Morgunblaðið - 16.06.1998, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
UR VERINU
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/J6n G. Guðjónsson
Tilbúinn til matar í haust
Árneshreppi.
Sfldveiðar í lögsögu
Jan Mayen
Mokveiði
en kvótinn
að klárast
ENN ER rífandi veiði á slóðum
norsk-íslensku síldarinnar, en torf-
urnar hafa flutt sig úr íslensku land-
helginni yfir í lögsögu Jan Mayens.
Islenskum skipum á miðunum hefur
þó fækkað þar eð mörg hafa náð
kvóta sínum.
Dæmi um landanir síðustu daga
eru Börkur á Neskaupstað sem
landaði 1.050 tonnum á sunnudag og
á sama stað lönduðu Glófaxi 500
tonnum og Sigla 550 tonnum. A
Eskifirði landaði Jón Kjartansson
rúmum 1.513 tonnum og Faxi rúm-
um 647 tonnum. Guðrún Þorkels-
dóttir og Hólmaborgin hafa veitt
upp í kvóta.
Freysteinn Bjarnason útgerðar-
stjóri hjá Síldarvinnslunni á Nes-
kaupstað sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærdag, að íslenskum
skipum fækkaði mjög á veiðislóðun-
um þessa dagana, þetta væru innan
við 20 skip sem enn væru að, kvót-
inn væri að klárast og menn væru
farnir að hugsa um loðnuvertíðina
sem hefst 20. þessa mánaðar. „Veið-
in hefur að undanfómu verið norðar
og vestar og einar 30 mílur utan ís-
lensku lögsögunnar. Mjög góð veiði
var t.d. í gær (sunnudaginn) á þeim
slóðum og síldin er afar feit og fal-
leg. Hún er að síga þetta til og frá,
það síðasta sem fréttist var t.d. að
hún væri enn að byrja að síga í átt
til okkar,“ sagði Freysteinn.
Þrjár vinnslustöðvar hafa tekið við
afgerandi mesta sfldarmagninu það
sem af er þessari vertíð. Hjá SR-
mjöli á Seyðisfirði hefúr verið landað
röskum 24.340 tonnum, hjá Hrað-
írystihúsi Eskifjarðar rúmlega 21.012
tonnum og hjá Sfldarvinnslunni á
Neskaupstað rúmlega 21.094 tonnum.
Aflinn á vertíðinni er nú 166.224,088
tonn samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum fiskvinnslustöðva.
GUÐMUNDUR Jónsson, bóndi og
útgerðarmaður, og dóttir hans
Guðbjörg lögðu hákarlalóðir fyrir
nokkru um fjórar mflur austur af
Selskeri um leið og þau vitjuðu
um grásleppunetin. Nokkru síðcir
kíktu þau í lóðimar og kom þá 1
ljós hákarl, sem mældist 4,30
metrar að Iengd. Hann var bæði
feitur og með góða lifúr og því
góður til verkunar. Guðmundur
ætlar að verka hákarlinn og ætti
hann þá að vera tilbúinn til matar
í haust. Auk Guðmundar hafa
nokkrir aðrir trillukarlar stundað
grásleppuveiði frá Ámeshreppi í
vor en veiðin var mjög léleg.
Trillukarlamir ákváðu þó flestir
að þrauka áfram þar til handfæra-
veiðar hæfust í þessum mánuði.
Landssmiðjan undirritar 70 milljóna króna samning
Reisir pökkunarverk-
smiðju í Noregi
LANDSSMIÐJAN hf. hefur undir-
ritað samning við fiskvinnslufyrir-
tækið Bernt Hansen eftf. á
Sommaröy í Norður-Noregi um
smíði og uppsetningu fullkominnar
pökkunarverksmiðju á síld. Samn-
ingsupphæðin er 70 milljónir ís-
lenskra króna. Þetta er einn af
stærri verksamningum sem Lands-
smiðjan hefur gert. Smíði verksmiðj-
unnar er hafin en gert er ráð fyrir að
hún verði tilbúin til gangsetningar
um miðjan október nk.
Búnaðurinn sem Landssmiðjan
tekur að sér að smíða er fullkomin
móttaka ásamt flokkunarkerfi, full-
komið hraðpökkunarkerfi með sjálf-
virkri vigtun, alsjálfvirkur búnaður
sem lokar kössum og bindur utan
um þá, alsjálfvirkur staflari sem rað-
ar kössum í frystirekka og alsjálf-
virkur búnaður sem afhleður frysti-
rekka og setur vöruna sjálfvirkt á
palla, vefur þá með filmu og skilar
þeim loks í geymslufrysti.
Mikil afköst og sjálfvirkni
Pökkunarverksmiðjan verður í
nýrri byggingu sem verið er að reisa
við hlið núverandi vinnsluhúss. Verk-
smiðjan er mjög fullkomin og afkasta-
mikil. Framleiðslugeta hennar er um
30 tonn á klukkustund, en ráðgert er
að framleiða um 500 tonn af frystri
sfld á sólarhring. Mikil sjálfvirkni
verður við vinnsluna og er því starfs-
mannaþörf í lámarki. Verksmiðjan
tekur lítið pláss miðað við sambæri-
legar verksmiðjur á markaðnum og
réð það meðal annars úrslitum, ásamt
afköstum og sjálfvirkni, að norska fyr-
irtækið kaus að ganga tfl samninga
við Landssmiðjuna, að því er segir í
fréttatilkynningu. Verkið var boðið út
á almennum markaði og komú tilboð
frá mörgum fyrirtækjum, jafht ís-
lenskum sem erlendum.
Bernt Hansen eftf. er rótgróið og
virt fjölskyldufyrirtæki sem hefur í
áraraðir framleitt ýmsar sjávaraf-
urðir, m.a. fryst flök, saltfisk og
frysta síld.
Ríkiskosningar í Queensland í Astralíu
Hægriöfgaflokk-
ur vann sigur
Sydney. The Daily Telegraph.
NIÐURSTÖÐUR kosninganna í
Queensland-ríki í Astralíu, þar sem
flokkurinn Ein þjóð (One Nation)
vann stórsigur, hafa valdið stjórn-
arflokkum miklum vonbrigðum og
talið er að John Howard, forsætis-
ráðherra Ástralíu, fresti áformuð-
um þingkosningum um óákveðinn
tíma í kjölfar þeirra. Howard var
þó hvergi banginn í gær og kvaðst
halda áfram umbótastefnu sinni en
nokkrir stjómarþingmenn hvöttu
hann hins vegar til að leggja um-
deild stefnumál, þar með taldar
nýjar skattaálögur, á hilluna til að
höfða til þeirra íhaldsmanna sem
létu heillast af málflutningi Einnar
þjóðar.
Þingkonan hægrisinnaða Pauline
Hanson vann mikinn kosningasig-
ur, ásamt flokki sínum Ein þjóð, og
er hún talin hafa fengið tólf sæti á
rfldsþingi Queensland. Flokkurinn
Hanson hlaut um 25% greiddra at-
kvæða, en Howard hafði fyrir kosn-
ingarnar sagt að Hanson mætti
teljast lánsöm ef henni tækist að
vinna eitt þingsæti. Ekki var enn
orðið ljóst í gær hvort Verka-
mannaflokkurinn, sem verið hefur í
stjómarandstöðu í Queensland,
næði naumum meirihluta á þinginu
eða hvort núverandi meirihluti
Ihaldsflokksins myndi reyna að
taka upp stjórnarsamstarf með
Einni þjóð til að halda völdum.
Ein þjóð vill banna frekari inn-
flytjendur frá Asíu og takmarka
réttindi og fjárhagsaðstoð við fmm-
byggja Ástralíu, auk þess sem
flokkurinn vill koma í veg fyrir að
erlendir aðilar geti átt meira en
Flugæfíngar NATO við Kosovo
Serbar
halda
upptekn-
um hætti
Róm, Pristína, Bajram Curri í Albaníu.
JAVIER Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, NATO,
lýsti því yfir í gær að heræfingar
bandalagsins yfir Makedóníu og Al-
baníu í gær hefðu tekist vel. Fátt
benti til þess að æfingamar hefðu
orðið til þess að Serbar létu af að-
gerðum sínum gegn albanska meiri-
hlutanum í Kosovo-héraði.
Um það bil sem æfingin Staðfast-
ur fálki hófst í gær með þátttöku 84
flugvéla frá 13 aðildarríkjum NATO
sást til þungvopnaðra, serbneskra
lögreglusveita á leið til átakasvæða í
Kosovo. Auk fjölmenns liðs voru fall-
byssui’ fluttar norður á bóginn í átt-
ina að Pec, helstu stjórnarmiðstöð-
inni í vesturhluta héraðsins.
Æfingar NATO-liðsins hófust í
dögun og vora gerðar frá herstöðv-
um á Ítalíu. Þegar þeim var lokið,
skömmu eftir hádegi, átti Solana
fund með fréttamönnum og var m.a.
spurður hvort æfingarnar myndu
duga til þess að sannfæra Slobodan
Milosevic, forseta Júgóslavíu, um að
hætta aðgerðum gegn Albönunum í
Kosovo. Frelsisher Kosovo berst
Reuters
FLÓTTAFÓLK frá Kosovo.
fyrir sjálfstæði héraðsins, en það er
hluti af júgóslavneska sambandsrík-
inu Serbíu.
Ný alda flóttafólks kom til norður-
hluta Albaníu í gær, og var fólkið að
forða sér frá bardögum í Kosovo, að
því er haft var eftir vestrænum emb-
ættismanni í landamærabænum Ba-
jram Curri. Sagði hann að 365
manns að minnsta kosti hefðu komið
yfir landamærin í gær frá bænum
Junik í Kosovo.
„Það sagði okkur að ráðist hefði
verið á bæinn með þyrlum [á sunnu-
dag] og ekki hefði verið hægt annað
en að flýja,“ sagði embættismaður-
inn. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
segja að átta til tólf þúsund Kosovo-
búar af albönskum uppruna hafi flúið
yfir landamærin á nýliðnum vikum.
Undanfarið hafi allt að 150 manns
komið á degi hverjum.
Tekist á í þinglok í Noregi
Onógur stuðn-
ingur við fjárlög
Ósló. Reuters.
MINNIHLUTASTJÓRN norsku
miðflokkanna reynir nú með öllum
ráðum að fá nægilegt fylgi við endur-
skoðað fjárlagaframvarp þessa árs
en þingi lýkur á fóstudag. Hægri-
flokkurinn hefur fallist á að greiða
atkvæði með framvarpinu en það
nægir ekki til að koma því í gegnum
þingið. Kjell Magne Bondevik for-
sætisráðherra nýtui’ engu að síður
mikilla vinsælda samkvæmt skoð-
anakönnunum og vilja landar hans
engan fremur sem forsætisráðherra.
Alls sitja 165 þingmenn á norska
þinginu en stjórnarþingmenn eru að-
eins 42. Hægrimenn, sem lofað hafa
að greiða atkvæði með fjárlagafram-
varpinu, era 23. Því skortir stjórnina
stuðning fleiri en tuttugu þingmanna
til viðbótar. I nýjum og endurskoðuð-
um fjárlögum er aukin áhersla lögð á
aðhaldsaðgerðir. Þá er hætt við að
hækka skatta á rafmagn og lögð til
einkavæðing nokkurra ríkisfyrir-
tækja. Framfai’aflokkurinn, sem hef-
ur 25 menn á þingi, hefur þvertekið
fyrir að styðja nýja framvarpið en
flokkurinn hefur stutt stjórnina í
mörgum málum.
I skoðanakönnun sem birt er í
Aftenposten í gær reyndust 48%
kjósenda helst vflja Bondevik sem
forsætisráðherra en aðeins 13% að-
spurðra tóku Thorbjorn Jagland,
formann Jafnaðarmannaflokksins og
fyrrverandi forsætisráðherra, fram-
yfir hann. Voru fleiri, eða ein 19%,
fylgjandi því að flokksbróðir Jag-
lands, Jens Stoltenberg, settist í stól
forsætisráðherra.