Morgunblaðið - 16.06.1998, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, í broddi fylkingar við upphaf leiðtogafundar ESB í Cardiff. Að
baki má sjá forsætisráðherra nokkurra Evrópuríkja, f.v.: Finnann Paavo Lipponen, Göran Persson frá Sví-
þjóð, Jose Maria Aznar frá Spáni, ítalann Romano Prodi og hinn gríska Constantinos Simitis.
Cook segir EMU-aðild
líklega eftir aldamót
London. The Daily Telegraph.
EFTA-dómstdlIinn
Norðmenn
mega banna
sænskt klám
EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg
sendi á fostudag frá sér ráðgefandi
álit um túlkun svokallaðrar sjón-
varpstilskipunar Evrópusambands-
ins, sem gildir á Evrópska efna-
hagssvæðinu. Málið snerist um rétt
norskra stjórnvalda til að banna
endurvarp í Noregi á útsendingum
sænskrar sjónvarpsstöðvar, sem
hefur klámmyndir á dagskrá.
Málavextir eru þeir að sænska
sjónvarpsstöðin TV 1000 sendi út
efni um gervihnött til áskrifenda
Film-Max-sjónvarpsstöðvarinnar.
Útsendingar TV 1000 í Noregi
fóru um kapalkerfi og gervihnött.
Á dagskrá stöðvarinnar voru m.a.
myndir, sem norsk stjórnvöld
tejja klámmyndir, og bönnuðu
þau því útsendingar stöðvarinnar.
Sænska stöðin fór í mál við
norska ríkið og taldi sjónvarpstil-
skipunina ekki leyfa slfka íhlutun
stjórnvalda. EFTA-dómstóllinn
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu að stjórnvöldum í viðtöku-
ríki útsendingar væri rétt að
meta hvort sjónvarpsefni gæti
haft alvarleg skaðleg áhrif á lík-
amlegan, andlegan og siðferðileg-
an þroska barna og ungmenna,
eins og áskilið er í tilskipuninni,
og líta til eigin löggjafar og eigin
gilda við það mat. Ekki væri við
neitt sameiginlegt evrópskt við-
mið að styðjast í því efni.
Dómstóllinn taldi að ekki skipti
máli þótt útsendingartími væri
valinn og tæknilegum aðferðum
beitt til að koma í veg fyrir að
börn og ungmenni hefðu aðgang
að útsendingum klámmynda, þar
sem tilskipunin gerði greinarmun
á efni sem væri til þess fallið að
hafa alvarleg skaðvænleg áhrif á
þroska barna og ungmenna og
efni sem kynni að hafa skaðvæn-
leg áhrif á þroska þeirra. „Val á
útsendingartíma og tæknilegar
hindranir geta aðeins komið til
álita að því er lýtur að efni sem
ekki er talið geta haft alvarleg
skaðvænleg áhrif á þroska barna
og ungmenna," segir í fréttatil-
kynningu frá EFTA-dómstóInum.
ROBIN Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, gaf í sjónvarpsþætti á
sunnudag sterklega í skyn að Bret-
land myndi ganga í Efnahags- og
myntbandalag Evrópu (EMU) fljót-
lega eftir næstu kosningar, sem
sennilega verða haldnar árið 2002.
Ráðherrann sagði að það gæti haft
neikvæð áhrif á fjárfestingar i Bret-
landi að standa utan evró-svæðisins.
í þætti sjónvarpsmannsins David
Frost, sem sendur var út rétt fyrir
upphaf leiðtogafundar Evrópusam-
bandsins í Cardiff, var rætt við þá
Cook, Jacques Chirac forseta
Frakklands og Jacques Santer, for-
seta framkvæmdastjórnar ESB.
Aðspurður sagði Cook að takmörk
væru fyrir því hversu lengi Bret-
land gæti beðið með ákvörðun um
aðild að EMU eftir að evróið, hin
nýja Evrópumynt, yrði komið í um-
ferð.
„Því lengur sem sameiginlega
myntin verður í umferð, þeim mun
stöðugri verður hún álitin, þeim
mun fremur virðist hún vera ein af
staðreyndum lífsins og þess vegna
framtíðarinnar, þeim mun fremur
mun fólk, sem tekur ákvarðanir um
fjárfestingar, spyrja sig þeirrar
spumingar hvers vegna það eigi
frekar að fjárfesta utan evrósvæðis-
ins en innan þess,“ sagði Cook.
Hann lagði áherzlu á að enn sem
komið er væri ekki tímabært að
ganga í EMU, vegna þess að Bret-
land væri ekki statt á sama stað í
hagsveiflunni og önnur ríki ESB, en
ríkisstjómin hefði málið áfram til
skoðunar. „Við munum ákveða okk-
ur á grundvelli kalds mats á efna-
hagslegum hagsmunum Bretlands.
Það kann að mæla með því að göng-
um inn einhvem tímann snemma á
næstu öld. Ef við tökum þá ákvörð-
un, mun þjóðin hafa síðasta orðið í
atkvæðagreiðslu.“
Ekki spuming um hvort,
heldur hvenær
Chirac sagði í þættinum að hann
væri sannfærður um að Bretland
yrði gengið í EMU árið 2002 og
hann væri reiðubúinn að veðja upp
á það. Santer sagði: „Það er ekki
lengur spurning hvort Bretland
verður með, heldur hvenær.“
Búizt var við að leiðtogafundur
ESB, sem hófst í Cardiff í gær, tæki
fáar stefnumarkandi ákvarðanir og
að frá fundinum kæmu aðallega al-
mennt orðaðar yfírlýsingar. Leið-
togamir ræddu meðal annars áhrif
efnahagskreppunnar í Japan og
ástandið í Kosovo.
Jón Signrðsson
bankastjóri NIB
EFTA-ríkin
verða mjög
háð evróinu
JON Sigurðsson, aðalbankastjóri
Norræna fjárfestingarbankans
(NIB) sagði í ræðu á ráðstefnu um
hina sameiginlegu Evrópumynt, evr-
óið, í Helsinki í síðustu viku að evróið
yrði mikilvægasti erlendi gjaldmiðill-
inn í öllum EFTA-ríkjunum og að
þau yrðu að haga gengisstefnu sinni
mjög eftir gengi evrósins.
Öll EFTA-ríkin verzla í enn ríkari
mæli við ríki Evrópusambandsins en
sum ríki ESB sjálfs. Jón Sigurðsson
sagði að af þessum sökum myndu
svissnesk stjómvöld án efa reyna að
halda gengi frankans gagnvart evró-
inu eins stöðugu og mögulegt væri.
Svisslendingar yrðu að sýna að
frankinn væri ekki mun sterkari
gjaldmiðill en evróið. „Þetta þýðir
að til þess að koma í veg fyrir geng-
ishækkun frankans verða vextir í
Sviss að vera lægri en á evró-svæð-
inu,“ sagði Jón.
Hann sagði að hinn sterki auð-
lindagrunnur Noregs hefði í för með
sér að líklegt væri að stöðugur
þrýstingur yrði á gengi norsku
krónunnar upp á við gagnvart evró-
inu. „Jafnvel þótt norsk stjórnvöld
kunni fyrr eða síðar að hverfa frá til-
raun sinni til að tengja gengi krón-
unnar við ECU/evró munu þau til
lengri tíma litið verða að fylgjast vel
með gengi evrósins, þar sem fjórir
fimmtuhlutar utanríkisverzlunar
Noregs em við ESB,“ sagði Jón.
Hann sagði að staða íslands væri
„að sumu leyti svipuð og Noregs,
jafnvel þótt viðskipti íslands við ríki
utan ESB séu hlutfallslega nokkuð
meiri.“
Skugga-aðildarríki
gengissamstarfs ESB
„í framtíðinni verður evróið aug-
ljóslega mikilvægasti erlendi gjald:
miðillinn fyrir öll EFTA-ríkin. í
raun er því líklegt að þau muni haga
sér eins og skugga-aðildarríki ERM
2,“ sagði bankastjórinn. ERM 2 er
endurbætt gengissamstarfskerfi
ríkja ESB, þar sem gengi gjaldmiðla
ESB-ríkja, sem standa utan EMU,
verður haldið stöðugu gagnvart evr-
óinu.
Á Fótboltavef Morgunblaðsins
finnur
alla réttu
takkana
Titlar og afrek
Leikmenn og
frammistaða þeirra
þú
Saga félaganna
Liðsstjórinn,
gagnvirkur Netleikur
Dagbók, yfirlit yfir leiki
www.mbl.is/boltinn
Fótboltavefur mbl Þar sem þú getur fylgst með boltanum í sumar.