Morgunblaðið - 31.05.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
29
Bengt Westerberg, formaður
Þjóðarflokksíns.
Carl Bildt, formaður Hægri-
flokksins.
asta með launahækkunum. Stjórn-
kerfið í Svíþjóð, sem er tölvuvædd-
ara en í nokkru öðru landi, fékk að
kenna á samkeppninni við einkafyr-
irtækin. Engir tölvunarfræðingar
vildu starfa hjá ríkinu og því var
gripið til þess ráðs að að hækka laun
þeirra.' Þetta er lítill hópur sérfræð-
inga og launahækkunin hefur lítil
áhrif á efnahagsástandið en þessi
hækkun særði sósíaldemókrata, þar
sem hún brýtur í bága við réttlætis-
kennd þeirra.
Og nú hefur óróleikinn breiðst út,
sérstaklega meðal heilbrigðisstét-
tanna sem eru geysifjölmennar.
Hjúkrunarfólk hefur komist að því
að hægt er að fá betur launuð störf
sem eru miklu léttari hjá einkafyrir-
tækjum. Skortur á hjúkrunarfólki
hefur orðið til þess að deildum á
sjúkrahúsum hefur verið lokað og
bið eftir að komast í ákveðnar að-
gerðir hefur lengst óhóflega. Þegar
það var ljóst að margar deildir við
velþekkt sjúkrahús töldu sig ekki
hafa ráð á að veita öldruðum sömu
þjónustu og áður hitnaði í kolunum.
Nú þótti mörgum að vegið væri að
rótum velferðarríkisins Svíþjóðar.
Lénsþingin, sem fara með yfir-
stjórn heilbrigðismála, ákváðu að
greiða hjúkrunarfólki laun langt
umfram samninga með fullum
stuðningi almennings. Afleiðingar
þessa hafa ekki komið í ljós en ólík-
legt er að aðrir hópar innan heil-
brigðisstétta láti sér lynda þessar
sérstöku launahækkanir hjúkrunar-
fólks. Ef þarf að hækka laun ann-
arra starfsmanna á sjúkrastofnun-
um mun það hafa í för með sér að
ríki og sveitarfélög neyðast til að
gera upp við sig án hvers þau geta
ekki verið og hvar er nauðsynlegt
að skera niður.
Þeir sem gagnrýna sænska ríkis-
kerfíð segja það vera yfirmannað
og spillt. Með því að ætla að sinna
öllum hugsanlegum þörfum þjóðar-
innar hafí ekki tekist að þræða hinn
gullna meðalveg. Rekstur opinberra
stofnana og ríkisfyrirtækja getur
orðið stærsta kosningamálið að
þessu sinni, þar sem tekist er á um
hugmyndafræðina sem býr að baki
sænska velferðarþjóðfélaginu. Deil-
umar munu snúast um það hvar
hægt sé að draga saman seglin í
ríkisrekstrinum og einnig um rekstur
barnaheimila, skóla, hersins og heil-
brigðiskerfisins. Borgaralegu flokk-
amir vilja gera kerfið afkastameira,
minnka miðstýringu og einkavæða
rekstur stofnana eins og mögulegt
er. Þetta kemur sósíaldemókrötum
í mikinn vanda. Opinberir starfs-
menn eru í dag kjami þeirra sem
kjósa sósíaldemókrata, þó ekki í eins
ríkum mæli og í Danmörku, en það
er augljóslega stærsti hópur meðal
kjósenda sósíaldemókrata í Svíþjóð.
Því óttast þeir að tapa fylgi ef þeir
skera niður í ríkisrekstrinum.
Það sem flokkarnir munu reyna
að komast hjá að svara í komandi
kosningabaráttu em spumingar sem
varða aðild Svía að Evrópubandalag-
inu, kjarnorkumálin (bæði sósíal-
demókratar og borgaraflokkamir
eru klofnir í afstöðu sinni til kjama-
vopna) og utanríkismál. Hins vegar
eru allir flokkamir sammála um að
ferðir erlendra kafbáta í sænskri
lögsögu er mikið áhyggjuefni. Á
sviði innanríkismála hafa upplýsing-
ar um óleyfílega vopnasölu vakið
gífurlega athygli og efasemdir um
heilindi sænskra stjómvalda. Ef
vopnasala til erlendra ríkja verður
kosningamál er ríkisstjómin í mikilli
hættu, en sé skoðað ofan í kjölinn
kemur í ljós að borgaraflokkamir
eru engu betur settir þegar vopna-
sölumálin eru annars vegar.
Grímsbær:
Matvöruverslun opnuð
að nýju eftir bruna
MATVÖRUVERSLUNIN í
Grímsbæ við Bústaðaveg hefur nú
verið opnuð aftur, en undanfarið
hefur verið unnið að viðgerðum á
húsnæðinu eftir að kveikt var i
því í lok apríl.
Aðfaranótt þriðjudagsins 26. apríl
kom upp eldur í versluninni og urðu
þá miklar skemmdir á henni. Við
rannsókn málsins kom í ljós að flösku
með logandi bensíni hafði verið kast-
að inn um glugga verslunarinnar.
„Það hefur myndast gifurlegur hiti
og má sem dæmi’nefna að afgreiðslu-
kassar bráðnuðu," sagði Þórhallur
Steingrímsson, eigandi verslunarinn-
ar. „Skemmdimar voru metnar á um
8-9 milljónir króna, en skömmu áður
en kveikt var i versluninni höfðu
verið gerðar kostnaðarsamar breyt-
ingar á henni. Strax eftir að rann-
sókn lögreglunnar á upptökum elds-
ins lauk var hafist handa við að
byggja verslunina upp aftur."
Verslunin var opnuð að nýju föstu-
daginn 20. maí. „Ég vildi opna eins
fljótt og kostur væri, því stór hluti
viðskiptavinanna er fullorðið fólk,
sem á erfitt um vik með að sækja
matvæli langar leiðir. Það gekk í
fyrstu treglega að fá vörur, því versl-
anir höfðu rifið þær út hjá heildsölum
Morgunblaðið/Þorkell
Þórhallur Steingrímsson í mat-
vöruverslun sinni í Grímsbæ.
Verslunin hefur nú verið gerð
upp eftir íkveikju í lok apríl.
fyrir gengisfellinguna, en nú er allt
að komast í eðlilegt horf,“ sagði
Þórhallur Steingrímsson, verslunar-
eigandi í Grímsbæ.
Gullfaxi NK 6 á siglingu á Norðfirði. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Neskaupstaður:
Nýr bátur bætist í flotann
Neskaupstad.
NÚ í vor bættist nýr bátur i flota
Norðfirðinga, Gullfaxi NK 6. Þetta
er 19 lesta plastbátur, svonefndur
Viksund-bátur, smíðaður í Noregi.
í bátnum er 240 hestafla Skanía-
aðalvél.
Báturinn er vel búinn tækjum og
í alla staði hin glæsilegasta fleyta.
Hann hefur hafíð veiðar með snurvoð
og aflað mjög vel.
Eigandi er Guðmundur Þorleifsson
skipstjóri sem sjálfur er með bátinn.
- Ágúst
NÝTT 0(3
GLÆSILEGT
HÓTEL
( KEFLAVÍK
OPNAR í JÚNÍ
s(mi
92-15222
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Stórholt
VESTURBÆR
Hjarðarhagi 44-64
Stangarholt
Meðalholt
Skipholt 40-50 o.fl.
Háteigsvegur
ÚTHVERFI
Laugarásvegur21-37
Austurbrún, staka talan
o.fl.
K0PAV0GUR
Skjólbraut
GRAFARV0GUR
Dverghamrar
Fannafold
3H$r@itinftlfoðÍð
3M
SLÍPIVÖRUR
SANDPAPPÍR
SCHOTCH-BRITE
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 - REYKJAVÍK - SÍMI 687222 -TELEFAX 687295
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
PC-tölvur
og prentarar
á gamla
verðinu/
(PC-töIvur frá kr. 49.900)
oröunMJum
v/Hlemm, s. 621122.