Morgunblaðið - 14.12.1985, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
Það er
sjálísagt að
senda þér jólabœkurnar heim ef þú pantar þrjár nýjar bœkur 1 einu.
Við tökum á móti pöntunum í síma 622435 og að sjálfsögðu pökkum við
þeim í jólapappír ... en vœri bara ekki skemmtilegra að
slást í hóp
ánœgðia
vlðskiptcrvlna
okkar og skoða
allar nýju
íslensku
bœkumar
Hjá okkur er mikið um að vera í dag,
enda opið til kl. 18.
□ FRANSKA SKÁLDKONAN RÉGINE DEFORGES ÁRITAR BÓK
SÍNA STÚLKAN Á BLÁA HJÓLINU MILLI KL. 11 OG 12.
□ AÐALHEIÐUR BJARNFREÐSDÓTTIR ÁRITAR LÍFSSÖGU
BARÁTTUKONU MILLI KL. 2 OG 4. BÓK SEM SKILAR
AÐALHEIÐI HEILLI TIL LESANDANS.
□ ... OG SÍÐAST EN EKKI SÍST ÁRITAR EINAR KÁRASON
GULLEYJUNA (SEM ER EIN EFTIRMINNILEGASTA SKÁLD-
SAGAN SEM ÚT KEMUR UM ÞESSI JÓL) MILLI KL. 4 OG 6.
OG TIL Aö LÉTTA OKKAR I,UND
LEIKUR TRIO GUÐMUNDARINGOLFS-
SQNAR LETTAN DJASS OG FÁEIN
JOLALÖG I EFTIRMIÐDAGINN.
í dag er kynning á nýju
íslendingasagna-
útgáíunni.
Itókabúð
LMÁLS & MENNINGAR^
LAUGAVEGI 18 SÍMI 24242
Lifandi saga
og svipmyndir
skemmtilegs tíma
_________Bækur
Steinar J. Lúðvíksson
Lifandi saga og svipmyndir skemmti-
legs tíma. Sékn og sætir sigrar eftir
Sigmund Ó. Steinarsson. Utgefandi
höfundur 1985.
Lengi mun hafa staðið til að
Knattspyrnusamband íslands
hefði forgöngu um að skráð yrði
saga knattspyrnunnar á Islandi
en ekki orðið af. Það er þð vissu-
lega ástæða til þess að saga vinsæl-
ustu íþróttagreinarinnar á íslandi
geymist í bók eða á bókum þar sem
knattspyrnan hefur tvímælalaust
lagt sitt af mörkum við uppeldi
ótalinna íslendinga og verið þeim
helsta tómstundagamanið á yngri
árum og gleðigjafi eftir að árin
færast yfir og menn flytja sig af
vellinum og upp í áhorfendasvæðið
eða þá láta sér það nægja að fylgj-
ast með úr fjarlægð. Saga íslenskr-
ar knattspyrnu geymir mörg nöfn
og viðburði sem vert er að minnast
og framtíðin þarf að kynnast. Það
er því gleðiefni að nu skuli blaða-
maðurinn Sigmundur ó. Steinars-
son hafa ráðist i það upp á ein-
dæmi að skrifa og gefa út þessa
sögu. Fyrsta bindið er nú nýlega
komið út og von á fleirum áður en
langt um líður. Ljóst er að þarna
er um allviðamikið verk að ræða,
sennilega mörg bindi, ef sagan
verður jafn ítarlega skráð og Sig-
mundur gerir í þessu 1. bindi sem
tekur til áranna 1965 til 1963.
Mörk og sætir sigrar nefnist bók
Sigmundar og verður að segjast
eins og er að bókin er nýstárlega
fram sett miðað við rit sem geymir
sögu. Sennilega er bók sem þessi
ekki á nótum sagnfræðinga en
hver veit nema að einmitt þannig
verði saga nútíðarinnar skráð í
framtíðinni. Sigmundur leggur
mjög upp úr samspili texta og
mynda, brýtur frásögn sína niður
og setur hana eiginlega upp í því
formi sem tíðast í dagblöðum. Slík
uppsetning er sennilega í takt við
tímann og samstiga við það sem
nú þykir sjálfsagt — að myndir
segi söguna að hálfu.
Þeir sem komnir eru á miðjan
aldur minnast sjálfsagt þess tíma
sem Sigmundur fjallar um í bók-
inni, áranna 1955-1963, sem
skemmtilegs tíma í sögu íslenskrar
knattspyrnu. Árið 1955 urðu tíma-
mót er deildaskipting var tekin
upp í íslandsmótinu og einmitt á
þessum árum voru nokkrir kunnir
knattspyrnumenn á hátindi ferils
síns. Má þar nefna Akranesgoðin
Ríkharð Jónsson, Helga Daníels-
son og Þórð Þórðarson og KR-ing-
ana Þórólf Beck, Garðar Árnason
og Örn Steinsen að ógleymdum
Hemma Gunn. sem var að stíga
sín fyrstu spor i 1. deildar knatt-
spyrnunni. Allir voru þeir, og
raunar miklu fleiri, eftirminnileg-
ir knattspyrnumenn og ólíkir
knattspyrnumönnum nútimans
sem margir bíða eftir því að þeirra
upphefð komi að utan líkt og
Kúnstner Hansen í Strompleikn-
um. Alltaf má deila um það og
aldrei fæst úr því skorið hvort
knattspyrnan á þessum árum var
betri eða verri en nú. Úrslit lands-
leikja benda til þess að hún hafi
verið verri en minningar um
stjörnur þessa tíma skína þó þann-
ig að ekkert skyggir á. Leikir
Akraness og KR á nefndu árabili
þóttu viðburðir, enda áttu bæði
félögin sérlega skemmtileg lið og
þótt Valur og Fram næðu sínum
meistaratitlinum hvort félag var
meira litið á það sem stuld en
annað. Sér i lagi var velgengni
Akurnesinga eftirminnileg, enda
virðist þannig vera í þeim ágæta
kaupstað að knattspyrnumenn-
skan lýtur sömu lögmálum og
drekar fortíðarinnar — þegar eitt
höfuð er höggvið af bætast tvö við
í staðinn — þegar ein stjarnan á
Akranesi hættir bætast tvær við
í staðinn.
Sigmundur Ó. Steinarsson fylgir
þeirri meginlínu í bók sinni að
fjalla um 1. deild íslandsmótsins
eins og hún gekk fyrir sig á hverj-
um tíma. Hann skýtur síðan inn
stuttum lýsingum eða viðtölum um
einstaka eftirminnilega og spaugi-
lega atburði. Ef til vill virðist
einhverjum sem sumt af því sem
þannig er rifjað upp skipti ekki
miklu máli en óneitanlega verður
sagan meira Ijóslifandi og kannski
er það einmitt meginstyrkur þess-
arar bókar að hún er skemmtileg
og nær að laða fram og undirstrika
lyndisbragð margra leikmanna.
Greint er frá úrslitum allra leikja
í 1. deild og meira að segja hverjir
skoruðu mörkin og á hvaða mín-
útu, auk þess sem áhorfendatala
er gefin upp við flesta leiki sem
sannað að aðsókn að leikjum þess-
ara ára hefur verið öllu betri en
nú tíðkast.
í bókinni er langur kafli um 1.
deildar keppnina síðasta sumar —
hver umferð tekin fyrir sig. Sjálf-
sagt má deila um réttmæti þess
að gera nýliðnu ári svo mikil skil
í bók sem fjallar um sögu en ætlun
höfundar er vafalaust sú að allir
fái eitthvað fyrir sinn snúð og víst
er að síðasta keppnistímabil var
eitt af þeim skemmtilegri í mörg
herrans ár og því frá mörgu að
segja.
Sigmundur Ó. Steinarsson á
mikið verk fyrir höndum áður en
öll sagan verður skráð. Það var
sannarlega tími til að hafist væri
handa og því miður er ólíklegt að
hægt verði að skrá söguna fyrstu
áratugina eins nákvæmlega og á
jafn skemmtilegan hátt og gert er
í þessari bók. Til þess eru of litlar