Morgunblaðið - 31.05.1988, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Rallkeppni Eikagrills og Bylgjunnar:
„Ég ætlaði mér of
mikið og ók of hratt
- segir Ragnar Aðalsteinsson sem
eyðilagði bílinn í Kapelluhrauni
„Þegar ég var búinn að skríða
útúr flakinu var ég dauðsvekktur
og argur út í sjálfan mig. Ég
ætlaði mér of mikið og ók of
greitt, billinn snarsnerist á veg-
inum fór þversum á gijóthrúgu,
kastaðist upp og valt ofan í gjótu.
Mér skilst að við höfum farið 4—5
veltur, það er ekki alveg ljóst,
en þetta var rosalegur útafakst-
ur,“ sagði Ragnar Aðalsteinsson
sem missti stjórn á keppnisbíl
sínum í Kapelluhrauni og gjör-
eyðilagði hann i veltu.
„Ég hef alltaf verið hálfsmeykur
við óhapp, en þegar maður skríður
heill útúr svona ævintýri, hlýtur
maður að verða kaldari næst. Við
fórum útaf á tæplega 170 km hraða
og eftir að bfllinn fór að velta man
ég fátt, bara það að ég barðist við
að ná hendinni inn í bfl. Ég skildi
óvart gluggann eftir opinn og í
veltunni fór hendin af stað, ég
þurfti að taka á öllu sem ég átti
til að ná henni inn fyrir gluggapóst-
inn. Það eru ótrúlegir togkraftar
sem myndast í svona hamagangi."
„Við skriðum út um fram-
gluggann og þegar við vorum búnir
að ná áttum sáum við að bfllinn var
ónýtur. Við ætlum að finna nýja
yfirbyggingu og mæta í næstu
keppni. Bfllinn var orðinn dasaður
fyrir keppni, en það var samt óþarfi
að fara svona með hann. Maður er
reynslunni ríkari, við vorum bara
of kappsfullir eftir að hafa náð
góðum aksturstímum og þegar við
sprengdum svo dekk og féllum í
15. sæti úr því sjötta ók ég of
grimmt...“ sagði Ragnar.
Úrslitin réð-
ust á síðustu
mínútunum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Ragnar Aðalsteinsson og Ingvar Ágústsson virða fyrir sér flakið af Opel-keppnisbQ sínum, sem fór útaf
á miklum hraða og valt ofan i gjótu.
„Sigurgleðin dugir nú ekki nema tíu mínútur, ég er strax far-
inn að hugsa um næstu keppni. Það sem er mest spennandi er
það að núna eru komnir 4—5 keppnisbílar, sem standa jafnfætis
og geta unnið. Það er enginn með yfirburðastöðu," sagði norðan-
maðurinn Steingrímur Ingason, sem sigraði rallkeppni Eika-
grills og Bylgjunnar um helgina á Nissan 510. Hann ók með
Pólverjanum Witek Bogdanski, voru þeir að aka saman í fyrsta
skipti og unnu sína fyrstu rallkeppni eftir rnikla baráttu við
feðgana Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson. Úrslitin réðust á
lokaleið keppninnar, á ísólfsskálavegi. Þriðja sæti náðu Guð-
mundur Jónsson og Bjartmar Arnarson á Nissan, en í flokki
óbreyttra bíla unnu Árni Sæmundsson og Snorri Gíslason á fjór-
hjóladrifnum Mazda 323.
„Mér fannst gaman að vinna
Jón Ragnarsson, en það hefur oft
gengið illa hjá mér að ljúka keppni.
Núna var ég yfirvegaður og náði
að halda uppi hraðanum,“ sagði
Steingrímur. Keppnin fór fram á
sérleiðum á Reykjanesi og um
Lyngdalsheiði á föstudag og laug-
ardag. Eftir fyrri daginn var
Steingrímur með 12 sekúndna for-
skot á Jon, en 17 sekúndum frá
öðru sæti var Guðmundur Jónsson
og allir áttu þeir góða möguleika
á sigri. Á fyrstu leiðum föstudags-
ins náðu Jón S. Halldórsson og
Guðbergur Guðbergsson forystu,
en þá fór heddpakkning í vél
Porsche 911 þeirra og síðar
sprengdu þeir dekk og töpuðu
tíma. í viðgerðarhléi fyrir seinni
daginn náðu þeir ekki að gera við
í tæka tíð og féllu úr leik, þá í
fjórða sæti.
Einvígi milli Steingríms
og Jóns
Steingrímur byijaði laugardag-
inn vel, jók forskotið um 17 sek-
úndur á tveimur fyrstu sérleiðun-
um. En Jón náði 8 sekúndum til
baka á næstu tveimur leiðum og
spennan magnaðist, ekkert mátti
út af bera hjá toppmönnnunum
og Guðmundur var skammt undan
fyrstu tveimur keppnisbílunum, 23
sekúndum á eftir Jóni. Þijár sér-
leiðir voru eftir og þessir þrír bílar
gátu allir sigrað, þó Steingrímur
hefði trompin á hendi — forystuna.
„Spennan var mikil og á ísólfs-
skálavegi gerði ég mistök. Ég fór
of hratt miðað við grip dekkjanna,
sem voru farin að fljóta mikið á
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Rallinu tapað. Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson voru jafnir Steingrími og Witek fyrir síðustu leiðina,
en sprengdu þá dekk og misstu af sigurmöguleikanum.
mölinni, og bíllinn snerist á vegin-
um og framhjólin fóru útaf. Það
drapst á vélinni og ég var dágóða
stund að komast af stað aftur,
tapaði líklega um 20 sekúndum á
þessu brölti," sagði Steingrímur.
Jóni gekk betur á þessari leið og
eftir leiðina hafði hann jafnað
stöðuna. „Ég sá um morguninn
að annað hvort yrði ég að bíta á
jaxlinn og aka hraðar eða gefast
upp. Ég valdi fyrri kostinn og sá
að það var hægt með grimmum
akstri," sagði Jón. Guðmundur
hins vegar sprengdi dekk á leið-
inni og tapaði miklum tíma, þann-
ig að hann mátti vera ánægður
að halda þriðja sætinu. Keppnin
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Fyrsta sigrinum fagnað.
Steingrímur Ingason og Witek
Bogdanski unnu sína fyrstu
keppni þegar þeir komu í mark
í rallkeppni Eikagrills og Bylgj-
unnar. Þeir voru að aka saman
í fyrsta skipti og óku Nissan-
keppnisbíl.
var orðin einvígi milli Steingríms
og Jóns.
„Ók 13 km á felgunni“
Ekin var stutt leið um Stapa-
fell og Steingrímur náði sekúndu
betri tíma en Jón. Aðeins átti eft-
ir að aka um ísólfsskála, 19 km
ieið á hröðum en krókóttum og
hæðóttum vegi. Steingrímur fór
fyrstur inn á leiðina." Við vorum
nýkomnir inn á leiðina þegar
bíllinn festist í fímmta gír. Ég
reyndi að skipta en það gekk ekki
og ég varð að sætta mig við það.
Við ókum mjög djarft, en ég af-
skrifaði fyrsta sætið í fyrstu, en
ákvað svo að Jón gæti líka lent í
óláni. Við fórum geyst í gegnum
beygjumar, hraðar en áður, og
náðum að halda ferðinni þó við
værum fastir í fímmta. Þegar ég
var búinn að aka leiðina var ég
fúll yfír bílnum. Reiður að hafa
tapað keppninni á síðustu leiðinni.
Svo þegar Jón kom ekki strax, þá
vissi ég að eitthvað hafði gerst.
Þegar hann kom á sprungnu vissi