Morgunblaðið - 16.06.1998, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Kaupþing hf. opnar verðbréfafyrirtæki
í Lúxemborg
„Faglegþjón-
usta í alþjóðlegu
umhverfi“
VE RÐB RÉ FAFYRIRTÆKI Kaup-
þings hf. í Lúxemborg, Kaupthing
Luxembourg S.A., sem nú hefur tek-
ið til starfa, mun sinna alþjóðlegri
fjárfestingarþjónustu með miðlun á
íslenskum og erlendum verðbréfum.
Helstu verkefni þess eru eignastýr-
ing og fjárvarsla, verðbréfamiðlun,
fjármálaráðgjöf og fyrirtækjaþjón-
usta og skráning verðbréfa í kaup-
höllinni í Lúxemborg.
Á ráðstefnu sem Kaupþing hf.
hélt í Lúxemborg í tilefni af opnun
verðbréfafyrirtækisins þar, benti
Magnús Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupthing Luxembo-
urg, á að 16 þúsund íslendingar
væru búsettir utan íslands. Starf-
semi fyrirtækisins á sviði eignastýr-
ingar og fjárvörslu er beint að þess-
um hópi en einnig að erlendum fjár-
festum, ekki síst á hinum Norður-
löndunum, svo og íslenskum fjár-
festum sem vilja leita eftir betri að-
gangi að alþjóðlegum mörkuðum.
Fram kom hjá Magnúsi að þegar
eru hafnar viðræður við erlenda
fjárfesta og verður gefíð út frétta-
bréf vikulega fyrir þá.
Kaupthing Luxembourg S.A. er
aðili að kauphöllinni í Lúxemborg en
það skapar mikla möguleika í verð-
bréfamiðlun því þar eru skráðir
14.500 verðbréfaflokkar í 40 mynt-
um, gefnir út af 3.500 fyrirtækjum
frá 90 löndum. Magnús vekur á því
athygli að 60% alþjóðlegra skulda-
bréfa á Evrópumarkaði eru skráð í
Lúxemborg.
Hvað varðar þriðja þáttinn í starf-
seminni, fjármálaráðgjöf og fyrir-
tækjaþjónustu, bendir Magnús á að
fyrirtækið fái aðgang að stærri hópi
fjárfesta sem þekkja ekki enn til ís-
lenska verðbréfamarkaðarins.
Einnig mun fyrirtækið vinna að
stofnun eignarhaldsfélaga til að
halda utan um sameiginlegar fjár-
festingar. I því sambandi bendir
Magnús á hagstætt skattaumhverfi í
Lúxemborg.
Þá segir Magnús frá því að fyrir-
tækið muni vinna að skráningu verð-
bréfa í kauphöllinni í Lúxemborg og
segir að með því skapist betri að-
gangur að fjármagni.
Þetta eru helstu þættir starfsem-
innar en Magnús segir að Kaupt-
hing Luxembourg S.A, sé einnig
ætlað að styrkja þann grunn sem
Kaupþing hf. hefur þegar lagt í Lúx-
emborg með stofnun alþjóðlegra og
íslenskra verðbréfasjóða í Lúxem-
borg. Verðbréfasjóðirnir nema nú
5,4 milljörðum króna, eins og fram
kom á ráðstefnunni hjá Hreiðari Má
Sigurðssyni framkvæmdastjóra hjá
Kaupþingi.
Skattar og bankaleynd
Skattalöggjöfin í Lúxemborg er
ofarlega í huga Kaupþingsmanna
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
STARFSMENN Kaupthing Luxembourg S.A. ásamt forstjóra og stjórnarformanni Kaupþings hf., f.v.: Hall-
dór Friðrik Þorsteinsson; Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings; Heimir Ásmundssou; Guðmundur Hauks-
son, stjórnarformaður Kaupþings; Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri; og Nils Johansen.
þegar rætt er um val á stað fyrir
verðbréfafyrirtæki erlendis. Einfalt
og þægilegt er að flytja fé til og frá
Lúxemborg og þeir sem þar eiga
verðbréf en eru búsettir utan lands-
ins þurfa hvorki að greiða fjár-
magnstekjuskatt né eignarskatt þar.
Þá einfalda tvísköttunarsamningar
við fjölda ríkja viðskipti milli landa.
Magnús Guðmundsson segir að
besta leiðin til að laða að fjármagn sé
að beita skattastefnu. Uppi eru kröf-
ur um samræmdar skattareglur í
Evrópusambandinu en Magnús telur
langt í að þær komi til framkvæmda.
Svipuð skoðun kom fram í ræðu Guy
Seyler, aðalhagfræðings sparisjóða-
bankans í Lúxemborg, á ráðstefnu
Kaupþings. Sigurður Einarsson, for-
stjóri Kaupþings hf., sagði að Kaup-
þing bæri fullt traust til stjómvalda í
Lúxemborg í þessu efni.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að Islendingar gætu lært mik-
ið af því hvemig íbúum Lúxemborg-
ar hefði tekist að byggja þar upp al-
þjóðlega fjármálamiðstöð og gat
þess að það væri í skoðun í ríkis-
stjórninni hvernig þann lærdóm ætti
að nýta.
En það era fleiri atriði sem gera
Lúxemborg ákjósanlegan dreifing-
arstað fyrir Kaupþing hf. Mjög
strangar reglur gilda um banka-
leynd í ríkinu og veita því sérstöðu.
Bankarnir veita ekki upplýsingar
um viðskiptavini sína undir
nokkrum kringumstæðum. Jafn-
framt er öflugt bankaeftirlit sem
starfar eftir ströngustu reglum Evr-
ópusambandsins. Það tryggir m.a.
að bankaieyndin er ekld misnotuð.
Sigurður Einarsson bendir á að fyr-
ir hverja eina umsókn um stofnun
banka sem samþykkt er sé tveimur
hafnað. Það séu því einungis
stöndug fyrirtæki sem geti stofnað
banka í Lúxemborg og miklar kröf-
ur gerðar til starfseminnar.
Þá má nefna aftur það sem áður
hefur komið fram að öflug kauphöll
er rekin í Lúxemborg. Ríkið er mið-
depill alþjóðlegs fjármálaumhverfis
með 221 banka frá 47 ríkjum og um-
hverfið er alþjóðlegt. í því sambandi
bendir Magnús Guðmundsson á að
þriðjungur íbúa landsins er af er-
lendu þjóðerni og að 60 þúsund
manns koma daglega frá nágranna-
löndunum til vinnu í Lúxemborg.
Síðast en ekki síst nefna Kaup-
þingsmenn góð tengsl við Island,
meðal annars daglegt flug Flugleiða
á milli.
Alþjóðlegf umhverfi
Magnús Guðmundsson lagði
áherslu á þrjú atriði í lok máls síns.
I fyrsta lagi mikilvægi þess fyrir Is-
lendinga að stýra sjálfir ráðstöfun
innlends sparnaðar. Starfsmenn
Kaupþings í Lúxemborg væra full-
trúar fyrirtækis sem fólk þekkti og
treysti og loks að þeir veittu faglega
þjónustu í alþjóðlegu umhverfi.
AKRANES - Tölvuþjónustan - 431 4311 • AKUREYRI - Tölvutækl - 462 6100 • HORNAFJÖRÐUR - Tölvuþjönusta Austurlands - 478 1111
HÚSAVlK - Tölvuþj. Húsavlk - 464 2169 • ISAFJÖRÐUR - Tölvuþj. Snerpa - 456 5470 • REYKJANESBÆR - Tölvuvæöing - 421 4040
SAUÐARKRÓKUR - Skagfiröingabúð - 455 4537 • SELFOSS - Tölvu- og rafeindaþj. - 482 3184 • VESTMANNAEYJAR - Tölvun - 481 1122
Öflugasta lausnin er alltaf sú einfaldasta.
Með það að markmiði býður Compaq fyrir-
tækjum upp á heildarlausn sem ekki aðeins
einfaldar uppsetningu og vinnslu heldur
tryggir hámarks áreiðanleika og rekstraröryggi.
Compaq - fremstir meðal jafningja.
Tæknival
kynsLóð
Compaq EP tölvukynslóðin byggir frá grunni
á nýrri hönnun sem miðar sérstaklega að því
að auðvelda fyrirtækjum og einstaklingum að
aðlaga tölvukerfið að margvíslegri og flókinni
starfsemi.
COMPAa
-slcer öllurri viö
Pentium II 266MHz með skjá
á verðifrá
139.900,-
með vsk.