Morgunblaðið - 14.12.1985, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
Staðarbakkakirkja
fær góðar gjafir
SUNNUDAGINN 1. des. síð-
astliðinn fór fram guðsþjón-
usta í Staðarbakkakirkju.
Sóknarpresturinn, sr. Guðni
Þór Ólafsson, messaði.
Minntist hann þess að um
þessar mundir eru liðin 95 ár
frá vígslu kirkjunnar. Er hún
nú í mjög sæmilegu standi
eftir viðgerð sem fór fram á
síðustu árum og verður að
teljast að hún beri aldurinn
vel.
í byrjun messu var vígður
og afhentur söfnuðinum
skírnarfontur, hinn fegursti
gripur, gefinn af Guðjóni
Jónssyni fyrrum bónda í
Huppahlíð sem nú er níræð-
ur. Gripur þessi er hannaður
og unninn á vinnustofunni
„Eik sf.“ í Miðhúsum á Hér-
aði.
Fonturinn er úr ljósri eik,
áttstrend súla. Skírnarskál
er úr messing unnin af Björg-
vin Svavarssyni gullsmið í
Kópavogi.
A umgerð um hana er letr-
uð — útskorin — ritningar-
greinin:
„Leyfið börnunum að koma
til mín því slíkra er guðsrík-
ið.“
Á dökkri eik þar fyrir
neðan eru kirkjuleg tákn,
söguð úr messing. í lýsingu
Halldórs Sigurðssonar á
fontinum segir meðal annars:
„Miðhluti súlunnar er rennd-
ur, lítið eitt gildari en strend-
ingurinn. Á rennda hlutanum
Morgunblaðið/Ingimundur Benediktsson
Guðjón Jónsson fyrrum bóndi í
Huppahlíð við skírnarfontinn, sem
hann afhenti Staðarbakkakirkju
að gjöf.
er áletrun, annars vegar nafn
kirkjunnar „Staðarbakka-
kirkja" Hins vegar „Guðjón
Jónsson, Huppahlíð gaf Stað-
arbakkakirkju árið 1985 til
minningar um foreldra sína
og systkini." Var safnaðar-
fólk mjög hrifið af formi og
öllum frágangi og þakklátt
gefandanum fyrir rausnar-
skapinn en hann hefur áður
fært kirkjunni stóra fjárupp-
hæð.
Altari Staðarbakkakirkju var prýtt
dúk, sem Ásdís Magnúsdóttir
heklaði og gaf.
Þá hafði í tilefni afmælis-
ins kirkjunni borist gjöf frá
Ásdísi Magnúsdóttur, það er
altarisdúkur með handunn-
inni blúndu — heklaðri að
framan og á hliðum, í
mynstrinu eru kirkjuleg
tákn. Áður haföi kirkjunni
borist vandað altarisklæði
gefið til minningar um Sigur-
geir Karlsson, Bjargi, af eft-
irlifandi konu hans og börn-
um.
Söng í messunni annaðist
kirkjukórinn undir stjórn
Ólafar Pálsdóttur.
Foreldrar barnsins sem
skírt var í messunni — en
það hlaut nafnið Benedikt —
eru hjónin Ingibjörg Þórar-
insdóttir og Rafn Benedikts-
son og veittu þau kirkjugest-
um kaffi á heimili sínu að
lokinni messu.
— Benedikt
í úlfakreppu
sérhagsmuna
— eftir Hrein
Loftsson
Ungir sjálfstæðismenn hafa ný-
lega kynnt hugmyndir sínar og
tillögur um „Ráðdeild í ríkis-
rekstri". Þær hafa að vonum vakið
þó nokkra athygli enda felst í þeim
heitstrenging um gagngjöra um-
breytingu ríkiskerfisins. Það er
ástæða til að skýra þrennt sem
ýmsir eldri sjálfstæðismenn hafa
gagnrýnt varðandi tillögur SUS. I
fyrsta lagi hvort með þeim sé verið
að ráðast gegn listum og menn-
ingu, í öðru lagi hvort tillögurnar
geti talist raunhæfar við núver-
andi aðstæður og í þriðja lagi
hvort ástæða hafi verið til að birta
þær opinberlega.
Fyrst vík ég að því hvort raun-
hæft geti talist að koma fram með
slíkar uppástungur. Þegar gengið
er út frá þeirri forsendu að ekki
verði aukið á skattheimtu og er-
lenda skuldasöfnun, eru tillögurn-
ar ekki einvörðungu raunhæfar
heldur eina færa leiðin til að koma
lagi á fjármál ríkisins. Það hefur
ávallt verið stefna Sjálfstæðis-
flokksins að draga úr umsvifum
ríkisins og það hafa ungir sjálf-
stæðismenn boðað af miklu kappi
allt frá því er mörkuð var stefnan
„Báknið burt!“ árið 1977, eða þar
um bil. Nú getur vel verið að menn
telji það ekki markmið í sjálfu sér
að halda útgjöldum ríkisins í skefj-
um, heldur beri að vera með halla
á fjárlögum eða ná jöfnuði með
lántökum heima og erlendis, eða
með aukinni skattheimtu. Þetta
er sjónarmið, en þetta hefur ekki
verið sjónarmið Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þá er það sú fullyrðing að tillög-
urnar séu ekki raunhæfar vegna
þess að sumir hagsmunahópar séu
það háværir og áróðurslega sterkir
að ekki sé skynsamlegt að takast
á við þá. Þannig tala öðrum fremur
þeir sem vilja aukin ríkisútgjöld
og við þá er ekkert að segja. En
þetta segja líka sumir þeirra sem
skynja „úlfakreppu sérhagsmun-
anna“ en hafa afráðið að leggja
upp laupana. Skilja mætti orð
sumra þeirra á þann veg að það
séu þá einhverjir aðrir hópar en
þeir háværustu sem ráðast mætti
gegn. Hvaða hópar eru það? Það
verður að benda á þá. Ungir sjálf-
stæðismenn vilja vera samkvæmir
sjálfum sér og ráðast því til atlögu
gegn öllum sérhagsmunum sem
þanið hafa útgjöld ríkisins langt út
fyrir skynsamleg mörk.
Af framansögðu er ljóst að til-
lögur ungra sjálfstæðismanna eru
raunhæfar út frá efnahagslegum
forsendum og útfrá stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Þeir sem halda
öðru fram hafa annað hvort gefist
upp á stefnu flokksins eða hafa
aldrei haft trú á henni, nema hvort
tveggja sé.
í framhaldi af því sem nú hefur
verið sagt er rétt að fara nokkrum
orðum um þann misskilning að
ungir sjálfstæðismenn séu and-
stæðingar lista og menningar. Það
er af og frá. Á hinn bóginn er í
hugmyndum þeirra um „Ráðdeild
í ríkisrekstri" þessi stefnumörkun.
Ef um opinberan stuðning við list-
ir og menningu er að ræða þá á
hann að vera á verksviði sveitarfé-
laga. Ástæðan er sú að þessi starf-
semi er undantekningarlítið stað-
bundin. Það er með öðrum orðum
óréttlátt að ísfirðingar greiði nið-
ur miðaverð í leikhús á Akureyri
svo dæmi sé tekið. Þá er og á hitt
að líta að með því að binda opin-
beran stuðning við menningarmál
við sveitarfélögin vinnst það, að
unnt er að verðlauna það sem vel
hefur tekist og afnema styrk til
FULL BÚÐ AF GJAFAVÖRUM
Allt tilað auka ánægjuna af Iwimilishaldinu
Pottar - Pönnur - lampar - Kaffikönnur - Teborð o.fl.
Allt tilað gera borðhaldið hátíðlegt
Hnífapör - Matarstell - Eldföst stálföt með silfuráferð - Dúkar - Bakkar - Skrautkerti o.fl.
Hraerivélar - Kaeliskápar - uppþvottavélar - Djúpsteikingapottar - Brauðristar -
Rafmagnskjöthnífar - Taupurrkarar - Þvottavélar - sorpkvarnir - Straujárn - Hárþurrkur o.fl.
Allt vörur í hæsta gæðaflokki
frá heimsþekktum framleiðendum
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD