Morgunblaðið - 08.11.1986, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, LÁUGARDAGUR 8. 'NÓVEMBER 1986'
59
• Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur sem tekur þátt í Evrópumeistara-
móti félagsliða á Spáni. Frá vinstri: Sigurður Pétursson, Ragnar
Ólafsson, Hannes Eyvindsson og Björgúlfur Lúðvíksson, liðsstjóri.
Sveit GR til Spánar
— tekur þátt í EM ígolfi
SVEIT Golfklúbbs Reykjavíkur
heldur til Spánar í dag þar sem
hún tekur þátt í Evrópukeppni
félagsliða á næstunni. GR-sveitin
tók einnig þátt i þessari keppni
í fyrra og náði þá mjög góðum
árangri. Keppnin fer fram á
Alohavellinum í Marbella.
Sveina skipa Hannes Eyvinds-
son, Ragnar Ólafsson og Sigurður
Pétursson. Þeir voru einmitt í lið-
inu sem náði 4. saeti í fyrra.
Liðsstjóri verður Björgúlfur
Lúðvíksson. 21 félag frá 20 löndum
taka þátt í mótinu.
Þó svo að ekkí hafi verið haegt
að æfa á golfvellinum í Grafar-
holtinu i meira en mánuð vegna
veðurs þá hefur sveitin æft af full-
um krafti í golfherminum í
Öskjuhlíð. „Golfhermirinn hetur
reynst ómetanlegt hjálpartæki og
verður spennandi að sjá hvernig
þessar æfingar skila sér á golf-
vellinum, “ sagði Björgúlfur, liðs-
stjóri, í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Handknattleikslandsliðið:
Tap gegn Hollendingum
Frá Jóni Ólafssyni, fróttaritara Morgunblaðsins í Hollandi.
ÍSLENDINGAR urðu að lúta í lægra haldi fyrir ágætu hollensku hand-
knattleikslandsliði f gærkvöldi. Vörnin íslenska var verri en oftast
áður og gildir það sama um sóknina. Hollenska liðið lék mjög vel og
leikreyndasti maður liðsins, Jaques Josten, varði ótrúlega og var að
öðrum ólöstuðum besti maður vallarins. Lokatölur, 26:24, fyrir heima-
menn.
Okkar menn voru ótrúlega sein-
ir í gang og skoruðu sitt fyrsta
mark þegar sjö mínútur voru liðnar
af leiknum. Þá voru Hollendingar
búnir að setja knöttinn fjórum sinn-
um í netið. Ef ekki hefði komið til
ágætis markvarsla Kristjáns Sig-
mundssonar í fyrri hálfleik hefði
getað farið illa. .Um miðjan fyrri
hálfleik náðu íslendingar að kom-
ast yfir í fyrsta sinn og höfðu eins
marks forskot í hálfleik, 11:10. En
þrátt fyrir að vera yfir eiga piltarn-
ir allt annað en hrós skilið. Því á
köflum var eins og þeir væru að
grípa broddgölt í stað knattar, svo
mikið var fumið og ekki síður fátið.
Síðari hálfleikur hófst eins og
sá fyrri, Steinar missti boltann eft-
ir sex sekúndur og Hollendingar
náðu forystunni eftir 3 mínútur og
héldu henni til leiksloka og unnu
Islendinga í fyrsta sinn. Áhorfend-
ur risu úr sætum og fagnarðarlæt-
in í Haarlem voru mikil.
Ljósi punkturinn hjá íslenska lið-
inu var þegar hinn ungi og efnilegi,
Héðinn Gilsson, skoraði 3 mörk á
þeim 10 mínútna kafla sem hann
fékk að leika með. Hann var ásamt
Bjarna og Þorgils Óttar bestu leik-
menn Islands. Bjarni var öruggur
í vítaskotunum og lék vel allan leik-
inn og vítaköstin voru flest fiskuð
af fyrirliðanum.
Mörk Islands: Bjarni Guðmundsson
9/5, Steinar Birgisson 6, Héðinn Gilsson
3, Þorgils Óttar 3/1, Árni Friöleifsson 2
og Júlíus jónasson 1.
Dregið í (JEFA-keppninni
Bayer Uerdingen
mætir Barcelona
Atli Eðvaldsson, Lárus Guð-
mundsson og félagar þeirra í liði
Bayer Uerdingen fengu erfiða
mótherja í 16 liða úrslitum Evr-
ópukeppni félagsliða, UEFA-
keppninni svokölluðu. Uerdingen
mætir Barcelona.
Eftirtalin lið drógust saman í
keppninní:
•Dundee United frá Skotlandi
mætir Hadjuk Split frá Júgóslaviu.
•Ghent frá Belgíu mætir Gauta-
borg frá Svíþjóð.
•Groningen frá Hollandi mætir
Guimares frá Portúgal.
-Dukla Prag frá Tékkóslóvakíu
mætir Inter Milano frá ítaliu.
•Spartak Moskva frá Sovétríkj-
unum mætir FC Tyrol frá Aust-
urríki.
•Bayer Uerdingen frá V-Þýska-
landi mætir Barcelona frá Spáni.
•Torino frá Ítalíu mætir Beveren
frá Belgíu.
•Borussia Mönchengladbach
frá V-Þýskalandi mætir Glasgow
Rangers frá Skotlandi.
Körfubolti:
ÍBK sigraði
ÍBK sigraði UMFN, 38:32, í 1.
deild kvenna í körfuknattleik í
Njarðvík í gærkvöldi. Staðan í
hálfleik var 20:13 fyrir ÍBK.
Guðlaug Sveinsdóttir var
stigahæst í liðið ÍBK, skoraði
10 stig. Hjá Njarðvík skoruðu
Sigríður Guðbjörnsdóttir og
Þórunn Magnúsdóttir 7 stig
hvor.
KR—Njarðvík í dag
ÞAÐ er ekki mikið um að vera í
íþróttunum hér heima um þessa
helgi. Bæði kvenna- og karla-
landsliðin í handknattleik hafa
verið á ferðinni erlendis og á
meðan hefur ekkert verið leikið í
1. deild í handknattleik. Keppnin
Ásgeir
skorinn
upp
Frá Jóhannl Inga Gunnarssyni, frótta-
manni Morgunblaðsins f V-Þýskalandi.
ÁSGEIR Sigurvinsson var skorinn
upp á sjúkrahúsi í Stuttgart f
fyrradag vegna meiðslanna sem
hann hlaut í leiknum gegn
Torpedo Moskva f Evrópukeppn-
inni á miðvikudaginn.
Ásgeiri var brugðið mjög harka-
lega í leiknum og þegar hann skall
á vellinum rifnuðu liðþófar í öxl
hans. Talið er að hann verði frá í
að minnsta kosti 6 vikur.
Fram:
Uppskeruhátíð
KNATTSPYRNUDEILD Fram
heldur sína árlegu uppskeruhátfð
á mánudaginn og hefst hún klukk-
an 18 f Átthagasal Hótel Sögú.
Bestu leikmenn og markakóng-
ar hvers flokks verða verðlaunaðir,
dómari ársins og leikmaður Fram.
Velunnarar Fram eru hvattir til
að mæta og gæða sér á (slands-
meistarakökunni og öðrum kaffi-
veitingum.
Sjónvarpsleikurinn í dag:
Upplausn hjá Stuttgart
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fróttamanni Morgunblaðsins í V-Þýskalandi.
ÞAÐ blæs ekki byrlega fyrir Stuttgart þessa dagana. Liðið hefur nú
leikið átta leiki f röð án sigurs, er fallið úr bikarkeppninni, er fallið
úr Evrópukeppni og á litla möguleika á sæti í UEFA-keppninni á
næsta ári. Þar við bætist að lykilmenn liðsins, þeirra á meðal fyrirlið-
inn Asgeir Sigurvinsson, eru meiddir, allt logar f innbyrðis deilum og
ósætti og áhorfendum fer hraðfækkandi.
Fjölmiðlar í Vestur-Þýskalandi
hafa gert mikið úr vandræðum
Stuttgart að undanförnu.
Óánægjuna má líklega rekja til
þess þegar tekin var ákvörðun um
að ráða Egon Coordes, aðstoðar-
þjálfara Bayern Munchen, sem
þjálfara liðsins, en liðinu gekk mjög
vel á síðasta keppnistímabili undir
stjórn Entenmanns - sem lengi
hefur verið innanbúðarmaður hjá
félaginu. Aðdáendur áttu erfitt
með að sætta sig við að ráðinn
skyldi maður frá erkifjandanum
Bayern Munchen, og þegar liðinu
fór að ganga illa fór ekki hjá því
að Coordes yrði sökudólgurinn.
Þar við bætist að Coordes þykir
mikið hörkutól. Hann er einræðis-
herra og hefur lent opinberlega
upp á kant við marga leikmenn
liðsins, einkum þó þá Allgöwer og
Pasic. Hann hefur svarað ásökun-
um fjölmiðla fullum hálsi og bar
nýlega meintar árásir á sig saman
við perónuárásir á tímum nasis-
mans í Þýskalandi. Síðar reyndi
hann að draga þau ummæli til
baka.
Áhorfendur eru fyrir nokkru
farnir að heimta að Coordes verði
rekinn, og eftir tap Stuttgart gegn
Torpedo Moskva á heimavelli á
miðvikudaginn, varð þjálfarinn að
fá lögregluvernd til að komast
óskaddaður frá leikvanginum. En
formaður Stuttgart hefur neitað
því að til standi að reka Coordes,
enda á hann tvö ár eftir af samn-
ingi sínum. Og áðurnefndur
Entenmann, sem nú starfar við
unglingaþjálfun hjá Stuttgart, hef-
ur lýst því yfir að hann hafi engan
áhuga á því að taka að sér aðallið-
ið á ný.
í leiknum gegn Bremen í dag
verður Stuttgart að tefla fram
nokkrum varamönnum. Liðið verð-
ur þannig skipað: Immel, Schröd-
er, Schafer, Buchwald, Múller,
Zietsch, Nushöer, Klinsmann,
Merkle, Pasic, Bunk.
Lið Werder Bremen hefur verið
í sókn að undanförnu og fór létt
með að sigra Bayer Uerdingen um
síðustu helgi. i síðasta leik síðasta
keppnistímabils tapaði Bremen á
útivelli gegn Stuttgart og missti
af meistaratitlinum fyrir vikið. Þeir
koma því til leiks staðráðnir í að
hefna sín. I liö Bremen vantar
nokkra leikmenn, t.d. Pezzey, Sitka
og fyrirliðann Möhlmann. Líkleg-
asta liðskipan í dag er þessi:
Burdenski, Sauer, Kutzop, Otten,
Schaaf, Votava, Mayer, Hermann,
Walter, Ordenewitz, Völler.
í körf uknattleik er hinsvegar bæði
jöfn og spennandi.
í dag klukkan 16.00 leika KR-
ingar og Njarðvíkingar í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Bæði
þessi lið eru í baráttunni um meist-
aratitlinn. Meistarar UMFN hafa
reyndar átt í erfiðleikum að und-
anförnu en KR kom á óvart um
síðustu helgi með góðum sigri á
Val. Athugið að leiknum hefur ve-
rið seinkað frá áður auglýstum
tíma, vegna beinnar útsendingar í
sjónvarpinu.
Annað kvöld klukkan 20.00 leika
Fram og Haukar í úrvalsdeildinni í
Hagaskólanum.
I Seljaskóla leika hinsvegar ÍR
og Þór í 1. deild. Þar berjast tvö
sterkustu lið deildarinnar og er því
um einn úrslitaleikjanna í 1. deild
að ræða. Leikurinn hefst klukkan
14.00 á sunnudaginn.
Þór sigraði
ÞÓR sigraði HK, 26:21, í 2. deild
karla i handknattleik á Akureyri í
gærkvöldi. Staðan ■ háifleik var
13:11 fyrir heimamenn.
Sigur Þórs var sanngjarn og
höfðu þeir undirtökin í leiknum all-
an tímann.
Mörk Þóra: Sigurður Pálsson 10/1,
Kristinn Hreinsson 5, Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson 4, Gunnar Gunnarsson 2,
Aðalbjörn Svanlaugsson 2, Jóhannes
Samúelsson, Ingólfur Samúelsson og
Baldvin Heiðarsson eitt mark hver.
Mörk HK: Elvar Óskarsson 7/4, Ársaell
Snorrason 4, Guðjón Guömundsson 3,
Rúnar Einarsson 3, Ólafur Pétursson 2,
Bergsveinn Þórarínsson 1 og Brian Harri-
son 1.
Ferguson til
Man. United
ALEX Ferguson, sem stjórnaði
skoska landsliðinu í Mexfkó í
sumar, tók við framkvæmda-
stjórastöðunni hjá Manchester
United í gær. Ron Atkinson,
sem hefur setið við stjómvölinn
hjá United í 5 ár, var rekinn frá
félaginu á fimmtudaginn.
Ferguson hefur verið fram-
kvæmdastjóri hjá Aberdeen
síðan 1978 og náð að skapa liö-
inu nafn. Hann náði þeim merka
áfanga að gera liðiö að Evrópu-
meisturum bikarhafa 1983. Hann
tók við skoska landsliðinu eftir
að Jock Stein lést skyndilega í
september 1985.
Hann afþakkaöi landsliðsþjálf-
arastöðuna hjá Skotum vegna
þess að honum fannst hann vera
of ungur. Archie Knox, sem hefur
verið aðstoðarmaður hans hjá
Aberdeen, fylgir honum til Un-
ited. „Manchester United er eina
félagið sem gat tekið mig frá
Aberdeen, “ sagði Ferguson.
Ferguson, sem er 45 óra og
lék áður sem framherji hjá Gtas-
IfSiÉjÍllll
• Alex Fergison hefur átt vel-
gengi að fagna hjá Aberdeen.
Nú tekur hann vlð fram-
kvæmdastjórastöðunni hjá
Manchester United af Ron
Atkinson.
gow Rangers, hefur þrisvar
sinnum gert Aberdeen af skosk-
um meisturum og fjórum sinnum
af bikarmeisturum.
................. ...........