Morgunblaðið - 14.12.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
41
Allsherjarþing Sameinuðu þjóóanna:
Vill alþjóðlega ráðstefnu
um frið í Miðausturlöndum
Sameinuðu þjóðunum, 13. desember. AP.
ALLSHERJARÞINGIÐ gerði í
gær, fímmtudag, samþykkt,
þar sem skorað er á Banda-
ríkjamenn og ísraelsmenn að
láta af andstöðu sinni við al-
þjóðlega friðarráðstefnu um
málefni Miðausturlanda. At-
kvæði féllu þannig að 107
greiddu samþykktinni atkvæði
sitt, 3 voru á móti og 41 ríki
sat hjá. ísrael, Bandaríkin og
Kanada voru á móti sam-
þykktinni, sem borin var fram
af Sovétríkjunum, ásamt fleiri
ríkjum.
Ráðstefnan yrði haldin að
frumkvæði Sameinuðu þjóð-
anna og hana myndu sækja
allar þjóðir sem aðild eiga að
átökunum fyrir botni Mið-
jarðarhafsins, þar á meðal
skæruliðahreyfingu Palest-
ínuaraba, PLO, auk Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna.
Þetta er þriðja árið í röð, sem
allsherjarþingið samþykkir
slíka ályktun.
Forsœtisráðherrar
Á dögunum var haldin veizla mikil í Downingstræti 10 í Lundúnaborg, þar sem verið hefur embættis-
bústaður brezka forsætisráðherrans síðastliðin 250 ár. Viðstaddir voru þeir menn, sem gegnt hafa starfi
forsætisráðherra í Bretlandi, og enn eru í lifenda tölu, núverandi forsætisráðherra, sem var gestgjafi,
og Elisabet, Englandsdrottning. Á myndinni eru (f.v.) James Callaghan, Alec Dougias Hume, nú Home
lávarður, Margrét Thatcher, Harold McMilland, nú Stockton lávarður, Elisabeth drottning, Harold
Wilson, nú Wilson lávarður og Edvard Heath.
Corazon og Laurel skeinu-
hættir keppinautar Marcosar
NÚ ER loksins leitt til lykta framboðsmál þeirra Corizon Aquino og
Salvador Laurel á Filippseyjum eins og frá sagði í Morgunblaðinu í
gær, fimmtudag. Stjórnarandstæðingar Ferdinands Marcos hafa fagnað
því mjög og eru sigurreifir. Stjórnmálaskýrendum ber saman um að
þetta sé sterkt framboð og svo fremi Marcos láti kosningarnar fara fram
eins og áformað er og í öðru lagi að ekkert svindl verði haft í frammi
af hálfu manna hans, séu sigurlíkur þeirra Corizon og Laurel töluvert
miklar.
Eins og fram hefur komið í
fréttum upp á síðkastið hefur
Laurel átt erfitt með að gera upp
hug sinn; skömmu eftir að farið
var að tala um það i alvöru að
Corizon yrði teflt fram gegn
Marcos, lýsti hann stuðningi við
hana. Síðan lenti allt í háalofti á
fundi sem stjórnarandstöðuflokk-
arnir efndu til í byrjun desember
og endaði með stóryrðum og raun-
ar fúkyrðum Laurels í garð stuðn-
ingsmanna Corizon. Nokkru síðar
kunngerði Laurel að hann væri
staðráðinn í að bjóða sig sjálfur
fram til forseta og kannaðist nú
ekkert við það, að hann hefði gefið
til kynna að hann myndi stuðla
að kjöri Corrizon Aquino.
Þetta var auðvitað vatn á myllu
Marcosar forseta og bakaði and-
stæðingum forsetans hið mesta
angur. Það þurfti ekki mikla-
glöggskyggni til að sjá, að því
aðeins að stjórnarandstaðan sam-
einaðist, voru möguleikar á því að
Marcos yrði ofurliði borinn. Um
svipað leyti ákvað forsetinn að
láta sérskipaða nefnd kanna hvort
rétt væri að fresta kosningunum;
forsetinn sagði að það væri hugs-
anlegt að kosningar í febrúar, ári
eða vel það, fyrr en áætlað var,
samrýmdist ekki ákvæðum stjórn-
arskrárinnar. Þótti ýmsum frétta-
skýrendum athyglisvert ef forset-
inn var skyndilega farinn að hafa
áhyggjur af því sem stendur í
stjórnarskránni. Til skjalanna
kom þá einnig erkibiskupinn af
Manilla J. Jaime Sin, kardináli.
Hann er opinskár andstæðingur
forsetans og taldi mest um vert
að sættir næðust innan stjórnar-
andstöðunnar þ.e. þeirra Corizon
og Laurels. Nú þegar þessar sættir
hafa orðið segir í nýjasta riti Far
Eastern Economist Review, að það
sé engum vafa undirorpið, að mest
sé það Sin að þakka að málið hefur
verið leyst á þennan hátt.
Báðir frambjóðendurnir, Laurel
og Corizon, sýndu ósveigjanleika
í fyrstu, eftir að Sin hóf sáttaum-
leitanir. Corizon staðhæfði að hún
myndi ekki koma fram í nafni
flokks Laurels, Unido. Og hún
Salvador Laurel.
harðneitaði að Laurel yrði forseta-
efni, en hún byði sig fram til
varaforseta. Hún lagði áherzlu á
að eins og málum væri komið nú,
myndi hún höfða tilfinningalega
til svo breiðrar fylkingar, að sem
varaforsetaframbjóðandi hyrfi
hún í skuggann og fylgið færi fyrir
lítið. Hún sagði einnig að væntan-
legur forseti þyrfti ekki að vera
stjórnmálamaður, heldur væri
hann fyrst og fremst sameiningar-
tákn. Salvador Laurel neitaði hins
vegar þegar á reyndi, að vera núm-
er tvö, hann hefur verið metorða-
gjarn og skeleggur stjórnmála-
maður um árabil og hefur leynt
og ljóst stefnt að því að bjóða sig
fram til forseta, einkum þó og sér
í lagi eftir að Aquino var myrtur.
Samt er svo sýnilegt að Jaime
Sin og fleirum hefur tekizt að fá
báða frambjóðendur til að fallast
á að vinna saman og skilja að þjóð-
arhagsmunir séu í veði. Það á
áreiðanlega sinn þátt í málalok-
um, að Fabian Ver yfirmaður
herráðs Filippseyja, var nýlega
sýknaður af öllum atriðum varð-
andi morðið á Aquino á sínum
tíma. Þótt fæstir hafi reiknað með
því að Ver yrði sakfelldur, blöskr-
aði mörgum hversu afdráttarlaust
var kveðið að orði í dómsúrskurð-
inum og sé það enn eitt merkið
um samtryggingu og spillingu —
og allt undan rifjum forsetans
runnið.
Því er það mál manna að takist
kosningabaráttan vel og þeim
Corizon og Laurel lánist að vinna
saman af einhug geti svo farið að
meira að segja fullkomin kosn-
ingamaskína Marcosar kunni að
bregðast. Sömuleiðis er beðið með
eftirvæntingu eftir viðbrögðum
Bandaríkjamanna vegna fram-
boðs Corazon, en þau gætu ráðið
töluverðu um hvernig mál skipast.
Þó eru það auðvitað umfram allt
filippískir kjósendur sem í febrúar
hafa vonandi allt ráð í hendi sér.
Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir
TASSlýsir
eftir sovézkum
vísindamanni
Mosltvu, 13. desember. AP.
SOVÉZKA fréttastofan TASS skýrði
í dag frá því að sovézki vísindamað-
urinn Vladimir Alexandrov hafi
horfið sporlaust í Madríd 1. apríl sl.
og að ekkert hafi spurzt til hans
síðan.
Óvenjulegt er að sovézkir fjöl-
miðlar skýri frá hvarfi af þessu
tagi. Að sögn TASS sótti Alex-
androv ráðstefnu um kjarnorku-
vopnalaus svæði í borginni
Cordova á Spáni og sást síðast til
hans skömmu fyrir brottför frá
Madríd.
Alexandrov var tölvusérfræð-
ingur og starfaði sem slíkur í
tölvudeild sovézku vísindaaka-
demíunnar. Ekki hefur verið skýrt
frá hvarfi hans á Vesturlöndum.
TASS sagði að Spánverjar hefðu
margsinnis verið beðnir að
grennslast fyrir um Alexandrov.
TASS segir fjölskyldu Alex-
androvs og starfsbræðra hans
mjög slegna og áhyggjufulla yfir
örlögum hans. Segir TASS að
sovézk yfirvöld vonist til þess að
Spánverjir geri hið ítrasta til aö
hafa upp á Alexandrov og leiða í
Ijós hvað komið hefur fyrir hann.
Metsöluhku) á hverjum degi!
^ý&l&élXýtctciKK&i
Sven borötennisborö henta mjög vel
í bílskúrinn eöa tómstundaherbergið.
Mjög þægilegt er aö setja jDau upp
og taka saman. Þau taka lítiö pláss
í geymslu. 2 geröir kr. 16.690—20.100.
Greiðsluskilmálar.
Borötennis er skemmtilegur leikur
fyrir alla fjölskylduna.
ÚTILÍF
Glæsibæ, sími 82922.