Morgunblaðið - 31.05.1988, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Verslunarþjónustan á Akranes:
Salan tvöfaldaðist í fyrra
Akranes
Á Akranesi er starfrækt fyrirtæk-
ið Verslunarþjónustan hf., sem
sérhæft hefur sig í innflutningi á
ýmsum vörum tengdum sjávarút-
vegi.
Verslunarþjónustan hf. var stofn-
uð fyrir röskum fímm árum, en haus-
tið 1986 skipti fyrirtækið að mestu
um eigendur og þá varð Magnús
Sólmundsson aðaleigandi og auk
hans nokkrir heimamenn. Magnús
Sólmundsson framkvæmdastjóri
sagðist í samtali við Morgunblaðið
vera í samböndum við fyrirtæki er-
lendis sem bjóða góða vöru til notk-
unar í sjávarútvegi, t.d. togvfr, tóg,
lása og bindiplast svo nokkuð sé
nefnt. Fyrirtækið sem hann verslar
einkum við er B.V. Ymuiden Stores
í Hollandi sem er einn stæsti aðili
þar í landi í sölu á útgerðarvörum
og selja þeir vöru sína Víða um heim.
Fyrirtækið er söluaðili fyrir Appeldo-
om-verksmiðjumar sem framleiddu
stóran hluta sfldamótaefnis fyrir ís-
lendinga fyrr á árum.
Magnús segir að Verslunarþjón-
ustan hf. hafí frá upphafí selt þrísnú-
inn togvír af hollenskri gerð sem í
upphafí hafí nær eingöngu verið
ætlaður sem grandaravír í togskipum
hér á landi. Ifyrir um tveim árum
var farið að nota hann sem togvír,
en þessi vír hefur þann kost að það
rúmast mun meira af honum á troml-
unum en af hefðbundnum vír.
Magnús segir að á síðasta ári hafí
orðið nær 100% söluaukning í magni
hjá fyrirtækinu.
Tvímælalaust sannað
gildi sitt
Davíð Guðlaugsson skipstjóri á
Krossvík hf. hefur hvað lengsta
reynslu skipstjómarmanna hér á
landi í notkun á þrísnúna vímum.
Hann segist hafa notað vírinn í tæpt
eitt og hálft ár og hefur hann reynst
mjög vel. Davíð segir að það hái
þeim á togurunum hvað tromlumar
á skipunum séu litlar og því séu erfíð-
leikar við veiðar á djúpmiðum. Við
það að fá þennan þrísnúna vír kom-
um við mun meiru af honum inn á
tromlumar. í stað 850 faðma hjá
okkur af hefðbundnum vír getum við
haft 1.000 faðma af þessum
þrísnúna. Þetta skiptir því miklu
máli.
Davíð segir að upphaflega hafí
þeir eingöngu notað þennan vfr sem
grandaravír og hafí hann reynst vel,
við getum tekið allt að 100 höl með
sama vímum og aldrei hefur það
komið fyrir að við höfum slitið grand-
aravír. Vissulega skiptir það mestu
máli að hafa góðan útbúnað til veiða
og ég tel að þessi vír hafí sannað
ágæti sitt. Kostnaður er margfalt
minni fyrir útgerðina og það hefur
mest að segja þegar upp er staðið,
sagði Davíð að lokum.
- JG
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Tveir af eigendum Verslunarþjónustunnar hf. ásamt skipstjóra
Krossvikur AK. Talið frá vinstri: Davíð Guðlaugsson, Sigurður Ingi-
mundarson verkstjóri hjá Nótastöðinni hf. og Magnús Sólmundsson.
Bolungarvík:
Góð þátttaka á alþjóðadegi Lions
Bolungarvík.
Lionsklúbbur Bolungarvikur
hélt upp á alþjóðadag Lions 7.
maí sl. með þvi að efna til íþrótta-
hátíðar í íþróttahúsinu.
Dagskráin hófst kl. 14 með sund-
keppni þar sem meðlimir sunddeild-
arinnar kepptu í boðsundi. Því næst
fór fram innanhússknattspyma milli
liða skipuðum liðsmönnum 11 og
12 ára en að þeim leik loknum
kepptu félagar úr íþróttafélagi fatl-
aðra á ísafírði í „bocchia" en það
er íþrótt sem ekki hefur verið keppt
í áður hér. Að lokinni keppni í
„bocchia" fór fram handknattleikur
en síðasti liður dagskrárinnar var
keppni í „bocchia" milli Lions-
manna og félaga í íþróttafélagi fatl-
aðra og er skemmst frá því að segja
að íþróttafélag fatlaðra sigraði með
miklum yfirburðum.
Þessi dagskrá Lionsmanna sem
fór fram undir yfirskriftinni Vímu-
Morgunblaðið/Gunnar Hallason
Þátttakendur í dagskrá Lionsmanna á alþjóðadegi Lions 7. maí í
Bolungarvík.
laus æska var vel heppnuð og þátt- um fengu verðlaunapening til minn-
takendur flölmargir bæði í íþrótta- ingar um þátttöku í þessarí dagskrá
keppnunum og á áhorfendapöllum. Lionsmanna.
Allir sem þátt tóku í íþróttaleikjun- - Gunnar
FJÖLBREYTT ÚRVAL
• VEGGSKILDIR
• VASAR
• STELL
• NYTJAMUNIR
• KLUKKUR
• LAMPAR
MINNIST TIMAMÓTA
MEÐ SERMERKTUM
KJÖRGRIP! Við merkjum
hvers kyns gripi til að
minnast hatiðlegra tækifæra
og timamota.
w
GLIT
S. 685411.
Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson
Guðrún Eðvaldsdóttir, Nína Lárusdóttir, Ingólfur A. Þorkelsson
formaður Seyðfirðingafélagsins við húsið og Þór Magnússon uppi í
stiganum að mála.
Seyðisfjörður:
Hlölli stækkar við sig
Á homi Aðalstrætis og Austurstrætis hefur skyndiréttastaðurinn
Hlölla bátar opnað smurbrauðsstofu sem býður upp á úrval áleggs
og síldarrétta. Á myndinni sjást eigendumir Hlöðver Sigurðsson og
Kolfínna Guðmundsdóttir og Anna Björk Viðarsdóttir.
Sumarhúsin útbúin
Seyðisfirði.
NÚ STANDA yfir viðgerðir á einu
af gömlu húsunum hér i bænum,
þetta er hús, sem heitir Skógar
og stendur við Garðsveg. Seyð-
firðingafélagið i Reykjavík keypti
það i fyrra og stendur fyrir þess-
um lagfæringum á húsinu nú.
Fréttaritari Morgunblaðsins hitti
Ingólf A. Þorkelsson formann félags-
ins að máli þar sem hann var að
mála húsið ásamt tólf öðrum brott-
fluttum Seyðfirðingum. Ingólfur
sagði að Seyðfirðingafélagið i
Reykjavík hefði keypt húsið til þess
að leigja það félagsmönnum sem
sumarbústað, ef menn vildu dvelja
hér í lengri eða skemmri tíma. Áætl-
að væri að húsið yrði tilbúið til notk-
unar um miðjan júní.
„Við komum þrettán úr félaginu
hingað austur og verðum hér í fímm
til sex daga og vinnum að lagfær-
ingu á húsinu og málum það. Öll
vinnan er unnin í sjálfboðavinnu og
höfum við fengið mikla aðstoð frá
íbúum Seyðisflarðar. Til dæmis hafa
þrír seyðfirskir smiðir, þeir Þorsteinn
Magnússon, Gunnar Ragnarsson og
Einar Sigurgeirsson, unnið mikið
fyrir okkur ásamt Jóhanni Svein-
bjömssyni allsheijarreddara og allt
er gert í sjálfaboðavinnu. Auk þess
hafa margir aðrir lagt hönd á plóginn
til að gera þennan draum okkar að
veruleika og allt þetta fólk á miklar
þakkir skildar fyrir. Það eru um 240
manns ( þessum félagsskap sem allt
eru brottfluttir Seyðfírðingar þannig
að eftirspumin verður ömgglega
mikil. Þegar eru komnar margar
fyrirspumir þótt ekki sé ennþá búið
að auglýsa það formlega meðal fé-
lagsmanna," sagði Ingólfur að lok-
um.
- Garðar Rúnar
RD©œca
FremstirmeÖ fax
Keflvíking-
ar auglýsa
Ragnarsbakaií
Keflavík.
Knattspyrnuráð Keflavíkur
hefur gert auglýsingasamning
við Ragnarsbakarí sem gildir á
nýbyrjuðu keppnistímabili. Að
sögn Kristjáns Inga Helgasonar
formanns knattspyrnuráðs er
samningurinn ákaflega rausn-
arlegur og mikilvægur fyrir
rekstur knattspyrnudeilarinnar.
Sem kunnugt er hafa nýir aðilar
keypt og tekið við rekstri Ragnars-
bakarís og sagði Hermann Guð-
mundsson framkvæmdastjóri að
þeir vildu sýna með þessum samn-
ingi að Ragnarsbakarí væri fyrst
og fremst fyrirtæki Suðumesja-
manna og vildi leggja sitt af mörk-
um til íþróttahreyfingarinnar á
svæðinu.
- BB