Morgunblaðið - 14.12.1985, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
73
ÁRNI EINARSSON sem á þessu ári varð Islandsmeistari í karate lenti
í þriðja sæti í Norðurlandakeppni
„Maður getur stundað karate alla
ævi og verið að læra nýjungar dag hvern“
Nýverið leit blaðamaður inn í kennslu-
stund hjá Árna Einarssyni sem á
þessu ári varð íslandsmeistari í sínum
þyngdarflokki í Karate, Kumite (frjálsum
bardaga), en einnig lenti hann nýlega í
þriðja sæti í Norðurlandakeppninni í Kata
(formlegar æfingar).
„Ég þyrjaði að stunda Karate fyrir um
það bil tíu árum og hef þá verið fjórtán
ára gamall. Á þeim tíma gekk það eins
og eldui í sinu að prófa íþróttina og ég lét
tilleiðast eins og hinir, því þetta var spenn-
andi ogdularfullt.
Núna æfi ég daglega og stundum tvisvar
á dag ef framundan er keppni eða mót.
Aftur á móti getur það farið svo að ég
æfi bara fjórum eða fimm sinnum í viku
ef það er ekkert að gerast."
— Hefurðu oft áður tekið þátt í keppn-
um?
„Já ég hef tekið þátt í ótal mótum og
keppnum. Keppnir eru samt. ekkert aðalat-
riði í þessari íþrótt og meginþorri þeirra
sem stunda hana keppa aldrei í greininni.
Ég hef líka verið erlendis í æfingabúðum
og meðal annars farið til Japan í þeim
tilgangi. Við fórum þá fjórir saman og í
þeirri ferð nældi ég mér í svarta beltið.
— Hvað er það við þessi íþrótt sem
heillaði þig það mikið að þú hélst áfram?
„Það var og er ýmislegt. Þetta er mjög
fjölbreytt, hægt að keppa í tveimur grein-
um sé áhugi fyrir hendi, og svo eru æfin-
garnar skemmtilegar.
Þessi íþrótt er nefnilega þannig að
maður getur stundað hana alla ævi og
lært nýjungar dag hvern. Ef vel ætti að
í kennslustund há Árna.
vera þá gæti maður verið í framför alveg
fram á grafarbakkann. Já og svo er þetta
bara góð æfing fyrir allan líkamann." Og
með það var Árni rokinn aftur inní
kennslustund, þar sem hann var að kenna
krökkum allt frá sjö ára aldri sjálfsvörn."
Árni Einarsson.
MorKunblaðiÖ/Ámi Sæberg
SÍGILD HÖNNUN
Boröstofustóll án Boröstofustóll m. örm-
arma kr. 3.980 stgr. um kr. 4.340 stgr.
Stóll m. leöri eöa Stóll m. leöri kr.
hrosshári kr. 9.970 10.700 stgr.
stgr.
Legubekkur meö svörtu leöri eöa hross-
hári kr. 32.555 stgr. sem sagt
.. á oumflyjanlega
hagstæðu verði
iv
ILJI
Bláskógar
Ármúla 8, s. 686080 - 686244.