Morgunblaðið - 16.06.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 27
ERLENT
Reuters
Pauline Hanson, leiðtogi Einnar þjóðar.
49% í áströlskum fyi'irtækjum. Eru
stefnumál Hansons talin hafa höfð-
að til þeirra sem telja asíska inn-
flytjendur valda glæpum og hafa
störf af Aströlum.
Hanson hélt því fram í kosninga-
baráttunni að Astralía gæti aukið
velsæld sína með verndartollum og
jafnframt að opnir markaðir væru
alls ekki efnahagsnauðsyn heldur
alþjóðasamsæri Asíuríkja til að
koma höndum yfir náttúruauðlindir
Astralíu. Er talið næsta víst að
„skyndilausnir" Hansons hafi höfð-
að til margra óánægðra kjósenda.
Seldi áður fisk og
franskar
Hanson rak áður skyndi-
bitastað en var kjörin á
sambandsþing Astralíu árið
1996 sem óháður þingmað-
ur eftir að hinir hefðbundnu
stjórnmálaflokkar frábáðu
sér róttækar skoðanir
hennar. Hún stofnaði síðan
flokkinn Eina þjóð og er
gert ráð fyrir að hún reyni
nú að nota sigur flokksins í
Queensland tO frekari af-
reka í komandi sambands-
kosningum. Því hafði verið
spáð að Howard forsætisráðherra
boðaði tO kosninga í ágúst næstkom-
andi en lfldegt þykir nú að hann
fresti þeim fyiTrætlunum.
Howard lét hafa eftir sér á
sunnudag að skyndilausnir Han-
sons virkuðu e.t.v. í kosningabar-
áttu en annað væri upp á teningn-
um þegar á þing væri komið. Hann
sagði hins vegar mikflvægt fyiir
stjórn sína að læra af þessum úr-
slitum, augljóst væri að margir
Astralir hefðu áhyggjur af efna-
hagsástandinu og framtíð sinni og
við því yi’ði að bregðast.
Læknar deila
um nýja frjóvg’-
unaraðferð
BANDARÍSKUM læknum hef-
ur tekist að búa til fóstur með
nýrri frjóvgunaraðferð sem felst
í því að eggfrumum úr tveimur
konum er blandað saman og egg-
ið er síðan frjóvgað með sæði úr
maka annarrar þeirra. Úr þessu
verður barn „þriggja foreldra"
og þessi aðferð skapar því ný sið-
ferðileg álitamál. Nokkrir bresk-
ir sérfræðingar hafa varað við
því að aðferðin kunni að reynast
hættuleg og hvatt til þess að hún
verði rannsökuð betur á dýrum
áður en hún verður reynd á kon-
um.
Bandarísku læknamir lýsa
þessari aðferð sem mikilvægu
framfaraskrefi í rannsóknum á
sviði glasafrjóvgana og segja að
hún geti gert þúsundum kvenna
á fimmtugsaldri kleift að ala
böm. Fósturfræðingar og stjóm-
málamenn hafa þó látið í ljós efa-
semdir um aðferðina og segja að
rannsaka þurfi betur líffræðileg
og siðferðileg álitamál vegna
þessarar tækni þar sem börnin
erfa gen úr tveimur konum.
Ann Widdecombe, talsmaður
breska Ihaldsflokksins í heil-
brigðismálum, segir að þessi að-
ferð kunni að reynast hættuleg
og bresk heilbrigðisyfirvöld
verði að rannsaka hana betur áð-
ur en hún verði heimiluð í Bret-
landi.
Aðferðin hefur þegar verið
notuð á sex konum í Bandaríkj-
unum og tvær þeirra eiga von á
sér í september.
Aðferðin felst í því að umfrymi
úr eggfrumu ungrar konu er sett
í egg eldri konu. Blandaða eggið
er síðan frjóvgað með sæði úr
maka eldri konunnar og egginu
er komið fyrir í líkama hennar.
Vísindamenn, sem hafa þróað
þessa tækni, segja að með því að
nota umfrymi úr yngri konu auk-
ist líkurnar á því að eggið festi
sig í legi eldri konunnar og
frjóvgunin takist. Þótt megnið af
erfðaefnum eldri konunnar hald-
ist í kjarna uppranalegu egg-
frumunnar berast önnur erfða-
efni úr umfrymi yngri „móður-
innar“ í fóstrið.
Skapar ný álitamál
Ekki er enn vitað hvaða áhrif
þessi tækni hefur á bömin en
læknarnir segja að yngri kon-
umar hafi gengist undir um-
fangsmiklar rannsóknir til að
tryggja að þær séu lausar við
erfðagalla.
„Ég legg áherslu á að þessi
tækni er á tilraunastigi og ekki
hefur enn verið sannað vísinda-
lega að hún virki,“ sagði Michael
Feinman, sem stjórnar verkefn-
inu í Huntington-frjóvgunarmið-
stöðinni í Los Angeles.
Læknarnir segja að aðferðin
geri konum, sem hafa verið
ófrjóar, kleift að eignast börn án
hjálpar leigumæðra. Með nýju
aðferðinni geti læknar „lagað"
egg eldri kvennanna og það geti
gert þeim kleift að halda áfram
að ala börn fram að tíðahvörfum.
Jacques Cohen, vísindamaður
við St Barnabas-læknamiðstöð-
ina sem ruddi brautina fyrir
þessa tækni, lét þó í ljós efa-
semdir um að rétt væri að beita
henni. „Þeir gætu verið að skapa
erfðafræðilegan afbrigðileika,"
sagði hann um tilraun læknanna.
Sérfræðingar í siðferðilegum
álitaefnum í læknisfræði segjast
einnig hafa efasemdir um aðferð-
ina. „Slíkar tilraunir hafa verið
taldar algjörlega ótækar til
þessa og þær skapa ný álitamál,"
sagði Richard Nicholson, rit-
stjóri tímaritsins Bulletin of
Medical Ethics.
Talsmaður breskrar stofnun-
ar, sem hefur eftirlit með bresk-
um glasafrjóvgunarstofum, sagði
að þótt ólöglegt væri að eiga við
gen frjóvgaðra fósturvísa, væri
ekki ólöglegt að gera það við
ófrjóvguð egg. Hann bætti þó við
að engir breskir læknar væra
famir að beita þessari aðferð.
Hvatt til frekari rannsókna
Robert Winston, breskur sér-
fræðingur í glasafrjóvgunum,
hefur varað við því að þessi
tækni geti haft ýmsar hættur í
för með sér og hvatt til frekari
rannsókna á dýram áður en að-
ferðin verður notuð á konum.
Su Barlow, annar breskur sér-
fræðingur á þessu sviði, sagði
hugsanlegt að börnin myndu
erfa sjúkdóma eins og vöðva-
rýmun, sem vitað er að geta
borist með erfðaefni í umfrymi.
Simon Selwood, breskur sér-
fræðingur í erfðarannsóknum,
telur þó ekki hættu á slíku. „Það
er nokkuð auðvelt að finna slíka
erfðagalla," sagði hann.
Kjörvari 20 Þekjandi viðarvörn, 4 Itr.
SLA
T
1
BYGGINGAVÖRUTILBOÐ MÁNAÐARINS
Júní
Aburður trjákorn (5 kg.
Veíðihjól allar gerðir.
Gólfflísar 30x30, 2 litir.
Fiandre 2. flokkur.
1.290
Slöngurúlla Gardena 30 m
980
Aöur: 2.409
| Smíðavesti 4 stæröir. i Sólhúsgögn 4 stólar og borö. 11
Pallaefni (27x95 mm)
Gagnvariö b-flokkur.
AFGREIÐSLUTÍMI I BYKO
Nq
er komin bet*£
lóm
#ó,
rt§|
Komdu i Sumarland BYKO!
Virklr dagar Laugard. Sunnud.
Breiddin-Verslun Slml: 515 4001 8-18 10-16 12-16
Breiddin-Timbursala 8-18 Sími: 515 4030 (Lokaö 12-13) 10-14
Breiddin-Hólf & Gólf Sími: 515 4030 8-18 10-16 12-16
Hringbraut Sími: 562 9400 8-18 10-16 11-15
Hafnarfjörður Slmi: 555 4411 8-18 9-13
Suðurnes Stmi: 421 7000 8-18 9-13
Akureyri Slmi: 461 2780 8-18 10-14