Morgunblaðið - 31.05.1988, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
71
. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Arni Sæmundsson og Snorri Gíslason unnu flokk óbreyttra bíla á
''iazda 323 4x4, en þeir veltu i síðustu keppni og byggðu upp nýjan
bíl, sem hélst á fjórum þjólum nœr allan tímann, nema þegar flogið
var.
ég að við höfðum unnið, þrátt fyr-
ir allt,“ sagði Steingrímur.
„Það angrar mig ekki að hafa
ekki unnið, ég veit að það verður
erfitt að vinna í ár, baráttan er
niikil og enginn öruggur fyrir-
fram,“ sagði Jón. „Það sprakk
fljótlega á leiðinni, ég lenti á steini
eftir að hafa kastað bílnum í gegn-
u*n hægri beygju. Steinn fór í
hægra framhjólið og kílómetra
seinna var dekkið vindlaust. Ég
^ssi að ég var búinn að missa af
s'gurmöguleikanum, en vildi ekki
skipta um dekk, því þá hefði ég
£etað hrapað í þriðja sæti. Við
ókum því á sprungnu 13 kflómetra
°S ég er hissa hvað við komumst
hfatt á felgunni. Það var helst í
'nnstri beygjum sem var erfitt að
stýra...“
Það var ekki bara barist um
sigurinn, það var mjótt á munun-
urn hjá fleirum. í flokki óbreyttra
bíla var baráttan milli Áma Sæ-
mundssonar og Snorra Geirssonar
é Mazda og Óskars Ólafssonar og
Jóhanns Jónssonar á Subaru, en
beir síðamefndu töpuðu af lestinni
þegar þeir sprengdu dekk og töp-
uðu tíma. Skotinn Philip Walker á
Toyota var meðal þeirra 14 sem
komust í endamark, en hann hefur
Sert sex tilraunir til að ljúka rall-
keppni hérlendis. Það hafðist í
Þeirri sjöttu.
Hinsvegar voru sjö aðrir kepp-
endur ekki svo heppnir að ljúka
keppni, þeirra á meðal Pétur Ást-
VaMsson og Bjami Haraldsson á
Toyota Starlet, sem misstu fram-
hjól og öxul út í móa á einni sér-
leiðinni. Þeir keyrðu smáspöl á
Þremur hjólum, en urðu að hætta
þar sem hjólabúnaðurinn fannst
hvergi, þrátt fyrir mikla leit.
Lokastaðan i rallinu
Refsing/klst
1. Steingrímur Ingason —
Witek Bogdanski, Nissan 1.11.12
2. Jón Ragnarsson — Rúnar
Jónsson, Ford Escort 1.13.35
3. Guðmundur Jónsson — Bjartmar
Amarsson, Nissan 240 RS 1.16.53
4. Ævar Sigdórsson — Ægir
Ármannsson, BMW 2002 Turbo 1.18.88
5. Sigurður Guðmundsson — Amar
Theódórsson, Talbot Lotus 1.18.44
6. Ágúst Guðmundsson — Ragnar
Bjamason, Opel Kadett 1.19.37
7. Ámi Sæmundsson — Snorri
Gfslason, Mazda 323 Turbo 1.19.42
8. Philip Walker — Pétur
Guðjónsson, Toyota Corolla 1.22.00
9. óskar Ólafsson — Jóhann
Jónsson, Subaru RX Turbo 1.22.04
10. Gunnlaugur Ingvarsson — Ingvar
Ingvarsson, Toyota Corolla 1.23.29
11. Þorsteinn Ingason — Úlfar
Eysteinsson, Ford Escort 1.24.29
12. Páll Halldórsson - Guðný
Úlfarsdóttir, Subaru 1800 1.35.53
13. Laufey Sigurðardóttir — Unnur
Reynisdóttir, Toyota Corolla 1.44.37
14. Konráð Valsson — Ásgrfmur
Jósefsson, Datsun 160 JSSS 1.46.59
Staðan í íslands-
meistarakeppninni
Ökumenn Stig
1.-2. Jón Ragnnarsson 30
1.-2. Steingrímur Ingason 30
3. Jón S. Halldórsson 20
4.-5. Guðmundur Jónsson 12
4.-5. Óskar Ólafsson 12
6. Ægir Armannsson 10
Aðstoðarökumenn Stíg
1. Rúnar Jónsson 30
2.-4. Guðbergur Guðbergsson 20
2.-4. Ægir Ármannsson 20
2.-4. Witek Bogdanski 20
5.-6. Bjartmar Arnarsson 12
5.-6. Jóhann Jónsson 12
„Bensíngjöfin festist
á fullu í beygjunni“
" seg'ir Ulfar Eysteinsson eftir koll-
steypur á ísólfsskálavegi
■.Bensíngjöfin festist í botni í beygjunni, sem við ætluðum að fara
mjög innarlega í. Bíllinn skall í kanti við veginn, skrúfaðist upp og
Va*t þijár veltur. í miðjum látunum fórum við að skellihlæja, við
höfðum ætlað að selja okkur dýrt á lokaleiðinni, þvi aðrir keppend-
ur höfðu áhuga á fjórða sæti okkar. Veltan olli því að sætið fór á
ut8öluverði,“ sagði Úlfar Eysteinsson, sem fór kollsteypur á ísólfs-
8kálavegi með Þorsteini Ingasyni sem sat undir stýri.
„Bensíngjöfin hafði verið að af stað aftur.
krekkja okkur alla keppnina, fest-
^st niðri við gólf vegna þess að liða-
mót við blöndunginn voru slitin.
h°r8teinn þurfti oft að sparka gjöf-
ina til, en það tókst ekki nógu fljótt
( fyrstu alvarlegu beygjunni á
8jðustu keppnisleiðinni," sagði
^lfar. „Þetta var góð velta, ekki
harkaleg og bfllinn stöðvaðist á hlið-
lnni, ég hékk fyrir ofan Þorstein
varaði hann við þegar ég losaði
uryggisbeltin, hlassið væri að
“°nia . . . Við fórum útúr bflnum
fer sem framrúðan hafði verið og
Wgum aðstoð við að koma honum
Það var því engin framrúða í
bflnum og ég er enn íjóður i kinnum
eftir vindinn. Þegar framrúðuna
vantar fínnur maður fyrst hve hrað-
inn er mikill, ég er nú með gler-
augu sem verja augun fyrir vind-
hviðum en Þorsteinn hefur sjálfsagt
grátið alla leið. Þetta var ekki eina
ævintýrið okkar. Fyrr um daginii
festist gjöfín í beygju og við fórum
á fullri ferð útúr henni gegnum
girðingu og handrið á pípuhliði. Við
förum því í girðingarvinnu síðar í
vikunni," sagði Úlfar.
Fyrirlestur
um samfélags-
fræðikennslu
í grunnskólum
TONY Marks heldur fyrirlestur
og sýnir myndband um kennslu
í samfélagsfræði í grunnskóla
miðvikudaginn 1. júni nk. kl.
17.00.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Kennslumiðstöð Námsgagnastofn-
unar, Laugavegi 166.
Tony Marks er lektor í félags-
fræði og kennslufræði félagsfræð-
innar við breskan háskóla. Hann
er hér staddur á vegum Félags fé-
lagsfræðikennara til að halda nám-
skeið í kennslufræði greinarinnar.
Áhugamenn um samfélagsfræði-
kennslu eru hvattir til að mæta.
(Fréttatilkynning)
Vorhappdrætti
Tónlistarsam-
bands alþýðu
DREGIÐ hefur verið í Vorhapp-
drættí Tónlistarsambands alþýðu
1988.
Eftirtalin númer komu upp; Flug-
ferð fyrir einn til Lúxemborgar með
Flugleiðum kom á miða númer 438
og 210 og geislaplötuspilari frá
Nesco kom á miða númer 1148,
610, 1426 og 372.
Vinninga ber að vitja sem fyrst
að Hjallabraut 39,1. hæð til vinstri,
Hafnarfirði.
Vinningsnúmer birt án ábyrgðar.
(Úr fréttatilkynmngfu)
o
INNLENT
*
Iþróttadag-
ur aldraðra
FÉLAG áhugafólks um íþróttír
aldraðra efnir til útivistardags
miðvikudaginn 1. júní nk. Komið
verður saman á gervigrasvellin-
um í Laugardal.
Þátttakendum sem þess þurfa
býðst akstur frá félagsmiðstöðvum
aldraðra í borginni sem jafhframt
veita nánari upplýsingar. Þátttak-
endur eru hvattir til þess að klæða
sig eftir aðstæðum, í heppilegan
skjólfatnað og góðan skóbúnað.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
í frétt í síðasta sunnudagsblaði
Morgunblaðsins um nýtt veggein-
ingakerfi misritaðist nafn þess fyr-
irtækis sem framleiðir veggeininga-
kerfíð. Það heitir Trésmíðavinnu-
stofa Hilmars Bjamasonar sem er
skammstafað THB. Vinnustofan ér
til húsa að Smiðsbúð 12 í Garðabæ
en hún var áður í Kópavogi. Hlutað-
eigandi eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
IÐNSKÓLINN
í REYKJAVÍK
Innritun fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík og
Miðbæjarskólanum frá kl. 9.00-18.00 1. og2.júní.
Innritað verður í eftirtalið nám:
1. Samningsbundið iðnnám: (Námssamningur fylgi
umsókn nýnemá).
2. Grunndeild i prentun.
3. Grunndeild iprentsmiði (setning-skeyting-offset Ijósm.).
4. Grunndeiid í bókbandi.
5. Grunndeild i fataiðnum.
6. Grunndeild í háriðnum.
7. Grunndeild i málmiðnum.
8. Grunndeild í rafiðnum.
9. Grunndeild i tréiðnum.
10. Framhaldsdeild i bifreiðasmiði.
11. Framhaidsdeiid i bifvélavirkjun.
12. Framhaldsdeild í bókagerð.
13. Framhaldsdeild í hárgreiðslu.
14. Framhaldsdeild í hárskurði.
15. Framhaldsdeild i húsasmíði.
16. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði.
17. Framhaldsdeild i rafeindavirkjun.
18. Framhaldsdeild i rafvirkjun og rafvólavirkjun.
19. Framhaldsdeild í vélsmíði.
20. Almennt nám.
21. Fornám.
22. Meistaranám.
23. Rafsuðu.
24. Tæknibraut.
25. Tækniteiknun.
26. Tölvubraut.
27. Öldungadeild í bókagerðargreinum.
28. Öldungadeild i grunnnámi rafiðna og rafeindavirkjun.
Innritun er með fyrirvara um þátttöku í einstakar
deildir.
Öllum umsóknum nýnema fyigi staðfest afrít
prófskírteina með kennitölu.
Iðnskólinn í Reykjavík.
RENOLD
kedjur
tannhjól
og giror
m
pE!
KKlN°
ftevN sLA
þUÓN'
UST*
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670
—