugardag, fer ég rangt með
ákveðnar staðreyndir varðandi
námsárangur samstúdenta minna í
Verzló 1967. Það var vissulega rétt
að Erla Sveinbjörnsdóttir varð dúx
með 7.29 í meðaleinkunn (eftir Ör-
sted-kerfi, hæst gefið 8.0), en næst-
ur henni var Ólafur Gústafsson með
7.14. Þriðji var Hafþór I. Jónsson
og fjórða hæst var Guðrún Erla
Bjarnadóttir. Vorið 1967 veitti
Verslunarráð íslands í fyrsta sinn
verðlaun fyi’ir bestan árangur í við-
skiptagreinum og hlaut Ólafur
Gústafsson þau verðlaun. Hlutað-
eigendur eru beðnir velvirðingar á
þeim staðreyndavillum sem fram
koma í viðtalinu, sem stafa af því að
minnið hefur hér brugðist mér.“
Norræna ekki með
Orlofsnefnd stéttarfélaganna vill
koma á framfæri, vegna fréttar á
sunnudag af ferðatilboðum til fé-
lagsmanna, að ekki verða seldir af-
sláttarmiðar í sumar í ferjuna Nor-
rænu. Samningar við ferjuna féllu
niður eftir að orlofsnefndin kynnti
Morgunblaðinu sumartilboðin.