Morgunblaðið - 31.05.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Þrotabú Hermanns Björgvinssonar:
Kraf ist greiðslu
á 182 milljónum
Skiptafundur í þrotabúi Her-
manns Gunnars Björgvinssonar,
sem ákœrður var fyrir okurlána-
starfsemi, var haldinn hjá bæjar-
fógetaembættinu í Kópavogi í
gær. Á fundinum kom fram að
ákveðið hefur verið að höfða 27
mál af hálfu búsins til að reyna
að fá greiddar ýmsar skuldir
mannn við búið. Þar á meðal er
krafa búsins á hendur Sigurði
Kárasyni, til greiðslu á tæplega
182 miiyóna króna ávísun.
Lýstar kröfur í þrotabúið eru 67
og nema þær samtals rúmum 319,6
milljónum kr. Skiptastjóri hefur við-
urkennt 61 kröfu að upphæð rúmar
135 milljónir sem réttmæta. Hæsta
krafan er frá Sigurði Kárasyni, tæp-
ar 182 milljónir, en hún var ekki
viðurkennd af skiptastjóra. Það var
á skiptastjóranum, Magnúsi M.
Norðdahl hdl., að heyra, að ekki
væri mikil von til þess að þrotabúið
næði að innheimta nema lítinn hluta
skulda.
Heildarmati verði
lokið fyrir 1990
- sagði sjávarútvegsráðherra á
ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
„ÞESSI fyrsti dagur var heldur
tíðindalítill. Það var farið yfir
hvalastofna og við gerðum grein
fyrir ástandi okkar stofna,“ sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra í samtali við Morgun-
blaðið f gær, en hann situr nú 40.
fund Alþjóðahvalveiðiráðsins i
Auckland á Nýja-Sjálandi. í ávarpi
Halldórs kemur meðal annars
sínum að beina vísindastarfsemi á
þess vegum inn á stjómmálalegar
brautir. Vísindanefndin hefði hins
vegar sýnt á ársfundi sínum í San
Diego að hún starfaði bæði á fag-
mannlegan og uppbyggilegan hátt
og því færði sendinefiid íslands
vísindanefndinni og formanni henn-
ar, dr. Kirkwood, þakkir sínar.
Morgunblaðið/KGA
Skólaskipið Georg Stage á ytri höfninni f Reykjavík f gærmorgun.
Danskt
skólaskip
í heimsókn
DANSKT þriggja mastra segl-
skip, Georg Stage að nafni, er
komið til landsins í tilefni af
sjómannadeginum. Þetta segl-
skip, eða barkskip öðru nafni,
er skólaskip í eigu Minningar-
stofnunar Georgs Stages f Dan-
mörku.
í áhöfn seglskipsins em sextíu
nemendur á aldrinum 16 til 20
ára og auk þeirra 10 yfirmenn.
Skipið er gert út sjö mánuði á ári
og er notað til að þjálfa sjómanns-
efni.
Að sögn Guðjóns Ármanns
Eyjólfssonar skólasfjóra Stýri-
mannaskólans er þetta danska
seglskip minnsta barkskip f heimi
og er það smíðað í Fredrikshavn
árið 1934. Það em 20 segl á skút-
unni og er heildarseglflöturinn
800 fermetrar.
Vera skólaskipsins Georg
Stage á íslandi aið þessu sinni
tengist hátíðahöldum sjómanna-
dagsins. Tvær færeyskar skútur
verða einnig í heimsókn á sjó-
mannadaginn og munu seglskipin
þijú sigla inn á ytri höfnina um
kl 16.30 á fimmtudaginn. Skóla-
skipið verður gestum til sýnis í
Reykjavíkurhöfn á laugardag og
sunnudag.
fram að ríkisstjóm íslands leggi
á það afar mikla áherslu að fyrir
árið 1990 verði lokið þvf heildar-
mati, sem ákveðið var á 34. árs-
fundi ráðsins að fram færi. Fyrir
sitt leyti hafi rfkisstjóm íslands
hafið vísindalegt rannsóknar-
starf, sem hafi það að markmiði
að ákvarða stærð og ásigkomulag
hvalastofna fyrir árið 1990.
Hugsanlega finnst olía í set-
lögnm á Rockall-svæðinu
í ávarpi sjávarútvegsráðherra seg-
ir ennfremur að sendinefiid íslands
komi til þessa fundar með bjartsýni
um að Alþjóðahvalveiðiráðið muni
takast á við þau mikilvægu mál sem
á dagskrá eru í anda víðtæks sam-
starfs og samvinnu. Á sfðasta ári
hafi íslendingar haft af þvf áhyggj-
TANKBÍLL sem var á leið með
heita asfaltolfu frá Borgaraesi
til Hellissands f gær stórskemmd-
ist þegar eldur kviknaði f honum
við Haffjarðará. Litlu mátti
muna að tankurinn spryngi í loft
upp en slökkviliðið f Kolbeins-
staðahreppi kom skjótt á vett-
vang og tókst að koma í veg fyr-
ir að illa færi.
Bílinn er í eigu verktakafyrirtæk-
isins Borgarverks hf. í Borgamesi
og var á leiðinni til Hellissands með
fullan tank af asfaltsolíu sem var
140 gráðu heit. Við Haffjarðará
veitti bifreiðarstjórinn því athygli
MÖRG mál voru tekin fyrir á fundi
utanrfkismálanefndar Alþingis f
gær, að sögn Eyjólfs Konráðs
Jónssonar, formanns nefndarinn-
ar, en mest snerist þó umræðan
nm hafréttarmálin og Hatt-
on/RockalI-deiluna. Var meðal
annars rætt um skýrslu stjórnar-
að kviknað var í bílnum að aftan.
Haft var samband við lögregluna í
Stykkishólmi og slökkviliðið í Kol-
beinsstaðahreppi sem var komið á
staðinn 15 mínútum síðar.
Tók slökkvistarfið um 45 mínút-
ur og hafði þá lok á tankinum
sprungið upp vegna hitans. Telur
lögreglan í Stykkishólmi að litlu
hafi mátt muna að eldur kæmist f
farminn. Afturhluti bifreiðarinnar
er gjörónýtur, en stýrishúsið er að
mestu óskemmt. Að sögn lögregl-
unnar f Stykkishólmi er talið að
kviknað hafi í út frá sprungnum
hjólbarða.
nefndar sameiginlegs rannsókn-
arverkefnis íslendinga og Dana,
þar sem fram kemur að á Rockall-
svæðinu er að finna setlög sem
uppfylla öll skilyrði til þess að
hafa að geyma olfu.
Guðmundur Pálmason, jarðeðlis-
fræðingur, sat fund utanríkismála-
nefndar og gerði grein fyrir skýrslu
stjómamefndar sameiginlegs rann-
sóknarverkefnis íslendinga og Dana
um rannsókn hafsbotnsins á Hatt-
on/Rockall-svæðinu. í nefnd þessari
sitja 3 menn frá hvoru landi og skip-
aði Alþingi Karl Gunnarsson og
bandaríska hafsbotnssérfræðinginn
dr. Talwani ásamt Guðmundi til setu
í nefndinni af íslands hálfu. Nefndin
hefur starfað síðan snemma árs 1987
og er áætlað að hún skili af sér loka-
skýrslu um næstu áramót.
Stjómamefndin kom saman í
sfðustu viku í Kaupmannahöfn og
gaf stöðuskýralu til stjómvalda
ríkjanna um verkefnið. í skýrlu þess-
ari kemur fram að á svæði rétt utan
við Rockall-klettinn hafa fundist á
miklu dýpi þykk setlög, sem eru skyld
setlögum þeim sem olía hefur verið
unnin úr f Norðursjó. Hér er um
sokkið land að ræða þakið þykku
hrauni. Það skapar ákjósanlegustu
skilyrði til myndunar olíu sem felast
í gömlum gróðurleifum og þunga af
hrauninu.
Rannsóknir standa enn yfír og
ætti þá að skýrast betur hvort raun-
verulega sé um olíu að ræða á þessu
svæði. Hins vegar yrði mjög erfítt
og nánast óhugsandi að vinna olíu
úr svo miklu dýpi, að minnsta kosti
f nánustu framtfð.
Að sögn Eyjólfe Konráðs urðu
nefndin og utanríkisráðherra sam-
mála um eftirfarandi ályktanir og
bókanir.
„Nefndin beinir þeim tilmælum til
ríkisstjómarinnar að hún leiti sam-
ráðs við dönsku ríkisstjómina um að
ríkin tvö knýi á um viðræður við
Breta um hafsbotnsréttindin á Hatt-
on/Rockall-svæðinu.
Utanríkismálanefnd Alþingis
ályktar að beina þeim tilmælum til
breskra stjómvalda að þau kveði
þegar í stað niður fáránlegar hug-
myndir um að gera Rokkinn (Rock-
Morgunblaðið/Blængur Alfreðsson
Slökkviliðsmenn í slökkviliði Kolbeinsstaðahrepps höfðu snör hand-
tök við að slökka eldinn.
Kolbeinsstaðahreppur:
Asfaltbíll stór-
skemmist í eldi
all) að geymslustað fyrir geislavirk
úrgang8efni.
Utanrfkismálanefnd Alþingis bein-
ir þvf til ríkisstjómarinnar að hraðað
verði umræðum við Norðmenn og
Dani um eignarréttinn að hafsbotns-
svæðum á norðuralóðum.
Utanríkismálanefnd Alþingis bein-
ir því til ríkisstjómarinnar að náið
verði fylgst með veiðum útlendinga
á 150 mílna hafsbotnssvæði íslands
á Reykjaneshrygg utan 200 mílna
efnahagslögsögu. Verði Landhelgis-
gæslu falið að afla upplýsinga um
veiðamar."
Islandkynntí
alheimssjónvarpi
um ólympíueldinn
ÍSLAND verður I hópi fjögurra þióða, sem fá sérstaka kynningu i
alþjóðasjónvarpi i tengslum við Olympíuleikana i Seoul i Suður-
Kóreu á hausti komanda. Það var fyrir milligöngu Ingólfs Guð-
brandssonar að ákveðið var að taka hluta kvikmyndar um ólympíu-
eldinn hér á landi, og verður myndin sýnd viða um heim í tengslum
við undirbúning Ólympiuleikanna.
Fyrir skömmu var Ingólfur Guð-
brandsson á ferð í Suður-Kóreu og
birti Morgunblaðið grein eftir hann
um undirbúning Oljrmpíuleikanna
í Seoul í haust. Erindi hans var
fyret og fremst að ljúka undirbún-
ingi að ferð íslendinga á leikana.
Eftir viðræður við ýmsa ráðamenn
austur þar var þess farið á leit við
hann að hann kæmi fram í við-
talsþætti í kóreska sjónvarpinu og
varð úr þvf 15 mfnútna þáttur þar
sem tvinnað var saman við viðtalið
myndum frá íslandi.
f framhaldi af þessu óskuðu
framleiðendur við MBC sjónvarps-
stöðina eftir viðtali við Ingólf, en
sú stöð verður aðalframleiðandi
efnis um Ólympíuleikana og efnis
sem tengist þeim. Ákveðið hafði
verið að gera sérstaka mynd um
eldinn og þátt hans f lífebaráttu
og menningu þjóðanna í aldanna
rás og tengja á táknrænan hátt
ólympíueldinum, sem borinn verður
að þessu sinni til Seoul og tendrað-
ur á aðalleikvanginum þar hinn 17.
september næstkomandi. Áformað
var að taka klukkustundarlanga
mynd í flórum löndum undir titlin-
um -Flame and Fire".
„Eg reyndi af fremsta megni að
sannfæra starfsmenn sjónvarps-
stöðvarinnar um að á íslandi gætu
þeir náð mjög sératæðu og áhuga-
verðu myndefni," sagði Ingólfur í
samtali við Morgunblaðið. „Árang-
urinn var sá að nú liggur fyrir
ákvörðun um að koma til fslands
í kringum 20. júní og taka hluta
myndarinnar hér. Hér komu Flug-
leiðir einnig til hjálpar með já-
kvæðri fyrirgreiðslu. Ef vel tekst
til mun mynd þessi kynna ísland
um víða veröld f tengslum við efni
er snertir undirbúning Ólympíuleik-
anna. Að toppfundi Reagans og
Gorbatsjovs undanskildum verður
þetta ein mesta landkynning sem
fsland hefur fengið í alþjóðasjón-
varpi," sagði Ingólfur Guðbrands-
son, en hann verður umboðsmaður
hinnar erlendu sjónvarpsstöðvar og
myndatökumönnunum til aðstoðar
meðan á dvöl þeirra stendur hér á
landi.