Morgunblaðið - 14.12.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
Ríkissaksóknari í svari til Alberts:
Ekkert tilefni til opin-
berrar rannsóknar
RÍKISSAKSÓKNARI, Uóröur Björnsson, skrifaði í gær bréf til Alberts
Guðmundssonar, iðnaðarráðherra, og tilkynnti honum, að ekki sé hægt að
hefja opinbera rannsókn, sem Albert hafði farið fram á vegna ásakana í
sinn garð.
I bréfi sínu nefnir ríkissaksókn-
ari einkum tvenns konar ástæður.
Annars vegar, að til þess að hægt
sé að hefja opinbera rannsókn,
verði að liggja fyrir vitneskja eða
rökstuddur grunur um refsiverða
háttsemi. Það geti aldrei verið
aðaltilgangur með slíkri rannsókn
að hvítþvo menn af áskökunum eða
Hnífsstungu-
málið á Skarp-
héðinsgötu:
Nágrannar
vilja mann-
inn fluttan
í burtu
Rannsóknarlögregla ríkisins
fór í gær fram á úrskurð um
gæzluvarðhald yfir manninum,
sem stakk sambýliskonu sína
hnífi á Skarphéðinsgötu á
nmmtudagskvöidið. Sár kon-
unnar eru ekki eins alvarleg
og talið var í fyrstu og er hún
ekki í lífshættu.
Ibúar í næsta nágrenni
hússins, sem um er að ræða,
hafa safnað undirskriftum til
yfirvalda, þar sem þess er
óskað að maðurinn verði fjar-
lægður úr íbúð sinni vegna
þráfalds ónæðis af hálfu hans
og sambýliskonu hans. Sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar hafa rúmlega 40 skrif-
að undir ósk þessa og verið
er að vinna að málinu.
orðrómi og bendir rikissaksóknari
á að í slíkum tilvikum geti komið
til álita að beita ákvæðum laga
um ærumeiðingar.
Hins vegar bendir ríkissaksókn-
ari á, að skiptaréttur í Hafskips-
málinu sé að hefja rannsókn sína
og einnig hafi ríkisstjórnin lagt
fram frumvarp til laga um sér-
staka þriggja manna rannsóknar-
nefnd til að athuga viðskipti Út-
vegsbankans og Hafskips. Ef reynt
yrði að taka þátt Albert eins út úr
þeirri rannsókn væri það bæði
ógerlegt af málefnaástæðum og
brot á jafnréttisreglunni.
í yfirlýsingu í gærkvöldi sagði
Albert Guðmundsson, iðnaðarráð-
herra, m.a. að af svari ríkissak-
sóknara megi ráða, að hann telji
ekkert marktækt tilefni hafa
komið fram sem réttlæti opinbera
rannsókn. Því séu fullyrðingar
þeirra manna, sem hafi haldið uppi
ásökunum í sinn garð ekki mark-
tækar. Rannsókn muni engu að
síður fara fram vegna þessara
ásakana, þótt hún muni sýnilega
taka lengri tíma, en ef saksóknari
hefði látið fara fram sérstaka
rannsókn. „Við því verður sýnilega
ekki gert,“ segir Albert Guð-
mundsson í yfirlýsingu sinni.
Sjá á bls. 10 bréf ríkissaksóknara
og yfirlýsingu Alberts.
Morgunblaöið/Emilía
Bernskuminningar áritaðar
Hulda Á. Stefánsdóttir áritaði ný útkomna bók sína í Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar í gær. í bókinni rekur Hulda bernskuminningar
sínar frá Möðruvöllum og Akureyri.
Athugun Kjararannsóknanefndar í Danmörku og Noregi:
Fiskvinnslufólk helmingi
betur borgað en á íslandi
Þó er launakostnaður lægra hlutfall af fram-
leiðslu í Danmörku og Noregi en hér á landi
SAMNINGSBUNDIÐ lágmarkstímakaup í fiskiðnaði var 127% hærra í
október si. í Danmörku en á íslandi og 87% hærra í Noregi. Taxtakaup í
snyrtingu að viðbættum bónus er 69% hærra í Ilanmörku en á íslandi og
60% hærra í Noregi. í flökun er kaupið 95% hærra í Danmörku en hér á
landi og 105% hærra í Noregi. Þrátt fyrir þetta eru launagreiðslur á kíló
af snyrtum fiski 43% lægri í Ilanmörku en íslandi og 27% lægri í Noregi
vegna meiri afkasta í þessum löndum. Þessi samanburður er miðaður við
fisk á íslandi með meðalormi, en sé miðað við ormlausan fisk er launa-
kostnaður 7% lægri í Danmörku en á íslandi og 10% hærri í Noregi. Ormur
í fiski er lítið vandamál í Danmörku og minna í Noregi en á íslandi.
Þessar tölur eru niðurstöður 14 fiskiðjuverum. Fjórmenning-
athugunar starfshóps á vegum
Kjararannsóknarnefndar um laun
og launakostnað í fiskiðnaði í fjór-
um löndum, Noregi, Danmörku,
Bretlandi, auk íslands. Fjögurra
manna sendinefnd fór til viðkom-
andi landa dagana 6.-24. október
sl. og aflaði upplýsinga beint frá
Guðmundur Guð-
mundsson, spari-
sjóðsstjóri, látinn
arnir eru: Ágúst H. Elíasson frá
Vinnuveitendasambandi íslands,
Jón Kjartansson formaður Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja, og
starfsmenn Kjararannsóknar-
nefndar, þeir Ari Skúlason og
Hannes G. Sigurðsson. Þeir hafa
ritað ítarlega skýrslu um athugun
sína, sem verður gefin út innan
tíðar.
Skýrslan var kynnt á fundi með
fréttamönnum í gærdag, þar sem
mættir voru, auk þeirra sem könn-
unina unnu, fulltrúar launþega og
vinnuveitenda og sjávarútvegsráð-
herra. Á fundinum kom fram að
tímakaup I dagvinnu í fiskiðnaði í
Danmörku og Noregi er lægra en
í öðrum iðnaði í þeim löndum, en
á íslandi er tímakaupið í fiskiðnaði
hærra en meðaltal annarra at-
vinnugreina. Af því virðist mega
draga þá ályktun að munurinn á
launakjörum á íslandi og þessum
löndum sé meiri í ýmsum öðrum
starfsgreinum.
t skýrslunni er selormsvanda-
málið sagt vera meginskýringin á
mismun launa og afkasta á tslandi
annars vegar og í Danmörku og
Noregi hins vegar. En ýmis önnur
atriði eru einnig nefnd:
1) Meðalverð á þorski er 10-20%
hærra í Noregi og Danmörku
en á tslandi.
2) Launakerfi eru mun einfaldari
í allri uppbyggingu og fram-
kvæmd þar en hér.
3) Meiri áhersla er lögð á afköst
í snyrtingu í Noregi og Dan-
mörku en á tslandi, en minni
borðanýtingu, og kemur það
m.a. fram í uppbyggingu
launakerfanna. Hátt verð fæst
fyrir vörur sem framleiddar
eru úr marningi.
4) Vinnutilhögun og vélvæðing
við pökkun er viða fullkonmari
en hérálandi.
5) Fyrirtækin úti leggja meiri
áherslu á smásölupakkningar
engerter hérlendis.
6) Blokk er mikið seld til Evr-
ópulanda þar sem minni kröf-
ur virðast gerðar til vöruvönd-
unar en í Bandaríkjunum.
7) Nánari tengsl virðast vera
milli fiskvinnslufyrirtækja og
markaðaerlendis.
8) t fyrirtækjum í Danmörku er
ein og sama fisktegundin,
jafnvel af sömu stærð, oft
unnin vikum saman.
9) Tvífrystingu er beitt þar sem
hún þykir henta.
10) Verkkennsla og verkþjálfun er
á hærra stigi þar en hér. í
Danmörku er verkkunnátta
skilyrði fyrir ráðningu.
11) Vinnuskilyrði og búningsað-
staða starfsfólks er yfirleitt
mjög góð ytra, sérstaklega í
Danmörku.
12) I Danmörku er heimilt að
senda starfsfólk í fiskvinnslu
heim vegna hráefnisleysis án
fyrirvara hafi það unnið fjórar
klukkustundir þann daginn, og
í Noregi með þriggja daga
fyrirvara.
Guðmundur ' Guðmundsson,
sparisjóðsstjóri í Hafnarfirði,
lést á Borgarspítalanum í gær
71 árs að aldri. Hann var fæddur
í Hafnarfirði 2. desember 1914,
sonur hjónanna Guðmundar
Jóns Guðmundssonar og Vil-
borgar Þorvaldsdóttur. Eftirlif-
andi eiginkona Guðmundar er
Elísabet Vilhelmína Magnús-
dóttir og áttu þau þrjú börn.
Guðmundur var verzlunar-
stjóri við Verzlun Þorvaldar
Bjarnasonar í Hafnarfirði
1934—46 og síðan framkvæmda-
stjóri við Fiskveiðafélagið Stefni
og skrifstofustjóri hjá Jóni
Gíslasyni í Hafnarfirði til ársins
1958. Hann var framkvæmda-
stjóri Lýsis og Mjöls hf. í Hafnar-
firði frá ársbyrjun 1959 til ársins
1967. Frá 1. janúar 1969 til
dauðadags var hann sparisjóðs-
stjóri við Sparisjóð Hafnarfjarð-
ar.
Guðmundur tók mikinn þátt í
störfum Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði. Hann sat í bæjar-
stjórri þar frá 1970—1982, sat í
útgerðarráði Bæjarútgerðar
Útvarpsráðsfundur:
„Flokka þessi vinnu-
brögð sem siðleysi"
Hafnarfjarðar 1970—78, þar af
sem formaður 1974—78.
Guðmundur var í stjórn Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar frá 1967 og
í stjórn Sambands ísl. sparisjóða
frá 1975, þar af sem formaður
1975-77. ■,:)l <) lliDi .
— segir í bókun Magnúsar Erlendssonar
um bókakynningu í fréttatíma sjónvarps
Á FUNDI útvarpsráðs í gær lagði Magnús Erlendsson fram svohljóðandi
bókun: „Ég leyfi mér að lýsa yfir vanþóknun á þeirri misnotkun á Ríkisút-
varpinu, þegar þrír núverandi og fyrrverandi starfsmenn stofnunarinnar, fá
fría kynningu í aðalfréttatíma sjónvarpsins á nýjum bókum sínum, á sama
tíma og aðrir, bókaútgefendur sem höfundar, verða að greiða sjónvarpinu
tugi þúsunda í auglýsingagjöld.
Með fullri virðingu fyrir þeim sem hér eiga hlut að máli, leyfi ég mér
að flokka þessi vinnubrögð sem siðleysi.“
Bókun Magnúsar er i beinu
framhaldi þeirrar umræðu sem
átti sér stað á útvarpsráðsfundi
þann 6. desember, í kjölfar fyrir-
spurnar Magnúsar, þar sem ráðs-
menn töldu að aðeins ætti að geta
allra merkustu bókmenntaverka í
fréttatíma. Fyrirspurn Magnúsar
á þeim fundi um það hvernig hátt-
að væri mati á bókakynningum í
fréttum sjónvarpsins. Magnús
gerði bókafréttir sjónvarps að
umræðuefni vegna sjónvarpsfrétta
af bókum þeirra séra Emils
Björnssonar, fyrrverandi frétta-
stofustjóra Sjónvarps, Andrésar
Björnssonar, fyrrverandi útvarps-
stjóra og Jóns Múla Árnasonar,
þular útvarps.
Á fundinum í gær var jafnframt
rætt um þá afstöðu Ingva Hrafns
Jónssonar fréttastofustjóra Sjón-
varps um að neita að verða við
tilmælum ráðsins um að biðja
Agnar Friðriksson afsökunar.
Varð niðurstaða þeirrar umræðu,
samkvæmt upplýsingum Ingu
Jónu Þórðardóttur, formanns út-
varpsráðs, að bíða úrskurðar siða-
nefndar Blaðamannafélags í8-
lands, sem Markús Örn Antonsson
útvarpsstjóri hefur óskað eftir í
þessu máli.