Morgunblaðið - 14.12.1985, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
65
Sigmundur Ó. Steinarsson
heimildir og of margir af þeim sem
þá voru í baráttunni fallnir frá.
En sú alúð sem Sigmundur leggur
greinilega í það sem hann er að
gera og sá vilji sem hann sýnir til
þess að tína það til sem mögulegt
er benda til þess að hann sé fullfær
um að annast þetta verk svo sem
best verður mögulegt.
ótalinn er einn af meginkostum
bókarinnar Sókn og sætir sigrar.
Myndirnar. það er hreint ótrúlegt
hvað Sigmundi hefur tekist að
safna saman miklu og einnig
skemmtilegum ljósmyndum og það
er líka hróss vert hve vel honum
tekst að flétta saman myndir og
texta og búa þannig til eðlilega
samfellu. Bókin er að auki prentuð
á mjög góðan pappír þannig að
myndirnar njóta sín til fulls.
Sjálfsagt er að nefna einnig til
það sem undirrituðum finnst vera
helstu gallar bókarinnar. Þeir eru
að stundum eru lýsingarnar heldur
hástemmdar og notkun lýsingar-
orða á ágæti manna lítt í hóf stillt,
hvort sem höfundur fer um þá
orðum frá eigin brjósti eða lætur
aðra segja frá. En það er víst venja
í íþróttaskrifum að spara önnur
orð meira en lýsingarorðin. Og
annað: í bókinni kemur fram það
sem er töluvert einkennandi fyrir
íþróttaskrif um þessar mundir —
orðfátækt. íþróttafréttamenn
þurfa að átta sig á því að stór hluti
lesenda þeirra er ungt fólk og með
góðum orðaforða og réttri notkun
hans geta þeir lagt þungt lóð á
vogarskálar sóknar íslenskrar
tungu sem nú á að hefja af alvöru.
Vel getur verið að þessi orð séu
sögð af því að sá er ritar tilheyrir
í mörgu gömlu íþróttafréttamönn-
unum, „sem voru allir í íslendinga-
sögunum" eins og haft er eftir
Hermanni Gunnarssyni í bók Sig-
mundar.
Það er fengur að bókinni Sókn
og sætir sigrar. Hér er vel af stað
farið í ritun sögu íslenskrar knatt-
spyrnu og höfundur nær að sam-
eina skemmtun og fróðleik í bók
sem er sett mjög lifandi og nýstár-
lega upp. Það verður gaman að fá
meira að heyra.
Grallarar í fjársjóðsleit.
Indiana Jones
hittir Enid Blyton
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Bíóhöllin: Grallararnir — The
Goonies ★★‘/2 _
Bandarísk. Árgerð 1985. Handrit:
Chris Columbus. Leikstjóri: Richard
Donner. Aðalhlutverk: Sean Astin,
Josh Brolin, Jeff Cohen, Corey Feld-
man, Ke Huy Quan.
Draumaverksmiðja Steven
Spielbergs dælir úr sér hverju
ævintýrinu af öðru fyrir ungu
áhorfendaskarana. Tvö þeirra eru
jólatromp reykvískra kvikmynda-
húsa, The Goonies í Bíóhöllinni og
Back to the Future í Laugarásbíói.
Og það verður að segjast eins og
er, amk. hvað þessa mynd varðar,
að grundvallarskilyrði fyrir því að
menn njóti ævintýranna er að þeir
séu ungir í anda ef ekki ungir að
árum.
Goonies, sem Spielberg fram-
leiðir og á hugmyndina að, er ekki
óaðfinnanleg kvikmynd. Það má
fetta fingur út í heldur langdreg-
inn upptakt, ógreinilega hljóðritun
samtöl hinna óðamála söguhetja,
skort á skörpum línum í handriti
og lítt áhugaverðan hóp illmenna.
En slíkar aðfinnslur eru einhvern
veginn á skjön við það skemmti-
gildi sem myndin ótvírætt hefur
fyrir sína áhorfendur. Þar er reist
á tryggum forskriftum sem sóttar
eru jöfnum höndum til annarra
verka þeirra Spielbergs og George
Lucas, einkum myndanna um Ind-
iana Jones, og hefðbundinna
spennusagna fyrir unglinga á borð
við bækur Enids Blyton.
Spielberg og handritshöfundur
hans, Chris Columbus, sem einnig
skrifaði Gremlins, segja hér sögu
af ungu grallaragengi og nokkrum
eldri félögum þess sem leita að
sjóræningjafjársjóði með hjálp
gamals uppdráttar í von um að
bjarga fjárhag föðurs tveggja
þeirra. Berst leikurinn um miklar
hættuslóðir neðanjarðar með ólán-
legt tríó strokufanga, aldraða
móður og tvo syni hennar á hælun-
um, jafnframt því sem þriðji bróð-
irinn, vanskapað afstyrmi, slæst í
förina. Innkoma hans og hlutverk
í myndinni er reyndar óttalega
ómerkileg. En þegar þessi hættu-
för er hafin fyrir alvöru og grall-
arnir eiga fótum fjör að launa
undan linnulausum gildrum og
aðvífandi beinagrindum að hætti
Indiana Jones er ómögulegt að láta
sér leiðast.
HENDljR
FRAMUR
ERMUM
STflÐUR ÞEIRRA SEM VERÐfl AÐ BJARGA SER SJflLFIR
EN ER EKKI SAMA HVAÐ ÞAÐ KOSTAR
Málningarbrúsi
kr. 169.-
Halogen Ijós
kr. 2.059.-
Toppgrindarbindingar
kr. 1.189.-
Verkfærakassi
kr. 539.-
Raco
verkfærasett
kr. 1.389.-
Borvél
kr. 2.269
Topplyklasett
kr. 499.-
Bílagardínur
kr. 879.-
Tengill
kr. 239.-
HENDUR
FRAM-UR
ERMUM
BYGGINGAVÖRUR
OGVERKFÆRI
HAGKAUP
Skeifunni 15