Morgunblaðið - 16.06.1998, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
ALDARMINNING
grímsdóttir, og Emil voru þre-
menningar, Ludvig Knudsen afi
hennar og Guðrún Sigríður, amma
Emils, voru systkini. Kært var með
öllum Knudsenum. Þorgrimur
læknir Þórðarson sem tók við hér-
aðslæknisstarfi eftir Þórð
Thoroddsen sagði: „Kona af
Knudsensætt bregst aldrei.“ Ein-
hverjir góðkunningjar okkar Emils
voru í glöðum hópi gesta. Emil var
lágmæltur, en þurfti enga háreysti
til þess að njóta athygli. Mörgum
voru enn í fersku minni gamanyrði
er hrutu af vörum hans er Ríkis-
sjóður hafði nýverið gefið út 1
krónuseðla. Voru þeir prentaðir á
lélegan pappír, enda tekið fram í
opinberum skrám að erfitt hafi
reynst að „afla góðs pappírs“. Hall-
dór Pétursson frændi Emils hafði
teiknað seðlana. Emil sagði: „Mað-
ur má ekki einu sinni svitna, þá er
maður orðinn blankur." Að skilnaði
gaf Emil okkur hjónum litla mynd
er hann hafði teiknað. Blýant-
steikningu.
Hjá Leikfélagi Reykjavíkur
Eigi má gleyma þætti Emils í
leikhússtarfi. Hann samdi leikgerð
tveggja skáldsagna afa síns, Jóns
Thoroddsens skálds. „Maður og
kona“ og „Piltur og stúlka" nutu
mikilla vinsælda í búningi þeirra
frænda Emils og Indriða Waage.
Það er ein besta minning frá
unglingsárum að hafa átt þess kost
að kynnast þeim frændum og starfi
þeirra hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Vegna starfa í Útvegsbankanum og
vináttu við Indriða og Brynjólf Jó-
hannesson tók ég að tilmælum
þeirra þátt í starfi félagsins um
skeið. Það verður ógleymanlegur
þáttur. Emil fylgdist vel með æf-
ingum á leikritsgerð þeirra félaga.
Svo kom frændi þeirra, Haraldur
Á. Sigurðsson, sem þá var fluttur
að Drageyri. Kvöld eitt er „Piltur
og stúlka" var flutt á sviði og Þor-
steinn Ö. Stephensen söng af hjart-
ans lyst „Búðarvísur" um Kristján
búðarmann og „fyrirtaksklútana
Danskinum hjá“ sem Reykjavíkur-
stúlkurnar fengu ókeypis hjá
Danskinum, þá stóð Haraldur í
hópi búðargesta á sviðinu. Hann
hafði ekki staðist mátið. Sminkaði
sig í skyndi og sté inn á sviðið. Lét
mjög að séi' kveða, hafði hönd á öll-
um varningi í „búðinni" og laumaði
í vasa sína. Tók kröftuglega undir í
viðlagi með Þorsteini Ó. Átti sinn
ríka þátt í gleði leikhúsgesta það
kvöld. Þeir frændur af Knudsen-
skyni, Indriði, Emil og Haraldur
Á., kunnu að skemmta sér og öðr-
um.
Emil skrifaði gi'einar í vikublaðið
Vörð. Fjallaði þar um framtíð ís-
lenskrar tónlistar. Þá ritaði hann
um málaralist, leiklist og hljómlist í
Morgunblaðið. Hann var um skeið
ritstjóri vikublaðsins Freyju er út
kom árin 1927-28. „Glaumbæjar-
grallarinn" var safn sönglagatexta
er Magnús Ásgeirsson og Emil gáfu
út. Magnús þýddi ljóðin en Emil
valdi lög og bjó til flutnings. Emil
þýddi og staðfærði mörg leikrit. Þá
átti hann mikinn þátt í revýum
mörgum.
Ríkisútvarpið varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að Emil Thoroddsen
réðst til starfa sem píanóleikari og
starfsmaður tónlistardeildar þegar
við stofnun. Emil hafði fastmótaðar
skoðanir, sem byggðust á þekk-
ingu, sem hann hafði aflað sér á
námsárum sínum í menningarborg-
um Evrópu. Auk þess naut hann
erfða og uppeldis við móðurkné og
í föðurgarði. Á þeim grundvelli
byggði hann tillögur sínar um sókn
til aukinnar menningar og fram-
fara í tónlistarmálum þjóðarinnar.
Emil birti gi'einar um sönglíf og
tónlistai-mál í Verði, málgagni sem
Kristján Albertsson vinur hans og
skólabróðir stýrði. Þar lýsti hann
því, með hvaða hætti hann teldi að
keppa bæri að því marki að efla
hljómlist og sönglíf í landinu. Emil
gat trútt um talað. Afi hans, Pétur
Guðjohnsen, var í nánu vinfengi við
Andreas Berggren, danskt tón-
skáld. Móðir hans, Anna, og Svein-
björn tónskáld Sveinbjörnsson
voru systkinabörn. Ásta Einarsson,
ein helsta stoð hljómlistar í
Reykjavík, var dóttir Lárusar
Sveinbjörnssonar bróður Svein-
björns tónskálds. Túngatan og um-
hverfi Landakotstúns, æskustöðva
Emils, ómaði af sönglist og ilmaði
af gróðri. Þá mun föðurkyn ekki
hafa spillt menningararfi hins unga
tónlistarmanns. Hvar var hlíðin
fríðari og blágresið blíðara en í
Barmahlíð, æskustöðvum afa
Emils, Jóns Thoroddsens skálds og
sýslumanns ...
Starf Emils og arfur
Strax þegar Emil tók við starfi í
Ríkisútvarpinu hófst hann handa
um söfnun nótna, raddsetningu tón-
smíða, sönglaga og hljómsveitar-
verka, með það í huga að mennta
þjóð sína með markvissum hætti ...
Þeirri ætlun sinni lýsti hann í
gi’einaflokki er hann birti í Útvarps-
tíðindum ... Emil, sem sjálfur var
kominn af embættismönnum og
LANDBÚNAÐUR
"Jarðir til leigu
Hjá jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins eru
neðangreindar jarðir lausartil leigu:
1. Laugaból, Þingeyrarhreppi, Vestur-
ísafjarðarsýslu; á jörðinni er 12,6 ha ræktun,
æðarvarp, sumarbústaður b. 1980 og þrjár
geymslur.
2. Minni-Borg, Eyja- og Miklaholtshreppi,
Snæfellssýslu; á jörðinni er 27,5 ha ræktun,
íbúðarhús b. 1958, tvö fjárhús, hlaða, blás-
arahús m/súgþurrkun, hesthús, fjós, vot-
heysturn, véla- og verkfærageymsla, flat-
gryfja og refahús.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560 9750.
Grænt símanúmer 800 6800.
Umsóknareyðublöðfást í afgreiðslu land-
búnaðarráðu neytisi ns.
Umsóknir berist jarðadeild landbúnaðarráðu-
neytisins, Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík fyrir
1. júlí 1998.
Landbúnaðarráðuneytið,
12. júní 1998.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp að Aðalstræti 12,
Bolungarvík, miðvikudaginn 24. júní 1998 kl. 14.30.
YX-120 Þ2259 Þ2445
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík,
15. júní 1998,
Jónas Guðmundsson.
KENNSLA
©
KolbruN
Jurtakennsla
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir verður með
námskeið í tínslu, notkun og virkni í íslenskum
jurtum, einnig verður kennd smyrslagerð.
Námskeiðið er tvö kvöld, 18. og 22. júní.
Skráning er í síma 552 1103 frá kl. 9—17.
TILKYNNIIMGAR
- . Lánasjóður íslenskra námsmanna
Sumartími ráðgjafa
í viðtölum 15. júní—28. ágúst kl. 11 — 15
Þriðjudagar Norðurlönd
Fimmtudagar ísland
Föstudagar Enskumælandi og
önnur lönd.
^Engin viðtöl mánudaga og miðvikudaga.
U.S. Green Card Lottery
Vinningshafar
Líkurnar á að vinna í dvalar- og atvinnuleyfa-
happdrætti (Green Card Lottery) bandaríkja-
stjórnar eru minni en einn á móti tvö hundruð.
Fjórir íslendingar hrepptu hins vegar vinning
í DV-99 útdrætti National Visa-Service.
Eftirtaldir hafa öðlast rétt á dvalar- og atvinnu-
leyfi í Bandaríkjunum fyrir sig og fjölskyldu sína
íslenskir vinningshafar:
Hans E. Baldursson, 99501551,
Guðný E. Fanndal, 99500647,
Þröstur Reynisson, 99501966,
Rúnar Reynisson, 99501203.
BÁTAR SKIP
Þessi bátur er til sölu
Gáski 1000, árg. 1987, lengdur í 11,20 metra
og hækkaður 1997, vel búinn tækjum. Bátur
í mjög góðu standi. Selst með eða án aflahlut-
deildar (kvóta) sem er 62.519 þorskígildi, þar
af 53.526 kg þorskur.
Skipasalan Bátar og búnaður,
sími 562 2554, fax 552 6726.
TIL SÖLU
Lausfrystir
Til sölu góður færibandalausfrystir með tveim-
ur öflugum frystipressum, loftkældum eim-
svala og góðu, sléttu stálfæribandi. Frystirinn
er tilbúinn til uppsetningar. Gott verð.
Kælivélar ehf.
Hafliði Sævaldsson,
sími 893 1906 eða 587 4530.
FUIMOIR/ MANNFAGNAÐUR
Vinnuskáli
Vinnuskáli um 200 m2 með skrifstofuherbergj-
um, eldhúsi og salernisaðstöðu er til sölu.
Skálinn er settur saman úr þremur 60 m2 og
einni 20 m2 einingu, sem eru vel flytjanlegar.
Afhending geturfarið fram nú þegar.
Ennfremur er til sölu 55 m2 hífanlegt skýli,
hentugt fyrir t.d. járnamenn.
Upplýsingar í símum 567 1773 og 567 1691
frá kl. 8.00-16.00.
Aðalsafnaðarfundur
Ásprestakalls
verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar
fimmtudaginn 18. júní kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Sóknarnefnd Áskirkju.
FÉLAGSLÍF
Skíðadeild Víkings
Aðalfundur
verður haldinn i Vík-
inni 23. júní kl. 20.00. Venjuleg
aðalfundarstörf. Félagar vel-
komnir.
Stjórnin.
Dagsferðir miðvikudaginn
17. júní
Kl. 10.30 frá BSÍ. Leggjarbrjót-
ur. Þjóðhátíðarganga úr Botns-
dal í Hvalfirði yfir Leggjarbrjót
á Þingvelli. Verð 1600/1800.
Kl. 10.30 frá BSI. Hjólreiðaferð
yfir Leggjarbrjót. Verð 1600/
1800.
Dagsferðir sunnudaginn 21.
júní.
Kl. 8.30. Baula. Gengið frá
Bröttubrekku á Baulu.
Kl. 8.30. Árganga. Gengið niður
með Bjarnardalsá.
Helgarferðir næstu helgi
19,—21. júní. Jónsmessu-
næturganga yfir Fimmvörðu-
háls. Ein vinsælasta útivistar-
ferðin. Gengið verður frá Skóg-
um, yfir Fimmvörðuháls i Bása.
Hægt að dvelja í Básum fram á
sunnudag. í Básum verður boðið
upp á gönguferðir, grillveislu og
varðeld.
19.—21. júní. Básar um sum-
arsólstöður. Fararstjóri verður
Anna Soffía Óskarsdóttir.
Kvöldvökur, varðeldur, göngu-
ferðir og grillveisla.
19.—21. júní. Vík í Mýrdal
með jeppadeild Útivistar. Far-
arstjóri verður Gisli Einarsson
jarðfræðingur. Á leið austur fyrir
fjall verður stoppað við Selja-
landsfoss. Gist í Vlk í Mýrdal í
tjaldi eða skála. Farið að Hafurs-
ey og Hjörleifshöfða o.fl.
FERÐAFÉLAG
<§> ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SiMI 568-2533
Fimmtudagur 17. júní kl.
10.30
Móskarðshnjúkar-Trana. Góð
fjallganga. Verð 1.000 kr.
Laugardagur 20. júní kl.
18.00
Næturganga á Heklu. Heklu-
ganga um sumarsólstöður og að
næturlagi er ógleymanleg. Verð
2.800 kr.
Göngudagur F.í. og Spron er
sunnudaginn 21. júní.
Takið daginn frá og mætið í
skemmtilegar gönguferðir þar
sem allir ættu að finna göngu við
sitt hæfi.
Kl. 10.30 Nesjavellir —
Marardalur — Draugatjörn.
Gönguferð vestan undir Hengli.
Kl. 13.00 Hellisheiði -
Draugatjörn, gömul þjóðleið.
Tilvalin fjölskylduganga. Gengið
með vörðum. Hellukofinn
skoðaður. Hóparnir hittast hjá
rústum gamla sæluhússins við
Draugatjörn. Brottför frá BSI,
austanmegin og Mörkinni 6.
Minnum á helgarferðirnar á
Fimmvörðuháls og í Þórs-
mörk, m.a. fjölskylduhelgi í
Þórsmörk 26.-28. júní.
Pantíð tímanlega.
ÝMISLEGT
STJORNUKORT
eftir
Gunnlaug
[ Guðmundsson.
Persónu-,
framtíðar- og
samskiptakort
Uppl. í síma 553 7075.
Sendum í póstkröfu.
KENNSLA
• Einkatímar í reikiheilun
• Helgarnámskeið í reiki I
20. og 21. júní
Á reikinámskeiði
lærir þú að heila
þig og aðra.
Reiki virkar eins
og líkamleg og
andleg vítamín-
sprauta. Því fylg-
ir vellíðan, gleði
og friður.
Upplýsingar og skráning í síma
552 4545.
Sólbjört Guðmundsdóttir,
reik'meistari.