Morgunblaðið - 31.05.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Q
9
HÓTEL JÖRÐ
Skólavörðustíg 13a, s. 621739
Notaleg gisting í hjarta borgarinnar.
NAMSKEIÐ í SICLINCUM
hefjast 6. júní.
Þátttökugjald
er kr. 12.000.
HJÓNAAFSLÁTTUR.
Hvert námskeið
er 40 stundir
og er annaðhvort
kl. 8-16
mánudaga - föstudaga
eða kl. 18-22
að kvöldi sömu daga
og kl. 8-18
laugardag og sunnudag.
Innritun fer fram í húsnæði skólans
að Lágmúla 7 kl. 16-18 virka daga þessa viku.
Á sama tíma má fá nánari upplýsingar í síma
68 98 85 eða á öðrum tíma í síma 51092.
Innritunargjald er kr. 5.000.
KREDITKORTAPJÓNUSTA.
SICLINCASKÓLINN
- meðlimur í Alþjóðasambandi siglingaskóla, ISSA.
ALLT
TIL
GOLFIÐKUNAR
Á EINUM STAÐ
jafnt fyrir
byrjendur sem
lengra komna...
og að auki sérfræðileg þjónusta
atvinnugolfmanna, sem á engan
sinn líka!!
* Nýr og notaður golfbúnaður, fatnaður og
skór — eingöngu topp merki í öllum
veröflokkum.
* Sérfræðileg ráögjöf við val á búnaði. Hafir
þú sérþarfir, þá hönnum við og smíðum
kylfurnar svo þær henti þér nákvæmlega.
Þessa þjónustu býöur enginn nema við!!
* Viðgerðir, breytingar og endurbætur á
kylfum.
* Sendum gegn póstkröfu um land allt.
* Opið alla daga vikunnar.
Ef það besta er eingöngu nógu gott handa
þér — þá verslar þú hjá okkur!!
jTGolfverslun
/\ John Drummond
Golfskálanum Grafarholti simi:82815
Deilur ráðherra
í Staksteinum í dag er vitnað í breska vikuri-
tið Economist og lýsingu þess á ágreiningi
innan bresku ríkisstjórnarinnar um gengi
pundsins. Þar í landi sætir það miklum tíðind-
um ef fréttir berast um ágreining innan ríkis-
stjórna og þó sérstaklega hjá frú Thatcher,
sem heldur fast um stjórnvölinn og lætur fáa
komast upp með múður. Eins og kunnugt er
höfum við nær daglegar fréttir af deilum ráð-
herra í ríkisstjórn okkar, þessari sem nú situr
og öðrum. Ráðherrar deila um stórt og smátt
fyrir opnum tjöldum. Og nú þarf að leiðrétta
ákvæði í nýsettum bráðabirgðalögum er
snerta ákvæði á valdsviði viðskiptaráðherra,
sem skrapp til Parísar í þann mund sem lög-
in voru að fæðast. Við heimkomuna beið hans
einnig að greiða úr flækjum vegna skýrslu-
gerðar um gjaldeyriskaup, sem staðgengill
hans, fjármálaráðherrann, hafði gert að hita-
máli. Og deilan um flugstöðina er síður en
svo til lykta leidd.
Thatcher deil-
ir við Lawson
f Economist segir uir
deilumar vegna punds
ins:
„Margaret Thatcher
hefur alltaf haft þann
hátt á að deila opinber-
lega við ráðherra f ríkis-
stjóm sinni, og hún ber
yfirleitt sigur úr býtum.
En það var óskynsamlegt
af henni að ráðast á fjár-
málaráðlierrann, Nigel
Lawson, einkum þar sem
hann hefur einnig gaman
af átökum af þessu tagi.
Thatcher hefur fyrir
bragðið fengið að kynn-
ast réttmæti hinna frægu
ummæla Melboumes lá-
varðar um starfshætti
rfkisstjóma: „Við verðum
allir að segja það sama.“
Aldrei hefur verið
deilt um það, að forsæds-
ráðherra haifi rétt til aí
láta að sér kveða við allnt
mikilvægar ákvarðanii
um stjóm efnahagsmála.
En umræður um slfk mál
hafa veryulega farið
fram á bak við luktar dyr
og raunar fá aðeins fá-
einir ráðherrar vitneskju
um þær. Það er engin
tilviljun að opinber bú-
staður fjármálaráðherr-
ans, Downing-stræti 11,
er við hliðina á númer
10 (þar sem forsætisráð-
herrann býr); raunar fór
Lawson um dyr er tengir
húsin saman, þegar hann
gekk á fund Thatcher
einhvem tfma á mánu-
dagskvöld (16. maí) og
þau ræddu saman f eina
klukkustund til að finna
lausn á opinberum deil-
um sfnum.
Það hefur verið vitað
lengi, að á milli Thatcher
og ffestra f stjóni hennar
er grundvallarágreining-
ur um það, hvort Bretar
eigi að gerast aðilar að
evrópska myntkerfinu
(EMS). Thatcher hefur
megna óbeit á þessu
kerfi. Hún man eftir
þeim langa tfma, þegar
helsta viðfangsefni
breskra stjómmála var
að reyna að halda gengi
pundsins stöðugu.
Eitt af þvf fyrsta sem
Thatcher gerði eftir að
hún komst til valda var
að afnema gjaldeyris-
stjóm rfkisvaldsins, f okt-
óber 1979, og var þessi
ákvörðun tekin án sam-
ráðs við alla ríkisstjóm-
ina. Sfðan þá hefur
Thatcher haldið fast í þá
stefnu, að markaðsöflin
skuli ákveða gengi
pundsins — lét hún það
ekki hafa áhrif á sig f
október 1980 þegar
pundið var skráð hæst á
2,39 dollara, sem leiddi
til mikilla vandræða fyrir
útflytjendur. Atvinnu-
leysi snaijókst og
Thatcher naut minnstu
vinsælda á forsætisráð-
herraferli sfnum."
Sfðan greinir Econom-
ist frá því að Lawson
hafi komist að þeirri nið-
urstöðu að ríkisvaldið
ætti að hafa hönd f bagga
með gengi pundsins. Ur
þvf að aðild að EMS var
ekki á dagskrá vildi Law-
son að pundið tæki mið
af þýska markinu. Hækk-
un á pundinu leiddi til
þess að erfitt var að ná
þessu markmiði nema
með miklum opinberum
afskiptum af þróun
gjaldeyrismarkaðarins.
Var Thatcher andvfg
slfkri flilutun.
Vextir
lækkaðir
Þá segir frá þvf að Sir
Geoffrey Howe, utanrfk-
isráðherra, hafi sett fá-
ein lofsyrði um EMS f
handrit að ræðu, sem
hann sfðan fluttí. Og Ec-
onomist heldur áfram:
„Sir Geoffrey hafði
hrósað EMS áður en ráð-
gjafar forsætisráðherr-
ans reiddust þvf sem þeir
töldu vera markvissa
uppreisn. Þeir veltu þvf
fyrir sér, hvort Sir Ge-
offrey hefði reiðst vegna
nýlegrar fréttar um að
hún teldi að eftirmaður
sinn kæmi úr röðum
yngri manna f ríkis-
stjóminni. Sir Geoffrey
hafði áður skapraunað
forsætisráðherranum
með friðmælum um ír-
land; og enn skemmra
er sfðan hann gagnrýndi
harða stefnu hennar f
málefnum Suður-Afríku.
Ráðherrar ihalds-
flokksins og þingmenn
voru skelfingu lostnir
vegna greinilegs ágrein-
ings forsætisráðherrans
við tvo af helstu ráð-
herrum flokksins; þeir
sem standa næst Thatch-
er tejja að deilan við Sir
Geoffrey eigi frekar per-
sónulegar rætur en af-
staðan til Lawsons, sem
hún segist hafa f háveg-
um. Það var ljóst, að
Neil Kinnock (leiðtogi
stjómarandstöðunnar)
myndi halda uppi hörð-
um árásum á stjómina f
þinginu. Til að koma
málinu f skaplegt horf
þurfti að grfpa til ráð-
stafana og yfirlýsinga.
Lawson varð að sýna, að
hann hefði unnið — eins
og nautabani lyftír upp
halanum á nauti sem
hann hefur bugað. Þess
vegna vom vextir lækk-
aðir f 7,5% og urðu þar
með lægri en nokkm
sinni fyrr f áratug og
Thatcher ftrekaði stuðn-
ing sinn við Lawson og
lýsti viija stjómar sinnar
til að nota vexti til að
hafá áhrif á skráningu
gengis . . .“
Economist segir að
Kinnock hafi ekki tekist
að sauma að stjóminni f
umræðum um málið á
þingi og hann hafí fipast
f málflutningi sfnum, sem
varð til þess að Thatcher
sagði að sér virtist hann
ekki hafa þekltingu til
að fjalla um málið. Og
loks segir breska blaðið,
að Lawson hafi velt þvf
fyrir sér um nokkurt
skeið að hætta f rfkis-
stjóminni. Eftir þetta
finnist honum lfklega að
hann verði að sitja áfram
og aðstoða Thatcher við
að koma f veg fyrir að
efnahagslffið ofhitni f
Bretlandi, en hún hefur
löngum óttast að til þess
kæmi ef afskipti af geng-
ingu fengju forgang
fram yfir strfðið við verð-
bólguna. Á hinn bóginn
hefur breska ríkisstjóm-
in ekki enn neina skýra
stefnu f gengismálum og
þess vegna kunni aftur
að blossa upp ágreining-
ur milli Thatcher og
Lawsons.
EFTTRLAUNAREIKNINGUR VIB:
n - 11,5%
ávöxtun umfrani veröbólgu
Fyrir þá sem vilja leggja reglulega fyrir.
□ Eftirlaunareikningar VIB eru verðbréf í eigu einstaklinga skráð
á nafn hvers eiganda.
□ Eftirlaunareikningar VIB eru alveg óbundnir en þeir eru ávaxt-
aðir eins vel og frekast er unnt án þess að taka of mikla áhættu.
□ Flestir greiða mánaðarlega í eftirlaunareikning sinn. VIB sér um
að senda gíróseðla eða minna á reglulegar greiðslur með öðrum
hætti.
□ Síminn að Ármúla 7 er 68 15 30. Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður
B., Vilborg og Þórólfur gefa allar nánari uppiýsingar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykiavík. Simi 68 15 30