Morgunblaðið - 16.06.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 23
Ríkisskattstjóri krefst upplýsinga um innstæður og vexti 1.347 einstaklinga
vegna eftirlits með álagningu fjármagnstekjuskatts
Bankarnir neita að veita upp-
lýsingar vegna bankaleyndar
BANKAR og sparisjóðir hafa með vísan til
bankaleyndar neitað kröfu Ríkisskattstjóra um
upplýsingar um innistæður, vexti og afdreginn
fjármagnstekjuskatt hjá 1.347 einstaklingum.
Úpplýsingaöflunin átti að vera liður í eftirliti
skattayfírvalda með skilum fjármagnstekju-
skatts. Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að láta
reyna á rétt sinn til upplýsinganna með því að
stefna einhverjum bankanna fyrir héraðsdóm.
Fjármagnstekjuskatturinn tók gildi í byrjun
síðasta árs og er í fyrsta skipti lagður á skattgreið-
endur við þá álagningu skatta sem nú er í undir-
búningi. RQdsskattstjóri valdi handahófskennt úr-
tak með 1.347 einstaklingum og óskaði eftir upp-
lýsingum um þá hjá öllum bönkum og sparisjóð-
um landsins. Spurt var um allar innistæður þeirra
í árslok 1997, vexti af reikningum þeirra og af-
tekna staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts.
Telja bankaleynd óbreytta
Garðar Valdimarsson ríldsskattstjóri segir að
þessi upplýsingaleit sé liður í eftirliti með framtali
fjármagnstekjuskatts hjá einstaklingum og jafii-
framt liður í eftirliti með því hvemig bankar og
sparisjóðir stæðu sig við að innheimta fjármagns-
tekjuskattinn og skila honum.
Ríkisskattstjóri sendi beiðni sína í apríl.
Bankar og sparisjóðir fólu Sambandi íslenskra
viðskiptabanka að láta vinna álitsgerð um málið
og svara fyrir sína hönd. í lok síðasta mánaðar
fékk Ríkisskattstjóri svarið og þar var neitað að
láta upplýsingarnar í té.
Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra við-
skiptabanka vildi ekki láta hafa neitt eftir sér
um málið í gær en eftir því sem næst verður
komist byggist afstaða bankanna á því að þeir
telji rétt viðskiptavina sinna vegna að standa
eins vel og kostur er vörð um bankaleynd. í
bréfi þeirra vitnar Baldur Guðlaugsson hæsta-
réttarlögmaður meðal annars til greinargerðar
laga um fjármagnstekjuskatt þar sem fram
kemur að þrátt fyrir ákvæði laganna um skyldu
bankanna til að veita skattyfírvöldum upplýs-
ingar verði ekki breytingar á framkvæmd
bankaleyndar. Bankarnir hafa hingað til veitt
yfirvöldum upplýsingar vegna rannsóknar á
málum tiltekinna einstaklinga og einstakra fyr-
irtækja en þeir telja að úrtakskönnun Ríkis-
skattstjóra^sé annars eðlis.
Stefna einum
banka
Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri segir að
möguleikar skattyfírvalda til að tryggja rétta
álagningu fjármagnstekjuskatts skerðist mjög
fáist ekki sundurliðaðar upplýsingar frá bönk-
um og sparisjóðum. Hann segir að embættið
hafi ákveðið að láta reyna á rétt sinn til um-
ræddra upplýsinga með því að stefna einni inn-
lánsstofnun fyrir héraðsdóm.
Spurður um aðrar leiðir til eftirlits segir
Garðar að skattyfirvöld hafi heimildir til að
skoða bókhald bankanna og að fá það til sín, en
það séu mun tafsamari aðferðir en að fá upplýs-
ingamar í tölvutæku formi eins og gert væri ráð
fyrir í úrtakskönnuninni.
Ógnir og
tækifæri
ársins 2000
TÆKNIVAL stendur fyrir röð
morgunverðarfunda til að fræða
stjórnendur fyrirtækja um aldamóta-
vanda tölva og tölvukerfa. Fyrsti
fundurinn hefur verið haldinn í
Reykjavík og í kjölfarið verða haldnir
nokkrir fundir á höfuðborgarsvæðinu
og úti á landi.
Á fundunum er gerð grein fyrir
þeim vanda sem blasir við fyrirtækj-
um. Fjallað er um áhrif hans á ein-
stök fyrirtæki og atvinnu- og við-
skiptalífið í heild. Einnig er mönnum
ráðlagt hvemig á að greina vandann
og bregðast við honum.
„Ekki er ofsögum sagt að fyrir-
tækjum og viðskiptalífinu stafar mik-
il ógn af því um næstu aldamót ef
tölvukerfi hrynja unnvörpum verði
ekkert að gert. Einnig er ljóst að
sum fyrirtæki hafa ekki burði til að
mæta þessum vanda. Erlend ráðgjaf-
arfyrirtæki spá því til dæmis að 10%
fyrirtækja þurfi að hætta starfsemi
um næstu aldamót af þessum sökum.
Vandinn er þó síður en svo óleysan-
legur og á fundunum er lögð áhersla
á að í hverri ógnun felast tækifæri og
það á ekki síst við í þessu tilviki,"
segir í fréttatilkynningu.
Reglur um
millibanka-
viðskipti
taka gildi
REGLUR Seðlabanka íslands um
millibankaviðskipti hafa tekið gOdi.
í þeim er gert ráð fyrir að þær lána-
stofnanir, það er að segja viðskipta-
bankar, sparisjóðir og fjárfestinga-
bankar, sem gerast vakar markað-
arins þurfi að uppfylla ýmis skilyrði,
meðal annars um tilboð til að við-
halda markaðnum og upplýsinga-
gjöf.
Þeir þurfa að vera með bindandi
tilboð um inn- og útlán til eins dags,
viku og mánaðar. Vakarnir eiga að
uppfæra leiðbeinandi vexti að
minnsta kosti á fimm mínútna fresti
á Reuters-síðu. Hugmyndin er að
með: þessu móti myndist opinberir
vextir, eins og á erlendum fjármála-
mörkuðum. Mun Seðlabankinn síðan
skrá millibankavexti með hliðsjón af
leiðbeinandi vöxtum bankanna og
birta einu sinni á dag.
----------------
Athugasemd
VEGNA sameiginlegrar fréttatil-
kynningar Pennans og Axis sem
birtist í Morgunblaðinu á dögunum,
hafa GKS húsgögn óskað eftir því að
koma á framfæri eftirfarandi at-
hugasemd.
I fréttatilkynningunni segir orð-
rétt: „Veltan í tveimur trésmiðjum
Pennans og Axis er um 200 milljónir
og samtals eru starfsmenn þeirra 60
talsins". Hér er beinlínis um ranga
fullyrðingu að ræða, sem okkur
finnst ástæða til þess að verði leið-
rétt. Önnur trésmiðjan sem vísað er
til í umræddri fréttatilkynningu er
Tréiðjan, sem er í eigu GKS og Axis,
þar sem Penninn á enga aðild að.
í Tréiðjunni starfa samtals 30
starfsmenn og mikill meirihluti um-
svifa þar undanfarin ár hefur verið
fyrir GKS. í fréttatilkynningunni
kemur einnig fram að forsvarsmenn
Pennans vonast til þess að ímynd
Pennans, sem hingað tQ hefur verið
þekktastur sem innflutningsfyrir-
tæki, breytist með raunverulegri
þátttöku í því að koma íslenskri
hönnun og framleiðslu á framfæri.
Það hefur aldrei þótt góður siður
að skreyta sig með verkum annarra
til þess að upphefja sjálfan sig eða til
þess að bæta ímynd sína og er það
réttur viðskiptavina að ekki sé verið
að halda að þeim röngum eða villandi
upplýsingum.
Rafn B. Rafnsson, framkvæmda-
stjóri GKS.
Þriðjudaginn 16. júní kl. 11:00 mun fara fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins.
I þessu útboði heldur áfram uppbygging markflokka ríkisvíxla eins og kynnt var aðilum
á fjármagnsmarkaði 12. maí, en að öðru leyti eru skilmálar útboðsins í helstu atriðum þeir
sömu og í síðustu útboðum. í þessu útboði verða gefiiir út 3ja, 6 og 12 mánaða ríkisvíxlar.
í útboði 16. júní verða eftirfarandi flokkar ríkisvíxla í markflokkum boðnir út:
Wimim
S f ■ • ■*
Flokkur: Gjalddagi Núverandi Lánstími staða* * Aætlað hárnark tekinna tilboða*
RV98-0917 17. september 1998 3 mánuðir 0 2.000
RV98-1217 17. septemberiggS 0 mánuðir 300 1.000
RV99-0616 i6.júml999 mánudir 0 1.000
; ; ■
* Milljónir króna.
WÉIM
Uppbyggiiig markflokka ríkisvíxla
Staða ríldsvíxla 12. júní, 14.684 milljónir króna.
Aætluð hámarksstaerð og sala í útboði 16. júní 1998.
Sölufyrirkomulag:
Rfldsvixlamir verða seldir með dboðsfyrirkomulagi.
Öllum er heimflt að bjóða í rfldsvixla að því tflskyldu að
lágmarksfjárhæð tflboðsins sé ekki lægri en 20 mflljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestinga-
lánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfasjóðum,
lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimflt að gera
tflboð í meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarki
500.000 krónur.
Öll tflboð í ríkisvixla þurfk að hafa borist Lánasýslu rflosins
fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 16. júní. Útboðsskflmálar,
önnur tflboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu rfldsins, Hverfisgötu 6, i síma 562 4070.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð- Simi: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is