Morgunblaðið - 14.12.1985, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
57
co
Einkaumboð a Islandi
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
Armula 16 • Reykjavik • simi 38640
„Það er langt síðan
íjöldi fyrirtækja í bók-
bandi fékk sér vélar til
að framleiða vasabrots-
bækur (kiljur). Síma-
skráin er t.d. unnin á
kiljuvél, svo eitthvað sé
nefnt.“
fyrir næstu jól ok að góð samvinna
ríki áfram á milli bókaútgefenda
og bókagerðarmanna eins ok hing-
aðtil.
Höfundur er bókbindari og starfs-
maður Félags hókagerðarmanna.
Tæknin er
fyrir hendi
— eftirSvan
Jóhannesson
í bókaskrá Morgunblaðsins 8.
desember sl. er viðtal við Eyjólf
Sigurðsson, prentara og bókaút-
gefanda, þar sem rætt er við hann
um bókaútgáfu fyrir þessi jól. Þar
kemur m.a. fram, að skv. athugun
bókaútgefanda, þá er verð bóka
nú hagstætt í samanburði við
hækkun framfærsluvísitölu. Eyj-
ólfur segir að skýringin á þessu
sé m.a. sú, að við höfum notið nýrr-
ar tækni í prentiðnaði. Staðreynd
er að ný og aukin tækni hefur ekki
orðið til þess að kjör bókagerðar-
manna hafi batnað. Útaf fyrir sig
er það ánægjulegt, ef rétt er, ef
verð bóka hefur ekki hækkað eins
mikið og aðrar vörur, en ugglaust
liggur þó meginhluti þess arðs,
sem tæknin hefur skapað, hjá
fyrirtækjunum og bókaforlögun-
um. Bókagerðarmenn, bæði at-
vinnurekendur og launtakar hafa
lagt sig í framkróka við að tileinka
sér nýja tækni. Fyrirtæki hafa
keypt nýjar vélar fyrir hundruðir
milljóna króna og þeir sem vinna
við þessar vélar hafa aflað sér
nýrrar þekkingar. Ef nokkuð er,
þá finnst mér að bókaverð gæti
verið miklu lægra miðað við fram-
Ieiðsluaukninguna sem leiðir af
tækniþróuninni. Einhvers staðar í
framleiðslukeðjunni væri ábyggi-
lega hægt að gera enn betur. Þessu
ættu bókaútgefendur og bókasalar
að huga vel að. Væri t.d. ekki
hægt að minnka þann kostnað sem
fer í að rétta bókina yfir búðar-
borðið?
En það var annað í viðtalinu við
Eyjólf, seem ég vil endilega leið-
rétta og mótmæla. Hann er spurð-
ur að því hvort breytingar verði á
bókaútgáfu á næstu árum. Það
telur hann vera og fjöldi bókafor-
laga íhugar nú útgáfu vasabrots-
bóka, segir hann: „Aðalvandamál-
ið liggur í því, að við verðum að
leita eftir ódýrri prentun erlend-
is,“ og svo síðar: „Vasabrotsútgáfa
hefur verið lítil hér innanlands og
er því vélvæðing fyrir þær ekki
fyrir hendi.“
Þetta var einkennileg niður-
staða svo ekki sé meira sagt. Það
virðist eins og Eyjólfur sé að beina
prentuninni til útlanda á þeirri
forsendu, að vélvæðing sé ekki
fyrir hendi og einnig að prentunin
sé svo dýr hér á landi.
Fyrra atriðinu, að vélvæðing sé
ekki fyrir hendi, vil ég harðlega
mótmæla. Það er langt síðan fjöldi
fyrirtækja í bókbandi fékk sér vél-
ar til að framleiða vasabrotsbækur
(kiljur). Símaskráin er t.d. unnin
í kiljuvél, svo eitthvað sé nefnt.
Að sjálfsögðu er þó ekki hægt að
kalla hana vasabrotsbók vegna
stærðarinnar. Þessar kiljuvélar
eru til af öllum mögulegum stærð-
um og gerðum. Þær fullkomnustu
raða meira að segja örkunum
saman, sem renna síðan beint á
braut inn í vélina, þar sem kjölur-
inn er fræstur og límdur inn í
kápuna. Bókbindarar hafa náð svo
mikilli leikni í bókagerð á undan-
förnum árum, að þeir hafa getað
framleitt bækur og timarit 1 þess-
um vélum, sem alls ekki er ætlast
til af framleiðendum vélanna, að
séu unnin i þeim. Þar á ég við
tímarit og bækur sem prentaðar
eru á vandaðan myndapappír, þar
sem prentliturinn kemur alveg upp
í kjöl. Þessar vélar eru nefnilega
helst ætlaðar til framleiðslu á
þessum litlu hefðbundnu kiljum
eins og þessum erlendu sem við
sjáum hér í bókabúðum. Bækur
sem hægt er að stinga í vasann
og eru prentaðar á ódýran og
óvandaðan pappír. Það er nefni-
lega pappírinn sem mestu máli
skiptir í þessu sambandi, bæði
fyrir vélarnar, sem þá minnkar
framleiðslukostnaðinn og einnig
hlýtur óvandaður pappír að vera
ódýrari en vandaður.
Ég vona svo að Eyjólfur hressist
NÚ ER ÞAÐ 10 ARA
^byrgð A sutiagi
á hlnum margvlour-
lcermdu KORK O
PtAST
o PlAST þá fcerou
SUTÁBYRGÐAR-
ABYRGÐIN GILDIR
YF1R14GERÐIRKOP.
Wicanders Kork-O'Plast
Sœnsk gœðavara í 25 ár.
Velkominnyetur konungur
Loðfóðraðir frakkar fyrir dömur
og herra í glæsilegu úrvali.
Einnig skinntreflar.skinnhúfur
og slœður. Frábærar og hlýjar
jólagjafir sem nýtast vel og
endast lengi. Sérsaumaðir loðfeldir
eftir pöntunum.
Njóttu vetrarins.
Verið velkomin.
EGGERT feldskeri - LAUGAVEGI 66 - SÍMI
- fyrir þá sem velja aðeins það besta
1121
KORK O PLAST er rneð slitsterka vinylhúð og notað á gólf sem mikið
mæðir á. svo sem á flugstöðvum og á sjúkrahúsum.
KORK O PLAST er auðvelt að þrífa og þægilegt er að ganga á pví.
Sérlega hentugt fyrir vinnustaði. banka og opinberar skrifstofur.
KORK O PLAST byggir ekki upp spennu og er mikið notað í
tölvuherbergjum.
KORK O PLAST fæst í 14 mismunandi korkmynstrum.
vilmn
korkur
EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI Á LANDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS
SÝNISHORN OG BÆKLING.
Gt^nui. slitstirk og
•uftÞritmlog
Stvrht vinyl-undirtag.
•rr