Morgunblaðið - 16.06.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 49
ALPARMINNING
taldist til einskonar yfirstéttar, var
maður fólksins. Hann setti saman
syi-pur af íslenskum þjóðlögum fyr-
ir þá hljóðfæraleikara sem Ríkisút-
varpið hafði á að skipa og léku þeir
félagar utan dagskrár eitt kvöldið í
„hálfgerðu óleyfi útvarpsráðs".
Emil segir: „Þessi alþýðulagakvöld
urðu þá undir eins svo vinsæl að
sjálfsagt þótti að halda þeim áfram,
og hefur það verið gert vikulega sið-
an.“
Emil entist ei aldur til þess að
sinna ætlunarverki sínu. En hann
lagði grundvöll, sem aðrir ættu að
geta fært sér í nyt. Verk hans, laga-
syrpur búnar til flutnings í útvarp,
nótnasafn er hann og fjöldi merkra
tónlistarmanna m.a. Sigurður Þórð-
arson tónskáld og Baldur Andrés-
son cand. theol. höfðu ánafnað Rík-
isútvarpinu til eignar og varðveislu
voru afhent annarri stofnun. Þjóð-
arbókhlaðan hampar nú nýfengnum
perlum hljómlistar á sýningu. Fjár-
sjóður Emils Thoroddsens er hulinn
rykmekki í geymslum „úti í bæ“.
Ljóð afa Emils Thoroddsens,
Jóns sýslumanns og skálds, „Til
skýsins", minnir með ýmsum hætti
á örlög Emils.
„Virðist þó greið liggja þín leið
um ljósar himinbrautir."
Ekkert benti til annars en að
glæsileg framabraut biði Emils.
Veikindi og áfóll lömuðu starfsorku
hans...
„Jörðu því hver
ofnærri er
oft hlýtur væta hvarma.“
Matthías spyr Pál um Emil
í viðtalsbók Matthíasar Johann-
essens og Páls Isólfssonar „Hunda-
þúfan og hafið“ spyr Matthías um
Emil Thoroddsen. Páll svarar hik-
laust:
- Já, hann er fjölgáfaðasti íslend-
ingur, sem ég hef kynnzt. Allt lék í
höndunum á honum, músík, málara-
list, skáldskapur, prakkaraskapur,
góðmennska, dugnaður, slark.
Færeyingar segja um okkur Islend-
inga: „íslendingurinn getur allt!“
Þannig var það með Emil Thorodd-
sen, hann gat allt. Sumir sögðu að
hann skorti dýpt, en það var aðeins
vörn þeirra, sem fleyttu sér á yfir-
borðinu. Þegar fólk talar um að ein-
hvern skorti dýpt er það oft sjálfs-
vörn. Hitt er sanni nær, að fjöllyndi
í listinni hafi orðið Emil Thorodd-
sen að fótakefli. Hann málaði á pí-
anóið og spilaði á léreftið, eða með
öðrum orðum: hann stökk úr einu í
annað og var oft kærulaus um það
sem hann var að vinna, því hann gat
ekki lokið við verk sín fyrir áhuga á
nýjum viðfangsefnum. Ég held
hann hafi eytt hæfileikum sínum í
að taka fram hjá lífinu. En hann
gerði það líka af list. Hann samdi
mörg ágæt verk, eins og Alþingis-
hátíðarkantötuna, og ýmis góð
sönglög sem oft eru sungin, ekki
sízt síðasta lagið sem hann samdi og
hlaut fyrstu verðlaun í samkeppn-
inni á lýðveldishátíðinni 1944, „Hver
á sér fegra fóðurland“.
Ég sá Emil síðast á ferli í hrá-
slaganum á Þingvöllum það sumar.
Þá sagðist hann ekki vera heill
heilsu. „Ég verð að koma mér
heim,“ sagði hann. Upp úr því lagð-
ist hann í Landspítalann. Ég heim-
sótti hann þangað nokkrum sinnum
og þegar ég kvaddi hann síðast,
spurði hann: „Hvað er að frétta úr
lífinu?"
Daginn eftir lézt hann.“
Samtök listamanna ættu að gang-
ast fyrir því í samvinnu við Reykja-
víkurborg að reisa styttu Emils við
Túngötu, á lóð þeirri er gullregnið
bærðist í blíðum blæ á æskuárum
tónskáldsins í Reykjavík. Knatt-
spymufélagið Víkingur gæti virkjað
afkomendur Suðurgötuklíkunnar og
aðra vini og velunnara til þess að
hrinda því í framkvæmd.
Þorvaldur Thoroddsen er einn á
lífi af mannvænlegum hópi systkin-
anna.
Hann hefir reynst traustur og
staðfastur, stoð og stytta í tónlistar-
lífi Reykjavíkur. Hógvær og hlé-
drægur hefir hann markað sín spor
í menningarlífi borgar sinnar.
FRETTIR
Þjónustusími fyrir Norðurlandabúa tekinn í notkun
Upplýsingar
um búferlaflutninga
ALMENNINGUR á Norður-
löndum getur nú fengið upplýs-
ingar, sér að kostnaðarlausu, um
gildandi reglur og réttindi, en 9.
júní var norræni þjónustusíminn
tekinn í notkun.
Þjónustusíminn Halló Norður-
lönd er opinn allan sólarhringinn
og er fyrst og fremst ætlaður
norrænum þegnum sem flytja
milli Norðurlanda vegna atvinnu
eða náms. Norræna ráðherra-
nefndin fjármagnar starfsemina
en Norræna félagið í Svíþjóð sér
um þjónustuna. Viðskiptaráð-
herra Svía, Leif Pagrotsky, opn-
aði símaþjónustuna.
„Þegar hringt er í þjónustu-
símann er valið númer út úr
landinu (á Islandi 00) og síðan
númerið 80011 1188 88 og er
það þeim sem hringir inn að
kostnaðarlausu. Sá sem hringir í
þjónustusímann leggur inn fyrir-
spum, nafn, heimilisfang og
símanúmer og markmiðið er að
svara öllum fyrirspurnum innan
48 klst. Fyrirspurnum má beina
til þjónustunnar á íslensku auk
annarra norrænna tungumála.
Einnig er hægt að senda inn
erindi með tölvupóstu: hallo
@norden.se eða á bréfsíma:
+80011 1188 88.
Þjónustusíminn verður rek-
inn í tilraunaskyni fram á næsta
vor en þá verður árangur þjón-
ustunnar metinn af Norrænu
ráðherranefndinni," segir í
fréttatilkynningu frá Norður-
landaskrifstofu forsætisráðu-
neytisins.
Sameiginlegt
framboð í
næstu alþingis-
kosningum
„STJÓRN Verðandi, samtaka ungs
alþýðubandalagsfólks og óháðra,
lýsir yfir fullum stuðningi við hug-
myndir um sameiginlegt framboð
félagshyggjufólks fyrir alþingis-
kosningamar vorið 1999.
Jafnframt lýsir stjórn Verðandi
yfir ánægju sinni með þann mál-
efnagrundvöll sem þegar hefur
náðst og er að finna í hini opnu bók
Grósku og niðurstöðum viðræðu-
hópa flokkanna þriggja. Gott sam-
starf hefur þegar náðst meðal ung-
liðahreyfinga stjórnarandstöðunn-
ar og í sveitarstjómum víðsvegar
um landið,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Allianz
Sparitrygging Allianz
Slysatrygging - líftrygging - fjárfesting
Allianz slysatrygging
endurgreiðir öll iðgjöld ásamt vöxtum
míiáfc
V JSL
"C >«
& K
Verðir þú fyrir alvarlegu slysi, þarft þú meira en ást og umhyggju.
- Þú þarft einnig fjárhagslegt öryggi.
Allianz tryggir þér:
• örorkubætur allt að 60 milljónir króna
• lífeyri til æviloka
• dagpeninga frá fyrsta degi
• Allianz yfirtekur greiðslur á iðgjaldi
• endurgreiðslu á iðgjaldi, ásamt tryggðum vöxtum
• trygging frá fæðingu til níræðis aldurs
Dæmi:
Fimmtugur karlmaður kaupir UPR Sparitryggingu hjá Allianz.
Eftir að hafa greitt 4.788 kr. á mánuði í tíu ár greiðir Allianz honum 773.560 kr* jafnvel
þótt ekkert hafi komið fyrir. Hann verður hins vegar fyrir slysi 53 ára og er úrskurðaður 70%
öryrki. Samkvæmt samningi fær hann greitt út 2.886.400 kr. strax og að auki 120.000 kr.
mánaðarlega til æviloka. Allianz viðheldur samningi hans eftir slysið út samningstímabilið
og greiðir honum að lokum, eins og um var samið, 773.560 kr. Þegar þessi einstaklingur
nær 75 ára aldri, hefur Allianz greitt honum alls 35.339.960 kr,
• eftir að samningi lýkur eftir fimmtán ár
Allianz - örugg trygging g^dem^ok,.
Hafðu samband við þjónustufuiltrúa í síma 588 30 60 og leitaðu upplýsinga um Sparitryggingu Allianz
4