Morgunblaðið - 08.11.1986, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986
21
Hlúaþarf að félagsstarfi
æskufólks og efla for-
varnir gegn fíkniefnum
- segir Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóð-
hagsstof nunnar og formaður framtíðar-
nefndar ríkisstj órnarinnar á ráðstefnunni
„Ungt fólk í nútíð og framtíð“
BÚIST er við að mjög dragi úr
fólksfjölgun hér á landi á næstu
árum og eftir 25 ár er því spáð
að íslendingar verði á bilinu 260
til 287 þúsund. Um miðjan ára-
tuginn var því hinsvegar spáð
að íslendingar yrðu um 300 þús-
und um aldamót.
Þetta kom m.a. fram í máli Jóns
Sigurðssonar, forstjóra Þjóðhags-
stofnunar og formanns framtíðar-
nefndar ríkisstjómarinnar, á
ráðstefnunni „Ungt fólk í nútíð og
framtíð“ í gær, en undanfarin tvö
ár hefur verið unnið að framtíðar-
könnun á vegum forsætisráðuneyt-
isins. Til þess að fá hugmynd um
það hvemig ungt fólk hugsar til
framtíðarinnar, fékk framkvæmda-
nefnd framtíðarkönnunar Félagsví-
sindastofnun HÍ til þess að gera
könnun á meðal 18 og 19 ára ungl-
inga. Þegar þau vom spurð urri
bameignaáform, ætluðu þau flest
að eignast tvö böm. Bameignaá-
form ungs fólks em þó tengd
almennu viðhorfi til framtíðarinnar
og athugunin sýndi að meðal ungs
fólks segjast fleiri en þrír af hveij-
um fjórum vera bjartsýnir á
framtíðina hér á landi.
Unga fólkið virtist bera kvíðboga
fýrir atvinnuleysi og umhverfis-
spjöllum í framtíðinni. Flest óttuð-
ust að glæpir verði hér miklu
alvarlegra vandamál í byijun næstu
aldar en nú er, en líklegt er að
unga fólkið tengi saman glæpi og
fíkniefni, að sögn Jóns. Þá mátti
lesa að piltum og stúlkum bar sam-
an um að kynjamisrétti væri ekki
meðal alvarlegustu vandamála á
okkar tíð og verði að mestu úr sög-
unni sem þjóðfélagsvandamál í
byijun næstu aldar.
Jón sagði að lokum: „Hugmynd-
imar, sem við getum nú gert okkur
um framtíðina næstu áratugi, virð-
ist vera þannig að í æskulýðsstarf-
inu þurfí menn fyrst og fremst að
beina kröftunum gegn þeim hætt-
um, sem ungmennin sjálf skynja á
líðandi stundu og telja að framtíðin
beri í skauti sér. I æskulýðsstarfinu
ættu menn ekki að þurfa að búa
sig undir að sinna fleira fólki á
næstu árum. Þeim mun ríkari
ástæða er til þess að hlúa vel að
fijálsu félagsstarfí æskufólks - ekki
síst starfí íþróttafélaga - og efla
forvamir gegn fíkniefnum."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Krístjana F. Arndal ásamt tveim verka sinna á sýningunni.
Morgunblaðið/Július
Hluti ráðstefnugesta. Skólakór Kársnes- og Þingholtsskóla söng við
upphaf ráðstefnunnar
„Ungt fólk í nútíð og framtíð“:
Um 200 fulltrúar
á ráðstefnunni
HÁTT í 200 þátttakendur eru á ráðstefnunni „Ungt fólk í nútið og
framtíð“, sem hófst í gær að Borgartúni 6. Ráðstefnan er haldin á
vegum menntamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfé-
laga. Það eru fulltrúar hinna ýmsu æskulýðsfélaga og ungmenna-
hreyfinga, sem sitja ráðstefnuna, sem hófst laust eftir hádegi í gær
og lýkur um miðjan dag í dag.
Auk flutnings fjölda erinda i
gær, var farið með ráðstefnugesti
í kynnisferð í félagsmiðstöðvar í
Reykjavík, Skátahúsið við Snorra-
braut og íþróttamiðstöð ÍSÍ í
Laugardal. í dag hefst ráðstefnan
að nýju kl. 9.00 með erindi Þor-
bjöms Broddasonar lektors um
áhrif tölvutækni á heimilislíf, skóla,
íjölmiðla og á félagslíf.
íþróttasamband fatlaðra og
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra í
Reykjavík efna til kynningar á
starfsemi íþróttasambands fatlaðra’
í Laugardalshöll kl. 14.00. Fulltrúar
frá íþróttasambandi fatlaðra rnunu
halda fyrirlestra, sýna stutt mynd-
band og svara fýrirspumum. Síðan
fer fram íþróttakeppni þar sem
þátttakendum gefst kostur á að
reyna sig í hinum ýmsu íþrótta-
greinum sem fatlaðir leggja stund
á.
Kristjana
F. Arndal
sýnir í
Hafnarborg
KRISTJANA F. Arndal opnar
sýningu á verkum sínum í dag í
Hafnarborg í Hafnarfirði. Á sýn-
ingunni eru um 30 verk, olíumál-
verk, svartkrítarmyndir, vatnslita
- og pastelmyndir.
„Hluti af þessum myndum var á
sýningu í Konstfrámjandet í janúar
og febrúar á þessu ári“ segir Krist-
jana, en þetta er fjórða sýning hennar
á þessu ári, hún sýndi í Bergendal í
Stokkhólmi, Lofoten í Noregi og tók
þátt í samsýningu hjá Folksam trygg-
ingarfélaginu í Stokkhólmi fyrr á
þessu ári auk sýningarinnar í Konst-
frámjandet.
Kristjana hefur verið búsett í 11
ár í Svíþjóð og verið þar við nám og
störf. Hún segir að henni fínnist
skemmtilegast að fást við grafík-
myndir, en hafí enga vinnuaðstöðu
sem stendur þar sem hún er nýflutt
hingað til landsins aftur.
Sumarið 1983 fékk Kristjana styrk
frá heildarsamtökum bygingariðnað-
armanna í Svíþjóð til að koma til
íslands og safna efni. Hún var hér í
tvo mánuði, aðallega á Austfjörðuin
því þangað segist hún aldrei hafa
komið áður og það hafi verið einstak-
lega gaman að koma aftur til Islands
eftir langa dvöl erlendis og dveljast
á áður ókunnum stöðum. Viðfangs-
efni hennar eru sum nokkuð sérstæð,
á einni myndinni er t.d. eplahýði
„þetta eru ummerki um eitthvað,
flestir skilja eitthvað eftir sig, sem
ég er að reyna að setja niður á strig-
ann. Auk þess verður maður fyrir
áhrifum sem ég er að reyna að túlka,
lífskrafturinn birtist t.d. í þessu tfe
sem ég sá vaxa á klöpp, en rætur
þess höfðu sprengt sig í gegnum klöp-
pina."
Sýning Kristjönu er opin milli 14
og 21 alla daga og eru flestar mynd-
anna til sölu.
m ER UM AÐ GERA AÐ TRYGGJA SÉR MIÐA Á ÞENMANN HEIMSVIÐBURÐ
MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR í SÍMA 77500 - DAGLEGA
sögövi
Jerry Lee Lewis þekkja allir sem einn
af frumkvöðlum rokksins ásamt
Elvis, Little Richard, Chuck Berry og
Fats Domino
Jerry Lee Lewis „The Killer" mun
skemmta ásamt sjóðheitri hljómsveit
sinni f rá Memphis
BCCACW'
í kvöld og annað kvöld
MATSEÐILL
Humarsúpa
Lamba-piparsteik mcð villikrydduðum
sveppum
Hcínutilbúinn kaifiis með konfekti
Munið hina ódýru
Broadway/heigarpakka
Fluglelða