Morgunblaðið - 31.05.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Orsök arfgengrar
heilablæðingar fundin
MEÐ erfðafræðirannsóknum í
Blóðbankanum hefur tekist að
greina afbrigðilegan erfðavísi
sem orsakar arfgenga heilablæð-
ingu. Ólafur Jensson, yfirlæknir
Blóðbankans, segir að með þess-
ari greiningu verði nú að öllum
líkindum hægt að greina sjúk-
dóminn í einstaklingum þegar á
7.-8. viku fósturskeiðs og allt til
æviloka. Engin lækning er til við
sjúkdómnum.
Það var sænskur rannsóknar-
hópur í Malmö sem bjó til „geisla-
þreifara" sem gerir mögulegt að
greina genið. Síðustu 3 mánuði hef-
ur verið unnið að rannsóknum á
erfðavísinum. Ólafur sagði rann-
sóknina tvíþætta, annarsvegar væri
unnið að því að greina erfðaefnið
og hins vegar væri rannsóknin hluti
af athugunum á skyldum sjúk-
dómum, t.d. Alzheimer.
Arfgeng heilablæðing er ríkjandi
erfðasjúkdómur og hefur greinst
hérlendis í nokkrum ættum úr héruð-
unum í kringum Breiðafjörð og í
einni ætt í Rangárvallasýslu. Á
síðustu 3 til 4 árum hafa einnig
greinst nokkur sjúkdómstilfelli í Jap-
an sem benda til þess að um svipað-
an sjúkdóm sé að ræða. Ekki er þó
víst að þar sé nákvæmlega sami
sjúkdómurinn á ferðinni. Einkenni
hans koma yfírleitt fram á milli
þrítugs og fertugs og sagði Ólafur
að hann væri talinn banvænn. Ekki
er þó full vissa fyrir því þar sem
skort hefur á rannsókhir á eldra
fólki með heilabilanir vegna æða-
skemmda, en þessi nýja greiningar-
aðferð gerir mögulegt að kanna það.
Sjúklingar veikjast yfírleitt
skyndilega með lömunum og skyn-
truflunum og fá áföll ítrekað. Sjúk-
dómurinn er talinn orsök 15-20%
dauðsfalla af völdum heilablæðingar
innan við 35 ára aldur hérlendis.
Ólafur sagði ekki fullkannað hversu
margir væru með arfgenga heila-
blæðingu þar sem ekki er hægt að
greina sjúkdóminn með fullri vissu
nema við krufningu. Staðfest grein-
ing er til á 9 fjölskyldum þar sem
160 manns hafa látist á síðustu rúm-
um 100 árum.
Forsætisráðherra situr
þing um afvopnunarmál
ÞORSTEINN Pálsson forsætis-
ráðherra fór síðastliðinn sunnu-
dag til New York þar sem hann
mun sitja III. aukaallsheijarþing
Sameinuðu þjóðanna um afvopn-
unarmál. Hann heldur ræður á
þinginu fimmtudaginn 2. júní.
Þorsteinn og kona hans frú Ingi-
björg Rafnar hafa þegið boð Harri
Holkeri forsætisráðherra Pinnlands
um að koma í opinbera heimsókn
til Finnlands 9.—10. júní næstkom-
andi.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
1/EÐURHORFUR í DAG, 31. MAÍ 1988
YFIRLIT í GÆR: Lægðarsvæði fyrir sunnan og suð-austan land,
en hæð milli Svalbarða og Grænlands.
SPÁ: Austan- og norð-austanátt um land allt, sums staðar all-
hvasst eða hvasst á Vestfjöröum og við austurströndina, annars
kaldi eða stinningskaldi. Súld eða rigning á Austfjörðum og á an-
nesjum norðanlands, en sums staðar skúrir á Suð-Austurlandi.
Hiti 4 til 13 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDA6 06 FIMMTUDAG: Austan- og norfi-
austanátt um land allt. Þokuloft við austurströndina og á annesjum
norðanlands, en annars skýjað með köflum og víðast þurrt. Frem-
ur svalt við norður- og austurströndina, en sæmilega hlýtt að degin-
um annars staðar.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl vaður Akureyri S súld Reykjavfk 13 akýjaft
Borgon 16 léttskýjaó
Helsinkl 26 léttskýjað
Jan Mayen vantar
Kaupmannah. 20 léttskýjað
Narssarssuaq 3 alskýjað
Nuuk 0 súld
Osló 21 léttskýjað
Stokkhólmur 24 léttskýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Algarve 21 lóttskýjað
Amsterdam 14 rignlng
Aþena vantar
Barcelona 21 iéttskýjað
Chicago 20 léttskýjað
Faneyjar 22 láttskýjað
Frankfurt 20 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 20 skýjað
Las Palmas 23 léttskýjað
London 13 rigning
Los Angeles 15 helðskírt
Lúxemborg 13 rigning
Madrfd 22 skýjað
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Montreal 14 rigning
New Yorit rigning
Paría 15 skúr
Róm 23 akýjað
San Diego 15 léttskýjað
Wlnnipeg 21 heiðskfrt
Bandaríkin:
Lést í bílslysi
NÍTJÁN ára gömul islensk
stúlka, Þóra Lilja Burnett lést
í bílslysi í Bandaríkjunum 14.
maí siðastliðinn.
Þóra var að aka með eigin-
manni sínum frá San Fransisco á
vesturströnd Bandaríkjanna til
Sacramento þar sem móðir hennar
býr þegar slysið varð. Þau voru
nýgift. Hann lifði slysið af og
meiddist lítið. Þóra var fædd 10.
maí 1969. Hún fluttist með móður
sinni, Emu Kristinsdóttur, til
Bandaríkjanna fyrir ellefu árum.
Þóra Lilja Bumett.
Fjölsótt Lions-
þing á Húsavík
^ Húsavík.
ÁRSÞING Lionshreyfingarinnar
á íslandi var haldið á Húsavík
um síðustu helgi. Þar vora mætt-
ir 300 fulltrúar og með getum
sátu þingið milli 500 og 600
manns.
Þinghaldið stóð í 2 daga og voru
þar mikið rædd ýmis verkefni sem
hreyfíngin vinnur að og hugsar sér
að styrkja. Ágóði af sölu næstu
rauðu fjaðrar áforma Lionsmenn
að nota til að styrkja fyrirhugaða
byggingu við Reykjalund sem ætluð
er til endurhæfíngar ungs fólks sem
orðið hefur fyrir slysum. Ákveðið
var að auka og efla það starf sem
hreyfíngin hefur hafíð meðal skóla-
æskunnar til forvama notkunar
vímuefna. Þótt erfítt hafí verið að
hýsa svo fjölmennt þing sem þetta
tókst það með ágætum með því að
nota alla þá gistiaðstöðu sem í sýsl-
unni er í Mývatnssveit, að Laugum
og í veiðihúsum en veitingar allar
voru veittar á Hótel Húsavík og
voru menn almennt ánægðir með
þjónustuna.
- Fréttaritari
Post- og símamálastofnunin:
Ný símaskrá komin út
SÍMASKRÁIN 1988 er komin út
og verður hún afhent simnotend-
um á póst- og símstöðvum næstu
daga gegn framvisun afhending-
arseðla sem póstlagðir hafa verið.
Nýja simaskráin tekur gildi S.júni
n.k. að öðru leyti en þvi að núm-
erabreytingar á svæðum 98 og 99
verða nokkrum dögum siðar.
Ein helsta breytingin á númera-
kerfinu er að svæðisnúmer 99 hefur
verið fellt niður og sameinast svæðis-
númeri 98.
Simaskráin hefur fengið nýtt útlit
og er nú ljósmynd af Gullfossi fram-
aná kápunni. Brot hennar er hins
vegar óbreytt. Upplag skrárinnar er
að þessu sinni um 145 þúsund ein-
tök. Blaðsíðutal hefur aukist um 64
síður og eru nú 832 síður í skránni.
Með aðalskránni eru gefnar út
sérstakar svæðaskrár eins og undan-
farin ár og verða þær til sölu á póst-
og símstöðvum um leið og afhending
símaskrárinnar fer fram.
Stefán Guðjón Sigurðs-
son kaupmaður látinn
STEFÁN Guðjón Sigurðsson
kaupmaður í Hafnarfirði lést i
Borgarspítalanum sunnudag-
inn 29. mai á 77. aldursári.
Stefán fæddist i Hafnarfírði 21.
september 1911. Hann rak versl-
unina Stebbabúð frá árinu 1933
til 1973, hann vann við verslunar-
störf hjá Náttúrulækningafélagi
íslands 1974 til 1978 og á skrif-
stofu Alþingis frá því í júlí 1978
til dauðadags. Hann var alla tíð
virkur þátttakandi í félagsstörf-
um.
Stefán var tvíkvæntur, fyrri
kona hans var Elínborg Matthild-
ur Sigurðardóttir, hún lést 1937.
Þau eignuðust tvö böm. Eftirlif-
andi kona hans er Laufey Jakobs-
dóttir. Þau eignuðust fjögur böm.
Stefán Guðjón Sigurðsson kaup-
maður.