Morgunblaðið - 31.05.1988, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
_______________
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hafnarfjörður
- blaðberar
Listasafn
Einars Jónssonar
óskar eftir að ráða starfsmann í sumar til
að annast leiðsögn og gæslu í safninu.
Nokkur málakunnátta æskileg.
Nánari upplýsingar veittar í síma 13797 milli
kl. 13.00-16.00.
Starfsfólk
íheimilishjálp
í Garðabæ óskast nú þegar. Upplýsingar á
skrifstofu félagsmálaráðs, sími 656622.
Félagsmálaráð Garðabæjar.
Trésmiðir
Okkur vantar röska trésmiði í uppslátt í Graf-
arvogi. Mikil vinna. Matur á staðnum.
Upplýsingar í síma 652478 (Bjartur), og á
kvöldin í símum 52247 og 53653.
"O'Rclsír sf.
Starf fyrir þig?
Þernustörf og ræstingar
Okkur vantar gott og samviskusamt fólk til
framtíðarstarfa. Æskilegur aldur 25-45 ára.
Um er að ræða:
★ Þernu- og ræstingastörf fyrir hótel.
★ Almenn ræstingastörf á skrifstofuhúsnæði.
★ V2 og 1/i störf virka daga.
★ Kvöld- og helgarvinna (hlutastörf).
★ Sumarafleysingar.
Upplýsingar einungis gefnar á skrifstofunni
þar sem umsóknareyðublöð liggja frammi.
Securitas hf. - ræstingadeild,
Síðumúla 23, 2. hæð.
Skrifstofustjóri
Lögmannsstofa í Austurbænum óskar eftir
að ráða skrifstofustjóra til starfa nú þegar.
Við leitum að aðila sem hefur reynslu af
innheimtu, tölvubókhaldi og á gott með að
stjórna fólki.
í boði eru góð laun fyrir réttan aðila.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
veittar á skrifstofu okkar frá kl. 9-15.
SfarfsAliðlunin
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Laugavegur 18A • 101 Reykjavík • Sími 622200
Tæknimenn
- atvinna
Hjá Sauðárkróksbæ er laust til umsóknar
starf byggingafulltrúa.
Umsóknarfrestur um starfið er til 11. júní nk.
Umsóknum, er greina menntun og fyrri störf,
skal skila á bæjarskrifstofuna á Sauðárkróki.
Allar nánari upplýsingar veita bæjarstjóri eða
byggingafulltrúi í síma 95-5133.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
WORD
ritvinnslukerfi
Okkur vantar traustan ritara sem fyrst.
Við leitum að starfsmanni
- sem hefur góða þekkingu á ritvinnslu,
helst „Word",
- á gott með að umgangast fólk,
- getur tekið að sér mikla vinnu þegar þörf
krefur,
- æskilegt er að viðkomandi hafi ensku- og
dönskukunnáttu.
Starfið er krefjandi.
Um er að ræða heilsdagsstarf til framtíðar.
Umsóknarfrestur er til og me 6. júní nk.
Þeir, sem áhuga hafa, eru beí íir að senda
nafn og upplýsingar um starfsreynslu til
VSÍ, pósthólf 514, 121 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinnuveitendasamband íslands.
Þroskaþjálfar og
meðferðarfulltrúar
Eftirfarandi stöður hjá Styrktarfélagi vangef-
inna eru lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk.
Sambýlið Blesugróf 29
1. Staða forstöðumanns. Þroskaþjálfa-
menntun eða önnur sambærileg uppeld-
ismenntun áskilin. Staðan veitist frá
15. júlí nk.
2. Stöður þroskaþjálfa og meðferðarfulltrúa.
Bæði er um heilar stöður og hlutastörf að
ræða. Stöðurnar veitast frá 1. ágúst nk.
Lækjarás
Vegna breytinga á starfsemi stofnunarinnar
eru eftirfarandi þroskaþjálfastöður lausar til
umsóknar. Stöðurnar veitast eftir nánara
samkomulagi.
1. Staða deildarþroskaþjálfa á dagvistar-
deild fyrir eldri einstaklinga í Blesugróf
31. Full staða. Verksvið: Umsjón, verk-
stjórn og umönnun átta einstaklinga á
aldrinum 49-63 ára. Viðkomandi þarf að
geta unnið sjálfstætt og vera tilbúinn að
móta starfsemi deildarinnar í samráði við
forstöðukonu.
2. Staða deildarþroskaþjálfa á blandaðri
deild og full staða. Verksvið: Umsjón,
þjálfun og meðferð níu til tíu einstaklinga
á aldrinum 26-50 ára. Æskilegt er að við-
komandi hafi reynslu og/eða þekkingu á
einstaklingum með geðræn vandamál.
3. Staða deildarþroskaþjálfa á fjölfötlunar-
deild. Full staða. Verksvið: Umsjón, þjálf-
un og umönnun fjögurra einstaklinga á
aldrinum 29-35 ára. Æskilegt er að við-
komandi hafi innsýn í kenningar um örvun
ofurfatlaðra eða reynslu af starfi með fjöl-
fötluðum.
Við bjóðum ykkur faglegan stuðning, niður-
greiðslu á kostnaði vegna barnagæslu og
góða vinnuaðstöðu og síðan en ekki síst
góðan starfsanda.
Nánari upplýsingar um framangreindar stöð-
ur veita framkvæmdastjóri styrktarfélagsins
í síma 15941 vegna sambýlis og forstöðu-
kona Lækjaráss í síma 39944.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Styrkarfélags vangefinna, Háteigsvegi 6, og
á stofnunum félagsins.
Blaðbera vantar á Hvaleyrarholtið.
Upplýsingar í síma 51880.
Starf við bókhald
Deildarskipt þjónustufyrirtæki í borginni vill
ráða ungan og lipran starfskraft til starfa í
bókhaldi. Verslunar- eða stúdentspróf skilyrði.
Starfsreynsla ekki nauðsynleg.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar:,, Bókhald - 2770“ fyrir 3. júní.
Véla- og rekstrar-
iðnfræðingur
með reynslu við hönnun, smíði og uppsetn-
ingu fiskvinnslutækja úr riðfríu stáli, tilboðs-
gerð o.fl. óskar eftir starfi.
Upplýsingar í síma 623064 eftir kl. 19.
Laus staða
Við Jarðfræðistofu Raunvísindastofnunar
Háskólans er laus til umsóknar staða sér-
fræðings á sviði kaldavatnsrannsókna.
Sérfræðingum er ætlað að vinna að jarðefna-
fræðilegum rannsóknum á köldu vatni, bæði
úrkomu, yfirborðsvatni og grunnvatni. Rann-
sóknirnar skulu einkum beinast að því að
skýrgreina hvaða þættir ráða efnainnihaldi
kalds vatns og hvernig þeir hafa áhrif á gæði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir, svo og námsferil og fyrri störf, skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík fyrir, 24. júní nk.
Menn tamálaráðuneytið,
27. maí 1988.
„Au pair“
Svíþjóð
Við óskum eftir að ráða barngóða stúlku frá
og með 8. ágúst til að hugsa um börnin
okkar. Við búum í húsi með stórum garði í
Sollentuna rétt fyrir utan Stokkhólm. Starfinu
fylgir sérherbergi með sjónvarpi. Hafið sam-
band í síma 9046-8-7545854 eða skrifið til
Christina Frid, Runbergsvágen 8, 19148,
Sollentuna, Svíþjóð.
MaSunnuhlíð
Kópavogsbraut 1 Sími 45550
Sigurlína forstöðu-
maður hættir
Litla barnaheimilið okkar (10 börn) leitar að
nýjum forstöðumanni. Staðan er laus frá
1. ágúst og er fullt starf.
Þá vantar okkur nú þegar eða frá 1. júní
annað hvort fóstru, fóstrunema eða aðstoð-
armann í 70% starf. Vinnutími er frá
kl. 11.45-17.15 alla virka daga.
Umækjandi verður að vera orðinn 18 ára.
Upplýsingar um störfin veitir Sigurlína, for-
stöðumaður, í síma 604166 alla virka daga
frá kl. 8.00-16.00.