Morgunblaðið - 19.04.1995, Side 60
60 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
PASKAMYND: ORÐLAUS
michael KEATON geena DAVIS
ni nm nnn
s J H HI hSS
JJ Ljv/J mmW*
Frábær rómantísk gamanmynd um óvini sem
verða ástfangnir, samherjum þeirra til sárra
leiðinda. Kevin og Julia eiga eitt sameiginlegt:
Þau eiga erfitt með að sofna á nóttunni! Allt
annað er eins og svart og hvítt. Þau eru ræðu-
ritarar fyrir pólitíska keppinauta og þegar allt
fer í háaloft milli á þeirra, verða frambjóð-
endurnir strengjabrúður þeirra þegar
þau hefna sín á hvort öðru.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
„fyndin og kraftmikil mynd.,,
dálítið djprf...
heit og slímug og nýfætt
barn" Ó.H.'T. Rás 2. • í
i
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. Verð kr. 750.
STOKKSVÆÐIÐ
DROP
ZONE
PÁSKAMYND: BARNIÐ FRÁ MACON
Frabær gamanmynd ur smiöju Martin^Scorsese um
taugaveiklað ungskáld (Eric Stoltz), feimna kærustu, uppskúfaðan
ástmann hennar (Timothy Dalton) og utbrunna sápuleikkonu
(Kathleen Turner) sem hittast öll á meðal hraðskreiðs þotuliðsins i
stóra eplinu New York og missa andlitið og svolitið af fötum!
Ath: Ekki íslenskur texti.
Sýnd kl. 9 og 11.
á 11]
Ws^r: U ■ „' _ ^„ j j t/
I borginm Macon elur gömul kona son sem
menn trúa að sé heilagur og systir hans þykist
vera móðirin og hefur að selja blessun barnsins.
Glæsileg sjónræn veisla og ögrandi eins og
Greenaway er von og vísa þar sem hann spinnur
saman dýrlingasögur og misnotkun á börnum í
auglýsingaskini í nútímanum.
Aðalhlutverk: Ralph Fiennes (Listi Schindlers,
Quiz Show) og Julia Ormond (Legends of the
Fall). Leikstjóri: Peter Greenaway (Kokkurinn,
þjófurinn, kona hans og elskhugi hennar).
Sýnd kl. 5.30 og 9.
Ath: Ekki ísl. texti. Bönnuð innan 16 ára.
6 Óskarsverðlaun
Tom
Haiiks er
F0RREST||
GUMP
■HHHMWMH
Sýnd kl. 6.30 og 9.15.
BRÚÐURIN Suzanne Vega.
Sváfu í brúð'
kaupsferðinni
►SÖNGKONAN Suzanne Vega
gekk nýlega í það heilaga með
Mitchell Froom í New York og
að því loknu fóru þau í viku brúð-
kaupsferð til Parísar. „Við sváf-
um mestmegnis. Eg hafði ekkert
sofið í heilt ár,“ segir Vega. Þau
eiga tíu mánaða dóttur saman
að nafni Ruby, en auk þess á
Froom dóttur frá fyrra hjóna-
bandi. Leiðir þeirra lágu saman
í fyrsta skipti þegar söngkonan
og lagasmiðurinn réð Froom til
að framleiða síðustu plötu sína
„99.9 Degrees F“ sem kom út
árið 1992.
FOLK
Eftirsjá að Eazy-E
►ÞAÐ KOM sem þruma úr
heiðskíru lofti þegar rapparinn
Eazy-E tilkynnti á fréttamanna-
fundi að hann væri kominn með
eyðni. Hann lést síðan 26. mars,
aðeins þremur og hálfri viku
eftir að hann komst að því að
hann gengi með sjúkdóminn.
„Eazy-E var eins og næsti ná-
granni,“ segir rapparinn Met-
hod Man. „Þegar svona lagað
kemur fyrir hann, er kominn
tími til að athuga sinn gang.“
Eric „Eazy-E“ Wright var
sonur Richards Wrights, póst-
þjónustumanns sem er sestur í
helgan stein, og eiginkonu hans
Kathie, sem er skólasljóri. Árið
1986 stofnaði hann útgáfufyrir-
tækið Ruthless Records með
tveim milljónum króna sem
hann hafði þénað á eiturlyfja-
sölu. Fyrsta plata hans „Eazy-
Duz-It“ frá árinu 1988 náði tvö-
faldri platínusölu.
Það var svo með félögum sín-
um í Niggers With Attitude, Dr.
Dre og Ice Cube, að Eazy-E sló
almennilega í gegn. Fyrsta
plata þeirra „Straight Outta
Compton" seídist í þremur millj-
ónum eintaka árið 1988. Hún
vakti sterk viðbrögð þjá FBI,
sem kvartaði yfir því að þar
væri hvatt til ofbeldis gegn lög-
reglu. „Plötur fá fólk ekki til
að gera neitt,“ sagði Eazy-E af
því tilefni. „Það er fólkið sjálft
sem gerir það sem það vill.“
Eazy-E gortaði gjarnan af
kyngetu sinni, enda átti hann
átta börn með sjö konum, allt
frá Eric, sem er tíu ára, til
Dominick, sem er eins árs. Hann
giftist Tomicu Woods, móður
Dominicks, 14. mars, en nú þeg-
ar hefur verið höfðað mál gegn
henni, þar sem krafist er hluta
arfsins.
Eitt er víst að það er mjög
mikil eftirsjá að Eazy-E fyrir
aðdáendur rapptónlistar um all-
an heim og það segir sína sögu
að þann tíma sem hann dvaldi
á spítala bárust þangað um 2500
símhringingar á dag. „Fráfall
Eazy-E fékk mjög á mig,“ segir
rapparinn Rodney O. „Eg varð
bæði dapur og auðmjúkur. Ég
naut aldrei sömu velgengni og
hann, en vildi ég hafa hlut-
verkaskipti við hann núna?
Nei.“