Morgunblaðið - 08.11.1986, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
LOGM JOH ÞORÐARSON HDL
Bjóðum til sölu m.a.:
Nýtt parhús á einni hæð
Við Stuðlasel. 158 fm nettó m. bílsk. 4 svefnherb. m. innb. skápum,
viðarklæðning i loftum. Stór ræktuð lóð. Laust 1. júní nk.
Ódýr íbúð — laus strax
Lftil 3ja herb. ríshæð viö Mávahlíð. Samþykkt. Kvistir á öllum herb.
Sérhiti. Skuldlaus. Verð aöeins kr. 1,7 millj.
Ennfremur nokkrar ódýrar 3ja herb. ib. m.a. við Sogaveg, Ránargötu
og Hverfisgötu.
Stórar og góðar
2ja herb. viö Langholtsveg og Kríuhóla. Skuldlausar. Ákv. sala.
Hentar smið eða laghentum
Á róiegum stað f gamla austurbænum: Timburhús, hæö og ris á
steyptum kj. í endurbyggingu sem ekki er lokiö. Einstakt tækifæri fyr-
ir smið eða laghentan til að koma sér upp glæsil. eign i gömlum stil
á viðráðanlegu veröi. Nánari uppl. og teikn. aðeins á skrifst.
Laus strax — sanngjarnt verð
4ra herb. ib. á 1. hæð við Kleppsveg skammt frá DAS af meöalstærö,
ný teppi, sólsvalir. Gott risherb. Geymsla í kj.
Miðsvæðis í borginni — óskast
Góð 2ja herb. íb. á 1. eða 2. hæð. Skipti möguleg á 4ra herb. endaíb.
við Stóragerði.
Miðsvæðis í borginni — óskast
5-6 herb. ib. í blokk á 1. eöa 2. hæö. Skipti möguleg á 4ra herb. glæs-
il. sérhæð á úrvalsstaö í Hliöunum.
Dómkórinn.
Við Unufell eða í nágr.
Til kaups óskast raöhús á einni hæö. Losun má dragast til 1. júní nk.
Rétt eign veröur borguð út.
í lyftuhúsi m. bflageymslu
óskast til kaups 3ja-4ra herb. íb., helst í vesturborginni. Skipti mögu-
leg á góðu raðhúsi við Látraströnd.
Opið í dag,
laugardag kl. 11-16.
AtMENNA
FASTEIGHASAl AN
LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
Tónlist
Egill Friðleifsson
Dómkirkjan 5. nóvember 1986
Flytjendur:
Dómkórinn
Ann Toril Lindstad
Stjórnandi: Marteinn H. Friðriks-
son
Efnisskrá: Verkefni úr ýmsum
áttum
Þá eru tónlistardagar Dómkirkj-
unnar gengnir í garð — árviss
atburður, sem setur sinn svip á tón-
listarlífið. Að þessu sinni eru
þrennir tónleikar á dagskrá og fóru
þeir fyrstu fram í kirkjunni sl. mið-
vikudagskvöld. Þar kom fram
Dómkórinn undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar og organleikarinn
Ann Toril Lindstad. Það er rétt að
rifja upp að aðstæður hafa mjög
breyst til hins betra hvað varðar
tónleikahald í kirkjunni. Nýtt og
glæsilegt orgel var tekið í notkun
á síðasta ári auk þess sem veruleg-
ar endurbætur áttu sér stað á
Stórar 3ja herbergja
LtJXUS ÍBÚÐIR
með bflskúrum að Frostafold 28
íbúðirnar sem eru óvenju stórar eða 118
og 114 fm afhendast tilbúnar undir tréverk
og málningu.
í hverri íbúð er sérþvottaherb., búr og
geymsla.
Öll sameign afhendist fullgerð, þ.m.t. mal-
bikuð bílastæði.
Hverri íbúð fylgir bílskúr.
Afhending: nóv./des. 1987.
Verð stærri íb. - endaíb. kr. 3.520 þús.
Verð minni íb. — inníb. kr. 3.425 þús.
Greiðslutilhögun:
Útb. við samning........C3 400.000j“
Beðið eftir húsnæðisstjláni
alltað..................2.000.000j“
Mánaðarlegar greiöslur til afhendingar í des. 1987 kr.
78.846 til 86.154 pr. mán. eftir því hvor stærðin er keypt.
Byggingaraðili: Magnús Jensson sem staðið hefur fyrir
byggingu hundruða íbúða í Reykjavík á aldarfjórðungi.
Arkitekt: Einar V. Tryggvason.
Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofunni.
26600
áö
M
Fasteignaþjónustan
Austursiræti 17, s. 26600
Þorsteinn Steingrímsson
lögg. fasteignasali.
kirkjunni sjálfri, sem bætti hljóm-
burðinn til muna.
Tónleikamir hófust með söng
Dómkórsins á lagi 16. aldar tón-
skáldsins Gumpelzhaimer „Mín sál,
þinn söngur hljómi" og komst lag-
Íega frá því, einnig „Ó, Guð, þín
náð“ eftir Staden. Dómkórinn er
nú stærri en stundum áður og eru
meðlimir hans um 40—50. Einkenni
kórsins eru þau sömu og áður.
Hljómurinn er mildur og stundum
dálítið mattur. Söngurinn er áferð-
arfallegur fremur en átakamikill.
Marteinn H. Friðriksson kann vissu-
lega sitt fag, en heldur e.t.v. einum
of aftur af sínu fólki á stundum.
Það sem vakti mesta forvitni mína
á efnisskránni voru tvo samtíma
kórverk. Það fyrra var „De profund-
is“ eftir norska tónskáldið Knut
Nystedt (f. 1915). Þetta er ákaflega
áhugaverð tónsmíð. Tónskáldið
beitir bæði nýjum og gömlum að-
ferðum til að tónsetja þennan
magnaða texta og tekst mætavel.
Notkun hans á „raddeffektum" er
ávallt hnitmiðuð og til að undir-
strika orðin, sem kórinn hefði mátt
flytja af enn meiri krafti og sann-
færing. Knut Nystedt er snjall
tónsmiður. Hann mun sjálfur vænt-
anlega stjórna kómum nk. sunnu-
dag og verður spennandi að sjá
hvemig til tekst.
þá heyrðum við „Laudate Domin-
um“ eftir pólska tónskáldið
Romuald Twardowski. Verk þetta
er samið 1976, þar sem að mestu
er sagt skilið við hefðbundinn söng
nema rétt í lokin, en leitað annarra
leiða til að sjá textann. Það sem
er nýstárlegast við þetta er að tón-
skáldið notar ekki aðeins tilbeiðslu
og fögnuð til að túlka orðin (Lofið
Drottin) heldur einnig reiði og háð,
sm er óvenjulegt, því margt tón-
skáldið hefur spreytt sig á þessum
sama texta. Verkið er um margt
áhrifaríkt, en ofnotkun tónskáldsins
á „glissando" (þ.e. renna sér milli
tóna) í þessu stutta verki virkaði
truflandi þegar á leið. Ég hef ekki
heyrt'Dómkórinn fást við svo nýst-
árleg verk sem hér og verður að
segjast að allvel hafi til tekist.
Framtak stjómandans, Marteins
H. Friðrikssonar, er lofsvert.
Norski organleikarinn Ann Toril
Lindstad kom einnig fram á tónleik-
unum sem fyrr segir og lék prelúdíu
og fúgu eftir Buxtehude og Adagio
eftir Arild Sandvold. Hún skilaði
hlutverki sínu með prýði, ekki hvað
síst rökvísri framvindu fúgunnar.
Tónleikunum lauk svo með því
að kórinn flutti verk eftir þá H.
Disler, J.S. Bach og A. Bruckner
og var þar margt vel gert, þó mót-
ettu Bachs hefði mátt flytja af
meiri skerpu.
Aðstandendur tónlistardaga
Dómkirkjunnar eiga þakkir skildar
fyrir framtakið.