Morgunblaðið - 31.05.1988, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
34______
Panama:
Noríega kveðst búinn
til frekarí viðræðna
Panama-borg, Reuter.
MANUEL Antonio Noriega, hers-
höfðingi og æðsti valdamaður i
Panama, tilkynnti á Panama-þingi
á föstudag að hann hefði visað
úrslitakostum Bandaríkjastjórnar
um að hann segði af sér til föður-
húsanna. Á hinn bóginn sagðist
Noriega enn vera boðinn og búinn
til frekari viðræðna við Banda-
ríkjamenn. Á sama tima var
greint frá þvi i Washington, höf-
uðborg Bandaríkjanna, að forset-
ar Mið-Ameríkurikjanna og sjálf-
stæð stofnun beittu sér nú fyrir
því að farin yrði önnur leið til
þess að leysa vanda Panama, eft-
ir að upp úr viðræðum Noriegas
og Bandaríkjasijómar slitnaði í
vikunni.
Áætlun þessi felur í sér að komið
skuli á viðræðum með Noriega og
pólitiskum andstæðingum hans og
freista þess að koma landinu á lýð-
ræðisbraut. Fremstir í flokki þeirra,
sem beita sér fyrir þessari lausn
mála, eru Vinicio Cerezo Guatemala-
forseti, Juan Sosa, sem er helsti for-
ystumaður stjómarandstöðunnar í
Panama, og Lýðræðismiðstöðin
(Center for Democracy), sem er sjálf-
stæð stofnun í Washington.
Noriega svaraði fyrirspumum
Hincrmamia í 3V* tfma í ETær Og sagði
meðal annars: „Við erum tilbúnir til
þess að ræða við hvem sem er, svo
framarlega sem okkur em ekki sett-
ir úrslitakostir."
Hann sagði að mánaðarlangar
samningaviðræður ráðgjafa sinna við
Michael Kozak, fulltrúa Bandaríkja-
stjómar, hefðu mnnið út í sandinn
vegna ákafa Bandaríkjamanna, sem
hefðu beitt sig óþolandi þrýstingi í
von um að ná skjótum samningum.
„Þeir settu okkur þá úrslitakosti
að Panama yrði þegar að fallast á
síðustu tillögu þeirra ella yrði hún
dregin til baka. Þetta veit ég af þvf
að ég var þama. George Shultz [ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna]
ekki.“
Shultz sagði á miðvikudag að ráð-
gjafar Noriegas hefðu fallist á sam-
komulag um að Noriega segði af
sér. Hins vegar hefði Noriega sjálfur
heykst á samkomulaginu á síðustu
stundu.
Bandaríkjastjóm hefur um langt
bil reynt að efla stjómarandstöðuna
í Panama í von um að koma Noriega
frá völdum. Róðurinn var hertur til
muna fyrir skömmu eftir að saksókn-
ari í Flórídu ákærði hershöfðingjann
fyrir aðild að stórfelldu eiturlyfja-
smygli til Bandaríkjanna.
Vinningstölurnar 28. maí 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.413.192,-
1. vinningur var kr. 2.208.360,- og skiptist hann á milli 3ja
vinningshafa, kr. 736.120,- á mann.
2. vinningur var kr. 662.286,- og skiptist hann á milli 302
vinningshafa, kr. 2.193,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.542.546,- og skiptist á milli 7.242 vinn-
ingshafa, sem fá 213 krónur hver.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasimi: 685111
Reuter
Lögreglumenn rannsaka bilinn sem talið er að mannræningjarair
hafi notað til að ræna leiðtoga kólumbíska íhaldsflokksins, Alvaro
Gomez Hurtado, á sunnudag. Billinn var sprengdur stuttu eftir
mannránið.
Stj ómmálamanni
rænt í Kolumbíu
Bogfota, Reuter.
VOPNAÐIR menn rændu Al-
varo Gomez Hurtado, einum
leiðtoga kólumbiska íhalds-
flokksins, og skutu lífvörð hans
til bana í Bogota á sunnudag.
Talið er að Gomez hafi særst.
Ættingjar sögðust hafa þekkt
rödd Gomezar á snældu sem send
var til útvarpsstöðvar, en þar sagði
hann: „Ég er að deyja." Sjónar-
votlar sögðu hins vegar að Gomez
virtist ekki hafa særst þegar hon-
um var rænt. Hringt var í útvarps-
stöðina og sagt að skæruliðahreyf-
ing sem kennd er við Simon Boli-
var bæri ábyrgð á mannráninu.
Lögreglan var hins vegar ekki viss
um hvort vinstrisinnaðir skærulið-
ar eða eiturlyfjasmyglarar, sem
fyrirhugað er að framselja til
Bandaríkjanna, hefðu rænt
Gomez. Daginn áður hafði lögregl-
an handtekið Fabio Ochoa, en syn-
ir hans eru sagðir leiðtogar eitur-
lyfjasmyglhrings.
Nokkrum klukkustundum áður
en Gomez var rænt hafði sérfræð-
ingur í eiturlyfjamálum sagt í sam-
tali við fréttamann Reuters að eit-
urlyfjasmyglarar myndu hefna sín
á kólumbískum embættis- og
stjómmálamönnum vegna hand-
töku Ocheas.
Gomez er fyrrum sendiherra,
var framkvæmdastjóri dagblaðs-
ins El Siglo og hefur tvisvar verið
í framboði í forsetakosningum.
JEAN-Pierre Chevenement,
varnarmálaráðherra Frakk-
lands, segir að franski herinn
hafi farið illa að ráði sínu er
hann batt enda á umsátur um
mannræningja á Nýju Kale-
dóníu á blóðugan hátt. Ráð-
herrann segir að þeim sem tóku
þátt í árásinni skuli refsað.
Chevenement segir að samn-
ingaleiðin hafi ekki verið fullreynd
þegar Jacques Chirac, þáverandi
forsætisráðherra, fyrirskipaði ár-
ásina, þremur dögum fyrir síðari
umferð forsetakosninganna í
Frakklandi. í árásinni féllu 19 að-
skilnaðarsinnar og 2 franskir her-
Svíþjóð:
Flotinn
sprengir
tundurdufl
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKI flotinn sprengdi í gær
tundurdufl í sænska sketja-
garðinum vegna fregnar um að
erlendur kafbátur væri þar á
ferli. Einnig var leitað úr lofti
nærri Uto, bannsvæði hersins
suður af Stokkhólmi, en þar fór
viðvörunarkerfi í gang sem gaf
til kynna að óþekktur hlutur
væri á sveimi neðansjávar.
Þijú ár eru nú liðin síðan Svíar
sprengdu síðast tundurdufl úti fyr-
ir ströndum landsins. Þá lék grun-
ur á að kafbátur væri á siglingu
nærri Karlskrona í suð-austur
Svíþjóð. Þrátt fyrir að fregnum
fjölgi af kafbátaferðum erlendra
ríkja við Svíþjóð hefur flotanum
aldrei tekist að standa slíkan að
verki.
Árið 1981 sigldi sovéskur kaf-
bátur í strand nærri sænskri flota-
stöð en Sovétmenn kenndu hafvillu
um. Ríkisstjómin hefur fyrirskipað
hemum að skjóta á grunsamlega
neðansjávarfley í stað þess að
reyna að neyða þau til að koma
upp á yfírborðið.
menn. Chevenement segir að liðs-
foringinn sem stjómaði árásinni
hafí verið látinn víkja.
Menn af ættflokki melanesa,
frumbyggja Nýju-Kaledóníu, halda
þvi fram að tveir mannræningj-
anna hafí verið myrtir með köldu
blóði eftir að þeir gáfust upp. Leið-
toga þeirra, Alphonso Dianou, hafí
verið látið blæða út eftir að hann
var fluttur særður til nærliggjandi
þorps. Chevenement gefur í skyn
að eitthvað hafi verið gruggugt við
dauða Dianous. Búist er við því
að Frakklandsstjóm fyrirskipi nú
opinbera rannsókn á árásinni á
Nýju Kaledóníu.
Blóðbaðið á Nýju-Kaledóníu:
Misgjörðir hers-
ins viðurkenndar
París, Reuter.
LEEDfl
MERKI UM GÖDAN ÚTBÚNAÐ
f ' f '■ V '.*• (&%?: , FLUGUHJÓL
\ • j r • •
Fást í nœstu sportvöruverslun.