Morgunblaðið - 16.06.1998, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 39
Morgunblaðið/Kristinn
TÓNLISTARKENNARI með nemendum sínum í Foldaskóla. Mannleg
greind er fjölþætt m.a. tónlistarleg.
kennsluna og menntun nemandans.
Og í flestum tilfellum taka sam-
ræmdu prófin að stjóma
námskránni; hvað skólinn kennir
og hvað hann vanrækir í kennsl-
unni. Við höfum tilhneigingu til að
kenna það sem við prófum í! Það er
tiltölulega auðvelt að hækka með-
altal á samræmdum prófum, en
það segir ekki til um hvort gæði
kennslunnar séu meiri en áður.“
Rdmast listin innan
greindarhugtaksins?
Ýmsir drápu á greindarhugtakið
á ráðstefnunni, hvemig það hefur
verið skilgreint og hvað hafí verið
upp á teningnum í þeirri umræðu.
Skólakerfið hefur lengst af unnið
út frá þeirri hugmynd að greind sé
fyrst og fremst sá hæfileiki sem
greina megi í málhæfni og talna-
leikni. Howard Gardner er meðal
þeirra sem vilja víkka hefðbundna
greindarhugtakið í fjölþætta
greind, svo sem rök- og stærð-
fræðigreind, málgreind, tónlistar-
greind, rýmisgreind, hreyfigreind,
samskiptagreind og sjáifsþekking-
argreind.
Eisner sagði í fyrirlestri sínum,
að John Dewey sé hinsvegar eini
fræðimaðurinn sem fjalli um list-
ræna greind. Hann segir að í
menntakerfinu sé tilhneiging til að
nota þrönga skilgreiningu á
greindarhugtakinu. Hann vill aftur
á móti víkka það. „Ef litið er á
greind sem hæfileika til að leysa
vandamál, er hægt að leysa þau á
margan hátt. Tökum dæmi: Að
semja sinfóníu, er birting á tónlist-
arhæfileikum. Eins er það að mála
málverk, semja dans eða fram-
kvæma deilingu birting á hæfileik-
um. Greind er því ekki takmörkuð
við mál og tölur. Fólk hefur greind
á mismunandi sviðum og það sem
við ættum að spyrja um er ekki
hversu greindur einhver er, heldur
hvaða greind hann hefur og hlúa
svo að þroska hennar á mismun-
andi sviðum."
Tilfinningaieg greind er meðal
umræðuefna manna
núna og líka fjölþætt
greind. Er menntunnr-
kerfíð að gera eitthvað í
þeim málum?
„Það er meira talað en
framkvæmt á þeim svið-
um. Hugmyndin er skynsamleg og
það þarf að finna út úr þessu. En
hvernig á að gera þetta? Hvemig á
að ýta undir mismunandi greindar-
gerðir og mismunandi leiðir til að
leysa vandamál. Hvernig er væn-
legast að komast að því í hverju
nemandi er líklegur til að vera
mjög góður? Hugmyndin er m.ö.o.
góð en leiðina þarf að finna.“
Er kennsla list?
Viðhorf Eisners til kennslu kem-
ur e.t.v. mest á óvart í kenningum
hans. Kennslan er sem einskonar
listsýning. En er kennsla list?
„Já, já, já. Það er ekki hægt að
gefa kennurum uppskriftir. Að-
stæður eru alltaf einstakar og sam-
skipti kennara og nemenda þarf
ævinlega að fínstilla: A hvað hraða
getur kennarinn unnið og hvemig
á að taka á málunum? Það hefur
allt að segja hvemig kennarinn
stillir sig inn á aðstæður til að falla
að þeim og það krefst listrænnar
útsjónarsemi," segir hann. Formúl-
ur duga skammt að hans mati og
þess vegna er nauðsynlegt að fá
gagnrýni á kennsluna á sama hátt
og bækur og leikrit era gagnrýnd.
„Kennarinn hefur auðvitað sín
markmið en stundum breytast
markmiðin í ferlinu, og hann þarf
að laga sig að nýjum markmiðum
til að ná þeim. Ég kenni aldrei
sama áfangann tvisvar. Hann kann
að hafa sama naín og sama lesefni
en þegar á hólminn er komið og
nemendumir mættir, verða spum-
ingamar ekki þær sömu og „efna-
fræðin" ekki sú sama - og ég þarf
að laga mig að breyttum aðstæð-
um. Sem betur fer, því annars væri
þetta leiðinlegt. Þetta er það sem
gerir kennslu áhugaverða. Hún er
ekki rútína. Það er ýmis rútína í
kennslu en hún er ekki rútína.“
Hljómfall kennslunnar
A heimasíðu Elliot W. Eisners er
vitnað í rannsóknir hans sem hæst
standa um þessar mundir. Sjá síðu
ráðstefnunnar: http://rvik.ismennt.
is/~cdt/eisner.html.
„Hugmynd mín er um gagnrýni,
til dæmis listagagnrýni. Hugmynd-
in er um „connoisseur", sérfræð-
inga sem skrifa um málefni til að
hjálpa áhorfendum að njóta þeirra
betur,“ segir hann, „ég hef verið að
þróa menntunartengda gagnrýni
handa fólki, sem getur skrifað og
rætt um skóla og bekki og kennara
og um hópastarf; skrifað um það
sem er ekki á sviði mælinga, heldur
lýsingar, túlkunar, mats og þess-
konar ferla.
En hvemig lýsi ég þessu?
Hvemig túlka ég það og hvernig
met ég gildi þess?“ segir hann.
Markmiðið er að færa listræna sýn
yfir á skóla og skólastofur, til að
gera hárfín og flókin einkenni sem
þar em fyrir hendi sýnileg - þau
verða ekki sýnileg öðravísi.
Gagnrýnendurnir era eins og
kennarar. Þeir benda fólki á eitt-
hvað sem það hefur ekki
tekið eftir áður. Þetta er
ekki neikvæð gagnrýni
heldur vekjandi og
lýsandi.
Við skoðum hvað er að
gerast í skólum og ger-
um lýsingar, túlkanir, hælum og
metum, á máli sem er oft listrænt í
eðli sínu frekar en staðreyndabund-
ið. Það er „Quanta" sem er magn
og það er „Qualey“ sem era gæði!
Við eram að þróa tungumál um það
sem gerist í kennslustofunni og
orðin höndla fremur gæði kennsl-
unnar en magn.“
Málarðu enn?
„Nei, Ég hætti að mála þegar ég
fór að skrifa. En skriftir og málun
eiga margt sameiginlegt. Tónsmíð,
ritstjóm, sköpun. Ó, já, næmi fyrir
tungumálinu og ímyndunarafl,
þetta er allt þáttur í góðum skrift-
um. Og við ættum að huga betur að
skriftum sem listrænum athöfnum
í skólum því ef fólk hefur ekki tón-
eyra, getur það ekki skrifað vel.
Málið hefur tónfall, tengingu og
takt. Rithöfundar heyi-a það og
texti þeirra fær sérstaka hreyfingu
og tónfall, leikarar gera þetta líka.“
Kenningar
Eisners eru
sem ferskir
vindar
Geta pabbar sinnt skólastafi?
MÆÐUR hafa haft meiri umsjón
með skólagöngu barna sinna og
þær gera sér því oft betur grein
fyrir þroska þeirra en feður.
Mæður mæta betur í foreldravið-
töl en feður og þær eru líftaugin
í samstarfí skóla og heimila. Þær
hafa staðið sig vel.
Feður eiga með öðrum ekki
skilið jafnmikið hrós fyrir áhuga
sinn á skólagöngu barnanna, en
nú ætla nokkrir karlmenn sem
eiga börn í Smáraskóla að gera
bragarbót. „Foreldraráðið ætlar
í samstarfi við foreldrafélagið að
stofna pabbaklúbb Smáraskóla,"
segir Jón Svavarsson formaður
ráðsins, „þátttaka feðra hefur
verið í lágmarki og við viljum
snúa dæminu við.“
Undirbúningsfundur
pabbaklúbbsins verður í skóla-
naum mánudaginn 22. júní kl. 20
og er m.a. auglýstur undir slag-
orðinu „Aukum áhrif karla f
grunnskólanum. „Feður hafa
margt að gefa skólanum og geta
miðlað mörgum áhugamálum
sínum og hæfileikum," segir Jón,
„og t.d. verið með f sumum tóm-
stundaklúbbum og gert skólalífið
Qölbreyttara."
Hann segir að jafnvel bréf
send frá skólayfirvöldum séu
skráð á mæður bama fremur en
feður. Það er líkt og gefist hafi
TVEIR feður sem voru með
verið upp á pöbbunum. „En við
viljum koma þeim í nánari tengsl
við heim bama og unglinga,“
segir Jón.
Ef þetta heppnast tekur karla-
klúbburinn svo formlega til
starfa í haust og verður hann
nýjung í grunnskólum landsins
eftir því sem Jón segir. En
hverju telja þeir að feður geti
miðlað? „Við leitum að körlum
sem hafa t.d. áhuga á frímerkj-
Morgunblaðið/Jón
í skemmtun í Smáraskóla í vor.
um, íþróttum, fjallgöngu, útivist,
brids, ræðumennsku, Qölmiðlum,
auglýsingagerð, tölvum, forritun,
ljósmyndun, vélum, bflum, flug-
drekum, sjómennsku, búskap og
raunvísindum svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Jón.
Hugmyndin hjá foreldraráðinu
er að nýta sérþekkingu feðranna
og fá þá jafnvel til að leiða litla
hópa nemenda til að vfkka sjón-
deildarhring þeirra.
Utskrifaðir tannsmiðir
EFTIRFARANDI tannsmiðir útskrifuðust frá Tannsmíðaskóla ísa-
lands 29. maí sl. Frá vinstri: Lilja Þórey Guðmunsdóttir, Áslaug Krist-
insdóttir, Margrét Hrönn Frímannsdóttir og Birna Ágústsdóttir.
Brautskrán-
ing Háskóla-
kandídata
BRAUTSKRÁNIN G kandídata
frá Háskóla íslands fer fram í
Laugardalshöll á þjóðhátíðardegi
íslendinga og stofndegi Háskóla
Islands, hinn 17. júní. Hátíðin hefst
kl. 13.30 og er áætlað að henni ljúki
kl. 15.30. Blásarasveit leikur þjóð-
hátíðarlög í anddyri hallar, eða ut-
an dyra ef veður leyfir, frá kl.
12.30.
Athöfnin hefst með því að forseti
Islands og rektor ganga í salinn
ásamt fylgdarliði. Að loknu ávarpi
rektors verður gengið til braut-
skráningar. Athöfninni lýkur með
söng Háskólakórsins undir stjóm
Egils Gunnarssonar.
Skólaslit í grunnskólanum á Þórshöfn
Listin blómstrar
Morgunblaðið/Lfney
FRÁ handmenntasýningu nemenda. Litla stúlkan
heitir Rakel Brá Siggeirsdóttir.
Þórshöfn. Morgunblaðið.
GRUNNSKÓLANUM á Þórshöfn
var slitið formlega í maílok og var
það skemmtileg athöfn með ívafi af
skemmtiatriðum nemenda. Yngstu
nemendurnir sungu og fluttu fram-
samin ljóð um hvert annað og fleira
en einnig komu kennarar með söng-
atriði undir stjóm tónlistarkennar-
anna Alexöndra og Edytu. Sýning á
afrakstri nemenda í handmennt og
listgreinum var einnig þennan dag
og var hún mikið augnayndi. Kaffi-
sala var hjá 7. bekk í skólanum og
var hún vel sótt að venju og ágóðinn
rennur í ferðasjóð 7. bekkinga.
Skólastjóri grunnskólans á Þórs-
höfn er Rut Indriðadóttir og er
þetta annar vetur hennar hér. Rut
er borin og bamfædd Langnesingur
og bjó á Þórshöfn fyrstu 15 árin en
fluttist þá í burtu. Hún á því rætur
hér og það er happafengur þegar
ungt fólk snýr aftur í heimabyggð-
ina með menntun og reynslu sem
skilar sér aftur heim.
Skólinn - lífæð byggðarlagsins
Grannskólinn er einsetinn og
hlutfall réttindakennara hátt, um 60
nemendur vora í skólanum sl. skóla-
ár. öll aðstaða í skólanum hefur ver-
ið stórbætt, bæði fyrir kennara og
nemendur og virðast þær úrbætur
hafa skilað sér í metnaðarfullri
vinnu starfsfólks skólans á ýmsum
sviðum. Handmenntasýningin vakti
athygli enda var hún fjölbreytt og
mildl vinna þar að baki, bæði hjá
nemendum og kennuram. Nemend-
ur unnu með margs konar efni, s.s.
leir og tré, gerðu myndverk af ýmsu
tagi og grafík, einnig var saumað og
prjónað.
Grannskólinn á Þórshöfn hefur
komið vel út úr samræmdum próf-
um skv. meðaltölum yfir landið og
það taka flestir foreldrar undir orð
skólanefndarformannsins við skóla-
slitin: „Oft er talað um að stærsta
fyrirtækið og atvinnuveitandi sé líf-
æð byggðarlagsins en ef skyggnst
er dýpra þá er það ekki síður skól-
inn sem á þann titil, því þar er
framtíðin, bömin okkar.“